Fréttablaðið - 24.03.2009, Page 15

Fréttablaðið - 24.03.2009, Page 15
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 Sveinbjörn Sveinbjörnsson, verk- fræðingur hjá Mannviti verkfræði- stofu, sigraði í Lífsstílsmeistaran- um sem fór fram fyrir skemmstu, bæði í flokki einstaklinga og liða. Sveinbjörn sem er að auki tvöfald- ur sigurvegari í Þrekmeistaran- um og var með fremstu mönnum í Laugavegs-ultramaraþoninu síð- asta sumar þakkar strangri þjálfun í Boot Camp góðum árangri. „Ég byrjaði að æfa í Boot Camp fyrir tveimur árum en hafði áður verið að æfa og keppa á skíðum í mörg ár. Líklega hefur keppnisskap- ið alltaf verið til staðar, þannig að þegar ég byrjaði í Boot Camp bloss- aði það aftur upp og segja má að vitleysan hafi svo undið upp á sig,“ segir hann og hlær. Sveinbjörn æfir daglega, á morgnana eða í hádeginu, og segir að þótt æfingarnar taki á sé undir hverjum og einum komið hvað viðkomandi vilji leggja mikið á sig. „Boot Camp hentar jafnt byrjendum og þeim sem lengra eru komnir og menn stýra álaginu sjálfir. Það er það góða, að allir geta verið með.“ Frá því að Sveinbjörn byrjaði í Boot Camp hefur hann náð framúr- skarandi árangri í ýmsum keppn- um og viðburðum eins og áður sagði. Sigurinn í Þrekmeistaran- um er því enn ein rósin í hnappa- gatið og Sveinbjörn fer ekki leynt með ánægju sína, enda í fyrsta sinn sem hann tekur þátt. „Þetta er hörkukeppni þar sem þátttakendur þurfa að ljúka tíu greinum á sem skemmstum tíma. Ég kláraði á 20 mínútum og 40 sekúndum og næsti maður var með 20 mínútur og 45 sekúndur, þannig að það var mjótt á munum.“ Segja má að sigurganga Svein- bjarnar síðustu tvö ár hafi náð að kveikja í allri fjölskyldunni; bræð- ur hans eru farnir að æfa í Boot Camp og faðir hans og sambýlis- kona Sveinbjarnar tóku einnig þátt í Lífsstílsmeistaranum, en þess skal getið að aðeins eru tíu mánuðir síðan þau Sveinbjörn eignuðust lít- inn dreng. En ýtir þetta ekki undir samkeppni og ríg milli bræðranna? „Alls ekki. Við hvetjum bara hvert annað áfram þannig að þetta skap- ar góða stemningu í fjölskyldunni, þjappar okkur saman ef eitthvað er.“ Fram undan hjá Sveinbirni eru svo Cross-Fit-leikarnir í maí, sem eru, líkt og Lífsstílsmeistarinn, hluti af Þrekmótaröðinni, og Laugavegs- maraþonið í júlí. „Þá lenti ég í öðru sæti í mínum flokki og því tólfta á heildina séð. Ég náði 24. besta tím- anum í keppninni frá upphafi og ætla að standa mig enn betur í ár,“ segir hann ákveðinn. roald@frettabladid.is Vitleysan vatt upp á sig Sveinbjörn Sveinbjörnsson vann frækinn sigur í Lífsstílsmeistaranum en þetta er í fyrsta sinn sem hann tekur þátt. Þetta er þó aðeins upphafið því hann ætlar sér stóra hluti á Cross-Fit-leikunum í sumar. Sveinbjörn hefur fengið fjölskylduna í lið með sér. Frá vinstri má sjá föður Sveinbjarnar, Sveinbjörn Sveinbjörnsson, með afabarn- ið Stefán Huga, Ástu Ósk Stefánsdóttur, sambýliskonu Sveinbjarnar, og yngri bróður hans, Bjartmar Sveinbjörnsson. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN LJÁÐU MÉR EYRA nefnist viðtalsþjónusta á Landspítalanum. Þar stendur öllum konum sem fætt hafa á Landspítalanum til boða að bóka viðtal við ljósmóður um 4 til 6 vikum eftir fæðingu ef þær vilja ræða fæð- ingarreynslu sína. Viðtölin bókast á göngudeild mæðraverndar í s. 543 3253 á virkum dögum milli klukkan 9 og 15. www.ljosmodir.is á hluta sjúklings af verði lyfseðilsskyldra lyfja Marstilboð til elli- og örorkulífeyrisþega Ertu með eitthvað gott á prjónunum? Sjálfboðaliðar í Kópavogsdeild Rauða krossins prjóna og sauma ungbarnaföt fyrir börn í neyð. Hópurinn, sem kallast Föt sem framlag , mun hittast næst og prjóna í sjálfboðamiðstöðinni Hamraborg 11, 2. hæð, miðvikudaginn 25. mars kl. 16-18. Á staðnum verða prjónar, garn og gott fólk sem hittist reglulega og lætur gott af sér leiða. Velkomið er að taka með sér eigið prjónadót. Þeir sem vilja gefa garn í verkefnið vinsamlega hafið samband. Kaffi á könn- unni og með því. Allar nánari upplýsingar í síma 554 6626 . Sjálfboðamiðstöð Hamraborg 11 opið virka daga kl.10-16 sími 554 6626 kopavogur@redcross.is redcross.is/kopavogur

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.