Morgunblaðið - 05.02.2006, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 05.02.2006, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2006 31 Glænýr Saab Bílar á milliverði eru fljótir að verða dýrir þegar aukabúnaðinum er bætt við. SAAB 9-5 er vel búinn lúxusbíll á milliflokksverði. Öruggur, glæsilegur og á allra færi að eignast. Það hefur aldrei verið ódýrara að skipta yfir í lúxus. Svona lúxus á ekki að kosta 3.160.000* * Taktu skrefið í lúxus. William Brennan, sem sat í Hæsta- rétti Bandaríkjanna í næstum fjóra áratugi (1956-1990) að leggja mætti að jöfnu við stjórnarskrárbrot annars vegar vanrækslu í að vernda fólk gegn ofbeldi og hinu að yfirvöld stæðu fyrir slíku sjálf. Það er líka of- beldi ef ríkið vanrækir skyldur sem það hefur, sagði hann. „Ég get ekki fallist á að stjórnarskráin okkar sé skeytingarlaus andspænis slíku að- gerðarleysi,“ sagði hinn aldni og virti dómari. Thelma Ásdísardóttir og systur hennar, sem nýlega vöktu alþjóð til vitundar um hvað slíkt sinnuleysi hef- ur í för með sér skilja örugglega hvað við er átt. Og það gera væntanlega fleiri. Sérstaða Íslands varðandi réttarframkvæmd Við lögleiðingu Mannréttindasátt- mála Evrópu var tekin sú sérstaka ákvörðun að verjast ásælni hins er- lenda valds með sérstöku ákvæði í 2. grein laganna, sem tekur fram að úr- lausnir mannréttindanefndarinnar, mannréttindadómstólsins og ráð- herranefndar Evrópuráðsins séu ekki bindandi að íslenskum rétti. Mun þetta ákvæði ekki eiga sér hlið- stæðu við lögleiðingu sáttmálans í öðru aðildarríki. Engu að síður voru rökin fyrir lögfestingu þau að tryggja réttarstöðu einstaklinga hér á landi. Breyting á mannréttindakafla stjórn- laganna sjálfra ári síðar þjónaði sama tilgangi án þess að hægt sé að full- yrða að almenn afstaða til ríkisvalds- ins hafi verið að breytast. Í athugasemdum við frumvarp til laga um Mannréttindasáttmála Evr- ópu nr. 62/1994 segir að til „að efna skuldbindingar sínar, sem fylgja aðild að Mannréttindasáttmálanum, verða ríkin, sem í hlut eiga, að haga löggjöf, stjórn- og dómsýslu sinni þannig að ofangreind réttindi séu virt. Í vel flestum atriðum eru þessi réttindi þess eðlis að þau beinast að ríkjunum sjálfum sem bera þá skyldurnar sem svara til réttindanna. Réttindin eru aðeins í undantekningartilvikum þess efnis að skyldur falli á einstaklinga eða samtök þeirra. Í raun má því segja að þegar rætt er um mannrétt- indi samkvæmt þessum sáttmála sé í meginatriðum átt við frelsisréttindi einstaklinganna til að haga lífi sínu, skoðunum og athöfnum að eigin vild án þess að eiga á hættu afskipti eða íhlutun ríkisins. Þessi afmörkun á hugtakinu mannréttindi eða eðli þeirra er í samræmi við viðtekinn skilning á því.“ Það er erfitt að fallast á þessa af- mörkun á hugtakinu í ljósi 1. