Réttur - 01.08.1989, Blaðsíða 48
Borgarhverfi í Katutura, úthverfi Windhoek höfuðborgar Namihíu.
tölur eru frá stofnunum Sameinuðu þjóð-
anna, deyja 120.000 börn í þriðja heimin-
um sem hægt hefði verið að hjarga. Á
þremur dögum deyja jafnmörg börn und-
ir fimm ára aldri og létu lífið af völdum
annarrar sprengjunnar sem varpað var á
Hiroshima og Nagasaki, einungis börn
undir fimm ára aldri. Aðrir deyja síðar
eða upplifa hræðilegar afleiðingar van-
næringar og hungurs, sem styttir ekki
bara lífið heldur skaðar andlegan og lík-
amlegan þroska tugmilljóna manna.
Þetta eru fórnarlömb einhvers enn verra
en tollurinn af geislavirka úrfellinu í Hir-
oshima og Nagasaki.
Eg er einungis að tala um börnin. Ef
við bætum við fullorðnu fólki í þessum
löndum, þar sem meðalaldur er helmingi
lægri en í ríku löndunum, kemur í ljós að
jafnmargir eða fleiri deyja á ári hverju en
þeir sem létu lífið í fyrri heimsstyrjöld-
inni.
Enn einu má bæta við: Jafnmargir
deyja árlega í þriðja heiminum vegna
síðnýlendustefnu, vegna ójafnra við- y
skiptahátta og fátæktar, vegna þess að í
heiminum ríkja ósanngjörn sambönd,
vegna stcfnu heimsvaldasinna, — jafn-
margir og þeir sem voru drepnir í seinni
heimsstyrjöldinni.
Þess vegna ræði ég um tvenns konar
lífsafkomu og tvenns konar frið. Svo
lengi sem óréttlæti ríkir í heiminum, svo
lengi sem síðnýlendustefna og kúgun
heimsvaldastefnunnar heldur velli, eru
tvenns konar leiðir til þess að lil'a af og
tvenns konar friður. Auk þess tvenns
konar skilningur á því að lil'a af og tvenns
konar skilningur á friði: Hinn sósíalíski
skilningur og hinn heimsvaldasinnaði v
skilningur.
GylJ'i Páll Hersir þýddi úr bókinni: Fidel
Castro: ln Defence of Socialism. Four Speeches
on the 30th Anniversary of tlie Cuban Revolu-
tion. Pathfinder Press, 1989.
144