Morgunblaðið - 21.01.2006, Qupperneq 28
28 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
AKUREYRI
TÆPLEGA 59% íbúa á
Akureyri segjast ánægð ef
svæðið þar sem Akureyr-
arvöllur er nú yrði skipu-
lagt að nýju, en 26% bæj-
arbúa vilja halda
íþróttavellinum í óbreyttri
mynd. Þetta er niðurstaða
viðhorfskönnunar sem
IMG Gallup gerði í desem-
ber síðastliðnum, dagana 9.
til 15. fyrir Þyrpingu, en
tekið var 600 manna
slembiúrtak íbúa á Akur-
eyri, 18 til 75 ára og var
svarhlutfallið 67,4%.
Niðurstaða könnunar-
innar var kynnt á fundi í
gær, sem og einnig áform
Þyrpingar um að reisa nýja
Hagkaupsverslun í mið-
bænum.
Þyrping hefur tekið þátt
í verkefninu Akureyri í
öndvegi, sem miðar að því
að efla miðbæ Akureyrar.
Forsvarsmenn Þyrpingar hafa
áhuga á að um 4.500 fermetra Hag-
kaupsverslun á sunnanverðum Ak-
ureyrarvelli og jafnframt að leggja
stóran hluta vallarins undir almenn-
ingsgarð.
Á vegum verkefnisins Akureyri í
öndvegi var haldið íbúaþing haustið
2004 sem um 10% bæjarbúa sóttu,
en í framhaldinu lagði sérstakur
stýrihópur bæjarstjórnar fram til-
lögur um framtíðarskipulag miðbæj-
arins. Stýrihópurinn lagði til að nýt-
ingu vallarsvæðisins yrði breytt,
m.a. að þar yrðu byggðar íbúðir og
gerður skemmtigarður.
G. Oddur Víðisson, framkvæmda-
stjóri Þyrpingar, sagði að ný og
stærri Hagkaupsverslun í miðbæ
Akureyrar myndi án efa styrkja
verslun í miðbænum, en á vegum fé-
lagsins hefur að undanförnu verið
unnið að því að móta tillögur að upp-
byggingu á íþróttavellinum.
Jóhannes Jónsson, stjórnarmaður
í Þyrpingu, sagði að núverandi Hag-
kaupsverslun úrelta og endurnýjun-
ar væri þörf. Versluninni byðust lóð-
ir við Sjafnarhúsið í útjaðri
bæjarins, á lóð fyrrverandi Nettó-
verslunar við Krossanesbraut og þá
hefði verið bent á Sjallareitinn svo-
nefnda í miðbæ Akureyrar. Hann
hefði verið skoðaður, en útlokað
væri að reka verslun af því tagi sem
félagið hefði hug á á þeim stað.
Bæjaryfirvöld hafa enn ekki tekið
ákvörðun um hvað gert verður við
Akureyrarvöll, en forsvarsmenn
Þyrpingar segjast geta hinkrað við
fram yfir kosningar í vor, varla leng-
ur. „Við erum tilbúin til að bíða fram
á vorið með ákvörðun, en varla leng-
ur,“ sagði Oddur, en með því að gera
viðhorfskönnun meðal bæjarbúa vill
félagið ýta undir umræður um málið
á meðal bæjarbúa. Spurður um
hversu háa upphæð félagið væri
tilbúið til að borga fyrir lóðina á Ak-
ureyrarvellinum nefndi Oddur að
ákveðin tala hefði verið nefnd við
bæjaryfirvöld. „Við höfum nefnt tölu
sem við erum tilbúin til að greiða
fyrir lóðina,“ sagði hann og einnig að
ef of hátt verð yrði sett upp myndi
félagið ekki byggja þar, heldur ann-
ars staðar.
Oddur sagði að um 25–30 þúsund
manns legðu leið sína í Hagkaup á
Akureyri í hverjum mánuði að jafn-
aði, en gera mætti ráð fyrir að fjöld-
inn yrði á bilinu 50 til 75 þúsund í
nýrri verslun í miðbænum. Það
myndi án efa styrkja aðra verslun í
miðbænum auk þess sem fyrirhugað
væri að ýmsar sérverslanir, kaffihús
og fleira yrði þar innandyra.
Tillaga Þyrpingarmanna var
kynnt bæjarstjórn og fulltrúum í
skipulagsnefnd í október á liðnu ári
og í framhaldi af ábendingum sem
fram komu var byggingin færð
lengra undir brekkuna, þannig að
minna bæri á henni auk þess sem
fjölbreytni var aukin í almennings-
garði. Skýr afstaða um hver afdrif
Akureyrarvallar yrði kom ekki fram
á þessum fundi að sögn Þyrping-
armanna, en Oddur sagði að betra
væri að fá nei strax, ætluðu yfirvöld
sér að halda vellinum í óbreyttri
mynd. „Þá væri hægt að snúa sér að
öðrum verkefnum.“
Þyrping kannar viðhorf bæjarbúa til nýs skipulags á Akureyrarvelli
Tæp 60% vilja breyta til,
en 26% hafa völlinn áfram
Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur
maggath@mbl.is
Þyrping hefur áhuga fyrir að reisa nýja Hagkaupsverslun á Akureyrarvelli sem og
almenningsgarð. Á myndinni er horft yfir vallarsvæðið úr austri.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Ragnar Sverrisson, Akureyri í önd-
vegi, og Jóhannes Jónsson í Bónus,
stjórnarmaður í Þyrpingu.
