Morgunblaðið - 10.01.2006, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
AUSTURLAND
LANDIÐ
Höfn | Byrjað var að bora og leita
að heitu vatni á Hala í Suðursveit
árið 1992 og voru heimamenn von-
góðir um að þar væri heitt vatn að
finna, sem svo reyndist og á laug-
ardaginn kom í ljós að nægjanlegt
heitt vatn er þar að finna.
Á vefnum Hornafjordur.is segir
Fjölnir Torfason, bóndi á Hala, að
hann hafi byrjað heitavatnsleitina á
eigin vegum. „Við fengum strax
góðar vísbendingar um að hér væri
heitt vatn að finna og héldum því
ótrauð áfram. Það var fyrst 1998 að
við fórum að nýta heitt vatn í sam-
bandi við bleikjueldi.“
Búið er að bora um 15 holur og
hafa nokkrar þeirra komið að not-
um við bleikjueldið. Síðan var ein
hola valin fyrir djúpborun og nú um
helgina varð ljóst að þar er nægj-
anlegt heitt vatn fyrir alla bæina
hér. Þessi aðalhola er rétt vestan
við bæinn og er aðeins um 300 m í
næsta hús. Þegar dýpkun hennar
lauk var hún orðin 630 m djúp og
hafði vatnsrennsli aukist. Ekki er
búið að mæla hita vatnsins en í hita-
stigli 473 var hitinn 78°C og vonast
er til að ná 60–70°C heitu vatni inni
í húsunum. Reiknað er með að þurfi
um tvo sekúndulítra vatns til neyslu
fyrir byggðarlagið við Hala og er
fyllilega svo mikið vatn sem þar
kemur upp.
Heitt vatn
á Hala
70 km á Öxi | Með bréfi dags. 4.
jan. 2006 tilkynnir samgöngu-
ráðuneytið sveitarstjórn Djúpavogs-
hrepps að tekin hafi verið ákvörðun
að fengnum tillögum vegamálastjóra
um að hámarkshraði á Axarvegi
verði takmarkaður við 70 km/klst.
Líta verður á þetta sem skyn-
samlega ákvörðun m/v núverandi
ástand vegarins, enda margsannað
að hollt er heilum vagni heim að aka,
segir á vefnum djupivogur.is
Djúpivogur | Mikill hugur er í for-
svarsmönnum og starfsfólki fisk-
vinnslufyrirtækis Vísis hf. á Djúpa-
vogi. Hvarvetna má sjá vinnandi
hendur, jafnt starfsfólks Vísis, sem
var þegar Morgunblaðið bar að
garði að pakka saltfisk, sem og iðn-
aðarmanna sem eru þessa dagana að
setja upp ný og fullkomin fisk-
vinnslutæki og búnað í fyrirtækinu.
Samhliða þessu hefur mest af raf-
lagnakerfi hússins verið endurnýjað
og er einnig verið að leggja ný slit-
efni á gólf og veggi þar sem þörf var
á.
Sigurður Jóhannsson rekstr-
arstjóri hefur í mörg horn að líta og
augljóst að rífandi gangur er í fyr-
irtækinu. Stærstu breytingarnar
innan þess felast að sögn Sigurðar í
uppsetningu á nýrri flæðilínu, sjálf-
virku innmötunarkerfi og hausing-
arvél. Í innmötunarkerfinu munu
körin renna með fiskinn eftir færi-
bandi og fara síðan í sérstaka
þvottavél þegar þau eru búin að
skila fiskinum á færiband, allt þetta
án þess að mannshöndin komi nærri.
Auk þessara framkvæmda, sem nú
standa yfir, voru umfangsmiklar
breytingar gerðar sl. haust innan
fyrirtækisins þegar byrjað var að
slátra þar laxi. Fram til þessa hefur
fyrirtækið einbeitt sér að mestu að
vinnslu á söltuðum flökum. Með
hinni nýju aðstöðu mun hins vegar
verða hægt að skipta yfir í annars
konar framleiðslu fyrirhafnarlaust
þannig að vinnslan geti lagað sig
fljótt og vel að breytingum á mark-
aði.
Forsvarmenn Vísis hf. á Djúpa-
vogi stefna að því að vinna 3.000–
4.000 tonn á ári eftir að áðurgreind-
um breytingum lýkur, sem verður
væntanlega innan skamms.
Að viðbættu þessu áætlaða hrá-
efnismagni í bolfiskvinnslunni er
gert ráð fyrir að slátrað verði sam-
hliða um 2.000 tonnum af laxi í fisk-
vinnslu Vísis hf. á Djúpavogi frá fyr-
irtækinu Salar Islandica, sem er
með sjókvíaeldi í Berufirði.
