Morgunblaðið - 26.02.2006, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 26.02.2006, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. FEBRÚAR 2006 59 MINNINGAR ✝ Ingvar Ágústs-son fæddist í Reykjavík 19. ágúst 1938. Hann lést af slysförum mánu- daginn 6. febrúar síðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Ágúst Ingv- arsson vélstjóri, f. 1. ágúst 1904 í Reykja- vík, d. 4. júní 1980, og Sigrún Jónsdótt- ir húsmóðir, f. 5. apríl 1908 á Eyrar- bakka, d. 22. febr- úar 1993. Bróðir Ingvars er Gunn- ar Jón, f. 31. ágúst 1944, kvæntur Signýju Þorsteinsdóttur, og eiga þau þrjú börn. Ingvar kvæntist hinn 28. sept- ember 1974 eftirlifandi eiginkonu sinni Bergþóru Ögmundsdóttur, f. 30. apríl 1941 á Hvammstanga. Foreldrar hennar voru hjónin Ög- mundur Kr. Sigurgeirsson bóndi, f. 3. júní 1901 á Fallandastöðum í Hrútafirði, d. 11. apríl 1969, og Anna Gunnlaugsdóttir húsmóðir, f. 31. júlí 1900 á Stóru-Borg í V- Húnavatnssýslu, d. 13. desember 1993. Sonur Ingvars og Bergþóru er Ágúst Ottó f. 11. júní 1974, kvæntur Jóhönnu K. Jóhannsdóttur og eignuðust þau þrjá syni. Börn Berg- þóru af fyrra hjóna- bandi og fósturbörn Ingvars eru: 1) Anna Gyða Rebekka Reynisdóttir, f. 11. ágúst 1961, gift Vin- cenzo R. Piras, eiga þau saman eina dóttur, en fyrir átti hún fimm börn og eru barnabörnin tvo. 2) Ögmundur Smári Reynisson, f. 30. ágúst 1962, í sambúð með Jónínu Skaftadóttur og á hann fimm börn og Jónína einn son. 3) Hulda Björg Reynisdóttir, f. 24. september 1965 og á hún tvö börn. Ævistarf og jafnframt áhuga- mál Ingvars tengdust alla tíð bíl- um og vélum. Hann vann á árum áður meðal annars hjá Þunga- vinnuvélum og Vöku, en frá árinu 1973 og alla tíð síðan ráku þau hjónin sitt eigið vélaflutningafyr- irtæki á hans nafni. Útför Ingvars var gerð frá Bú- staðakirkju 17. febrúar sl. – í kyrrþey að hans ósk. Flest börn kynnast foreldrum sínum við fæðingu en kynni okkar pabba hófust þegar ég er fjögurra til fimm ára og hann fór að venja komur sínar á heimili okkar. Mamma var þá fráskilin með þrjú börn svo að fjölskyldan varð strax stór þegar sambúð þeirra hófst. Það var síðan sumarið 1971 sem við flytjumst í Blesugrófina þar sem búskapur þeirra stóð alla tíð síðan. Litli bróðir bætist síðan í barnahópinn en aldrei fundum við hin systkinin fyrir því að pabbi hafi hampað honum neitt meira en okkur. Ef ég á að lýsa pabba í stuttu máli var hann stórhuga og áræðinn, barngóður og greiðvik- inn. Það var heldur aldrei nein lognmolla í kringum hann, pabbi talaði hátt, var ræðinn, gaman- samur og afskaplega stríðinn á stundum. Hann hafði gaman af því að hitta fólk og spjalla, helst að vera hrókur alls fagnaðar, en hann hafði samt ekki eirð í sér til að stoppa of lengi við, þurfti oftast að fara að gera eitthvað annað, enda var hann sífellt að. Hann var fæddur og uppalinn í Reykjavík sem honum fannst vera nafli al- heimsins, enda skildi hann ekkert í því þegar ég flutti út á lands- byggðina, alla leið suður í Hafn- arfjörð! Eftir það var ég og mín fjölskylda alltaf kölluð „Hafnfirð- ingarnir“. Það er af nógu að taka til að rifja upp, t.d. allar ferðirnar