Fréttablaðið - 17.03.2009, Blaðsíða 16
Japanir hafa ávallt verið hrifnir af vélmennum. Nýjustu
fréttir herma að kennarar verði brátt úreltir og vélmenni
komi í þeirra stað. Nú eru fyrirsætur í hættu því á mánu-
daginn var kynnt til leiks nýtt fyrirsætuvélmenni sem mun
trampa fram sýningarpalla í Tókýó hinn 23. mars næst-
komandi.
Vélknúna stúlkan er ósköp sæt, með stór augu, lítið nef
og axlasítt hár. Hún er búin tækni sem gerir henni kleift
að herma eftir hreyfingum annarra fyrirsætna af holdi og
blóði.
„Halló allir, ég er Cybernetic human HRP-4C.“ Þannig
kynnti hin krúttlega vélstúlka sig á blaðamannafundi sem
haldin var rétt fyrir utan Tókýó. Stúlkan er 158 cm há sem
er mjög algeng stærð í Japan en vegur aðeins 43 kíló með
batteríum. Stúlkan skemmti áhorfendum vel með því að
stilla sér upp í ýmsar þekktar tískustellingar og með því að
brosa til viðstaddra. Líkt og stöllur hennar í sama bransa
krefst vélstúlkan hárra upphæða fyrir þjónustu sína en
þróun vélmennisins kostaði um tvær milljónir dollara.
STÓRIR EYRNALOKKAR eru aftur komnir á lista yfir eftirsóknarverða fylgihluti.
Þeir mega vera stórir, áberandi og litríkir eins og kom fram á tískusýningu Zac Posens á
dögunum. Þá mátti einnig sjá leikkonur á borð við Kate Winslet og Angelinu Jolie með
þunga og mikla eyrnalokka á Óskarsverðlaunahátíðinni.
Þá er útsölunum víðast hvar lokið
og þótt þær standi ávallt fyrir sínu
er gaman að taka hring í búðun-
um að þeim loknum, enda fyllast
þær jafnan af nýjum og ferskum
vörum fyrir vorið.
Slárnar eru nú þaktar ljósum
klæðum og víða má sjá munstur
og blóm. Blái liturinn er áberandi
og hlébarðamunstur leynast hér
og hvar. vera@frettabladid.is
Fyrirsætuvélmenni
Litríkir vorboðar
Ljósar kápur og litrík plögg eru árlegir vorboðar sem nú má sjá á hverju
strái. Blái liturinn er áberandi og víða má sjá munstur og blóm.
Blái liturinn er
áberandi. Warehouse.
Verð: 14.990 krónur.
Fjólublátt og
hressandi. Vila. Verð:
8.900 krónur.
Kremuð silkiskyrta með
rósum sem auðvelt er
að falla fyrir. Vila. Verð:
6.990 krónur.
Golla sem
sker sig úr.
Ware-
house.
Verð:
12.990
krónur.
Sannkölluð vor-
kápa. Vila. Verð:
13.900 krónur.
SÚKKULAÐIVAX
HAFRAVAX
SÚKKULAÐISTRIMLAR
F. ANDLIT OG LÍKAMA
ATH. Súkkulaðivax hentar vel fyrir viðkvæma líkamshluta
ÚTSÖLUSTAÐIR: Apótek og snyrtivöruverslanir
Háreyðingavax sem hægt er að hita í örbylgjuofni
og einnig vaxstrimlar