Lesbók Morgunblaðsins - 27.05.2006, Side 13

Lesbók Morgunblaðsins - 27.05.2006, Side 13
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 27. maí 2006 | 13 Michael Jackson íhugar nú aðkoma opinberlega fram á há- tíð í Tókýó í Japan þar sem MTV- sjónvarpsstöðin þar í landi mun heiðra hann sér- staklega fyrir framlag sitt til tónlistarinnar. Yrði það í fyrsta skipti sem Jack- son kemur fram síðan rétt- arhöldum yfir honum lauk í júní á síðasta ári. Talið er að Jackson muni í kjöl- farið halda í tónleikaferðalag um Asíu þar sem hann mun þá koma fram á tónleikum í Singapore, Shanghaí og Hong Kong. Jackson er nú staddur í Japan þar sem hann mun heimsækja mun- aðarleysingjahæli og funda með aðilum viðskiptalífsins þar í landi. Jackson hefur búið í Bahrain síðan hann var sýknaður af ásök- unum um að hafa misnotað börn. „Michael Jackson er goðsögn. Hann elskar Japan og við elskum hann,“ sagði Broderick D. Morris, framkvæmdastjóri Positive Prod- uctions Yokohama, sem skipulegg- ur tónleikana. „Ég hlakka til að fara til Japan vegna þess að ég á mjög góðar minningar þaðan. Mig langar til þess að þakka MTV fyrir þennan mikla heiður sem mér er sýndur,“ sagði Jackon áður en hann fór til Japan. „Ég hlakka til að hitta gamla vini mína og heilsa upp á alla aðdáendur mína í Japan sem hafa sýnt stuðning sinn og ást í verki á undanförnum árum, líkt og reyndar aðdáendur mínir um allan heim hafa gert,“ bætti Jackson við. Jackson vinnur nú að lagi sem tileinkað er fórnarlömbum fellibylj- arins Katrínar, en hann vonast til þess að geta gefið út nýja plötu á næsta ári.    Chris Martin, söngvari hljóm-sveitarinnar Coldplay, mun syngja eitt lag í stofunni heima hjá ungum nemanda í Canonbury- grunnskólanum í Lundúnum. Ástæðan er sú að Martin tók þátt í uppboði til styrktar skólanum, en hæsta boð í söng Martins kom frá föður drengsins, og hljóðaði upp á 10.000 dollara, um 730.000 íslensk- ar krónur. Martin tók þátt í upp- boðinu þar sem sonur umboðs- manns Coldplay er nemandi í skólanum.    Rapparinn The Game, sem heit-ir réttu nafni Jayceon Taylor, var handtekinn í Burbank í Kali- forníu á laugardaginn var, en ástæðan var sú að hann var með ólöglegt vopn í fórum sínum. Taylor var stöðvaður af lög- reglumönnum vegna umferð- arlagabrots og við leit í bifreið- inni fannst vopn- ið. Honum var sleppt lausum gegn 20.000 dollara tryggingu en þarf að mæta fyrir rétt í júní. Handtökuskipun var gefin út á hann í apríl þegar hann lét ekki sjá sig í dómsal, en þar átti að fjalla um mál sem kom upp í verslunarmiðstöð Norður- Karólínu þar sem rapparinn þótti hafa hegðað sér ósæmilega, auk þess sem hann veitti mótspyrnu við handtöku. Erlend tónlist The Game Michael Jackson Chris Martin Sverðfiskabásúnur eru annaðhvort hljóðfærisem mikla fýlu leggur af eða fiskur semgefur frá sér mikil hljóð.“ Fáir áttuðu sig á því sem Tom Waits var að gera á plötu sinni Swordfishtrombones og enn færri vissu hvað nafnið átti að standa fyrir. Sjálfur útskýrði hann það með orðunum hér að framan. Raunar má segja að það hafi verið erfitt að fylgja Waits eftir allar götur síðan hann gaf út þessa plötu. Honum hefur verið trúandi til alls. Hún er upphafið að þriggja platna tímabili en þá verða aftur einhvers konar skil á ferli hans. Eftir Swordfishtrombones kom út Rain Dogs 1985, plata sem er eiginlega beint framhald af Swordfishtrombones, glæsileg í alla staði en jafn- framt tilraunakennd. Clap Hands er sennilega þekktasta lag hennar. Hún fékk gríðarlega góðar viðtökur. Þetta eru fyrstu plöturnar sem Waits stjórnar upptökum á sjálfur en þetta eru líka fyrstu plöt- urnar hans þar sem ekki er leikið á saxófón. Sjálf- um þótti honum það mikilvæg breyting. Og senni- lega er In the Neighbourhood á Swordfishtrombones fyrsta lag Waits sem mynd- band var gert við. Þetta er að minnsta kosti mynd- band