Morgunblaðið - 10.01.2006, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 2006 41
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4539-8618-0017-6940
4741-5200-0012-5404
4507-4500-0029-0459
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA Íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
VISA ÍSLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.
07.01.2006
6
5 7 5 7 7
4 2 2 5 2
9 10 21 27
29
04.01.2006
17 19 22 38 41 44
18 1231
BARNA- og fjölskyldumyndin
Draumalandið ber þess merki að
vera frá landi Salvadors Dali og Ant-
onos Gaudi, spænsku snillinganna
sem gáfu hefðbundnum, föstum
formum langt nef og sköpuðu sína
eigin töfraheima þar sem mýktin á
mörkum draumsins ræður ríkjum.
De la Cruz, Gómez og þeirra list-
fengu hjálparmenn, vinna í svip-
uðum anda, svo útlitið ber glöggt
merki gömlu meistaranna. Persónur
og umhverfi er hálf-súrrealískt,
einkar litríkt og óhefðbundið og á
fátt skylt með öðrum teiknimyndum.
Íberíuskaginn er mættur til leiks
með sínum heillandi sérkennum.
Sagan er lauslega byggð á Draumi
á Jónsmessunótt, eftir Shakespeare,
en myndin gerist í hertogadæminu
Óniríu, þar sem menn trúa að á
þeirri ágætu nótt geti íbúarnir heim-
sótt álfa og trölla í landinu þeirra
þar sem draumarnir rætast – ef
maður trúir á töfra.
Aðalpersónan er hertogadóttirin
Helena, sem er mótfallin draum-
órum föður síns og Lísander, upp-
finningamaðurinn seinheppni. Það
er ekki fyrr en pabbi hennar leggst í
rúmið sökum þess að hann fær ekki
að láta draumana rætast að Helena
ákveður að halda í leit að álfadrottn-
ingunni Títaníu að finna honum
bata.
Með Helenu er hinn gráðugi Dem-
etríus, sem vill giftast Helenu til að
komast yfir hertogadæmið, Einnig
eru með í ferð andstæða hans, Lís-
ander, sem vill eignast Helenu því
hann elskar hana; Brokki lukkutröll,
Óberon álfakóngur og ýmsar furðu-
verur sem þau hitta á leiðinni. Þau
ná til Draumalandsins en Helena
verður að sigrast á tortryggninni og
sjá í gegnum samferðamennina ef
endirinn á að verða ásættanlegur.
Það á ekki illa við á þessum síð-
ustu og misskiptu tímum að inntakið
í Draumalandinu er eilíf barátta efn-
isins og andans. Fulltrúi efnishyggj-
unnar, hinn slóttugi Demetríus, seg-
ir að draumar skili engum arði og
leggur allt í sölurnar fyrir græðgina,
í fullkominni mótsögn við hertogann
sem, líkt og flest, venjulegt fólk,
þrífst ekki án þess að eiga sér
drauma og væntingar.
Myndin, sem er unnin með CGI
tækni, er einkar áferðarfalleg og lit-
rík, eins og fyrr segir. Ádeilutónninn
í verkinu er fyrst og fremst sniðinn
að þörfum ungra barna. Drauma-
landið er ágæt skemmtun fyrir alla
fjölskylduna. Helsti ljóðurinn er
skortur á skerpu, bæði hvað snertir
aðalpersónurnar og framvindu æv-
intýrsins. Íslenska talsetningin er
yfir höfuð vönduð og raddirnar
prýðilega valdar.
Ljúft er að láta sig dreyma
Sæbjörn Valdimarsson
„Það á ekki illa við á þessum síðustu og misskiptu tímum að inntakið í
Draumalandinu er eilíf barátta efnisins og andans,“ segir m.a. í dómi.
KVIKMYNDIR
Laugarásbíó, Smárabíó
Teiknimynd, talsett á íslensku. Leik-
stjórar: Ángel de la Cruz og Manolo Gó-
mez. Leikstjóri ísl. talsetningar: Jakob
Þór Einarsson. Aðalraddir: Inga María
Valdimarsdóttir, Björgvin Franz Gíslason,
Bjartmar Þórðarson,Örn Árnason, Sig-
urður Sigurjónsson, Guðfinna Rúnars-
dóttir, Jóhanna Jónas. 85 mín. Spánn/
Portúgal 2005.
Draumalandið (El Sueño de una noche de
San Juan) MYNDIR Tonys Scott eru sér á
báti. Hraðar og þrungnar sprengi-
krafti sem blossar upp af og til.
Flestar þokkaleg skemmtun og
gerðar í þeim tilgangi einum að
stytta gestum stundir. Einhverjir
kalla þær svalar, víst er að höfund-
arverk litla bróðir Ridleys eru full af
stælum, graðhestatónlist og töff-
aralegu yfirbragði. Þær bestu eru
Top Gun, True Romance, Crimson
Tide og Man on Fire, eins á hann
það til, líkt og aðrir dauðlegir menn,
að mistakast herfilega með afleið-
ingum á borð við The Hunger og
The Revenge. Það væri of mikið sagt
að segja hann mistækan því yfirleitt
tekst honum það sem hann ætlar
sér, en þeir eru til sem þola ekki
gassaganginn og linnulaust áreitið
og stílbrigðin.
Þeir hinir sömu hafa sjálfsagt lítið
gaman af Domino, nýjasta harð-
hausahasarnum frá leikstjóranum.
