Morgunblaðið - 05.02.2006, Page 50

Morgunblaðið - 05.02.2006, Page 50
50 SUNNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Í mars 2006 hefst viðbótarnám fyrir tungumálakennara í ensku og dönsku vegna fyrirhugaðra breytinga á námsskrám í grunnskólum. Uppsetning námsins verður með eftirfarandi hætti: • Aðfaranám - fyrri hluti, hefst í mars 2006. Áhersla á námsskrár. Í mars hefst almennt námskeið þar sem farið verður yfir drög að námsskrám og þátttakendum kynnt upplýsingatækni til að auka færni þeirra í fjarnámi. Staðbundnar lotur verða haldnar í öllum landsfjórðungum. •Aðfaranám - síðari hluti, hefst í september 2006. Áhersla á kennsluaðferðir og tækni. Að aðfaranáminu loknu verður boðið uppá námskeið í Kennaraháskóla Íslands, Háskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri og Háskólanum í Reykjavík sem henta til viðbótarmenntunar í viðkomandi fagi. Þátttakendur geta valið námskeið í öllum háskólunum og stundað þau í fjarnámi. Viðbótarnám fyrir grunnskólakennara vegna fyrirhugaðra breytinga á námsskrám í dönsku og ensku Skráning febrúar 2006 Aðfararnám 1 mars 2006 Aðfararnám 2 3 einingar Haust 2006 Viðbótarnám HÍ, HA, HR og KHÍ : Valfög allt að 12 einingar, vetur 06-09 Skírteini Vor/Haust 2009 Umsóknir um þátttöku berist í síðasta lagi 24. febrúar til Símenntunarstofnunar Íslands sem hefur umsjón með skráningu og staðfestingu á þátttöku kennara. Upplýsingar um námskeiðin verða á vef Símenntunar: http://simennt.khi.is MIKLAR réttarbætur blasa við samkynhneigðu fólki. Hópur sem lengi lifði í felum hefur um árabil sótt í sig veðrið og orðið að áberandi sam- félagsskrauti og pólitískum þrýsti- hópi, fyrir utan að vera bara eins og annað fólk. Það má skynja gleði yfir unnum sigrum en jafnframt vaxandi óþol gagnvart lokahindrununum á veginum til jafnréttis. Það er hottað á alþingisþingmenn að vera ekki að bíða eftir stofnun eins og þjóðkirkj- unni sem hefur tekið sér eins árs um- hugsunarfrest, þegar Íslendingar gætu orðið fyrstir þjóða til þess að lögleiða „hjónavígslu samkyn- hneigðra“. Svipan er hnýtt með skammaryrðum eins og forpokun, fordómar, fáfræði og forneskja og margur góður maðurinn kveinkar sér. Samt er þörf á yfirvegun því við lestur á stjórnarfrumvarpinu um réttarstöðu samkynhneigðra koma í ljós alvarlegir meinbugir frá lýðræð- islegu og menningarlegu sjónarmiði séð ekki síður en trúarlegu. Sú mikla áhersla sem að undanförnu hefur verið lögð á trúarlegan þátt hjóna- vígslunnar hefur orðið til þess að varpa nær öllum vandanum yfir á þjóðkirkjuna og byrgja fólki sýn á aðrar hliðar málsins. Hjónabandskvikan Við undirrituð höfum vakið athygli á því á að hin nýja skilgreining á hjónabandinu sem birt er í athuga- semdum með frumvarpinu hefur ekki verið rædd af hálfu alþingis við meiri- hluta þeirra sem málið varðar, þ.e.a.s. hjónin í landinu. Hjónabandið er ekki bara málefni vígslumanna, það snertir ekki síður þá sem vígsl- una þiggja og hafa þegið, hvort sem hún var framkvæmd á sýslu- skrifstofu eða í kirkju. Við teljum að alþingi hafi ekki umboð til þess að breyta innihaldi svo mikilvægra sátt- mála án víðtækrar umræðu og lýð- ræðislega fengins samþykkis. Ný skilgreining á hjónabandinu hefur áhrif á merkingu þess fyrir alla sem þegar eru í hjónabandi. Hjónabandið snertir kviku mannlífsins. Hlutur karls og konu í hjónabandi er stór þáttur í sjálfsmynd hvors um sig, kynferðið hefur oftast mikla þýðingu, orðin móðir og faðir sömuleiðis og það sem þau standa fyrir. Sú tilraun sem gerð er í frumvarpinu til þess að afhlaða þessi orð í þeim tilgangi að rétta hlut minnihlutahóps verður um leið tilraun til þess að tæma þau að merkingu. Móðir er ekkert sérstakt, faðir ekki heldur og hjónaband að- eins samkomulag einstaklinga sem rugla saman reytunum óháð kyni. Menningarsögulegt