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu, sem segir að ríkið verði að tryggja öllum innan sinnar lögsögu þau réttindi sem eru í Sáttmálanum. Þá hafa margir fræðimenn sýnt með óyggjandi hætti fram á athafnaskyldu ríkja í að tryggja efndir þeirra réttinda sem í sáttmálanum eru, ekki síst á grund- velli dómaframkvæmdar. Staða mannréttinda í stjórnar- skrám ríkja afhjúpar á vissan hátt ríkjandi pólitíska afstöðu þótt varast beri að draga of miklar ályktanir um réttarvitund þegnanna eða stjórn- valda of orðalagi ákvæðanna einna saman. Borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi áttu ekki upp á pallborðið í fyrrverandi ríkjum Austur-Evrópu og Sovétríkjunum. Þar var aftur á móti meiri áhersla á efnahagsleg og félagsleg réttindi sem stjórnvöld vestrænna ríkja vildu meina að kæmu sem afleiðing af hinu borgaralega frelsi. Þó fer víðsfjarri að um slíkt hafi ríkt einhugur og því til staðfestingar er svonefnd Vínaryfirlýsing 1993 þar sem 171 ríki á heimsráðstefnu um mannréttindi lýstu því yfir að „öll mannréttindi séu algild, óaðskiljan- leg, hvert öðru háð og innbyrðis tengd“. Sú formlega samstaða sem birtist í þessari yfirlýsingu kann að vera dulið yfirvarp yfir langvarandi ágreining um raunverulega stöðu fé- lagslegra og efnahagslegra réttinda. Eru þau mikilvægari hinum sígildu borgaralegu frelsisréttindum eða eru þau aðeins pólitískt viðmið (ekki raunveruleg réttindi í skilningi laga) um réttlátt/réttlátara samfélag sem kallar á íhlutun stjórnvalda með til- heyrandi skerðingu á frelsi einstak- linga? Stríðið gegn fátækt? Mannréttindadómstóll Evrópu hefur svarað þessari spurningu með því að segja að engin vatnsheld skil séu á milli þessara réttinda í raun og veru af þeim sökum að þau eru inn- byrðis tengd, óaðskiljanleg og hvert öðru háð. Í tímamótadómi í máli Ai- rey gegn Írlandi árið 1979, snerist málið um það hvort bágstödd fjög- urra barna móðir, Jóhanna Airey, sem sóttist eftir skilnaði frá ofbeldis- fullum eiginmanni, ætti rétt á gjaf- sókn samkvæmt 6. gr. Mannréttinda- sáttmálans um réttinn til réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi. Dómstóll- inn kvað upp úrskurð sinn og sagði að írska ríkið hefði brotið á rétti Jó- hönnu Airey með því að veita henni ekki gjafsókn og rökstuddi niður- stöðu sína m.a. með því að mörg hinna pólitísku og borgaralegu réttinda fælu í sér efnahagslegar og félagsleg- ar kröfur. Það eitt að túlkun ákvæð- anna leiddi til slíkrar niðurstöðu ætti ekki að standa í vegi fyrir því að dóm- arar kvæðu upp þannig úrskurð enda ekki vatnshelt skilrúm á milli ákvæða samningsins og félagslegra og efna- hagslegra réttinda. Þór Vilhjálmsson, þá dómari við Mannréttindadómstólinn, skilaði sér- áliti í Airey sem er lýsandi fyrir „íhaldssama dómaframkvæmd“ eða þrönga skilgreiningu á valdi dómstóla til að leysa úr ágreiningi um réttindi og skyldur manna að lögum. Þór sagði að hugmyndirnar að baki Mannréttindasáttmála Evrópu og orðalag ákvæðanna gæfi skýrt til kynna að hann tæki til annarra vandamála en þeirra sem við blöstu í þessu máli. Hann tók fram að sér þætti það miður, og urðu ummælin fleyg, en stríðið gegn fátækt myndi ekki vinnast með rúmri túlkun á Mannréttindasáttmála Evrópu. Evrigenis dómari sem einnig skil- aði séráliti var ekki sammála þeirri niðurstöðu dómsins að óþarfi væri að skoða hvort um brot á jafnræðisregl- unni væri að ræða í samhengi við rétt- inn til réttlátrar málsmeðferðar en Jóhanna Airey hélt því fram að henni hefði verið mismunað á grundvelli bágs efnahags. Hann benti á að orðið að njóta réttinda í skilningi jafnrétt- isreglu