Réttur


Réttur - 01.04.1988, Blaðsíða 1

Réttur - 01.04.1988, Blaðsíða 1
léttur 71. árgangur 1988-2. hefti Mannkyn allt lifir nú örlagaríkustu tíma frá upphafi vega. Hver þjóð þarf að vita að yfir henni vofir tortíming og gera sér grein fyrir því hvort hún geti forðast hans. I. Fáir íslendingar sáu þessa hættu, er öldin tuttugasta hóf göngu sína. En einn af hcnnar fræknustu og voldugustu sonum sá hver hætta var þjóð hans búin og varaði hana við. Það var Hannes Hafstein í aldamótaljóðum sínum árið 1900. Viðvörunin sí- gilda hljóðaði svo: „íslenskir menn! Hvað öldin ber í skildi enginn fær séð, hve feginn sem hann vildi. En eitt er víst, hún geymir her og hildi. Hlífi þér ættjörð, Guð í sinni mildi. “ Hinn trúaði maður treysti á guð til hjálpar. Hann var óviss í hvað þjóðin megnaði sjálf, enda máske við ofurefli að etja fyrir smáþjóð á tímum voldugra stór- velda, er skipt höfðu allri jörðinni milli sín í nýlendur sínar í krafti ægilegs vopna- valds. II. Aðvörun Hannesar Hafsteins uni „hel og hildi" rættist ægilega strax á fyrri hluta aldarinnar. Tvö heimsstríð urðu yfir 50 milljónuni manna að bana og gereyddu mannahyggð hjá niörgum þjóöum. Og auk þess voru háð mörg smærri stríð með ægilegum afleiðingiim fyrir þátttakendur. Síðari heimsstyrjöldinni lauk 1945 nokkru eftir að Bandaríkin vörpuðu kjarnorkusprengjum á Hiroshima og Nagasaki og drápu í einu vetfangi fleiri menn, konur og börn en þá byggðu ísland. Hinir skynsömustu menn sáu hættuna. A síðasta fundi bandarísku ríkisstjórnar- innar er Stimson hermálaráðherra sat, lagði hann til að nú léti stjórnin banda- mönnum sínum, Sovétstjórninni, leynd- ardóma sprengjunnar geigvænlegu í té og semdi við hana um að hvorugt stórveldið framleiddi þessar sprengjur. Það var meirihluti á fundinum með þessari tillögu — og með samþykkt hennar hefði mann- kyninu verið bjargað frá þeirri tortím- ingu, er nú vofir yfir. 49

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.