Morgunblaðið - 10.01.2006, Blaðsíða 16
Tálknafjörður | Börnin á Tálknafirði létu sér
vel líka þegar það kyngdi niður snjó á staðnum,
eins og víðar um land, um helgina. Þar var kom-
inn um 30 sentímetra jafnfallinn snjór á rétt
innan við fjórum klukkutímum á föstudags-
kvöld. Tré voru farin að svigna undan snjó-
þunganum, þannig að fólk var farið að slá snjó-
inn af þeim. Á laugardag gekk á með éljum en
svo fór að hlýna þannig að snjórinn fór að láta
undan síga.
Börnin gripu tækifærið og fóru út að leika
sér í þessum síðbúna jólasnjó. Á myndinni eru
Rakel Guðlaugsdóttir, Elmar Sigurðsson og
Guðrún Ósk Aðalsteinsdóttir.
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
Börnin nýttu tækifærið
Snjór
Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 461-1601, Margrét Þóra Þórs-
dóttir, maggath@mbl.is, 669-1117 og Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, 669-1114.
Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Austurland Steinunn Ásmunds-
dóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi-
@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Daglega lífið er aftur að komast í fastar
skorður á Þórshöfn, eins og annars stað-
ar, eftir hið ljúfa jólalíf. Grár hversdags-
leikinn tekur við og ljósadýrð með jóla-
glingri og prjáli er horfin.
Aðalbreytingin verður þó á bæj-
arbragnum þegar unglingarnir fara aftur
burt í framhaldsskóla sína eftir jólafrí.
Þá fækkar töluvert í bænum því eitthvað
á þriðja tug ungmenna hverfur um
stundarsakir úr þessu litla byggðarlagi
og munar nú um minna. Þótt flestir for-
eldrarnir sakni þessara stóru barna
sinna þá er samt ánægja með að þau
drífi sig að heiman til að afla sér mennt-
unar og búa sig sem best undir lífsbar-
áttuna.
Litlar fregnir eru af sjómennsku og
aflabrögðum því illa gefur á sjó vegna
vindasamrar veðráttu. Ekkert tjón hefur
þó orðið við höfnina að undanförnu vegna
hvassviðris. Sex smábátar gera út á línu
frá Þórshöfn en stærsti báturinn, Geir,
er á netaveiðum og fara einnig litlar sög-
ur af fiskiríi þar.
Áramótadansleikur var haldinn á ný-
ársnótt í félagsheimilinu á Þórshöfn þar
sem breiður aldurshópur skemmti sér
saman fram á morgun. Aðgangur var
ókeypis því dansleikurinn var í boði
flutningafyrirtækisins Flytjanda og Alla
Geira á Húsavík. Heimafólk tók vel
þessu rausnarboði og fjölmennti á dans-
leikinn, tæplega tvö hundruð manns, og á
miðjum dansleik fékk Alli Geira verð-
skulduð húrrahróp.
Margir foreldrar drifu sig á ball um leið
og unglingarnir en aldurstakmark var 16
ár. Skoðun flestra var sú, að betra væri
að unglingarnir ættu kost á því að
skemmta sér í heimabyggðinni þar sem
foreldrarnir gætu haft að minnsta kosti
annað augað á þeim, frekar en að missa
þá burt úr bænum í leit að skemmtun.
Dansleikurinn fór vel fram og þar þurfti
engin afskipti lögreglu.
Úr
bæjarlífinu
ÞÓRSHÖFN
EFTIR LÍNEYJU SIGURÐARDÓTTUR
FRÉTTARITARA
Undirbúningur fyriropnun Töfragarðs-ins á Stokkseyri
næsta vor er í fullum
gangi og er nú unnið hörð-
um höndum að stækkun
garðsins. Fram kemur á
vef garðsins að búið er að
festa kaup á báti sem
komið verður fyrir í garð-
inum.
Vakin er athygli á því
að Stokkseyri er gamalt
útgerðarþorp og fram
kemur að það er stefna
eigenda Töfragarðsins að
koma upp sýningarsvæði í
garðinum sem minnir á
tengslin við hafið en það
var ekki síst það sem hafið
gaf sem hélt lífinu í þessu
samfélagi hér á árum áð-
ur.
Þá kemur fram á vefn-
um að sótt hefur verið um
leyfi til að halda hreindýr í
Töfragarðinum. Það mál
mun skýrast fljótlega.
Töfragarður
Þessir prýðispiltar,þeir Ívar SnorriHalldórsson og
Jóhannes Þórðarson,
voru aldeilis með athygl-
ina í lagi er þeir ræddu
málefni dagsins af mikilli
alvöru í Draugagili við
Blönduós. Hvað þeir
voru að hugleiða er ekki
vitað en kunnugir telja
líklegt að staða smábáta-
útgerðar á Blönduósi
hafi eitthvað borist í tal.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Samræður í Draugagili
Rúnar Kristjánssonskáld á Skaga-strönd hverfur til
verka sinna:
Geng ég inn til kvæðakynna,
kostinn minn þar lít um svið.
