Morgunblaðið - 28.01.2006, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF Í JANÚAR
Sameina fjölskylduna og vinnuna
Nútímatækni hefur valdið byltingu á mörgum sviðum og nú skiptir það ekki höfuðmáli hvort starfsfólk fyrirtækja, einkum það sem vinnur
við tölvutengd verkefni, er sýnilegt á sjálfum vinnustaðnum eða kýs að vera tölvutengt heima í rólegheitunum með tölvuna og kaffibollann
sér við hlið. Á meðan sumir geta alls ekki hugsað sér að vera í vinnunni „heima“, eru aðrir, sem það kjósa eða vilja blöndu af báðum formum,
það er að hafa starfsstöðvar bæði í vinnunni og heima. Jóhanna Ingvarsdóttir spjallaði við karl og konu, sem bæði eru alsæl með að vinna
vinnuna sína heima við. Þau eru sammála um að kostirnir séu margfalt fleiri en ókostirnir.
„HEIMAVINNAN hefur fyrir mig miklu
meiri kosti en galla enda snýst áhugamálið
bara um fjölskylduna,“ segir Hafsteinn Þór
Hilmarsson, sem vinnur heima við þýðingar
afþreyingarefnis fyrir Sjónvarpið. Hafsteinn
Þór, sem hefur háskólamenntun í ensku og býr
í Reykjavík, hefur verið með sína starfsstöð
heima í þrettán ár og kann því vel, sérstaklega
nú eftir að yngsti fjölskyldumeðlimurinn og
augasteinninn bættist í hópinn í sumar.
Dótturina Önnu Kristínu, sem nú er eins og
hálfs árs, ættleiddu þau Hafsteinn Þór og
Fanney Þorkelsdóttir frá Kína í sumar, en fyr-
ir var á heimilinu Unnur, sem er á átjánda ald-
ursári og er nemandi í MH.
Finnur tíma á kvöldin í staðinn
„Ég hef alltaf reynt að skipuleggja vinnu-
daginn minn vel, en nú eftir að Anna Kristín
bættist við fjölskylduna þarf bara að skipu-
leggja sig enn betur því maður vill geta fylgst
með og verið með barninu sínu sem mest. Nú
þarf að nýta tímann enn betur en ég áður gerði
til að geta sinnt henni sem mest. Þetta er bara
jafnvægi, sem ég þarf að finna og kemur smátt
og smátt af sjálfu sér í þessum aðstæðum.
Þessar vikurnar er Anna Kristín til dæmis í
ungbarnasundi og þar sem ég er minn eigin
húsbóndi í vinnunni get ég fylgt henni og
Fanneyju í sundið þótt vinnudagur sé og tekið
þátt í gamninu. Svo finnur maður bara tíma í
staðinn á kvöldin þegar sú litla er sofnuð fyrir
meiri þýðingar því það er alltaf nóg af verk-
efnum sem bíða á pínulitla kontórnum mínum.
Þetta er óneitanlega stór kostur við að vinna
heima.“
Hafsteinn Þór segist hafa vanið sig á það að
taka daginn snemma enda verði honum mikið
úr verki á morgnana. „Ég fæ mér kjarngóðan
morgunmat og sest svo við tölvuna í vinnu-
herberginu mínu og loka mig bara af ef ein-
hver truflun er í íbúðinni. Dagarnir eru auðvit-
að mismunandi, en kostir og gallar þess að
vera með vinnuaðstöðuna heima ráðast einna
helst af börnunum. Ég kýs að vera með dótt-
urinni eins mikið og hægt er og nú snýst allt
vinnuskipulag í kringum svefntímana hennar.
Með því að vinna heima, er ég yfirleitt alltaf til
staðar, en svo koma álagstímar, sem maður
þarf að vera leiðinlegur og útiloka börnin um
tíma til þess að fá vinnufrið. Það er stundum
ekkert um annað að ræða þegar mikið liggur
við. Fanney hætti hins vegar að vinna úti þeg-
ar við fengum Önnu Kristínu og á ég von á því
að hún fari ekkert út á vinnumarkaðinn í
bráð.“
Vinnan er alltaf nálæg
Þegar Hafsteinn er inntur eftir því hvort
hann finni ekkert til einangrunar að vera með
vinnuna alfarið heima, svarar hann því til að
svo sé alls ekki. „Mín áhugamál snúast fyrst og
fremst um fjölskylduna og hana hef ég í kring-
um mig á meðan ég er í vinnunni. Það er þó
ekki þannig að ég fari aldrei út úr húsi. Ég
þarf að fylgja þýðingunum eftir með því að
fara upp í Sjónvarp nokkrum sinnum í viku til
að ganga endanlega frá þeim. Þá hittir maður
auðvitað fólk og svo er ég í síma- og netsam-
bandi við aðra kollega og einyrkja í þýðing-
arbransanum.
