Réttur - 01.01.1976, Blaðsíða 59
CHOU-
EN-LAI
(1898 - 8. janúar 1976)
„Austrið og Vestrið geta aldrei mætst",
reit einn helsti rithöfundur heimsvaldastefnu
Englands forðum, þegar siðlaust auðvald
Vesturlanda gat enn svínbeygt forn menning-
arríki Austursins í krafti drápsvéla sinna.
Ef til vill hefur Austrið og Vestrið aldrei
sameinast bemr í einni persónu en í einhverj-
um fullkomnasta stjórnmálamanni þessarar
aldar:
Chou-En-lai sameinaði í sér forna hámenn-
ingu Kínverja, þar sem siðfágunin er runnin
manni í merg og bein, og vonbjartasta boð-
skap vestrænnar menningar: vísindi marxism-
ans. Þessi samruni skóp svo töfrandi mennta-
mann, að vart getur annan slíkan, og svo
vitran, tryggan og staðfastan forvígis- og bar-
átmmann sósíalismans, að ekki einu sinni
æðsm völd í fjölmennasta ríki veraldar um
aldarfjórðungs skeið stigu honum til höfuðs.
Chou-En-lai var fæddur 1898, foreldrarnir
voru háttsettir embættismenn, hlýtur góða
menntun, rís upp ásamt fleirum gegn kúgun
og auðmýkingu þjóðar sinnar, er setmr í
fangelsi 1919 í Tientsin eitt ár. Þar kynnist
hann konu þeirri, er síðar verður eiginkona
hans alla ævi og lifir hann nú, Teng Ying-
Chao.
Þegar Chou losnar úr fangelsi 1920, fer
hann til Parísar. Þar stofnar hann deild úr
Kommúnistaflokki Kína samtímis stofnun
flokksins í Kína 1. júlí 1921. Meðal félaga
Chou’s í Frakklandi er þá Ho-Chi-Minh.
1922 fer Chou eftir stutta dvöl í Englandi
til Berlínar, sem þá er mikill miðdepill
kommúnistísku hreyfingarinnar. (Chou er
jafngamall Brynjólfi Bjarnasyni, vorum við
íslensku félagarnir þá samtímis Chou í Berlín
án þess að kynnast persónulega í það skiptið).
Sýnir hann þá þegar „diplomatiska" hæfi-
leika sína, er hann tekur Chu-Te í flokkinn
í okt. 1922, en honum hafði verið neitað um
inngöngu í hann í Kína, en verður síðar
59