Morgunblaðið - 21.02.2006, Síða 1
2006 ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR BLAÐ B
AUSTURRÍSKIR SKÍÐAGÖNGUMENN FÓRU HEIM EFTIR RANNSÓKN / B4
TOTTENHAM Hotspur hefur, fyrst enskra
knattspyrnufélaga, tekið upp baráttu gegn for-
dómum í garð samkynhneigðra. Þetta kemur í
kjölfarið á því að stuðningsmenn Tottenham
sungu á dögunum niðrandi söngva um fyrrver-
andi fyrirliða sinn, Sol Campbell, leikmann Ars-
enal. „Við erum fyllilega meðvitaðir um söngva
og upphrópanir í garð samkynhneigðra sem
hafa rutt sér til rúms. Við tilkynntum í leikskrá
okkar fyrir síðasta leik að slík framkoma yrði
ekki liðin. Þá höfum við rætt við stjórn úrvals-
deildarinnar um þetta mál og vonumst til þess
að önnur félög fylgi fordæmi okkar,“ sagði
Peter Secchi, talsmaður Tottenham.
Richard Caborn, íþróttamálaráðherra Bret-
lands, hrósaði forráðamönnum Tottenham fyr-
ir framtakið í gær og sagði að með þessu gæfu
þeir skýr skilaboð til stuðningsmanna sinna.
Tottenham berst
gegn fordómum
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N AB L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
BJARNI Guðjónsson, knattspyrnu-
maður af Akranesi, tekur endan-
lega ákvörðun í dag um með hvaða
liði hann leikur á komandi keppn-
istímabili. Bjarni hefur þegar
ákveðið að leika á Íslandi í sumar
og ekki hefur staðið á tilboðum því
að sex félög úr úrvalsdeildinni
settu sig í samband við hann. Það
voru ÍA, Valur, FH, KR, Keflavík
og Fylkir. Hann kveðst hafa fækk-
að valkostunum niður í tvo.
„Ég kem alkominn heim á föstu-
daginn kemur. Þetta hefur allt
gerst mun hraðar en ég átti von á
og það hefur reynst mjög erfitt að
gera upp hug sinn, en ég og fjöl-
skylda mín ætlum að skoða málin
mjög vel og ákveða á morgun
hvert við förum,“ sagði Bjarni við
Morgunblaðið í gær.
Hann fékk sig lausan frá enska
1. deildar liðinu Plymouth Argyle
um síðustu mánaðamót eftir að
hafa leikið þar í rúma 13 mánuði.
Bjarni hefur leikið erlendis í hálft
níunda ár, eða frá haustinu 1997
þegar hann fór frá ÍA til enska fé-
lagsins Newcastle, en þá var hann
aðeins 18 ára gamall. Þaðan lá leið
Bjarna til Genk í Belgíu, Stoke í
Englandi, Bochum í Þýskalandi og
ensku félaganna Coventry og Ply-
mouth.
Bjarni
velur lið
í dag
CHELSEA mætir Newcastle á
heimavelli í átta liða úrslitum
ensku bikarkeppninnar en dregið
var til átta liða úrslitanna í gær.
Newcastle sló Chelsea út í bikarn-
um á síðustu leiktíð þegar liðin átt-
ust við á St. James Park en það
verður á brattann að sækja fyrir
Newcastle því Chelsea hefur ekki
beðið ósigur á heimavelli í hartnær
tvö ár.
Hermann Hreiðarsson og fé-
lagar hans í Charlton fengu heima-
leik en þeir taka á móti Middles-
brough sem hefur verið á góðri
siglingu að undanförnu.
Drátturinn lítur þannig út:
Chelsea – Newcastle
Birmingham – Liverpool
Charlton – Middlesbrough
Aston Villa/Man.City –
Bolton/West Ham
Leikirnir í átta liða úrslitunum
verða spilaðir 20.–23. mars.
