Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.03.2009, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 24.03.2009, Qupperneq 10
10 24. mars 2009 ÞRIÐJUDAGUR DÓMSTÓLAR Ungri konu voru í Hér- aðsdómi Reykjaness dæmdar rúm- lega átta milljónir króna í bætur vegna slyss sem hún varð fyrir á vélsleða. Faðir kærasta stúlkunnar greiðir henni bæturnar. Slysið varð þegar hún var 17 ára gömul, en þá fór hún með kærasta sínum og föður hans að Hafra- vatnsvegi. Meðferðis var vélsleði föður kærastans, en sleðinn var ekki vátryggður. Enginn hjálmur var notaður í ferðinni og stúlkan keyrði sleðann án nokkurrar leið- sagnar eiganda. Hún festi sleðann og kærasti hennar og faðir hans losuðu hana. Ók stúlkan þá niður brekku, missti stjórn á sleðanum og kastaðist af honum. Hún flaug töluverða vegalengd og hlaut af því höfuðáverka. Stúlkan þurfti að gangast undir aðgerð þar sem skaddað svæði í hægra gagnaugablaði heilans var fjarlægt. Hún telst búa við 5 pró- sent varanlega örorku samkvæmt mati og 12 prósent varanlegan miska. Tekist var á um bótaskyldu eig- anda sleðans, þar sem stúlkan var sjálf undir stýri. Stefndi taldi sig ekki hafa þurft að leiðbeina stúlk- unni og aksturinn hefði verið á hennar ábyrgð. Skráningar- og tryggingarskylda var hins vegar vanrækt og öryggisbúnaði áfátt. Málskostnaður var felldur niður. - kóp Fær greiddar bætur eftir vélsleðaslys: Faðir kærasta þarf að greiða bæturnar VÉLSLEÐI Ungri stúlku voru dæmdar bætur eftir vélhjólaslys. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Fjölmiðlafræði Hjúkrunarfræði Iðjuþjálfunarfræði Kennarafræði Lögfræði Nútímafræði HVAÐ ÆTLAR ÞÚ AÐ VERÐA? KYNNTU ÞÉR NÁM VIÐ HÁSKÓLANN Á AKUREYRI Samfélags- og hagþróunarfræði Sálfræði Sjávarútvegsfræði Viðskiptafræði Þjóðfélagsfræði Opnað hefur verið fyrir umsóknir, frestur til að sækja um er til 5. júní. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð á www.haskolanam.is A Ð A L F U N D U R C C P h f . Aðalfundur CCP hf. verður haldinn þriðjudaginn 7. apríl 2009 á skrifstofu félagsins að Grandagarði 8, Reykjavík og hefst kl. 12:00. D A G S K R Á : Venjuleg aðalfundarstörf skv. gr. 4.07 samþykkta félagsins Sérstaklega er bent á að þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn CCP hf. skulu tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins eigi síðar en 5 sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar, sbr. 63. gr. (a) hlutafélagalaga nr. 2/1995. Þeir einir eru kjörgengir sem þannig hafa gefið kost á sér. Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis 7 dögum fyrir aðalfund. Aðalfundarstörf munu fara fram á ensku.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.