Réttur - 01.04.1987, Page 17
■ir^Tiniii
Félagsheimilið og hluti af bæjarlífinu.
um þátttakendur í þeirri stjórn. Þá voru
boðaðar miklar framkvæmdir og mikil
uppbygging.
Við sósíalistar í Neskaupstað fylgdum
þeim uppbyggingarboðskap af miklum
áhuga. Við ákváðum að koma á fót tog-
araútgerð og kaupa tvo nýsköpunartogara.
Við hófumst handa um að byggja nýtísku
fiskvinnslustöð þ.e.a.s. frystihús með
góðri aðstöðu til fjölþættrar fiskvinnslu.
Við byggðum verkamannabústaði, hóf-
um hafnarframkvæmdir og ákváðum að
koma upp myndarlegu sjúkrahúsi á veg-
um bæjarins.
Það var vissulega framfara og uppbygg-
ingarhugur í Norðfirðingum á þessum
árum.
Kosningasigurinn í bæjarstjórnarkosn-
ingunum í janúar 1946 var í beinu fram-
haldi af starfi okkar sósíalista í málefnum
bæjarbúa á þessum tíma, og kosninga-
stefnuskrá okkar boðaði framhald þessar-
ar uppbyggingarstefnu.
Reynt með öllum ráðum að fella
meirihluta sósíalista
Það leyndi sér ekki að reynt var með
ýmsum hætti að koma í veg fyrir áfram-
haldandi völd sósíalista í Neskaupstað.
Fulltrúar hinna flokkanna, Alþýðuflokks,
Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks,
voru ekki ánægðir með þessa þróun. Þeir
töldu sig, í gegnum stjórnvöld, með valda-
aðstöðu í bönkum og flestum valdastofn-
65