Morgunblaðið - 02.02.2006, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2006 47
Atvinnuauglýsingar
Vörukynningar
MS Reykjavík leitar að dugmiklu og drífandi
starfsfólki í lifandi og skemmtileg störf.
Starfið felst í vörukynningum á vöruflokkum
MS í verslunum. Um er að ræða talsverðan
fjölda af verkefnum í hverjum mánuði. Áhersla
er lögð á frumkvæði, áreiðanleika, þjónustulip-
urð og góða samskiptahæfileika auk sjálfstæðra
vinnubragða.
Leitað er að þroskuðum og sjálfstæðum ein-
staklingum sem eru tilbúnir til að vinna í líflegu
umhverfi, hafa ánægju af mannlegum sam-
skiptum og áhuga á heilbrigði og góðu
mataræði. Starfsreynsla við svipuð störf er
æskileg en ekki nauðsynleg.
Umsóknir berist til starfsmannasviðs MS
Reykjavík á Bitruhálsi 1, í síðasta lagi 15. febrú-
ar nk. Einnig er hægt að senda umsóknir á net-
fangið www.starfsmannasvid.is. Nánari upp-
lýsingar veitir sölustjóri í síma 569 2200.
MS er framleiðslu-, þjónustu- og markaðsfyrirtæki á sviði mjólkur-
framleiðslu. Hjá félaginu starfa um 400 manns. Frekari upplýsingar
um fyrirtækið er að finna á heimasíðu félagsins www.ms.is.
Raðauglýsingar 569 1100
Fundir/Mannfagnaðir
Framhaldsaðalfundur
Lögfræðingafélags Íslands
verður haldinn fimmtudaginn 9. febrúar nk.
á Grand Hóteli, Reykjavík, og hefst kl. 20:00.
Í samræmi við lög félagsins er boðað til fram-
haldsaðalfundar til að afgreiða tilögu um laga-
breytingar.
Dagskrá:
Lagabreytingar.
Önnur mál.
Nánari upplýsingar eru á heimasíðu félagsins:
www.logfraedingafelag.is
Lögfræðingafélag Íslands
Félagsmenn
í hestamannafélaginu Gusti
Áríðandi félagsfundur verður haldinn í veislu-
sal félagsins fimmtudaginn 2. febrúar kl. 20.15.
Fundarefni: Greinargerð og tillaga framtíðar-
nefndar félagsins. Sjá nánar heimasíðu félagsins.
Stjórn hestamannafélagsins Gusts.
Aðalfundur
Aðalfundur KR Sports hf.
verður haldinn fimmtudaginn 9. febrúar í Fé-
lagsheimili KR, Frostaskjóli 2, og hefst fundur-
inn kl. 20:00.
Dagskrá:
Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess
sl. starfsár.
Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár.
Ákvörðun um meðferð hagnaðar eða taps
félagsins á starfsárinu.
Tillögur sem borist hafa til breytinga á
samþykktum félagsins.
Stjórn KR Sport hf. leggur til að stjórn félags-
ins fái heimild til aukningar hlutafjár.
Kosning stjórnar og varastjórnar.
Kosning endurskoðenda.
Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna.
Önnur mál sem löglega eru uppborin.
Nauðungarsala
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Austurvegi
6, Hvolsvelli, miðvikudaginn 8. febrúar 2006 kl. 10:30 á eftir-
farandi eignum:
Breiðalda 1, Rangárþing ytra, ehl. gþ., fnr. 227-0550, þingl. eig. Auð-
björg J. Sigurðardóttir, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., útibú 528.
Dynskálar 9, Rangárþing ytra, fnr. 192955, þingl. eig. Eikarás ehf.,
gerðarbeiðendur Búheimar ehf. og Rangárþing ytra.
Hólavangur 18, Rangárþing ytra, fnr. 225-6800, þingl. eig. Jóna Lilja
Marteinsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Leifur Árnason.
Tjaldhólar, Rangárþing eystra, ehl. gþ., lnr. 164199, þingl. eig. Guðjón
Steinarsson, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Hvolsvelli.
Vestri-Garðsauki, Rangárþingi eystra, fnr. 219-4678, ehl. gþ., þingl.
eig. Jón Logi Þorsteinsson, gerðarbeiðendur Áburðarverksmiðjan
hf., Jónar Transport hf., Kaupþing banki hf. og Sláturfélag Suður-
lands svf.
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli,
1.febrúar 2006.
Kjartan Þorkelsson.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Furubyggð 5, 208-3429, Mosfellsbær, þingl. eig. Halldóra Friðriksdótt-
ir og Arnór Guðbjartsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og
Tollstjóraembættið, mánudaginn 6. febrúar 2006 kl. 11:00.
