Réttur


Réttur - 01.10.1988, Síða 1

Réttur - 01.10.1988, Síða 1
INGIBJORG HARALDSDÓTTIR: imr 71. árgangur 1988 — 4. hefti Kúbanska byltingin í 30 ár Þetta hefti Réttar er að mestu leyti helgað Kúbu. Höfundar þessa Kúbuefnis eiga það sameiginlegt að vera félagar í VIK, Vináttufélagi íslands og Kúbu, og hafa dvalist á Kúbu í lengri eða skemmri tíma. Nú um áramótin verða liðin 30 ár frá heim merku tímamótum í sögunni er fulgencio Batista, gjörspilltur einræðis- herra á Kúbu, flúði land og við völdum á cynni tóku skeggjaðir byltingarmenn undir forystu Fidcls Castro. Fyrsta janúar 1959 vöknuðu eyjaskeggjar tii nýs lífs, ef svo má að orði komast. I bókinni „Bylt- ingin á Kúbu“ lýsir Magnús Kjartansson þessum atburðum m.a. á þessa leið: „Flinir skeggjuðu uppreisnarmenn hófu nú sigurgöngu sína um eyjuna a!Ia og þjóðin var gagntekin gleðivímu. Fidel Castro fór sér að engu óðslega; það var ekki fyrr en 8. janúar að hann hélt innreið sína í Flavana þar sem meira en milljón manna flykktist um göturnar til þess að sjá þennan ævintýralega leiðtoga sem allir höfðu heyrt en fáir séð.“ 30 ár eru að vísu ekki langur tími í sögu þjóðar, en á Kúbu hafa þau nægt til að gjörbylta þjóðfélaginu svo að aldrei verð- ur aftur snúið til þess ömurlega veruleika sem gerði byltinguna að knýjandi nauð- syn. Engum dcttur í hug, síst af öllum Kúbumönnum sjálfum, að það þjóðfélag sem nú er við lýði á Kúbu sé fullkomið og öll vandamál hafi verið leyst þar í eitt skipti fyrir öll. Hitt getur engunt dulist sem sækir eyjuna heim að þar vinnur fólk hörðum höndum að því að skapa sér og börnum sínum mannsæmandi lífskjör. Hvergi í þriðja heiminum býr almenning- ur við betra heilbrigðis- og skólakerfi en á Kúbu, hvergi í þriðja heiminum hefur tekist með jafnmiklum ágætum að útrýma landlæguni plágum á borð við ólæsi, at- vinnuleysi, hungur og mannskæða sjúk- dóma. Reyndar geta Kúbumenn ósmeyk- ir borið sig saman við þróuð iðnríki á ýmsum sviðurn heilbrigðis- og mennta- mála, ungbarnadauði og ólæsi eru til að mynda mun algengari í Bandaríkjunum en á Kúbu. Það gefur auga leið að byltingin á Kúbu hefur vakið vonir meðal snauðra og kúg- aðra um heim allan, ekki síst í löndum Mið- og Suður-Ameríku, þar sem Banda- ríkjamenn eiga mikilla hagsmuna að gæta, einsog sagt er. Þessvegna hafa þeir seni með völdin hafa farið í Washington í þessi þrjátíu ár kappkostað að ófrægja byltinguna og reyna að kollvarpa henni. Fað síðarnefnda hefur sem betur fer ekki tekist, en ófrægingarherferðin gegn Kúbu hefur án efa borið umtalsverðan árangur. 145

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.