Mannréttindasáttmálans tæki til allra aðstæðna sem kynnu að koma upp allt frá því að vera meinað að njóta réttinda til fullrar holdtekju réttindanna í réttarkerfinu. Athafnaskylda stjórnvalda Kenningin um athafnaskyldu stjórnvalda þykir nú staðfest með dómaframkvæmd Mannréttindadóm- stóls Evrópu, sérstaklega hin síðari ár. Samanburðurinn á afstöðu Mann- réttindadómstóls Evrópu annars veg- ar og Hæstaréttar Bandaríkjanna hins vegar hvað varðar skyldur stjórnvalda til að vernda borgara gegn ofbeldi eða brotum af hálfu einkaaðila er liður í þeirri þróun sem nú á sér stað í alþjóðavæðingu rétt- arríkisins. Það er athyglisvert að velta fyrir sér hinni ólíku útkomu í máli vesalings bresku barnanna og bandaríska drengsins sem var í dauðadái eftir barsmíðar föður síns. Hvað veldur? Frank Michelman, lagaprófessor í Harvard, segir að svarið liggi í mismunandi pólitískum kúltúr, þ.e. samfélagshyggju annars- vegar eða einstaklingshyggju hins- vegar – fremur en mismunandi stjórnskipun. Og hugsanlega þeirri staðreynd að Evrópubúar séu ekki orðnir stjórnarskrárvanir með sama hætti og Bandaríkjamenn. Þeir sjái stjórnarskrána enn þá í rómantísku ljósi! Hvað sem því líður er hlutfall barna undir fátæktarmörkum, sam- kvæmt skýrslu Barnahjálpar SÞ frá 2005, yfir 20% í Bandaríkjunum og Mexíkó en undir 3% í Danmörku og Finnlandi. Noregur er eina landið þar sem barnafátækt er afar lág og næst- um hverfandi. Hins vegar hefur fá- tækt meðal barna aukist í 17 af 24 OECD ríkjum undanfarin ár. Helstu ástæður eru áherslur í samfélaginu (Hamingjuleit samtímans – ólíkt sjálfstæðisyfirlýsingunni frá 1776: of- urforstjórar + ofurlaun = ofurfyrir- sætur?), ástandið á vinnumarkaði og stefna stjórnvalda. Það eru því aðrar breytur sem ber að skoða en róman- tíkin í þessu samhengi. Barnafátækt í auðugum ríkjum grefur undan jafn- rétti, tækifærum og sameiginlegum gildum. Aðgerðir til að stemma stigu við þessu ástandi eru því prófsteinn á þessi ríki og íbúa þeirra, þ.e. hvort hugur fylgi máli í lögfestingu mann- réttinda og óðinum til réttarríkis eða hvort þetta sé eins og draumur á Jónsmessunótt. Höfundur er prófessor við lagadeildina á Bifröst. Skógarhlíð 18, sími 595 1000, fax 595 1001 - www.heimsferdir.is THAILANDS-TOPPAR 30. JANÚAR UPPSELT NÝTT TILBOÐ 4. APRÍL LÆGSTA VERÐ! *Í lokin 6 dagar (5 nætur) á nýjasta lúxushóteli á PATONG ströndinni, vinsælasta baðstað Austurlanda. Íslenskur fararstjóri allan tímann. THAILAND BLÓMSTRAR OG AÐSÓKNIN ER SLÍK AÐ ERFITT ER AÐ FÁ FLUGSÆTI. ÖRUGG VEÐURSÆLD Í FÖGRU UMHVERFI. PÁSKASÓL - LÍFSGÆÐI 10-16 dagar (8-14 nætur)* frá kr. 139.800 SÉRVALIÐ AF INGÓLFI GUÐBRANDSSYNI FERÐAFRÖMUÐI NOKKRIR HÁPUNKTAR: Heiðursgestir í nýja Þjóðleikhúsinu, BANGKOK, á eina glæsilegustu sýningu heimsins í dag. Gisting á glæsilegu hóteli með stórri sundlaug og veitingasölum í bestu hótelborg heimsins, Bangkok, 4 nætur m. morgunverði. Flug til CHIANG MAI, hinnar fögru, rómantísku borgar í Norður- Thailandi, sem mörgum finnst einn fegursti staður heims. Fjórar nætur á frægu hóteli með öllum þægindum og sundlaug. TILBOÐSVERÐ GILDIR TIL 8. FEBRÚAR: Verð sem jafngildir hálfvirði. Söluumboð: AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.