sem maður man eftir – sennilega voru þetta fyrstu kynni undirritaðs af Waits – og lagið er auð- vitað snilldarverk. Í ævisögu Waits eftir Patrick Humphries, Small Change: A Life of Tom Waits (1989), kemur fram að In the Neighbourhood er eitt af þeim lögum sem Waits heldur hvað mest upp á sjálfur. Annað lag á Swordfishtrombones, Dave the Butcher, er einnig í þeim hópi og svo Tom Traubert’s Blues af Small Change og Burma Shave af Foreign Affairs. Það væri hægt að tala endalaust um þessar plöt- ur en sú þriðja, Franks Wild Years sem kom út 1987, er í sérstöku uppáhaldi. Hún endurspeglar uppreisnarhug Waits á níunda áratugnum sem var þó aldrei laus við nostalgíu, aldrei róttækur í þeim skilningi að skilið væri við fortíðina. Þvert á móti vinnur Waits áfram með það sem hann var að gera fyrstu árin og þá hefð sem hann er sprottinn úr. Í því samhengi má benda sérstaklega á frábærar skopstælingar á Sinatra, sem Waits dáir mikið, í lögunum Straight to the Top og I’ll Take New York en seinna lagið er eins og spilað í glymskratta sem er að syngja sitt síðasta. Annars er fyrsta lagið, Hang On St. Christopher, dæmigert fyrir níunda ára- tuginn hjá Waits en þar á hinn djúp- stæði örlagatónn sem einkennt hefur tónlist hans til þessa dags rætur sínar, útsetningarnar eru einhvern veginn brotakenndar, laglínur óljósar en oft kunnuglegar og í textunum kemur fyrir ótrúlegur fjöldi undarlegra karaktera sem röddin margumtalaða fyllir lífi með mjög sannfærandi hætti. Einhvern tím- ann var Waits spurður um rödd sína: „Í besta falli hljóma ég eins og geltandi hundur, en ég held að rödd mín hæfi tónlist minni vel.“ Aðspurður hvort hann hefði reynt að vernda röddina svaraði Waits: „Vernda hana? Fyrir hverju? Skemmdarvörgum?“ Eftir frábært upphafslag Franks Wild Years, sem varð að söngleik eins og minnst var á í síðasta pistli, kemur hvert snilldarlagið á fætur öðru en meistaraverkin eru ótvírætt Temptation, þar sem er sungið – eða eiginlega veinað – um tælingarmátt holdsins, Innocent When You Dream, sem er tragíkómískur ástarsöngur, gospelrokkarinn Way Down In the Hole, sem und- irritaður vill láta syngja yfir sér, og svo Train Song sem vísar aftur á áttunda áratuginn. Þessi plata er í skylduhlustun. Örlagatónninn Poppklassík Eftir Þröst Helgason throstur@mbl.is Þ etta var óhjákvæmilegt. Á vissan hátt hefur þrjóskan í okkur borgað sig, en einnig hefur sú staðfesta okkar að neita að fara eftir því sem er venjulega iðkað í tónlistarbrans- anum orðið okkur fjötur um fót. Sannleikurinn er sá að sveitin hefur ekki reynst sú peningamaskína sem sumir okkar voru að von- ast eftir að hún yrði.“ Svo mælti Jason Lytle, leiðtogi hinnar stór- skrítnu og stórgóðu sveitar Grandaddy, þann 27. janúar er hann tilkynnti um að ákveðið hefði verið að leggja batteríið niður. Boðberi fréttarinnar var breska vikuritið New Musical Express og Lytle sagði jafnframt frá því að meðlimir hefðu hist á fundi í mánuðinum á undan í heimabæ sínum, Modesto í Kaliforníu, og hefði sá fundur verið „erfiður, spennuþrunginn og nokkuð sorglegur. Það var í lausu lofti fyrir fundinn hvort við ættum að reyna að halda áfram eða ekki.“ Þetta and- rúmsloft var tilkomið vegna samskiptaörðugleika á milli meðlima, sagði hann enn fremur. „En um leið reyndum við að vera eins lengi á fundinum og við gátum af því að við vissum allir að þetta yrði í síðasta skipti sem við yrðum saman sem hljóm- sveit. Það var sorglegt.