Þar má finna fró og vinna
flest er sinnið unir við.
Blika greinar gæskuhreinar,
græða meinum stráða slóð.
Hverfa steinar, brautir beinar
birtast einar kringum ljóð.
Á Húsavík er gamalt hús
sem kallað var Skuld. Það
átti bærinn en hefur nú
selt og var húsið flutt á
lóð kaupandans. Friðrik
Steingrímsson orti:
Um fjármálin þvarga og þvaðra
og þusa og rausa og blaðra,
uns allt fer í steik
í starfi og leik
þá skella þeir skuldinni á
aðra.
Davíð Hjálmar Haralds-
son orti vegna risagull-
fisks sem fannst á Húsa-
vík:
Verður steik á vorum diski,
vinnu hættir þjóðin rík
úr því gullið finnst í fiski
í ferskvatni á Húsavík.
Skuldaskil
pebl@mbl.is
Árborg | Eyþór Arnalds, athafnamaður
sem nú er búsettur í Hreiðurborg í fyrrum
Sandvíkurhreppi, hefur gefið það út að
hann sé tilbúinn að leiða
lista Sjálfstæðisflokks-
ins í Sveitarfélaginu Ár-
borg við komandi sveit-
arstjórnarkosningar.
Nýlega skoruðu á ann-
að hundrað Sunnlend-
ingar á Eyþór að gefa
kost á sér í framboð og
svaraði hann áskorun-
inni játandi á fjölmenn-
um fundi með stuðningsmönnum í
Tryggvaskála á Selfossi sl. laugardag.
Fram kemur á fréttavefnum sudurland-
.is að hann er tilbúinn að leiða lista sjálf-
stæðismanna, hvort sem ákveðið verður að
viðhafa uppstillingu eða prófkjör. Fyrir
liggur tillaga um að efna til prófkjörs.
Eyþór sagðist á fundinum finna það að
sóknarfærin í Árborg væru mikil og það
ætti að vera eftirsóknarvert fyrir fólk að
búa í Árborg. Reyndar væri mikil vinna
fram undan við að ná tökum á stjórn sveit-
arfélagsins, takist nýjum meirihluta að
komast til valda. Hann sagði að sveitar-
félögin á Suðurlandi hefðu ekki talað einni
skýrri röddu eða borið gæfu til þess að
standa saman um stór framfaramál sem
snertu allt Suðurland. „Stærstu málin eru
auðvitað samgöngumálin og vegurinn yfir
Hellisheiði, sem varðar ekki bara Sunn-
lendinga heldur einnig Reykvíkinga og alla
aðra. Þetta er aðal atvinnumálið hér,“
sagði Eyþór, að því er fram kemur á sud-
urland.is.
Jafnframt vakti hann athygli á mikilli
skuldasöfnun sveitarfélagsins Árborgar
undir stjórn núverandi meirihluta.
Eyþór Arnalds
gefur kost
á sér á lista
Hornafjörður | Þjóðgarðar og ferðaþjón-
usta – byggðaþróun í nýju ljósi er yfirskrift
málþings sem efnt verður til í fyrirlestrasal
Nýheima á Höfn fimmtudaginn 12. janúar.
Málþingið er hluti af alþjóðlegu verk-
efni, NEST, sem Austur-Skaftfellingar
taka þátt í ásamt Skaftárhreppi og aðilum í
Skotlandi, Finnlandi og Svíþjóð og fjallar
um uppbyggingu ferðaþjónustu í grennd
við þjóðgarða. Að lokinni dagskrá mál-
þingsins verður opnuð sérsýning á hand-
verki í húsnæði Jöklasýningar á Höfn.
Ráðstefna um
þjóðgarða og
ferðaþjónustu
♦♦♦
Grænamýri – Glæsileg
Glæsilegt sérbýli/parhús sem er 2 hæðir og kjallari.
Á 1. hæð er anddyri, gestasnyrting, hol, eldhús, borðstofa,
stofa m. kamínu, sólstofa. Á 2. hæð eru 3 herbergi, stórt
sjónvarpshol/vinnuherb., þvottaherbergi og baðherbergi. Í
kjallara eru tvö stór herbergi, geymslur, hvíldarherbergi,
ófullgert gufubað og snyrting. Húsið er allt hið vandaðasta.
Á öllum gólfum 1. og 2. hæðar er gegnheilt parket nema á
forstofu, gestasn., baðh. og þvh. en þar eru flísar. Kjallari er
allur flísalagður. Lóðin er mjög falleg, með lokaðri timbur-
verönd sem gengið er í úr stofum, grasflöt með kryddgarði
og fallegum trjám (gullregni o.fl.) 5558
Fáðu úrslitin
send í símann þinn