Morgunblaðið - 02.02.2006, Síða 20
20 FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
„VIÐ ERUM þessi gömlu hjón sem semur
vel,“ segir Inga Þórhildur Ingimarsdóttir
önnum kafin við að útbúa samlokur sem bera
nafnið Kannski bestu samlokur í heimi, tólf
stykki takk áður en næsta vél að sunnan lend-
ir á Akureyrarflugvelli. Hún er eiginkona
Baldvins Halldórs Sigurðssonar, sem um
liðna helgi hreppti fyrsta sæti í forvali hjá
Vinstri grænum við val á framboðslista
flokksins vegna bæjarstjórnarkosninga í vor.
Saman reka þau Flugkaffi á Akureyr-
arflugvelli og hafa gert í bráðum þrjú ár.
Mæta hálfsjö á morgnana, „til að þurrka
framan úr teríunni“, eins og frúin orðar það
og taka til brauðmetið og annað sem til þarf
fyrir daginn. Fara svo heim þegar síðustu far-
þegar kvöldvélarinnar hafa yfirgefið flugstöð-
ina.
Baldvin er Akureyringur, fæddur ’53 og
ólst upp á Oddeyri fyrstu 11 árin, „er Eyr-
arpúki að upplagi“, segir hann, sonur Sig-
urðar Baldvinssonar, bókara og skrifstofu-
manns, og Ragnheiðar Pálsdóttur, sem ættuð
er úr Jökuldal og var alla tíð framarlega í Al-
þýðubandalaginu. „Ég drakk í mig verkalýðs-
baráttuna og sósíalismann með móðurmjólk-
inni, mamma mátt aldrei neitt aumt sjá, þoldi
illa misrétti og fátækt og var mikil kvenrétt-
indakona,“ segir Baldvin. „Þetta var vega-
nestið sem ég ólst upp við.“
Inga er frá Brekku í Núpasveit í Norður-
Þingeyjarsýslu.
Held ég sé sæmilega góður kokkur
Fjölskylda Baldvins flutti í Möðruvalla-
stræti og bjó þar um árabil, „og þar er ég
enn“, segir Baldvin sem þó hleypti heimdrag-
anum eftir nám á Bautanum, en hann er mat-
reiðslumaður og kann starfinu vel. „Ég held
ég sé sæmilega góður kokkur, líkar vel í eld-
húsi og mun ekki kunna því illa að vera í eld-
húsum alla mína starfsævi,“ segir hann. Hann
var um þriggja ára skeið bryti á Sólheimum í
Grímsnesi og eignaðist þá „40 vini á einu
bretti“ í hópi íbúa staðarins og heldur enn
kunningsskap við marga þeirra. Þau hjón
fluttu svo til Ólafsfjarðar og þar stóð Baldvin
vaktina á hóteli staðarins, Hótel Ólafsfirði, í
fimm ár eða þar til það var selt. Líkaði það vel
og segir Ólafsfirðinga ekki síðri en Akureyr-
inga „þrátt fyrir að þar sé mikið um hræðilegt
íhald. Það sem er svo notalegt við Ólafsfjörð
er að ef eitthvað bjátaði á duttu niður allar ill-
deilur, ættarpólitík og spenna milli manna,
allir tóku sig saman um að hjálpa, líkt og al-
þýðufólkið á Eyrinni gerði þegar ég var að
alast upp“.
Á meðan þau bjuggu í Ólafsfirði fékk Inga
vinnu í útibúi Landsbankans á Akureyri og lét
sig ekki muna um að aka fyrir Múlann til og
frá vinnu á hverjum virkum degi, „en það var
nú bara frá vori fram á haust, veit ekki hvort
ég hefði lagt í þetta að vetrarlagi“, segir hún
en til þess kom ekki, þau fluttu í hinn gamla
heimabæ Baldvins og hafa verið þar síðan.
Baldvin vann hjá Verkmenntaskólanum, var
kokkur hjá SÁÁ í Reyjavík og fór á milli og
þá tók hann að sér kjötborðið í verslun KEA í
Sunnuhlíð sem eitt sinn var, en þaðan lá leiðin
í verslunina í Hrísalundi. „Ég var þar í 10 til
12 ár, eitthvað svoleiðis, og kunni starfinu vel.
Kynntist þar mörgum kúnnum sem mér þykir
enn vænt um og við mig versluðu fjölmargir
eldri Akureyringar – allt þetta fólk mun kjósa
mig í vor,“ segir hann íbygginn og nælir sér í
eðalsúkkulaði frá Belgíu með kaffisopanum.
Ef maður vandar sig
Það var svo í ágúst 2003, fyrir tveimur og
hálfu ári, sem þau hjónin í nafni félagsins
síns, Jöklu, gerðu tilboð í rekstur Flugkaffis á
Akureyrarflugvelli og var því tekið.
„Ég hef gaman af veitingarekstri, ef maður
vandar sig og gerir vel er fólkið ánægt og
sækir í þjónustuna.“ Vinnudagurinn vissulega
langur og það tekur tíma að komast á beinu
brautina, „en það er að koma núna, þetta hef-
ur sigið upp á við hjá okkur“, segir Inga og er
ekkert að kippa sér sérstaklega upp við það
þótt frídagarnir séu þrír á ári; nýársdagur,
páskadagur og jóladagur. „Annars höfum við
reynt að skreppa í sumarfrí til útlanda og þá
sér sonur okkar um reksturinn á meðan, það
er nauðsynlegt að komast aðeins í burtu.“
Að sofna með hreina samvisku
Baldvin slær á létta strengi, segist hafa
tekið eftir því að menn geri flest mistök í frí-
tíma sínum og skeri þeir hann niður verði
hættan á að þeir geri mistök minni. „Svo er
það líka annað, ef menn vinna 16 tíma á sólar-
hring ná þeir ekki að eyða neinu, það er búið
að loka öllu þegar við förum heim,“ segir hann
og segist hamingjusamur yfir að eiga góða
konu, son, heilsu og eiga fyrir reikningunum.
