Fréttablaðið - 24.03.2009, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 24.03.2009, Blaðsíða 6
6 24. mars 2009 ÞRIÐJUDAGUR ALÞINGI Það voru mistök að heim- ila sparisjóðunum að verða hluta- félög. Þetta er mat Gylfa Magnús- sonar viðskiptaráðherra. „Það er einfaldlega hægt að draga þá ályktun af því sem gerst hefur undanfarin misseri að hluta- félagavæðing sparisjóðanna var mjög misráðin,“ sagði Gylfi þegar hann flutti í gær Alþingi skýrslu um yfirtöku stjórnvalda á Spron og Sparisjóðabankanum. Spron, sem var breytt í hlutafélag sumarið 2007, laut einn sparisjóða lögmálum hlutafélaga. Aðrir spari- sjóðir bjuggu við stofnfjárkerfi. Innan Byrs og Sparisjóðs Kefla- víkur höfðu þó verið stigin skref í átt til hlutafélagavæðingar. Gylfi Magnússon upplýsti þingið í gær um framtíðarsýn sína fyrir sparisjóðakerfið. Sagðist hann vilja sjá staðbundna sparisjóði sem þjóni einstaklingum og smærri fyrir- tækjum. Ættu þeir að vera held- ur íhaldssamar fjármálastofnanir og ekki í starfsemi á borð við fjár- festingarbankastarfsemi. Þá sagði Gylfi að standa ætti vörð um stofn- fjárkerfi sparisjóðanna, ekki síst í ljósi reynslunnar. Sá munur er meðal annars á stofnbréfum og hlutabréfum að stofnbréf má ekki selja nema með heimild sparisjóðsins sjálfs og stofnfjáreign vex ekki með hugsanlegum vexti sparisjóðsins. Forsvarsmenn sparisjóðanna sem eftir standa munu funda með viðskiptaráðherra í vikunni og ræða frekar framtíðarskipulag starfseminnar. - bþs Viðskiptaráðherra segir vert að standa vörð um stofnfjárkerfi sparisjóðanna: Háeffun SPRON var misráðin GYLFI MAGNÚSSON viðskiptaráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR LONDON, AP Lundúnalögreglan býr sig nú undir mikil mótmæli og hugsanlegar óeirðir í næstu viku þegar leiðtogar tuttugu helstu iðnríkja heims hittast í London. Þar á meðal verður forseti Banda- ríkjanna, Barack Obama. Lögregla mun í varnaðarskyni loka vegum og neðanjarðarlestar- stöðvum. Þá hefur þeim sem starfa í fjármálageiranum verið ráðlagt að klæða sig frjálslega 2. apríl þegar fundurinn fer fram. Áætlað er að mótmælin muni kosta London um fimm milljónir punda á dag og telur lögreglan að ætlan mótmælenda verði að loka fjármálahverfinu í London. - ss Lundúnalögreglan: Býr sig undir óeirðir í apríl SJÁVARÚTVEGUR Fiskvinnslu- fyrirtækið Ferskvinnslan í Hafnarfirði opnar útibú í Súða- vík í næsta mánuði. Tólf vinna hjá fyrirtækinu í Hafnarfirði en fimm til sex þar að auki munu starfa fyrir vestan þegar starf- semin verður komin á fullt. „Við höfum verið að kaupa mikið af fiski frá fyrirtækinu Sumarbyggð í Súðavík og öðrum þarna fyrir vestan og í stað þess að vera að flytja allt suður er skynsamlegra að vinna hann bara þar,“ segir Gunnar Bjarki Finnbogason, annar eigenda Ferskvinnslunnar. Hann segir vel koma til greina að opna útibú annars staðar á landinu skapist tækifæri til þess. - jse Opnar útibú í Súðavík: Í útrás vestur HJÓNIN HERJA VESTUR Gréta Hrund Grétarsdóttir og Gunnar Bjarki, eigendur Ferskvinnslunnar, opna útibú í Súðavík. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐ Nýir tímar kalla á nýja sýn - gagnrýna hugsun, sköpunarkraft og samskiptaleikni. Það er einmitt þetta sem starfsemi Háskólans í Reykjavík grundvallast á og endurspeglast í rannsóknum, kennsluaðferðum og menningu skólans. Háskólinn í Reykjavík býður 24 námsleiðir í meistaranámi. H Á S K Ó L I N N Í R E Y K J AV Í K R E Y K J A V I K U N I V E R S I T Y Líttu við í dag, þriðjudaginn 24. mars, kl. 16.00 – 18.00. Staður: Ofanleiti 2, 103 Reykjavík. KYNNING Á MEISTARANÁMI Í DAG! Sparisjóður vill ríkisaðstoð Stjórn Sparisjóðs Bolungarvíkur hefur óskað eftir því að sjóðnum verði lagt til nýtt eigið fé sem nemur 20 pró- sentum af bókfærðu eigin fé í árslok 2007. Stuðningurinn gæti numið um 400 þúsundum króna. EFNAHAGSMÁL Fundur um ættleiðingu Alþjóðleg ættleiðing heldur opinn kynningarfund á miðvikudagskvöldið í Safnaðarheimili Seltjarnarneskirkju. Á fundinum verður starfsemi félagsins kynnt og fjallað um helstu verkefni. Fundurinn hefst klukkan hálfníu. SAMFÉLAGSMÁL EFNAHAGSMÁL „Það er eins og við- skiptavinirnir kenni meira í brjósti um okkur en sjálfa sig enda má segja að í mörgum tilfellum hafi verið farin að skapast vinatengsl þarna á milli,“ segir Ólafur Már