í Múlakaffi hér áður fyrr þar sem ég fékk að fara með þegar pabbi fór að hitta hina strákana til að spjalla. Á seinni árum fór hann ásamt mömmu í kaffi á sunnudög- um niður á BSÍ að hitta strákana og var það orðin ein af þeirra föstu venjum. Foreldrum mínum þótti gaman að ferðast og síðustu 15 ár- in fóru þau oftast í stuttar utan- landsferðir eftir að hafa ferðast innanlands árin þar á undan. Fyrir dyrum stóð að fara í langt og lang- þráð frí til Kanarí, heilar þrjár vikur, en svo lengi höfðu þau aldr- ei verið erlendis áður. Ég trúi því að pabbi verði með mömmu þegar hún fer í fríið þeirra þó að það muni óneitanlega fara minna fyrir honum en hans var vani. Að lokum vil ég þakka pabba fyrir að hafa alltaf verið til staðar og fyrir að hafa verið pabbi minn. Þín dóttir Hulda Björg. Hinn 6. febrúar fengum við þær hræðilegu fréttir að Ingi hefði dáið í hörmulegu slysi. Þessar fregnir komu sem reiðarslag yfir okkur öll. Það er svo erfitt að sætta sig við þegar slys ber að höndum og við spyrjum af hverju, en það er fátt um svör. Ingi sem var ávallt svo hress og kátur, stutt í stríðni og grín, er farinn frá okkur. En hann gleym- ist aldrei. Ingi var þekktur fyrir vinnusemi sína en jafnframt fyrir greiðasemi. Hann vildi öllum vel og þá sér- staklega fjölskyldu sinni. Börn hændust að honum og hafa alla tíð gert, eins og eitt af barnabörnum hans sagði: „Hann afi er góður.“ Ég mun alla tíð vera þakklát honum og konu hans Bergþóru fyrir hversu vel þau tóku á móti mér og syni mínum inn í fjölskyld- una og litu á okkur eins og við hefðum alltaf tilheyrt þeim. Það er erfitt að kveðja Inga og þótt árin hafi ekki verið mörg sem hann var í mínu lífi þá á ég fullt af minningum um hann sem ég geymi í hjarta mínu. Elsku Bergþóra. Orð mega sín lítils á svona stundu, það er stórt skarð höggvið í líf þitt. Ég bið þess að Guð gefi þér styrk á þess- um erfiðum tíma. Elsku Anna Gyða, Ögmundur , Hulda og Gústi, ég votta ykkur öllum mína dýpstu samúð. Guð blessi minningu Ingvars Ágústssonar. Jónína Skaftadóttir. Hann afi minn var og verður besti afi í heimi. Afi var fyndinn og skemmtilegur og bara æðislegur afi. Ég veit að afi er ennþá til, því þótt hann sé ekki í líkamanum sín- um þá er hann í hjartanu mínu. Ég var lítið barn og ég spurði móður mína hver munur væri á gleði og sorg. Móðir mín strauk yfir hár mitt og svaraði: Sá maður sem aldrei kennir sorgar í hjarta sínu getur ekki glaðst því hann þekkir ekki sorgina. (Þórunn Magnea.) Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Þín afastelpa Tinna Húnbjörg Einarsdóttir. Ég skal vaka og gráta af gleði yfir þér því Guð átti ekkert betra að gefa mér. (Davíð Stef.) Margrét Anna Ögmundsdóttir. