Réttur - 01.10.1987, Síða 4
Brímöldur
Frásögn Haralds Ólafssonar sjómanns.
Á fyrstu áratugum þessarar aldar yfirgáfu
margir átthaga sína og héldu til útgerðar-
baejanna í von um atvinnu og baett Kjör.
Einn þessara var Haraldur Ólafsson. Hann
ólst upp austur i Ölfusi en fór ungur á sjóinn,
fyrst sem útróðrarmaður í Þorlákshöfn.
Síðan var hann til sjós um neerri sex áratuga
skeið á árunum mílli 1920 og 1980, fyrst á
árabátum, svo á skútum og siðar á togurum,
lengst af á Baldri og Helgafelli. Á þessum
tima urðu verulegar breytingar á öllum
atvinnu- og lifnaðarháttum þjóðarínnar,
eínkum skipti mjög um upp úr striðslokum.
Haraldur rekur hér sögu sína sem auk
þess að vera skemmtileg aevisaga er merk
heímild um atvinnulíf og sjávarútveg og kjör
sjómanna á kreppu- og strfðstimum. Bókin
geymir margar eftirminnilegar frásagnir af
sjávarháska og baráttu sjómanna fyrir
baettum kjörum, en ekki sfst af lífínu um
borð, mannskapnum, andanum sem ríkti og
vinnubrögðunum. Jón Guðnason sagnfreeð-
ingur skráði frásögn Haralds. Fjöldi mynda
er í bókinni sem er 252 bls. að stærð.
Verð: 2.390,-
Mál og menning lEEð