Undirstaða hamingjunnar sé að geta lagst á
koddann á kvöldin með góða samvisku, „það
uppgötvaði ég eftir að ég komst til vits og
ára“.
En þá er það spurningin hvernig þessi önn-
um kafni maður ætlar að finna tíma til að
sinna sveitarstjórnarmálum. „Það verður bara
að hagræða hérna, fá aðstoð ef því er að
skipta,“ segir Baldvin og spáir VG tveimur
bæjarfulltrúum í kosningunum, „þremur ef
við verðum heppin“.
Inga veit nú þegar hversu mörg atkvæði
munu falla flokknum í skaut, dreymdi fyrir
því nú fyrir skömmu, en lætur töluna ekki
uppi að sinni. „Ég veit það bara, að það sem
hann Baldvin gerir gerir hann með stæl.“
Það sem Baldvin
gerir gerir
hann með stæl
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Kosningasteik Baldvin H. Sigurðsson, veitingamaður á Akureyrarflugvelli, í hópi fastakúnna en
hópur manna kemur gjarnan í mat til hans á flugvellinum í hádeginu tvo daga í viku. Nokkrir
þeirra voru þar í hádeginu í gær og Baldvin bauð upp á kosningasteik, eins og þeir orðuðu það.
Kann vel við sig í eldhúsinu Baldvin er sátt-
ur við að eyða starfsævi sinni við potta og
pönnur eldhússins, nýtur sín þar vel og segist
sæmilega góður kokkur.
Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur
maggath@mbl.is
Höfuðborgin | Strætó bs. kynnti í
gær tvo nýja almenningsvagna sem
ganga fyrir metani en þeir eru liður
í áætlun fyrirtækisins að draga enn
frekar úr útblástursmengun bíla-
flotans. Áður hafði Strætó bs. verið
frumkvöðull í notkun vetnis-
knúinna bifreiða hér á landi.
Metanið sem Strætó bs. notar á
vagna sína er unnið úr sorpinu á
urðunarstað höfuðborgarsvæðisins
í Álfsnesi. Samhliða kynningu
Strætó bs. á nýju metanvögnunum
kynnti Metan hf., dótturfyrirtæki
Sorpu bs., nýja og mun afkasta-
meiri hreinsistöð fyrir metangas
þar sem framleiða má metan á um
4.000 smærri bifreiðir á ári.
Ódýrara og umhverfisvænna
Að sögn Ásgeirs Eiríkssonar,
framkvæmdastjóra Strætó bs., eru
metanknúnar bifreiðir í senn afar
umhverfisvænar og hagkvæmar í
rekstri. Þannig er koltvísýrings-
útblástur 113 bifreiða sem nota
metan jafnmikill og frá einni bif-
reið sem gengur fyrir bensíni eða
díselolíu. Metanið er að auki alla
jafna um 30% ódýrara en bensín.
„Það er því margfaldur ávinn-
ingur þegar þar að auki stræt-
isvagninn er þannig útbúinn að
hann mengar minna en hefðbundið
farartæki, auk þess sem orkugjaf-
inn er alfarið innlendur,“ segir Ás-
geir. „Tilurð verkefnisins er sú að
þegar við ákváðum að bjóða út
kaup á 30 vögnum, sem er eðlileg
endurnýjun á flotanum, ákváðum
við að bjóða út kaup á tveimur met-
anvögnum og sjá hvernig það
myndi gefast. Við fengum boð frá
Scania og ákváðum að prófa það.“
Ásgeir segir ekki um það að ræða
að verið sé að bakka út úr vetn-
isverkefninu. „Aðkoma okkar að
því er af allt öðrum toga. Við tökum
að okkur rekstur þessara vagna, en
það verkefni er rekið af Íslenskri
nýorku. Það er samevrópskt verk-
efni með aðkomu margra aðila og
við vorum einfaldlega fengnir til að
aka vögnunum meðan á verkefninu
stæði,“ segir Ásgeir. „Munurinn er
líka sá að metanvagnar eru fram-
leiddir í fjöldaframleiðslu, en vetn-
isvagnar eru enn á tilraunastigi og
ekkert í hendi um hvenær þeir
verða orðnir raunhæfur kostur.“
Ásgeir segir ekkert því til fyr-
irstöðu að reka allan strætóflotann
á metani og þannig minnka út-
blástur hans meira en hundraðfalt.
Um endurnýjun flotans ef prófanir
ganga vel segir Ásgeir það spurn-
ingu um kaupgetu og fjárfestingar.
„Við erum að skoða möguleika á að
breyta díselvögnum okkar í gasbíla
og hugsanlega opnast einhverjir
fletir sem gæti verið raunhæfari
leið að fara, að þurfa ekki að end-
urnýja bílana heldur einungis elds-
neytisbúnaðinn.“
Strætó bs. tekur í notkun tvo strætisvagna knúna metangasi sem unnið er úr sorpi
Morgunblaðið/ÞÖK
Sorp verður orka Á Álfsnesi er
metan unnið úr úrgangi frá höfuð-
borgarbúum. Af nógu er að taka og
reikna menn með að hægt sé að
knýja um 4.000 fólksbíla með sorpi
höfuðborgarinnar.
Fyll’ann Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri bar sig fagmannlega
að þegar hún dældi metanskammtinum á nýja metanvagninn.
Margfalt
minni út-
blástur
AKUREYRI
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