hneyksli Það er óvarlegt að fara þannig með fyrirbæri sem á sér jafn djúpar rætur í menningu hins vestræna heims og í grundvallaratriðum menningu alls heimsins. Og það ber vott um ótrú- lega lítilsvirðingu að ætla að koll- varpa hefðbundnum skilningi á hjón- bandinu eins og gert er með frumvarpinu og birta hann í at- hugasemdum og orðalagsbreytingum eins og um eitthvert smámál væri að ræða. Ef boðuð leið er farin verður um að ræða skemmdarverk á tung- unni því þá eiga Íslendingar ekki lengur neitt orð sem lýsir sérstaklega þessum forna sáttmála karls og konu. „Menningarsögulegt hneyksli“ kall- aði séra Sigurður Ægisson þessi áform í Hugvekju sinni í Morgunblaðinu 22. janúar og bætti við: „Stórar ákvarðanir á ekki að taka í skyndingu“. Lögband, lögbúð Við erum sannfærð um að það eru færar aðrar og betri leiðir til þess að tryggja sam- kynhneigðum sam- bærilega stöðu og hjón- um en sú að sprengja upp sjálft hjónbands- hugtakið. Í þætti Ævars Kjart- anssonar hjá Ríkisútvarpinu, Lóð- rétt, lárétt, hefur málefni sam- kynhneigðra oft borið á góma. Sunnudaginn 22. janúar tæpti um- sjónarmaður á hugmynd sem kannski gæti leitt til lausnar og sam- komulags ef vilji væri fyrir hendi. Hann benti á að stundum væri búinn til nýr samnefnari yfir skyld fyr- irbæri, sem þó yrði að aðgreina. Hann tók líkingu af hjóli og bíl sem hvort tveggja væru farartæki og nefndi orðið kærleiksband, spurði hvort það væri ekki orð sem næði jafnt yfir hjónaband karls og konu í hefðbundinni merkingu og sambúð tveggja af sama kyni. Það er erfitt að lögbinda kærleik- ann en ef löggjafann vantar eitt heiti yfir ólík sambúðarform sem þó er ætlað að tryggja jafnrétti þegnanna þá er það í samræmi við íslenska hefð að búa til nýtt orð. Við tókum þátt í því á sínum tíma með aðstoð Baldurs Jónssonar hjá Orðabók Háskólans að smíða orðin kynhneigð, gagnkyn- hneigð, samkynhneigð og tvíkyn- hneigð og setja þau á flot í opinberri umræðu. Þau birtust fyrst á prenti í Þjóðviljanum 19. febrúar 1977. (Sjá nánar Fréttablaðið 27. jan). Síðan eru liðin 29 ár og öll hafa orðin fyrir löngu unnið sér sess í málinu. Nú spyrjum við með Ævari: hvaða orð getur náð yfir hjónaband karls og konu, hvort sem það hlaut borgaralega vígslu eða kirkjulega, óvígða sambúð og stað- festa samvist tveggja af sama kyni? Við leggjum til orðin LÖGBAND eða LÖGBÚÐ yfir ólík sambúðarform sem teljast jafnrétthá fyrir lögunum. Sagan, tungan og hjónabandið Steinunn Jóhannesdóttir og Einar Karl Haraldsson fjalla um hjónabandið ’Við erum sannfærð umað það eru færar aðrar og betri leiðir til þess að tryggja samkynhneigð- um sambærilega stöðu og hjónum en sú að sprengja upp sjálft hjón- bandshugtakið.‘ Steinunn Jóhannesdóttir Höfundar eru hjón. Steinunn er rit- höfundur og Einar Karl ráðgjafi. Einar Karl Haraldsson ÞAÐ er brot á lögum um ráð- herraábyrgð í Danmörku ef ráð- herra þar gefur þjóðþinginu rangar eða villandi upplýs- ingar. Verulegar líkur eru á að Árni M. Mat- hiesen fjármálaráð- herra hafi brotið gegn lögum um ráðherra- ábyrgð ef slíkt ákvæði væri í íslenskum lög- um um ráðherra- ábyrgð. Einar Árna- son hagfræðingur hefur afhjúpað rangar staðhæfingar fjár- málaráðherra, þegar ráðherrann bæði á Al- þingi og í fjölmiðlum hélt því fram með til- búnum dæmum að skattbyrði fólks með lágar og meðaltekjur hafi verið miklu hærri árið 1994 áður en stjórnarflokkarnir tóku við landsstjórn- inni. Því hefur verið haldið fram að fram- setning ráðuneytisins feli í sér vísvitandi blekkingar og er það með ólíkindum að fjár- málaráðherra landsins sé svo for- hertur að gerast sekur um slíka óhæfu. Forkastanleg vinnubrögð og ósannindi Það er auðvitað gróf blekking eins og hagfræðingurinn hefur sýnt fram á að bera saman skattbyrði á 120 þúsund króna tekjur árin 2006 og 2007 við sömu krónutölu í