Stærsti gallinn við þetta fyrirkomulag felst
kannski í því að vinnan er alltaf nálæg og það
er mjög auðvelt að detta í vinnuna þegar
venjulegt fólk á að vera í fríi. Þegar vinnan er
alltaf fyrir augunum finnst mér ég alltaf vera
að slóra þótt ég eigi að vita betur,“ segir Haf-
steinn Þór að lokum.
HAFSTEINN ÞÓR HILMARSSON | Með starfsstöðina heima
Áhugamálið snýst
um fjölskylduna
Morgunblaðið/Kristinn
Hafsteinn Þór Hilmarsson á vinnustofunni ásamt dótturinni Önnu Kristínu.
„ÉG GET stundað mína fullu vinnu hvar sem
er því einu tólin, sem ég þarfnast í vinnunni,
er fartölva og nettenging. Ég byrjaði að
starfa fyrir þetta fyrirtæki í Bandaríkjunum,
síðan hef ég verið að sinna starfinu frá Sel-
fossi og nú er ég að flytja til Stokkhólms og
kem til með að sinna vinnunni þaðan,“ segir
Ragna Atladóttir, sem starfar hjá netverslun
Shopusa, en starfið felst eingöngu í því að
svara fyrirspurnum í tölvupósti og leiðbeina
fólki í vörukaupum á Netinu. Bandaríska
netverslunin Shopusa rekur útibú við Hlíða-
smára í Kópavogi.
Með gáminn á hlaðinu
Ragna hafði verið búsett í Virginia Beach
í Virginíu-ríki á austurströnd Bandaríkjanna
í fjögur ár þegar hún flutti heim til Íslands
um mitt síðasta sumar. „Maðurinn minn var
þar í námi í alþjóðaviðskiptum og fjár-
málafræðum og ég sinnti aðallega börnunum
tveimur og búi á meðan. Skömmu áður en
við fluttum heim hóf ég að vinna fyrir Sho-
pusa ytra, en vöruhús Shopusa er einmitt í
Virginia Beach.
Það voru ekki mörg störf sem voru á
lausu fyrir eiginmanninn á Íslandi þegar
heim var komið. Hins vegar fékk hann at-
vinnutilboð frá Svíþjóð um að stýra breskri
verslunarkeðju á Norðurlöndunum. Hann
var ráðinn í hálft ár til að byrja með og
flutti út. Ég fluttist á hinn bóginn með
krakkana á Selfoss því ég vildi ekki flytja til
Svíþjóðar fyrr en reynslutími mannsins míns
var liðinn. Nú hefur hann fengið ráðning-
arsamning til frambúðar og ég er komin
með gáminn inn á hlað til að pakka búslóð-
inni, sem nýbúið er að taka upp, aftur inn.
Það er skammt stórra högga á milli. Vinnu-
tækið mitt, fartölvan, verður að sjálfsögðu
með í för því ég stefni á að sinna starfinu
áfram, í þetta skipti frá Stokkhólmi. Shop-
usa hefur enn ekki opnað útibú í Svíþjóð. Ég
kem því til með að svara fyrirspurnum Ís-
lendinga áfram.“
Mjög mismunandi er hvað Ragna þarf að
svara mörgum fyrirspurnum daglega. „Ætli
megi ekki segja að þær séu allt frá fimmtíu
og upp í tvö hundruð á álagstímum. Það var
mikið að gera í jólavertíðinni enda dollarinn
hagstæður og margir að panta vörur frá
Ameríku.“
Kostir fleiri en ókostir
„Kostirnir við þetta eru margfalt fleiri en
ókostirnir. Ég get algjörlega stýrt minni
vinnu sjálf og þarf ekki að eltast við barna-
pössun út um allan bæ ef einhver veikist.
Það má líka henda í þvottavélina, hengja
upp og sinna heimilisstörfunum á milli
vinnutarna. Svo eru börnin mín tvö, þau
Kristján Atli, 8 ára, og Berglind, 6 ára, af-
skaplega ánægð með að hafa mömmu sína
alltaf heima þegar þau koma heim úr skól-
anum upp úr hádeginu á meðan jafnaldr-
arnir eru flestir í pössun. Ókosturinn er aft-
ur á móti sá að manni líður eins og maður sé
alltaf í vinnunni og auðvitað er stundum set-
ið alltof lengi fyrir framan tölvuna í einu.
Það er nefnilega mjög auðvelt að gleyma sér
svona heima,“ segir Ragna og kveður að
sinni enda lá fyrir ökuferð frá Selfossi til
Reykjavíkur þar sem hún hafði lofað að
passa barn systur sinnar. „Ég tek auðvitað
tölvuna með mér og held áfram að vinna
mína vinnu frá heimili systur minnar. Það
skiptir engu máli hvar ég er. Ég get verið
alls staðar í vinnunni.“
RAGNA ATLADÓTTIR | Svarar tölvupósti fyrir shopusa.isís
Ragna ásamt börnunum sínum Kristjáni Atla og Berglindi .
Sinnir vinnunni
frá Stokkhólmi