Lesbók Morgunblaðsins - 27.05.2006, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 27.05.2006, Blaðsíða 3
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 27. maí 2006 | 3 Ég er á móti hræsni. Ég er á móti lýðræði. Ég er á móti skrifræði. Eitthvað þessu líkt sagði Johnny Rotten og bætti við: Ég er á móti öllu sem endar á i. … Flokkurinn á frekar að vera lítill og harður en stór og linur, sagði Lenin sem var samsærismaður í huganum og hafði bólugrafna trú á mannkyninu … Látum okkur dreyma, hélt hann áfram og teygði sig í dadaískan staf, sem hleypti púðri í heysátur bændanna og tár sem hann hristi fram úr erminni. Þetta voru ljóð, grýlukerti sem frusu í sólinni á meðan frostrósir teiknuðu fána í myrkrið og beinaberir hundar veltu sér upp úr nepjunni skítugir og lúsugir í skuggasundi tímans án þess að vita að einn góðan veðurdag pössuðu afkomendur þeirra bíla flokksbroddanna, í hamingju agans bak við gaddavír hugans. … Nei, ekki gráta þótt spegill bílstjórans geri þig lítinn í aftursætinu, það eru hundrað ár í eilífðina, nóg af frosti í hjarta þínu og alltaf eitthvað nýtt á markaðnum. Þú skrúfar bara niður rúðuna, skimar eftir heimilisfangi orðanna og húkkar píur póesíunnar. Nei, ekki gráta, við húsleit finnast engir draumar ekkert sem skiptir máli og þú færð vægan dóm og jafnvel góðan fyrir frostið í hjarta þínu og nýjungarnar … Getum við ekki bara fengið okkur fótboltaskó, farið út á kvöldin og sparkað í veruleikann? Hann sparkar auðvitað á móti en við erum í betri skóm og spörk okkar verða markvissari en orðin beinskeyttari en penninn og öflugri en hinn kreppti hnefi byltingarinnar sem lognaðist út af í atkvæðagreiðslum haustið sem hitt liðið vann en þá kom í ljós að við vorum aðeins útúrdúr á spássíu neðanmálsgrein við meginmál tímans og ekkert nema orðin, penninn og hnefinn gátu hrært upp í textanum. Nei, ekki gráta þótt háskólinn verði seldur í brotajárn og hjarta þitt einkavætt. Þú skiptir bara um kennitölu einsog fyrirtækin og segir ef einhver er með kjaft: Þú ert ekki að tala við mig, maðurinn sem var hérna í gær er ekki lengur til. Ég er laus allra mála. Ef ríkisstjórnin væri bolti myndi ég sparka henni út af. Vandinn er bara sá að þá fengi hún horn og skoraði glæsilegt mark því stjórnarandstaðan er svo léleg í vörn. Þannig er staðan: Gamlingjar lokaðir inni vegna elliglapa en unglingar á lyfjum vegna æskufjörs. Enn teikna frostrósir fána í myrkrið og grýlukertin ekki bráðnuð. Elvis er enn í hernum og vinir mínir, stjórnleysingjarnir, hafa skráð sig í lögregluskólann. Tár mín eru frosin, þorstinn mitt heróp í skrælnuðum draumi. Meira að segja Bob Dylan er búinn að gleyma öllu sem hann sagði en hann sagði það samt og þar við situr hvað sem hann segir. Já félagar, látið dæluna ganga, það vantar ekki bara ljóðlist í lífið, heldur líf í ljóðið enda hefur ekkert frést af Johnny Rotten síðan hann opnaði fasteignasölu í Los Angeles. Við sendum okkar bestu kveðjur héðan úr hagvextinum og vonum bara að húsnæðismarkaður hugans sé ekki síðri þar en hér, og þú í góðum málum enn á móti hræsni enn á móti lýðræði enn á móti skrifræði og öllu sem endar á i. Dada-pönk handa Lenin – endurskoðuð útgáfa Eftir Einar Má Guðmundsson Morgunblaðið/RAX Höfundur er rithöfundur.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.