tekjum árið 1994 og finna út frá því að skattbyrði á þessar tekjur hafi verið helmingi hærri árið 1994. Í slíkum samanburði er það auðvitað skatt- byrði af sömu rauntekjum öll árin sem skiptir máli ef fá á fram hvaða breytingar hafa orðið á skattbyrði milli ára. Í þessu skáldaða dæmi ráðherrans gefur hann sér að 120 þúsund króna tekjur breytist ekk- ert á 12 ára tímabili, en 120 þúsund króna tekjur árið 1994 framreiknað m.v. verðlag er 186 þúsund kr. í dag og m.v. launabreytingar um 250 þúsund kr. Ef bera á saman 120 þúsund króna tekjur í dag við sam- bærilegar rauntekjur árið 1994 þá ætti að miða við 80.500 kr. tekjur árið 1994. Þá er nið- urstaðan auðvitað allt önnur og skattbyrðin er ekki 21,9% árið 1994 eins og ráðherrann segir heldur um 12,1%. Það eru auðvitað for- kastanleg vinnubrögð hjá ráðherranum að bera á borð þessi ósannindi og hreinlega skrökva að þjóðinni. Forstjórarnir með ofurkjörin fá 2,3 milljónir í skatta- lækkanir Staðreyndin er sú að fjármálaráðherrar íhaldsins hafa frá árinu 1995 siglt undir fölsku flaggi og eiga Íslands- met í skattpíningu á al- menning í bullandi góðæri – alla nema of- urforstjórana og efna- fólk. Það hafa þeir gert með því að hagræða í skattkerfinu til hags- bóta fyrir hálaunafólk og velt skattbyrðinni af efnafólki yf- ir á almenning í landinu, en skatt- byrði hefur verið aukin hjá 90% heimila í landinu á árunum 1994– 2004. Skattleysismörkin hafa þeir skert um 16 milljarða á sl. 10 árum m.v. neysluvísitölu og 35 milljarða m.v. launavísitölu. Þetta fjármagn var tekið úr vösum almennings og fært til ofurforstjóranna og efna- fólksins til að létta af þeim sköttum. Þannig fá forstjórarnir með ofur- kjörin 2,3 milljónir í skattalækkanir á ári þegar skattbreytingarnar eru að fullu komnar til framkvæmda ár- ið 2007. Þetta gerist á sama tíma og barnabætur og vaxtabætur hafa líka verið skertar og lítils háttar aukning nú á barnabótum nær ekki einu sinni að halda í við þær greiðslur sem barnafjölskyldur fengu þegar þessi ríkisstjórn tók við árið 1995. Skattaparadís efnafólks en almenningur skattpíndur Fjármálaráðherra hefur í engu hrakið vandaða útreikninga Stefáns Ólafssonar prófessors þar sem fram kemur að skattbyrði hafi aukist á fólki með lágar og meðaltekjur eða hjá um 90% heimila í landinu. Það kemur heim og saman við það sem við í Samfylkingunni höfum margoft haldið fram. Enda er staðreyndin sú að þeir tekjuhæstu greiða að með- altali 12% af sínum tekjum í skatt en almenningur greiðir að meðaltali um 25% af sínum tekjum í skatt. Stjórnarflokkarnir hafa því búið til skattaparadís fyrir efnafólkið – meðan almenningur sætir skattp- íningu. Athyglisvert er að skoða sérstaklega hvernig stjórnarflokk- arnir hafa farið með lífeyrisþega og lægst launaaða fólkið sem greiddu af 100 þúsund króna tekjum á síð- asta ári 9,4% í skatt. Af sömu raun- tekjum árið 1988 var ekki greidd ein króna í skatt og 3,3% árið 1991. Þessar tölur hefur fjármálaráð- herra ekki hrakið. Heldur ekki að kaupmáttur láglaunafólks hefur að- eins aukist um 28% sl. 12 ár meðan kaupmáttur efnafólks er tvöfalt meiri á þessu tímabili. Lítils háttar lagfæring á kjörum lífeyrisþega hika þeir ekki við að taka aftur til baka með aukinni skattbyrði. Auk þess hafa orðið verulegar hækkanir á gjaldtöku og lyfjakostnaði heim- ilanna á liðnum árum sem er ekkert annað en skattpíning einkum fyrir tekjulægstu heimilin í landinu. Fyr- ir öll þessi óhæfuverk á að refsa stjórnarflokkunum í næstu kosn- ingum. Alvarlegar blekking- ar fjármálaráðherra Jóhanna Sigurðardóttir fjallar um skattamál ’Fjármálaráð-herrar íhaldsins hafa frá árinu 1995 siglt undir fölsku flaggi og eiga Íslandsmet í skattpíningu á almenning.‘ Jóhanna Sigurðardóttir Höfundur er alþingismaður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.