Myndin dregur nafn sitt af tit-
ilpersónunni, Domino Harvey (Knig-
htley), hálfgerðri goðsögn í hugum
margra sökum lífsferils sem var lyg-
inni líkastur. Domino var dóttir leik-
arans og sjarmörsins Laurence Har-
vey og tískusýningarstúlkunnar og
þotuliðans Pauline Stone. Hún
fæddist 1969, fékkst m.a. við leiklist
áður en hún gerðist mannaveiðari í
Los Angeles. Annáluð fyrir fegurð,
gáfur og dýrslega villt eðli, endaði
þessi ævintýrakona líf sitt á of
stórum lyfjaskammti í sumar sem
leið.
Scott flækir málin eins og honum
er lagið og hefur fengið til liðs við sig
handritshöfundinn Kelly, sem á
meðal annars heiðurinn af Donnie
Darko.
Stærstur hluti ríflegs sýning-
artímans fer í margslungið rán á 10
milljónum dala, þar sem Domino og
félagar hennar í mannaveiðarageng-
inu, Ed (Rourke) og Choco (Ram-
irez), koma mikið við sögu ásamt yf-
irmanni þeirra (Lindo). Ránið er slík
svikamylla að maður má hafa sig all-
an við að botna í framvindunni. Allir
eru að gabba alla og fjöldi skraut-
legra persóna fer inn og út úr mynd-
inni. Allt lendir í uppnámi hjá þre-
menningunum og fer nánast allur
seinni hlutinn í að lýsa tilraunum
þeirra við að sleppa lifandi úr hild-
arleiknum. Þar sem koma m.a. við
sögu spilavítiseigendur í Las Vegas,
mafíósar, alríkislögreglan og alls
kyns undirmálsglæpahyski, auk
Domino, Eds og Chocos.
Scott keyrir djöfulganginn áfram
með fullt fangið af brellum, stælum
og óhefðbundnum aðferðum, þannig
að myndflöturinn minnir oft meira á
umhverfi í tölvuleik en kvikmynd.
Birtir texta á rammanum, notar
teiknimyndaeffekta, hraðspólun og
óvenjulegar klippingar, svo eitthvað
sé nefnt. Til að byrja með verður út-
koman grautarleg, fyrr en varir
blasir við hin gamalkunna stað-
reynd; annaðhvort þolir þú óhefð-
bundinn stíl leikstjórans eða ekki.
Knightley fer mikinn um þessar
mundir, örstutt er síðan hún lífgaði
upp á bresku smámyndina Bend it
Like Beckham, nú er hún í öðru
hvoru Hollywood ferlíki. Slíkar
stjörnur brenna oft út á sama ofur-
hraða og þær sigra tjaldið. Auk-
inheldur virðist hún hafa lítið annað
og meira til brunns að bera en
snoppufríðleika og af honum eru
endalausar birgðir í kvikmynda-
borginni. Rourke minnir á Dýrið við
hliðina á Fríðu, notar gamalkunnar
grettur sem duga línunum hans hér.
Aukaleikarahópurinn er mun meira
áhugaverður, það skjóta upp koll-
inum náungar á borð við Dabney Co-
leman, Tom Waits, Jacqueline Bis-
set, Mo’Nique, Mena Suvari og hver
annar en Christopher Walken. Út-
koman er mikilfengleg, stundum
fjörug hasarsýning, einkum gerð
fyrir augað þó tónlistarvalið sé vel
viðeigandi.
Villtar veiðar
„Scott keyrir djöfulganginn áfram með fullt fangið af brellum, stælum og
óhefðbundnum aðferðum, þannig að myndflöturinn minnir oft meira á um-
hverfi í tölvuleik en kvikmynd,“ segir m.a. í dómi.
KVIKMYNDIR
Sambíóin, Háskólabíó
Leikstjóri: Tony Scott. Aðalleikarar:
Keira Knightley, Mickey Rourke, Edgar
Ramirez, Delroy Lindo. 113 mín. Banda-
ríkin 2005.
Domino Sæbjörn Valdimarsson
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið
SAMBÍÓ KEFLAVÍK SAMBÍÓ AKUREYRISAMBÍÓ KRINGLUNNI
****
S.V / MBL
***
m.m.j / KVIKMYNDIR.COM
kvikmyndir.is
****
A.B. / Blaðið
*****
V.J.V. / topp5.is
****
S.V. / Mbl.
FRÁ ÓSKARSVERÐLAUNA
LEIKSTJÓRANUM PETER JACKSON
DOMINO kl. 8 - 10.50 B.i. 16
CHRONICLES OF NARNIA kl. 5 - 8 - 10.30
KING KONG kl. 9 B.i. 12
JUST LIKE HEAVE kl. 6
HARRY POTTER OG ELDBIKARINN kl. 6 B.i. 10
CHRONICLES OF NARNIA kl. 7.45
THE SAW 2 kl. 10.30 B.i. 12 ára.
JUST LIKE HEAVEN kl. 8 B.i. 14 ára.
GREEN STREET HOOLIGANS kl. 10 B.i. 16 ára.
RUMOR HAS IT kl. 6 - 8 -10,30
CHRONICLES OF NARNIA kl. 5 - 8
King Kong kl.10 B.i. 12 ára
E.P.Ó. / kvikmyndir.com
****