“ „Hallærislegt“ Grandaddy var að sönnu sérkennileg sveit og maður saknar hennar á líkan hátt og maður sakn- ar Beta Band. Manni finnst eins og tækifærum hafi verið kastað á glæ, að það sé eitthvað meist- araverk eftir þessar sveitir sem hangi á himnum og komi aldrei út. Það er eitthvað pirrandi við það – og sorglegt – þegar hljómsveitir gefa t.d. út sín bestu verk og hætta svo í kjölfarið. Slíkur gjörn- ingur á reyndar alls ekki við í tilfelli Grandaddy og Beta Band en Just Like the Fambly Cat er þó skref upp á við eftir hina mjög svo vondu Sumday (2003). Það er erfitt að lýsa tónlist Grandaddy. Ein- hvers konar nýbylgjusull sem gat verið pönk- skotið, kántrílegið, rokkvætt og sýrublandið. Mjög svo „hallærislegir“ hljómborðskaflar áttu það til að brjóta upp fremur hefðbundið nýrokkt- rukk, sem svo datt niður í angurværan, mel- ódískan kafla, sem svo hins vegar þróaðist út í fimm mínútna sveim. Yfir þessu öllu var svo eng- iltær falsetta Jason Lytle sem gaf tónlistinni auð- þekkjanlegan „ekki af þessum heimi“-stimpil. Menn rak svo fyrst allhressilega í rogastans þegar þeir sáu meðlimi sveitarinnar. Litu þeir út eins og afdalabændur, með derhúfur og í skota- munstursskyrtum, fúlskeggjaðir og sumir þeirra í smekkbuxum. Það var bara ekkert vit í þessu. Þetta var eins og þegar Lemmy í Motorhead sagði: „Það héldu allir að við værum pönk- hljómsveit þangað til að það birtist mynd af okk- ur.“ Opinberar breiðskífur Grandaddy urðu alls fjórar en auk þess liggur eftir sveitina aragrúi af smá-, stutt- og deiliplötum og einnig kassettur (fyrstu upptökur sveitarinnar komu út á snældu árið 1992, á stofnári hennar). Fyrsta eiginlega platan, Under the Western Freeway, kom út árið 1997 og þar má heyra að hinn einstaki Gran- daddy-hljómur er í mótun. Hann var svo geir- negldur þremur árum síðar, á meistaraverki sveitarinnar, The Sophtware Slump. Titillinn er gott dæmi um skringileg laga- og plötuheiti sveit- arinnar en hefur auk þess dýpri tilvísun. Sop- htware er útúrsnúningur á orðinu „software“ og á umslagi má sjá hnappa úr tölvulyklaborði. Titill- inn allur vísar hins vegar í hugtakið „Sophomore Slump“, sem tónlistargagnrýnendur nota í um- ræðum um aðra plötu listamanna, hina svokölluðu „erfiðu plötu númer 2“. Að þessu gefnu hlýtur að hafa verið fyndið fyrir meðlimi að lesa alla þá dýrðardóma sem svo rigndu yfir þá vegna plöt- unnar. Þetta er Grandaddy-platan sem fólk á að kaupa sér. Opnunarlagið eitt, „He’s Simple, He’s Dumb, He’s the Pilot“, myndi vera nóg til að halda nafni sveitarinnar á lofti um aldur og ævi. Hreint ótrúlegt snilldarlag. Grandaddy ákváðu hins vegar að gera hina „erfiðu plötu númer 3“ í staðinn. Sumday olli miklum vonbrigðum, sumpart þar sem ekki var hægt að toppa þá á undan en að mestu leyti vegna þess að platan er einfaldlega ekki góð. Örlög Just like The Fambly Cat eru hins vegar óráðin enn. Píslarvottar Það verður að segjast að höfundi þessarar greinar hefur ætíð þótt það nokkuð sérstakt er sveitir hætta með yfirlýsingum, líka þeirri sem lesa má í upphafi þessarar greinar. Það er óþægilegur vælu- og píslarvottatónn í þessu. Menn velja sér að starfa í tónlist og ef þeir höndla það ekki eiga þeir að hætta, og það með reisn. Það er ekki eins og þetta sé eina leiðin til að brauðfæða sig. Svo er hægt að kynna sér sögu hljómsveitarinnar Fu- gazi, vilji menn þumalputtareglur um það hvernig á að sigla í gegnum þennan „harða“ bransa með bros á vör. Grandaddy var t.d. á mála hjá V2 sem ekki telst vera lítið útgáfufyrirtæki. Alltént er nú einu gæðabandinu færra og orðin „hvað ef …“ koma ósjálfrátt upp í hugann. Lytle mun þó halda áfram að sinna tónlist- arsköpun en hyggst flytja sig um set, ætlar að fara til Montana. Ekkert er þó ljóst hvernig og hvenær hann ætlar á stjá, hvort heldur búferla- lega séð eða tónlistarlega. Engin kveðju- tónleikaferð verður þá í kjölfar plötunnar nýju. Snökt, snökt. Bæ bæ afi Merkissveitin Grandaddy ákvað að leggja upp laupana í byrjun þessa árs og verður hin nýút- komna skífa Just Like the Fambly Cat því svana- söngur hennar. Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Grandaddy Jason Lytle, leiðtogi Grandaddy, á tónleikum í Köln árið 2003.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.