Suðurlandsbraut 4A, 030202, Reykjavík, þingl. eig. Óm snyrtivörur
ehf., gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf. og Tollstjóraembættið, mánu-
daginn 6. febrúar 2006 kl. 14:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
1. febrúar 2006.
Félagslíf
I.O.O.F. 11 186228 Þb.
Í kvöld kl. 20.
Kvöldvaka í umsjón systranna.
Veitingar og happdrætti.
Allir velkomnir.
I.O.O.F. 5 186228
Fimmtudagur 2.febrúar 2006
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, kl. 20:00.
Erling Magnússon.
Mikill söngur og vitnisburðir.
Allir hjartanlega velkomnir.
www.samhjalp.is.
Atvinnuauglýsingar
augl@mbl.is
MÁLVERKAUPPBOÐ til styrktar
MND félagi Íslands verður haldið
laugardaginn 4. febrúar, í húsi
Orkuveitu Reykjavíkur, 3. hæð.
Húsið opnar kl. 14 og uppboðið
hefst kl. 15, uppboðshaldari verð-
ur Gísli Einarsson fréttamaður.
Músík og ljóðalestur verður fyr-
ir uppboðið, m.a. flytur Hörður
Torfa nokkur lög. Þetta er hluti af
verkefninu „Ljóð í sjóð“, en það
mun koma út myndskreytt ljóða-
bók, ásamt CD disk, með vorinu.
Veitingar verða í boði Orkuveit-
unnar.
Listamennirnir sem gefa MND
félaginu verk sín eru: Eiríkur
Smith, Tolli, Gunnar Dal, Daði
Guðbjörnsson, Pétur Gautur, Kar-
ólína Lárusdóttir, Helga Ármanns,
Helga Unnars, Sigurður Óli, Víðir,
Elvar, Hörður, Jón Arnar og fleiri.
Tolli, Dögun 2005.
Málverkauppboð til
styrktar MND-félaginu
FRÉTTIR
FRÆÐAÞING landbúnaðarins
verður haldið í dag, fimmtudaginn 2.
febrúar og á morgun, föstudag.
Þinginu er einkum ætlað að miðla
rannsókna- og þróunarstarfi í ís-
lenskum landbúnaði og að fjalla á
faglegan hátt um landbúnað og nátt-
úrufræði.
Fyrri daginn verður þingað í sal
Íslenskrar erfðagreiningar að
Sturlugötu 8 og er yfirskriftin „Ný-
sköpun landbúnaðar – leiðir og
markmið“. Seinni dagurinn er á Hót-
el Sögu þar sem verða tvær samhliða
dagskrár í ráðstefnusölum á 2. hæð.
Í A sal verður fjallað um auðlindir; –
veiði, vatn og vatnsgæði og auðlind-
ir; – veiði, vatn og jarðveg. Í Ársal
verður fjallað um hagnýtar rann-
sóknaniðurstöður úr búfjárrækt og
hagnýtar rannsóknaniðurstöður úr
jarðrækt.
Fræða-
þing land-
búnaðarins
EFTIRFARANDI ályktun hefur
borist frá Vinstrihreyfingunni –
grænu framboði í Skagafirði:
„Aðalfundur Vg í Sveitarfé-
laginu Skagafirði sem haldinn var
29. janúar sl. fagnar þeirri fjöl-
breyttu uppbyggingu sem átt hef-
ur sér stað í Skagafirði síðustu ár-
in og áformum um miðstöð
hátækniiðnaðar í héraðinu. Hins
vegar hafnar fundurinn hugmynd-
um um álver við Kolkuós og stór-
virkjanir í Skagafirði í tengslum
við álbræðslu á Norðurlandi, sem
eru andstæðar hagsmunum Skag-
firðinga. Atvinnutækifærin felast í
fjölbreytni og þekkingariðnaði en
ekki einhæfum álbræðslum sem
skaða möguleika annarra atvinnu-
greina ásamt því að ganga á nátt-
úru landsins og aðra atvinnukosti
til framtíðar. Ennfremur fagnar
fundurinn ákvörðun um að þyrma
Þjórsárverum og hvetur til þess
að einnig verði komið í veg fyrir að
Héraðsvötnunum og Jökulsánum í
Skagafirði sem svo mjög móta
ásýnd og ímynd héraðsins verði
fórnað. Aðalfundur Vg í Skagafirði
leggst alfarið gegn öllum hug-
myndum um virkjanir í Jökulsán-
um í Skagafirði og því að gert sé
ráð fyrir slíkum framkvæmdum á
aðalskipulagi Skagafjarðar.“
Hafna hugmynd-
um um álver
við Kolkuós