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson.) Einar Bjarki Ómarsson. Stjörnurnar, sem við sjáum sindra um himininn, eru gleðitár Guðs, sem hann felldi, er hann grét í fyrsta sinn. (Davíð Stef.) Sigurður Leó Ögmundsson, Ingvar Óli Ögmundsson. Eg vil fara eitthvað langt langt burt svo enginn geti að mér sótt, enginn til mín spurt, engin frétt, engin saga eyrum mínum náð. Eg vil aldrei troða akur sem aðrir hafa sáð. (Davíð Stefánsson.) Ögmundur Eron Ögmundsson. INGVAR ÁGÚSTSSON Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, SIGRÍÐUR BALDURSDÓTTIR, Stórateigi 7, Mosfellsbæ, lést á lungnadeild Landspítala Fossvogi föstu- daginn 17. febrúar. Jarðarförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Ásgeir Pálsson, Gunnar Hlöðver Tyrfingsson, Unnur Herdís Ingólfsdóttir, Bjarni Ásgeirsson, Kristján Ásgeirsson, Elín Jónína Clausen, Agnes Ásgeirsdóttir, Ragnar Guðmundsson og barnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir og fósturfaðir okkar, tengdafaðir og afi, INGVAR ÁGÚSTSSON, Blesugróf 15, Reykjavík, lést af slysförum mánudaginn 6. febrúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum þeim fjölmörgu sem sýnt hafa okkur hlýhug og stuðning á erfiðum tímum. Guð blessi ykkur öll. Bergþóra Ögmundsdóttir, Ágúst Ottó Ingvarsson, Jóhanna Kr. Jóhannsdóttir, Anna Gyða Rebekka Reynisdóttir, Vincenzo R. Piras, Ögmundur Smári Reynisson, Jónína G. Skaftadóttir, Hulda Björg Reynisdóttir og afabörn. Elsku litli drengurinn okkar, EMIL FJÖLNISSON, Þórðarsveigi 2, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum í Fossvogi þriðju- daginn 21. febrúar sl., verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 27. febrúar kl. 13.00. Trine Holm Houmøller, Fjölnir Guðmundsson, Guðrún Jónsdóttir, Guðmundur M. Guðmundsson, Helga Petersen, Henrik Houmøller, Sofie Houmøller, Erna Guðmundsdóttir, Magnús Fjalar Guðmundsson, Bryndís Friðriksdóttir, Katrín Hekla Magnúsdóttir. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og systir, ELÍSABET SIGURBJÖRG THORARENSEN, Dalbraut 27, Reykjavík, lést á Landspítala-Háskólasjúkrahúsi í Fossvogi laugardaginn 18. febrúar. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju miðviku- daginn 1. mars kl. 13.00. Bjarni Ólafsson Kristín Þórarinsdóttir Kristín Benediktsdóttir Elísabet Benediktsdóttir Tómas Á. Einarsson barnabörn, langömmubörn og systkini. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORGEIR PÁLSSON frá Grænavatni, Espigerði 10, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju mánu- daginn 27. febrúar og hefst athöfnin kl. 13.00. Páll Þorgeirsson, Helga Þorkelsdóttir, Sigurgeir Þorgeirsson, Málfríður Þórarinsdóttir, Hólmfríður Þorgeirsdóttir, Árni Vésteinsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær konan mín og móðir okkar, ÞORBJÖRG SVEINBJARNARDÓTTIR, Huppahlíð, Miðfirði, lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnudag- inn 19. febrúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Helgi Björnsson, Ólöf Guðrún Helgadóttir, Björn Helgason, Jóhanna Hólmfríður Helgadóttir, Elínbjörg Helgadóttir, Hjalti Sigursveinn Helgason. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður, tengda- móður, ömmu og langömmu, SOFFÍU JÓNSDÓTTUR, Dalbraut 27, áður Laugarásvegi 41. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Dalbraut 27 og deild B4 á Landspítalanum í Fossvogi fyrir góða umönnun. Gylfi Sigurjónsson, Valgerður Ólafsdóttir, Sif Gylfadóttir, Haraldur Sigurjónsson, Sigurjón Gylfason og langömmubörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.