Newcastle
mætir
Chelsea
Hún sagðist ekki hafa gert sérneina hugmynd um við hverju
var að búast. „Maður lagði bara af
stað og var ekkert mikið að hugsa
um annað en að gefa allt í botn og
þetta gekk bara ótrúlega vel. Mér
fannst ég reyndar fara aðeins út af
sporinu í einu hoppinu en fannst mér
annars ganga vel. Það er oft þannig
þegar manni finnst manni ganga vel,
þá er það vegna þess að maður fer of
hægt. Þegar ég kom í mark sá ég
enga tíma og hugsaði þá með mér að
trúlega hefði ég farið allt of hægt
fyrst mér fannst ferðin ganga bæri-
lega. En þegar tíminn kom hoppaði
ég hæð mína í öllum herklæðum – og
rúmlega það,“ sagði Dagný Linda, en
árangur hennar á leikunum hefur
vakið athygli þeirra sem lifa og
hrærast í heimi skíðaíþróttarinnar.
„Ég er rosalega sátt við árangur-
inn og ég bæti punktastöðuna gífur-
lega með þessu, fékk 23,7 FIS
punkta fyrir þetta og það er ekki
slæmt að fara úr 40 í 23 punkta á einu
bretti. Nú þarf ég bara að ná annarri
svona ferð,“ sagði Dagný Linda.
Hún keppir á föstudaginn í stór-
svigi og sagði að það yrði erfitt. „Þar
eru tvær ferðir og maður þarf að
standa þær báðar. Hraðagreinarnar
hafa verið aðalgreinarnar mínar
þannig að ég er mjög sátt og gæti al-
veg hugsað mér að pakka saman og
fara heim núna,“ sagði hún í léttum
tón. „En auðvitað gerir maður sitt
besta í stórsviginu líka, en það er
svona aukabúgrein,“ sagði Dagný
Linda.
Annað gull Dorfmeister
Dorfmeister frá Austurríki, sem
er orðin 32 ára gömul og hyggst
hætta keppni eftir þetta tímabil, get-
ur vel unað við dvölina á Ítalíu. fyrir
leikana hafði hún aldrei unnið til
gullverðlauna á Ólympíuleikum, var
0,01 sekúndu frá því í risasvigi á leik-
unum í Naganó 1988, en nú eru gullin
orðin tvö. Hún sigraði í bruni á dög-
unum og í gær fagnaði hún sigri í
risasviginu, kom í mark á 1.32,47.
Þegar hún kom í mark gerði hún sér
ekki grein fyrir hver staðan var. „Ég
vissi ekkert hvernig mér hafði geng-
ið því á stigatöflunni var bara nafnið
mitt. Það var ekki fyrr en Janica
[Kostelic] kom til mín og sagði að ég
hefði unnið að mér var óhætt að
fagna,“ sagði Dorfmeister eftir sig-
urinn.
„Brautin var fín og rennslið fínt
þegar ég fór í hana en það versnaði
síðan. Ég var á gríðarlega góðum
skíðum í dag og þau runnu svo hratt
að ég átti í mestu vandræðum með að
fylgja þeim eftir,“ sagði hún bros-
andi eftir að ljóst var að hún hefði
krækt sér í sín önnur gullverðlaun á
leikunum.
Janica Kostelic frá Króatíu varð í
öðru sæti, 0,27 sekúndum á eftir
Dorfmeister. Hún vann þar með sín
sjöttu verðlaun á ólympíuleikum og
það hefur engin kona áður gert í
alpagreinum. Þriðja varð síðan Alex-
andra Meissitzer frá Austurríki.
Keppendur voru 56 talsins og lán-
aðist 52 þeirra að komast heilu og
höldnu í mark. Dorfmeister var með
rásnúmer 30, Kostelic 25 og
Meissnitzer 29.
Reuters
Michaela Dorfmeister með tvenn Ólympíugull eftir sigurinn í risasviginu í gær. Hún krækti líka í gullverðlaunin í bruni á leikunum.
Dagný Linda komst í 23. sæti í risasvigi á Ólympíuleikunum
Hoppaði hæð mína
„ÉG er alveg rosalega ánægð með þetta,“ sagði Dagný Linda Krist-
jánsdóttir, skíðakona frá Akureyri eftir að hún hafði tryggt sér 23.
sætið í risasvigi á Ólympíuleikunum í Tórínó í gær. Dagný Linda,
sem var með rásnúmer 49. fékk tímann 1.34,56 en Michaela Dorf-
meister sem sigraði var á 1.32,47. Dagný Linda skaut mörgum góð-
um skíðakonum ref fyrir rass með árangri sínum í gær.
Eftir Skúla Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is