NÝTT skipafélag, Byr, mun á
næstunni hefja reglubundnar sigl-
ingar milli Akureyrar og hafna í
Evrópu. Skipafélagið er í eigu
Norðmanna og kynnti stjórnar-
formaður þess, Tommy Bönsnæs
áformin á fundi í vikunni. Kapp-
kostað verður að bjóða góða þjón-
ustu á samkeppnishæfu verði, en
félagið hefur tekið á leigu fimm til
sex þúsund tonna gámaflutninga-
skip sem getur flutt á bilinu fjögur
til fimm hundruð gáma í senn. Yf-
irbyggingu félagsins verður hald-
ið í lágmarki m.a. til að tryggja lág
flutningsgjöld, en þó verður þess
gætt að félagið hafi fjárhagslega
burði til að halda úti skiparekstri
með litlum tekjum fyrstu árin.
Atvinnuþróunarfélag Eyja-
fjarðar hefur haft þetta mál til
skoðunar að undanförnu, m.a. í
því skyni að lækka flutningskostn-
að fyrirtækja á Eyjafjarðarsvæð-
inu og bæta þar með samkeppn-
ishæfni þeirra. Vænlegasta leiðin
þótti að koma á beinum flutning-
um frá Eyjafirði og til helstu
markaða í Evrópu. Eftir að félagið
hefur siglingar munu fyrirtæki
norðan heiða því ekki þurfa að aka
vörum sínum í stórum stíl milli
landshluta, Norðurlands og höf-
uðborgarsvæðisins.
Forsvarsmenn Byrs hafa trú á
því að markaðurinn norðan heiða
sé nægilega stór til að halda úti
reglubundnum áætlunarsigling-
um til og frá Akureyri og til Evr-
ópuhafna. Á árunum 1999 til 2004
nam heildarinnflutningur vara
með skipum til þessa landshluta
um 220 þúsund tonnum, 7,3%
heildarinnflutnings til landsins en
útflutningur nam um 160 þúsund
tonnum, sem er 8,9% af heildar-
útflutningi landsmanna.
Áfangastaðir verða að líkindum
Akureyri, Immingham í Bret-
landi, Rotterdam í Hollandi,
Hamborg í Þýskalandi og Árhús í
Danmörku.
Reglubundnar
siglingar hefjast
til Evrópuhafna
Sunnuból | Skólanefnd Akureyr-
ar hefur falið deildarstjóra að leita
samninga við eigendur húsnæðis
þar sem leikskólinn Sunnuból hef-
ur verið til húsa á liðnum árum, í
Móasíðu 1. Samningurinn yrði til
allt að sjö ára á grundvelli gagna
sem kynnt voru á fundi nefnd-
arinnar, en þar voru lagðar fram
hugmyndir að nýjum leigusamn-
ingi ásamt yfirliti yfir áætlaða
þörf fyrir leikskólarými árin 2006
til 2011 Áætlað er að þörf sé fyrir
nýjan leikskóla fyrir um 170 börn í
Síðu- og Hlíðahverfum á næstu ár-
um.
Kvika | Arna Valsdóttir sýnir
verkið – Kvika – í Galleríi Boxi,
Kaupvangsstræti 10 á Akureyri.
Sýningin verður opnuð í dag, laug-
ardaginn 21. janúar kl. 16 og stend-
ur til 11. febrúar. Gallerí Box er op-
ið fimmtudaga og laugardaga frá
kl. 14–17.
Vetraríþróttir | Vetraríþrótta-
miðstöð Íslands (VMÍ) boðar til ráð-
stefnu um vetraríþróttir 26. og 27.
janúar 2006 á Hótel KEA á Ak-
ureyri. Fjölmargir fyrirlestrar
verða í boði, m.a. mun Einar Svein-
björnsson veðurfræðingur fjalla um
sveiflur undanfarinna ára í ís-
lenskri vetrarveðráttu og hvert
stefni í þeim efnum, fjallað verður
um verkefnið Skíði, skautar og
skóli sem Akureyrarkaupstaður
hefur staðið að síðastliðin þrjú ár
og Guðmundur Karl Jónsson, for-
stöðumaður VMÍ, mun segja frá
snjóframleiðslukerfinu í Hlíð-
arfjalli.
Skráning er á netfangið ol-
ina@akureyri.is. Lokadagur skrán-
ingar er þriðjudagurinn 24. janúar.
Nánari upplýsingar eru á
www.vmi.is
Fjölskylduhátíð
í Landsbankanum við Ráðhústorg, Akureyri,
í dag kl. 14.00–16.00
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
LB
I
30
93
0
0
1/
20
06
Allir leystir út með gjöfum
– Hlökkum til að sjá þig!
• Kl. 14.00 Sproti tekur á móti gestum
• Kl. 14.15 Birta og Bárður
• Kl. 14.50 Leikfélag Akureyrar sýnir atriði
úr Hryllingsbúðinni
• Kl. 15.20 Vormenn Íslands, tenórsöngvararnir
Jóhann Friðgeir Valdimarsson,
Ólafur Kjartan Sigurðsson og
Óskar Pétursson, þenja raddböndin
við undirleik Jónasar Þóris