Það sem af er kvótaárinu hefur
80–90% af afla Vísisbátanna verið
landað á Djúpavogi enda liggja fiski-
miðin sérstaklega vel við höfninni
þar. Afli Vísisbátanna fer jafnt til
vinnslu á Djúpavogi sem og hinna
vinnslustöðva fyrirtækisins. Það
hefur verið mikið líf og fjör í kring-
um höfnina á síðustu mánuðum og er
ekkert sem bendir til annars en svo
verði áfram, miðað við þann kraft og
umsvif sem eru í kringum Vísi á
Djúpavogi.
Vísisfólk á Djúpavogi stendur í breytingum og endurnýjun á fiskvinnslunni
Saltfiski pakkað Mikill handagangur er í öskjunni hjá Vísi hf. á Djúpa-
vogi.
Morgunblaðið/Andrés Skúlason
Blítt lætur báran Vísisbátar í Djúpavogshöfn.
Allt í hvínandi botni
Vísisbátar landa á Djúpavogi Sig-
urður Jóhannsson rekstrarstjóri
áætlar vinnslu á um 4.000 tonnum
af bolfiski og slátrun 2.000 tonna af
eldislaxi á árinu.
Eftir Andrés Skúlason
andres@djupivogur.is
Ísafjörður | Ragnheiður Há-
konardóttir, bæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins í Ísafjarðarbæ,
hefur ákveðið að gefa kost á sér
til áframhaldandi starfa. Hún
sækist eftir 2.–3. sæti listans í
prófkjöri sem fram fer 11. næsta
mánaðar vegna komandi bæj-
arstjórnarkosninga.
Ragnheiður hefur verið bæj-
arfulltrúi í átta ár og vara-
fulltrúi þar áður og hefur unnið
að ýmsum verkefnum á vegum bæjarstjórnar. Hún
hefur setið í bæjarráði frá árinu 1998 og um árabil
formaður þess og varaforseti bæjarstjórnar. Hún
hefur verið formaður Hafnarstjórnar Ísafjarðar í
átta ár, setið í stjórn Hafnasambands sveitarfélaga
og situr í stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga.
Í tilkynningu kemur fram að Ragnheiður hafi
ásamt öðrum bæjarfulltrúum leitt málefni bæjarins
á undanförnum árum og hún vilji gegna þeim
störfum áfram, sé það vilji kjósenda.
Ragnheiður gefur
kost á sér í 2.–3. sæti
Ranheiður
Hákonardóttir
Blönduós | Leikskólinn Barnabær á Blönduósi tek-
ur nú á móti börnum frá sex mánaða aldri í nýju
útibúi sem fengið hefur nafnið Mánasel og er stað-
sett á Húnabraut 6 en þar var áður bæjarskrifstofan.
Undirbúningsvinna hófst í lok síðasta árs og
fyrstu börnin komu á leikskólann sinn miðvikudag-
inn 4. janúar.
Harpa Hermannsdóttir verður deildarstjóri á litlu
deildinni Mánaseli og er gert ráð fyrir að um átta
börn verði þarna í seli.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Frá vinstri: Hávarður Máni Hjörleifsson, Mattías
Smári Sighvatsson og Kolbrún Halla Vilbergsdóttir.
Sex mánaða börn í seli Selfoss | Alls brautskráðust
76 nemendur, þar af 41 stúd-
ent, frá Fjölbrautaskóla Suð-
urlands í lok haustannar. Átta
nemendur brautskráðust af
tveimur brautum.
Alls stunduðu 929 nemendur
nám í dagskóla. Í meistara-
námi við skólann voru 25 nem-
endur.
Á Litla-Hrauni og á Sogni
voru 16 nemendur sem luku
177 einingum.
Ein af nýjungum við skólann
var Körfuboltaakademían þar
sem 16 piltar eru við æfingar í
körfubolta jafnframt því að
stunda nám við skólann.
Bestum heildarárangri
brautskráðra náði Dórótea
Höeg Sigurðardóttir, stúdent
af málabraut og náttúru-
fræðibraut, og fékk hún sér-
staka viðurkenningu skóla-
nefndar af því tilefni auk
námsstyrks frá Hollvarða-
samtökum skólans. Þá fékk
hún sjö önnur verðlaun fyrir
námsárangur í einstökum
námsgreinum. Hugrún Geirs-
dóttir fékk fern verðlaun og
þær Lilja Björg Rúnarsdóttir
og Sigurbjörg Rut Hoffritz
þrenn verðlaun hvor. Sævar
Logi Ólafsson fékk tvenn verð-
laun og þau Arnór Óskarsson
og Jóhanna Sigríður Hann-
esdóttir ein verðlaun hvort.
Auk ofangreindra 76 nem-
enda luku 17 nemendur al-
mennri námsbraut og upp-
fylltu þannig inntökuskilyrði á
námsbrautir skólans, þar af
tveir inn á stúdentsbrautir.
Ljósmynd/ Filmverk ehf.
Brautskráning Brautskráðir nemendur FSu ásamt skólameistara og aðstoðarskólameistara.
76 brautskráðir frá FSu