Réttur


Réttur - 01.01.1976, Page 39

Réttur - 01.01.1976, Page 39
Nú er ég ekki að segja þar með að rama- kveinin séu réttmæt, langt frá því. A það verðum við að leggja okkar sjálfstæða mat hversu afkoman er en það fer ekki hjá því, þegar svona miklar sveiflur verða á okkar mörkuðum, að þess sjái stað í atvinnurekstr- inum. Þjóðartekjur hafa minnkað um 9— 10%. Það er út af fyrir sig staðreynd, sem við getum ekki mælt á móti, og þó við við- urkennum kannski, að þetta gæti komið fram í lífskjörum að einhverju leyti, þá hefur það hinsvegar gerst, að kjaraskerðingin hefur orðið miklu meiri en nemur þessari minnk- un þjóðartekna. Guðmundur: I sambandi við áróður ríkis- valdsins, hvað þetta sé mikið, verðum við náttúrlega að varast að gleypa það allt saman. Það er hægt að leika sér að tölum o. s. frv., en í sambandi við það sem Sigurður minnt- ist á; þetta er sjálfsagt athyglisvert að verka- lýðshreyfingin athugi þessi mál með þátttöku fyrirtækja, en við skulum aðeins athuga okk- ar gang í því. Það er mjög auðvelt að stjórna þjóðfélaginu þannig, að í sjávarútvegi sé sára- lítill gróði. Það getur verið og er á valdi stjórnar með hagkvæmum ráðum, hvar gróðamismunur verður.En segjum bara, að verkalýðshreyfingin gerðist þáttakandi í fyrir- tækjum sjávarútvegsins. Fyrstu viðbrögð stjórnar væru, að láta gróðann koma fram á öðrum sviðum en þeim sem við réðum og þess háttar, svo alls konar mótleikir væru til við þessari aðgerð, þó hún sé athyglis- verð. Það getur meira að segja orðið beint hagsmunamál ríkisvaldsins, að fá verkalýðs- hreyfinguna sem aðila í ákveðna grein, en það getur síðan tryggt, að greinin sé í núll- inu. Sigurður: Það er gott og vel, sem Björn segir, og ég hef oft heyrt það áður, það er ekkert nýtt fyrir mér. Að markinu ætti að stefna. Þetta gerist náttúrlega á löngum tíma, og það þarf að búa til stefnuskrá og það þarf að finna út, hvernig menn ætla að gera þetta, eftir hvaða leið og hvort um fleiri en eina leið geti verið að ræða. Ég er ansi hræddur um, Alþýðusambandið og verkalýðs- félögin yfirleitt hafi ekki raunverulega lagt þetta niður fyrir sér. Það sé meira og minna óunnið. En það þarf að móta almennings- álitið. Guðmundur: Það er nokkuð almenn kenn- ing á Norðurlöndum, að ein af orsökum fyr- ir því, hvað Svíþjóð stendur miklu betur en aðrar þjóðir sé ekki eingöngu auðæfi Svíþjóð- ar, heldur hvað þeir hafa verið miklu mark- vissari og liprari í fjárfestingum en við. Hjá okkur er engin heildarstjórn; það eru byggð 2 frystihús í viðbót þar sem eitt er fyrir, en hafði þó ekki nægjanlegt verkefni fyrir. Fé er hiklaust ausið í nýju húsin en svo kemur að því, að ekkert þeirra ber sig. Fjárfestingin hér er sennilega ómarkvissari en dæmi eru til um, nema ef vera skyldi í Ungverjalandi fram til ársins 1956 þar sem ódýrara var að kaupa stál frá Bandaríkjunum pakkað inn í silkipappír en að vinna það heima. Sigurður: En þetta verður ekki lagað nema með félagslegri stjórnun af einhverju tagi. Reynslan okkar af samvinnufélaginu er mjög góð. Þarna er algjört atvinnulýðræði á vinnustaðnum, og menn taka allar ákvarð- anir saman, það er algjörlega jöfn skipting á tekjum hvað sem menn gera og semsagt algert jafnræði um stjórnun og skiptingu verðmæta. Enginn af þessum mönnum gæti hugsað sér að vinna annars staðar, eftir að hafa kynnst þeim aðferðum sem viðhafðar eru í samvinnufélaginu. Einkarekstur er studdur af almannafé til að stunda arðráns- iðju sína á verkafólki. Það er verkafólkið sjálft sem fjármagnar plóginn sem það dreg- ur. 39

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.