Morgunblaðið - 05.02.2006, Blaðsíða 26
26 SUNNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Ferðafélag Íslands hefur um árabil fariðgönguferðir um Þjórsárver. Mikilláhugi er nú á Þjórsárverum og hefurþess orðið verulega vart í fyrirspurn-um hjá félaginu. Þess vegna er vel við
hæfi að segja stuttlega frá ferðum Ferðafélags-
ins á þær slóðir. Margar myndir hafa birst úr
verunum en tiltölulega fáar af því svæði sem
mest hefur verið rætt um vegna virkjunarfram-
kvæmda sem nú hafa verið lagðar til hliðar. Hér
er reynt að bæta úr þessu og brugðið upp mynd-
um af austurhluta veranna og
nágrenni Arnarfells hins
mikla.
Því miður hafa tiltölulega
fáir landsmenn komið í
Þjórsárver og notið ein-
stæðrar náttúru svæðisins en
mörgum þykir að öræfakyrrð, tign og fegurð Ís-
lands nái þar sinni dýpstu merkingu. Sagt hefur
verið að enginn verði samur eftir að hafa ferðast
um Þjórsárver en ferðamaðurinn þarf helst að
dvelja nokkra daga, horfa ekki eingöngu til fjalla
og jökla heldur rýna líka niður í svörðinn, virða
fyrir sér stör, freðmýrarrústir og blómskrúð,
skima niður í tjarnir og fræðast um líf og land-
mótun. Þá verður hverjum manni ljóst að nátt-
úrufar Þjórsárvera er ein verðmætasta eign
landsins og einstök á heimsvísu.
Þjórsárver eru því sem næst í miðju landsins
og eitt einangraðasta svæði á hálendinu, um-
kringt hvítum jöklum, mórauðum fljótum og
svörtum eyðisöndum. Sjálf skarta verin ekki að-
eins grænu heldur sýnir náttúran alla sína auðgi
í litavali. Einangrun veranna er ferðamanninum
í senn hindrun og lokkandi ögrun.
Sumarleyfisferðir Ferðafélagsins eru að jafn-
aði 5 til 6 dagar. Á þeim dögum er gengið í Naut-
öldu, um Arnarfellsmúlana sunnan Múlajökuls,
öslað fram í Oddkelsver, stikað upp að jökli við
Ólafsfell og loks er Arnarfell hið mikla klifið ef
veður leyfir og reyndar einnig Arnarfell hið litla
eða Kerfjall. Á síðasta degi er vaðið vestur yfir
Blautukvísl og göngunni lýkur við Setur, skála
Ferðaklúbbsins 4x4, vestan Þjórsárvera. Nátt-
staðir í ferðinni eru aðeins tveir, í Nautöldu og
undir Arnarfellsbrekkum, og er gengið þaðan
daglega þannig að ekki þarf að bera nema dags-
nesti helming ferðadaganna. Dagleiðir eru ekki
ýkja langar en vaða þarf jökulár og ótal sprænur
og feta sig upp brattar og lausar skriður Arn-
arfells hins mikla.
Við nálgumst Þjórsárver úr austri. Jökulhvel
Hofsjökuls er framundan þar sem fjallakollar
Hásteina gægjast upp úr langt inni á jökli og
verða æ sýnilegri með hverju ári eftir því sem
jökullinn hjaðnar. Suðaustur úr meginjökli
Hofsjökuls skríður Þjórsárjökull, lágur en
breiður, og höfum við hann á hægri hönd. Í
vestri breiðir Múlajökull úr sér en mörgum þyk-
ir hann einna formfegurstur íslenskra jökla.
Lögun hans minnir helst á hörpuskel. En það er
Arnarfell hið mikla sem fangar auga okkar um-
fram allt annað, glæsilegt og mikilúðlegt. Við
finnum nærveru þess afar sterkt en samt er það
svo óaðgengilegt þar sem það spyrnir baki við
þunga jökulsins en við fótskör þess byltist
flaumur jökulánna.
1. Horft til Þjórsárjökuls
Á fyrsta degi ökum við Sprengisandsleið en
sveigjum síðan vestur yfir Þjórsá á stíflu 5.
áfanga Kvíslaveitu töluvert innan við Hreysis-
kvísl og Háumýrar. Við hefjum síðan gönguna
þegar komið er að vestari Þjórsárkvísl eða Vest-
urkvísl eins og hún hefur verið nefnd. Hún kem-
ur sunnan undan Þjórsárjökli. Á myndinni erum
við hér stödd austan við Þjórsárkvíslina, utan
við hið afmarkaða friðland og horfum norðnorð-
austur til Þjórsárjökuls í Hofsjökli. Til hægri
sjáum við Miklafell og Klakk í fjarska, austan
við Hofsjökul. Við horfum yfir hluta þess svæðis
sem ætlað hefur verið til aursöfnunar með mót-
vægis- og veitulónum. Með þessum lónum hefur
verið gert ráð fyrir að komist verði hjá gerð
stórs lóns sem upphaflega átti að ná inn í núver-
andi friðland neðar í verunum, í nágrenni Norð-
lingaöldu. Gróðurinn sem við sjáum er aðallega
móa- og víðiheiðar á þurrari svæðum og mosar
og hélumosar í lægðum, með störum og öðrum
Á slóðum Ferðafélags Íslands
Þjórsárver
og Arnarfell
hið mikla
Morgunblaðið/Ólafur Örn
Morgunblaðið/Ólafur Örn
Morgunblaðið/Ólafur Örn
Morgunblaðið/Ólafur Örn
Eftir Ólaf Örn Haraldsson
&
'
() " %+
) "
,- . /
(%%-%
00+
!"
!
#
"#
$
Höfundur tæpra ellefu ára í Nauthaga 1958.
Hofsjökull og Hjartarfell í baksýn. Foreldrar höf-
undar, Haraldur Matthíasson og Kristín Ólafs-
dóttir, tóku drenginn með í ferðina sem farin var
á vegum Páls Arasonar.
1
2
3
4