Réttur


Réttur - 01.01.1976, Page 32

Réttur - 01.01.1976, Page 32
eru einmitt konurnar með lágu launin sem eru einu fyrirvinnurnar. Svo komum við að ellilífeyrisþegunum með 30.000 krónur á mánuði. Allt þetta fólk virðist pressast und- ir. Af hverju er þetta svona og hvað getur verkalýðshreyfingin gert til að breyta þessu? Aðalheiður: Það fyrsta er auðvitað að hækka kaupið. Hækka upp í það að hægt sé að lifa af því .... Réttur: Hvað er það mikið kaup? Aðalheiður: Eg er nú ekki viss um að ég sé með það alveg hreint á takteinum en mér þykir ákaflega ótrúlegt að það sé hægt að halda heimili gangandi fyrir minnaen 75.000 krónur á mánuði. Eg treysti mér ekki til þess. Nú og í sambandi við aldraða að þá verða iífeyrissjóðirnir að reyna að borga sómasam- legan lífeyri. Guðmundur: Margt aldraða fólkið er í al- geru svartnætti í lífskjörum. Þú þekkir þetta í gegnum þitt starf. Aðalheiður: Já, ég álít að það sé nokkuð stór hópur, en það er líka talsvert um hitt að þetta fólk eigi íbúðir skuldlausar og geti þannig betur bjargast. En hinn hópurinn er alltof stór. Rétur: En hvað á að gera? Aðalheiður: Það versta eru kjörin hjá gamla fólkinu sem býr í leiguhúsnæði. Það er í alörgusm hjöllunum. Þetta fólk kann ekki að kvarta og það er bókstaflega alveg ömurlegt að sjá hvað þeir sem eiga þessa hjalla notfæra sér að það kvartar ekki yfir aðbúnaðinum. Hitt er annað mál, að kvarti stúlkurnar sem fara á þessa staði við félags- málastofnunina er hún fljót að laga það til. Sigurður: Aðalheiður segir að fólk kvart- aði ekki nóg. Eg held að þetta iiggi töluvert í því að þarna er ekki um harða þrýstihópa að ræða og fólkið sættir sig jafnvel við þessi kjör sín. Ég held að það eigi við að glíma sumpart svipuð vandamál og verkalýðshreyf- ingin í árdaga; þá varð að hvetja fólk til þess að nýta rétt sinn og ég held að það sé ekki gert nægilega mikið að því að benda þessu fólki á hvaða rétt það á. Þetta eru líka ekki f jölmennir hópar sem aftur gerir það að verk- um að ýmsir pólitískir aðilar hafa minni áhuga á að sinna þessu fóiki, það gleymist í þessu spili í átökunum um atkvæðin og fylgið. Réttur: Skortir ekki á það að verkalýðs- hreyfingin taki nægilega á þessu vandamáli utangarðsfólksins og að hún líti ekki á sig sem þrýstihópinn sem þarf að knýja á um breytingar þessu fólki í hag? Og það er kannski stærra mál, en stundum er verka- lýðshreyfingin með kröfur um skattalækkun, en þær kalla þá á aukinn niðurskurð og mið- að við þá efnahagsstjórn sem við höfum í dag þá yrði sá niðurskurður fyrst og fremst gagnvart þeim, sem hafa minnsta möguleik- ana til að svara honum. Björn: Við erum að ræða hér um tvennt: Annars vegar hagsmuni gamla fólksins, og kannski sérstaklega þeirra, sem eiga engan að, og hins vegar láglaunahópsins. Það má vel vera rétt að verkalýðshreyfingin beiti sér ekki nægilega fyrir hagsmunum gamla fólks- ins, en ég vil benda á það, að ég álít að það raunhæfasta sem hafi verið gert í hagsmuna- málum þess hafi verið þegar lífeyrissjóðirnir voru myndaðir með samningum verkalýðs- hreyfingarinnar 1969- Hitt er svo annað mál að þróunin í verðlagsmálum, verðbólgan, hefur ætt svoleiðis áfram síðan að sjóðirnir ná ekki tilgangi sínum og að það verða hrein- ir smámuni sem koma í hlut gamla fólksins. En meiningin með stofnun almennra lífeyris- sjóða var auðvitað sú að þeir gætu greitt eldra fólkinu sómasamlegan lífeyri þegar það er hætt að starfa. Eg held að það sé kannski eitt af stærsm málunum okkar núna, og að því verður áreiðanlega unnið í þeim kjara- 32

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.