Morgunblaðið - 10.01.2006, Blaðsíða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
SAMBÍÓ ÁLFABAKKA
Byggð á sönnum atburðum...svona nokkurn vegin.
Jennifer Anistion fer á kostum í þessari frábæru rómantísku gamanmynd.
Með Óskarsverðlauna hafanum Shirley MacLaine og Kevin Costner.
Eldfim og töff ný ræma frá meistaraleikstjóranum,Tony Scott (“Man on Fire”).
Með hinni flottu Keira Knightley úr “Pirates of the Caribbean”
og með hinum ofursvala megatöffara, Mickey Rourke (“Sin City”).
HÁSKÓLABÍÓ
Domino kl. 5.30 - 8 og 10.40 b.i. 16 ára
Rumor Has It kl. 6 - 8 og 10.05
The Chronicles of Narnia kl. 5.15 - 8 og 10.45
KING KONG kl. 5.30 og 9 b.i. 12 ára
Harry Potter and the Goblet of Fire kl. 6 og 9 b.i. 10 ára
RUMOR HAS IT kl. 3.50 - 6 - 8.10 - 10.20
DOMINO kl. 5.30 - 8.10 - 10.45 B.i. 16 ára.
CHRONICLES OF NARNIA kl. 5 - 8 - 11
CHRONICLES OF NARNIA VIP kl. 5 - 8 - 11
KING KONG kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára.
Litli Kjúllin M/- Ísl tal. kl. 4
HARRY POTTER OG ELDBIKARINN kl. 5 B.i. 10
Byggð á sönnum orðrómi.
S.K. DV
***
MYNDIN Töfralandið Narnía:
Ljónið, nornin og skápurinn heldur
toppsætinu yfir aðsóknarmestu
myndir helgarinnar í íslenskum
kvikmyndahúsum. Um helgina lögðu
um 5.500 manns leið sína á þessa æv-
intýramynd, sem er um þúsund
hausum færra en áhorfendur hryll-
ingsmyndarinnar Hostel. Þetta er
öfug röð miðað við í Bandaríkjunum
þar sem hryllingurinn hafði betur og
töfralandið tók annað sætið.
Christof Wehmeier hjá Sambíó-
unum er að vonum ánægður með að-
sóknina á Narníu og segir að myndin
stefni í að verða stærsti Disney-
smellur allra tíma. Hann á von á því
að hún fari yfir 50.000 manns í að-
sókn hérlendis en um 36.500 manns
hafa séð hana nú þegar.
Jón Gunnar Geirdal hjá Senu seg-
ir Íslandsvinina Eli Roth og Quentin
Tarantino „hafa puttann á púlsinum
þegar kemur að kvikmyndum“ og
annað sæti Hostel vera frábæran ár-
angur. Hann bendir á að þetta sé
nokkuð stærri frumsýning en á Saw
II og The Exorcism of Emily Rose
en hryllingsmyndir njóta velgengni
um þessar mundir.
Ein íslensk mynd er á listanum
því kvikmynd Baltasars Kormáks, A
Little Trip to Heaven, er í fjórða
sæti listans. Guðmundur Breiðfjörð
hjá Senu segir að 11% aukning hafi
orðið frá opnunarhelginni. Það sanni
að aðsóknin á íslenskar myndir fari
hægar af stað en á Hollywood-
myndir. Um 11.200 manns hafa séð
þessa spennumynd eftir þrettán
daga í sýningu.
Narnía heldur toppnum
Töfralandið hélt hryllingnum í skefjum um helgina.
!
"
#$ % &'
('
)'
*'
+'
,'
-'
.'
/'
&0'
54%85'$$ !$$E!! ' 0B,' ,?$+/!
Kvikmyndir | Hostel efst nýrra mynda
!
" #
" #$%
" !
$& )
*
*
+ ,%
-
%.
- + "
, &/
/
%
'
&
) 0* (
&
'*)
HLJÓMSVEITIN Steintryggur
leikur á Eurosonic-hátíðinni fimmtu-
daginn 12. janúar næstkomandi. Há-
tíðin sem haldin er í Groningen í
Hollandi, er árlegur viðburður með
yfir 180 uppákomum á 25 tónleika-
stöðum.
Eins og nafnið gefur til kynna er
sveitin skipuð þeim Sigtryggi Bald-
urssyni og Steingrími Guðmunds-
syni en þeir félagar fóru í tæpa mán-
aðarlanga tónleikaferð um fimm
Evrópulönd nú í haust sem leið til að
kynna Dialog, sem er fyrsti geisla-
diskur þeirra félaga.