Svansson, formaður starfsmanna- félags SPRON. Þótt engin þjónusta væri veitt í útibúunum var opið upp á gátt í gær og mættu nær allir starfs- menn þótt einungis fáir hefðu þar skyldum að gegna en nokkrir unnu að verkefnum fyrir skilanefndina. Eins komu fjölmargir viðskipta- vinir SPRON. „Það var frjáls mæting en svona um 99 prósent starfsmanna mættu til að styðja hver annan, halda rút- ínunni og tala saman,“ segir hann. Síðdegis var síðan haldinn fundur þar sem Ólafur Haraldsson, fram- kvæmdastjóri bankans, og Harpa Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs og reksturs hjá bankan- um, leituðust við að svara spurn- ingum starfsmanna. „Þetta var svo sem enginn átakafundur en fram- kvæmdastjórarnir gerðu okkur grein fyrir stöðunni og hún er svo sem bara óbreytt enn þá þannig að þetta var frekar eins og pepp- fundur,“ segir Ólafur Már. Einn- ig var fulltrúi frá skilanefndinni á fundinum. Ekki hefur verið ákveðið um frekari fundarhöld en Ólafur Már segir að dyrnar standi opnar í úti- búunum í dag rétt eins og í gær. Mikið álag var hjá starfsfólki þjónustuvers Nýja Kaupþings sem svaraði spurningum þeirra sem hafa verið í viðskiptum hjá SPRON (og Netbankanum, nb.is) en eins og kunnugt er tók bankinn yfir innstæður SPRON. „Það eru 2.700 manns búnir að hringja inn í dag,“ sagði Berghildur Erla Bern- harðsdóttir, upplýsingafulltrúi Nýja Kaupþings, um klukkan þrjú í gær en opið er í þjónustuverinu til klukkan sjö síðdegis. Hún segir að á venjulegum degi hringi að með- altali um 1.200 manns. Segir hún enn fremur að athygli hafi vakið hversu þolinmóðir og jákvæðir viðskiptavinir SPRON hafi verið miðað við þær sorglegu aðstæður sem uppi eru komnar. Nýja Kaupþing hefur einnig sett inn á vef sinn svör við algeng- um helstu spurningum þessa hóps. „Það er langmest spurt um það hvað verður um útlán og svo lífeyrissparnað,“ segir Berghild- ur Erla. „En ákvörðun um hvoru tveggja er í höndum skilanefndar og Fjármálaeftirlitsins því eins og staðan er núna þá eru það aðeins innstæður sem færast yfir til okkar.“ jse@frettabladid.is Viðskiptavinir og starfsmenn hittust Þótt engin þjónusta hafi farið fram í útibúum SPRON mættu nær allir starfs- menn til að þiggja og veita stuðning. Einnig mættu fjölmargir viðskiptavinir og sýndu starfsfólki stuðning. Mikið álag í Kaupþingi sem tók yfir innstæðurnar. SLYS Tveir menn slösuðust þegar þeir fóru fram af hengju á vél- sleðum austan við Sandfell í Öxar- firði um klukkan tvö á sunnudag. Talið er að þeir hafi fallið um tíu metra og fékk annar vélsleðann yfir sig, að sögn lögreglu á Húsa- vík. Voru þeir fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar áleiðis á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Annar þeirra var útskrifaður sama dag en hinn verður að öllum líkindum útskrifaður í dag. - jse Vélsleðaslys fyrir norðan: Féllu um tíu metra á fjalli INDLAND, AP Ódýrasti fjöldafram- leiddi bíll veraldar fer á markað í Indlandi á næstu tíu dögum. Bíllinn, sem er framleiddur af Tata Motors, kallast Nano. Nýr úr kassanum mun hann kosta tæpa tvö þúsund dollara, eða um 225 þúsund krónur. Bíllinn, sem er kallaður „bíll fólksins“, er þriggja metra langur og fimm sæta. Hann er fjögurra dyra og skilar vélin 33 hestöflum. Tata Motors hefur framleitt bíla í hálfa öld. Fyrir fimm árum keypti fyrirtækið suður-kóreska bílaframleiðandann Daewoo og í fyrra keypti það Jagúar og Land Rover af Ford. - th Tata Nano á markað: Nýr bíll kostar 225 þúsund SMÁR EN KNÁR Nanó er sannkallaður smábíll eins og sést á myndinni. NORDICPHOTOS/AFP VIÐSKIPTAVINUR KEMUR VIÐ Þeir sem litu inn í bankann komu ekki til að taka út heldur veita stuðning og athuga um starfsfólkið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA UPPLÝSINGAR FYRIR VIÐ- SKIPTAVINI SPRON Fjármálaeftirlitið hefur látið fresta innlausnum allra verðbréfasjóða og fjárfestingarsjóða Rekstrarfélags SPRON hf., sem stofnað var um eignir bankans. Upplýsingar fyrir viðskiptavini SPRON vegna yfirtöku innstæðna: http://www.kaupthing.is/?Pa- geID=5125 Eða smella á „Spurt og svarað“ á vefsíðu Nýja Kaupþings. KJÖRKASSINN Hefur þú farið á skíði í vetur? Já 12,5 Nei 87,5 SPURNING DAGSINS Í DAG: Á að lögleiða kannabisefni? Segðu skoðun þína á Vísi.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.