Morgunblaðið - 09.02.2006, Blaðsíða 7
Nú eru árshátíðirnar og þorrablótin í fullum
gangi. Þetta er tíminn sem allar konur geta notið
þess að vera prinsessur en á sama tíma er líka mik-
ill pirringur og spenna í gangi sem snýr að því
hvort maður fíli sig sem prinsessa eða hvort maður
sé nógu fínn eða of fínn og allt það. En það skiptir
mestu máli að manni líði vel í dressinu en sé þó
ekki alveg hversdagslegur. Það eru nú ekki allt of
mörg tækifæri sem maður fær til að fara í flott-
asta kjólinn sem maður á og njóta þess að vera
sæt og fín.
Þú slærð pottþétt í gegn á ballinu ef þú færð þér
dragsíðan hlýralausan kjól. Einhvern sem lítur út
eins og hann eigi heima á rauða teppinu í Holly-
wood. Það getur samt verið erfitt að skemmta sér í
slíkum kjól og því getur verið betra að fá sér einn
sem nemur rétt við hnén. Kjól sem er með hlýrum
eða hlýralaus, einhvern glæsilegan og helst með
einhverju skrauti eins og glimmeri. Til að vera sem
flottust skaltu velja þér blágrænan, skærbleikan,
fjólubláan, bláan, sinnepsgulan eða silfraðan.
Við fallegan kjól passa helst kvenlegir háhælaðir
skór. Pinnahælar eru að detta út svo það getur
verið betra að fá sér skó með aðeins breiðari hæl
eða skó sem eru með þykkum sólum í 1970 stíln-
um. Það er gaman að breyta til og skella sér í skó
sem eru ekki svartir heldur frekar einhverja sem
eru áberandi og flottir eins og appelsínugula,
rauða, silfraða eða gyllta.
Ef þú velur þér kjól sem er vel skreyttur skaltu
halda þér við einfalda skartgripi eins og einfalt
hálsmen í viktoríutímabils-stíl, litla eyrnalokka eða
flott breitt armband. Ef kjóllinn er hins vegar frek-
ar látlaus þá skaltu skreyta þig aðeins meira og
setja á þig langa og skrautmikla eyrnalokka eða
íburðarmikið hálsmen með perlum.
Til að vera ekki með úttroðna vasa með lyklum,
snyrtibuddunni og öllu hinu sem er „nauðsynlegt“
að hafa með sér þá borgar sig að fá sér flott veski.
Til að toppa prinsessu-útlitið skaltu fá þér veski
sem er lítið og ílangt. Eitthvað sem þú getur hald-
ið á eða eitthvað sem er mjög fínlegt og fyrirferð-
arlítið en samt hægt að skella á öxlina.
Prinsessa ætti helst að ganga í pels og vera þá al-
gjör hefðardís en fyrir þær sem vilja ekki pelsinn
þá getur falleg dragsíð eða millisíð ullarkápa verið
glæsileg. Þú getur líka farið milliveginn og fengið
þér kápu með eilitlum loðkraga. En annars eru
kápur sem eru í fallegum litum eins og græn-
bláum, bleikum, rauðum eða bláum lit líka sætar.
Einu sinni voru allar konur á fínum böllum með
svakalega uppsett hár sem olli því að þær voru svo
stífar að þær gátu varla hreyft sig. Samkvæmt Sæ-
unni hjá hárgreiðslustofunni Unique er það ekki
lengur málið. Nú er hægt að fara á ballið með
slegið hár en þá er gaman að setja einhverjar
krullur eða bylgjur í það – jafnvel bara í toppinn
og halda hinu sléttu. Sæunn mælir með flottum
beinum, stífum og kvenlegum klippingum og þá
er ekkert mál að blása hárið fyrir ballið, fá þá
mikla lyftingu í það og jafnvel túpera það. Málið
er að líta til 6. áratugarins og Audrey Hepburn, Di-
or og Channel og þá verðurðu glæsileg. Það er
kvenlegur einfaldleiki í hártískunni og það sama
gildir um förðunina. Ekki mæta stríðsmáluð held-
ur veldu frekar að undirstrika t.d. bara augun eða
mest varirnar. Blanda af t.d. brúnum og appels-
ínugulum eða grænleitum og svörtum getur verið
mjög flott í augnförðunina, nota eilítinn kinnalit
og svo er ráð að velja ekki of rauðan varalit því
annars gætirðu lent í að þurfa að fara stöðugt á
salernið til að laga litinn
og halda honum
glæsilegum.
Það sem skiptir
máli er að
skreyta sig ekki
of mikið, held-
ur velja sér
eitthvað eitt
sem er mest
áberandi og
svo er bara
að klæða
sig, greiða
sér og
mála sig
þannig
að
manni
líði vel og
geti skemmt
sér sem prins-
essa.
ÁRSHÁTÍÐARPRINSESSUR
SLÁÐU Í GEGN Á BALLINU!
2
Umsjón
Laila Pétursdóttir
1.
Grænblár kjóll frá
Monsoon
2.
Fallegur síður kjóll frá
Monsoon
3.
Gullarmband með
demöntum frá Kenneth
Jay Lane
4.
Gulleyrnalokkar með
laufum og blómi frá
Julie Sandlau
5.
Bróderað veski með
perlum frá East
6.
Grá falleg loðkápa frá
Antik Batik
7.
Blár prinsessukjóll frá
Debenhams
4
1
6
7
5
3