Með Steintryggi í för verða Sören
Venema sem leikur á mandolín, sít-
ar-gítar og Oud og Roland Hartwell
sem leikur á fiðlu og bassa.
„Á hátíð þessa koma margir aðilar
sem sjá um bókanir fyrir tónlist-
arhátíðir í Evrópu og víðar. Hyggja
nokkrir íslenskir tónleikahaldarar
einnig á þátttöku í hátíðinni til þess
að meðtaka ferska vinda og víst er
að margt verður skrafað og skegg-
rætt,“ segir í tilkynningu.
Von er á tveimur geisladiskum frá
Steintryggi á þessu ári og er annar
þeirra órafmagnaður.
Ljósmynd/Birna Rafnsdóttir
Sigtryggur og Steingrímur halda á tónlistarhátíð í Hollandi síðar í janúar
og ætla að senda frá sér tvo geisladiska á þessu ári.
Steintryggur
á Eurosonic
Ensku stjörnukokkarnir Gord-on Ramsey, sem m.a. stýrði
sjónvarpsþættinum Hell’s Kitchen,
og Jamie Oliver,
sem er hvað
þekktastur fyrir
sjónvarpsþátt
sinn Kokkur án
klæða, hafa ver-
ið sýknaðir af
kæru um illa
meðferð á dýr-
um. Oliver slátr-
aði lambi í nýjustu þáttaröð sinni,
Jamie’s Great Escape, en Ramsey
slátraði sex kalkúnum í þættinum
F Word.
Það voru sjónvarpsáhorfendur
sem lögðu inn 57 kvartanir til Of-
com, sem sér um eftirlit með efni í
ljósvakamiðlum, um slátrun dýr-
anna í þáttunum sem báðir eru
sýndir á Channel 4.
Í þætti Jamies ferðaðist
stjörnukokkurinn til Ítalíu en á
sveitabæ einum þar í landi var
hann beðinn um að velja lamb til
slátrunar, sem yrði eldað í kvöld-
matinn. Í niðurstöðu Ofcom segir
að ljóst hafi verið að Jamie Oliver
hafi fundist erfitt að framkvæma
verk sitt. Þá segir jafnframt að
lambið hafi hvorki streist á móti
né látið frá sér óþægileg og trufl-
andi hljóð.
Hvað þátt Ramseys varðandi
gátu engin myndskeið af slátrun
kalkúnanna valdið ugg, að sögn
Ofcom.
Kvikmyndahús nokkurt í SaltLake City í Bandaríkjunum
hætti við að sýna kvikmyndina
Brokeback Mountain á seinustu
stundu. Kvikmyndin segir sögu
tveggja samkynhneigðra kúreka
sem Jake Gyllenhaal og Heath
Ledger leika. Eigandi kvikmynda-
hússins, Larry Miller, er mikils-
metinn innan mormónakirkjunnar
í borginni en áhangendur hennar
viðurkenna ekki samkynhneigð.
Dreifingaraðili Brokeback
Mountain, Focus Features, segir
kvikmyndahúsið hafa hætt við að
sýna myndina nokkrum tímum
fyrir frumsýningu hennar. Mike
Thompson, talsmaður réttinda-
samtaka samkynhneigðra í Utah-
fylki, segir það vonbrigði að fólk
fái ekki að sjá myndina. „Það er
synd að sumir í Utah fái ekki að
sjá svo fallega verðlaunakvik-
mynd, sem mikið hefur verið rætt
um, vegna slíkra fordóma,“ sagði
Thompson í viðtali við dagblaðið
Salt Lake Tribune. Forstöðumað-
ur kvikmyndahússins neitaði að
tjá sig um málið. Brokeback
Mountain hefur þegar hlotið fjölda
tilnefninga til kvikmyndaverð-
launa og þykir líkleg til að hljóta
fjölda Óskarsverðlauna í ár. Gayle
Ruzicka, formaður mormóna-
félagsins Utah Eagle Forum, seg-
ist fylgjandi því að hætta við sýn-
ingar. Það sýni ungu fólki að
eitthvað sé að myndinni. Frétta-
vefur BBC greindi frá þessu.
Brokeback Mountain verður
frumsýnd hérlendis næstkomandi
föstudag.
Fólk folk@mbl.is
Reuters