Réttur


Réttur - 01.01.1976, Blaðsíða 24

Réttur - 01.01.1976, Blaðsíða 24
Ég held að í þessum efnum verði að skoða upphafið og veikleikinn er þá sá, að verka- lýðshreyfingin er pólitískt ekki á sama máli, menn eru klofnir þar eftir svipuðum línum eins og þjóðinni er skipt. Réttur: Það er einmitt þetta sem bent hef- ur verið á í þessu sambandi þegar við vorum að tala um nánast uppeidisstarf í nreyfing- unni, að málin þyrfti að setja í pólitískt sam- hengi. Það þyrfti að fara fram félagsleg um- ræða, en ekki bara fjalla um hin hörðu verk- efni líðandi stundar. Björn: Aðstæðurnar marka auðvitað að miklu leyti verkefnaval okkar, en viö erum alltaf að einhverju leyti sjálfráðir um það hvaða verkefni við viljum láta sitja fyrir. Aðalheiður: Vinstri flokkarnir eða verka- lýðsflokkarnir, ég held ég haldi mér við síð- ara orðið; ég get ekki talið Framsóknarflokk- inn vinstri flokk, því hann er í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum. Varðandi þetta, þá er rétt að þjóðfélagið er svona saman sett, en þessi samvinna er hættuleg fyrir verkalýðs- hreyfinguna, en ég er ekki viss um að það sé hægt að komast hjá þessu. Sigurður: Fyrir nokkrum árum var barist mikið í einstökum verkalýðsfélögum milli þessara pólitísku hópa og eins á ASI-þingum. Nú gerist það ekki meira. Menn hafa tekið það gott og gilt, að verkalýðshreyfingin sé pólitískt uppskipt og menn skuli ganga út frá því þegar kosið er í valdastofnanir. Eg tel þetta óskaplega hættulegt, þetta er hvað hættulegast fyrir hinn framsæknari hluta verkalýðshreyfingarinnar. Björn orðaði það réttilega áðan, að á fyrstu árum hreyfingar- innar hafi hún verið samofin sósíalískri vit- und, vitund sem óx upp samhliða hinni fag- legu baráttu. Þetta er engin tilviljun. Ef við erum sammála um að það skorti hugsjóna- eldinn í baráttuna í dag, bræðralagshugsjón- ina og meiri áherslu á framtíðarmarkmið, — þá eigum við líka að vera sammála um að sósíalískri vitund fer hnignandi. I Ijósi þessa verðum við að skoða starf okkar í dag innan verkalýðshreyfingarinnar. I miðstjórn ASI sitja ólíkir menn, sem virðast hafa einsett sér að leysa öll vandamál án ágreinings. Ég minnist þess ekki að það hafi komið tvö mis- munandi álit frá miðstjórn um nokkurt mál. Þetta gengur ekki til lengdar. Réttur: Það kemur þó fyrir, t.d. í ríkisverk- smiðjudeilunni. Sigurður: Þetta dæmi er alger undantekn- ing. Það segir sig sjálft að það hlýtur að verða eins og ég nefndi, því að ef menn ætla að starfa saman með svona ólík pólitísk sjón- armið, þá verða þeir að slíðra vopnin. Það er hættulegt til lengdar fyrir hinn framsækna hóp að slíðra vopn sín í þessum efnum, því það er jú hans hlutverk að brjóta niður og byggja á ný. Hinir ætla sér mun minna í þeim efnum, þeir gera sér ekki grein fyrir eðli þjóðfélagsgerðarinnar. Þeir eru sammála þjóðskipulaginu og ætla sér ekki að breyta eignahlutföllunum í þjóðfélaginu í grund- vallaratriðum. Ef hinn framsækni hluti starf- ar árum saman með slíkum mönnum án þess að gera ágreining í veigamiklum atriðum um stefnumörkun, þá hljóta að felast í því miklar hættur fyrir framþróun og róttækni verka- lýðshreyfingarinnar. Þetta er býsna stórt mál og ég held að það sé mjög miður farið, hve lítil átök eru í ein- stökum verkalýðsfélögum, framboð og annað þess háttar. Það má eflaust of mikið af slíku gera, en það er óeðlilegt þegar líöa áratugir, án þess að það komi mótframboði í verkalýðs- félögum, þar sem íhaidsmenn hafa forystu. Það er jafnvel reynt að fá menn ofan af að bjóða fram í slíkum félögum. Ég vil trúa því, sem Björn sagði hér, að hann vænti þess að 24
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.