Morgunblaðið - 26.02.2006, Blaðsíða 74

Morgunblaðið - 26.02.2006, Blaðsíða 74
74 SUNNUDAGUR 26. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ Fátt er eins skemmtilegt, þeg-ar tónlist er annars vegar, ogað fá í hendurnar nýja plötumeð bandarísku rokksveit- inni Liars. Ekki er bara að tónlistin er allt í senn einkar lífleg, frumleg og furðuleg, heldur veit maður aldr- ei á hverju maður á von – ef það er einhver hljómsveit sem er óhrædd við að gera tilraunir, fara í óvænta átt, þá er það Liars, eins og sannast á nýrri plötu sveitarinnar, Drum’s Not Dead, sem kom út í liðinni viku. Liars er hugarfóstur þeirra Aaron Hemphill og Angus Andrew, báðir listaspírur, sem kynntust í skóla í Los Angeles og byrjuðu þar að vinna saman að margmiðlunarverkefni sem byggðist á tónlist og kvikmynd- um. Þeir hittust svo aftur í New York fyrir sex árum og ákváðu að taka upp þráðinn, en leggja þó meiri áherslu á tónlistina. Eftir vangavelt- ur í nokkurn tíma rákust þeir á aug- lýsingu í hljóðfæraverslun og gengu til liðs við þá Pat Noecker og Ron Albertson undir nafninu Liars. Þeir félagar skiptu þannig með sér verk- um að Andrew tók að sér sönginn, Hemphill lék á gítar og annaðist for- ritun, Noecker spilaði á bassa og Al- bertson á trommur. Það tók Liars ekki langan tíma að finna sér stíl og stefnu, aðallega pönkað rokk, en þó með sterkum dansáhrifum, forrituðum töktum, víruðum textum og geggjuðum söng. Þó þeir félagar væru kannski heldur villtari en flest það sem efst var og á baugi í New York í upphafi ald- arinnar má þó segja að tónlistin hafi fallið að mestu undir merkimiðann pönkfönk. Sveitin var eiginlega komin á fullt frá fyrsta degi og þannig var hún ekki ýkja gömul þegar hún var farin að spila á tónleikum sem mest hún mátti og fyrsta breiðskífan var tekin upp ekki löngu síðar, They Threw Us All in a Trench and Stuck a Monument on Top. Sú var tekin upp á tveimur dögum, kom út í október 2001 og vakti athygli fyrir kraft og hugmyndaauðgi. (Platan var endur- útgefin í tilefni af samningi sveit- arinnar við Mute plötuútgáfuna árið 2002.) Burt með hrynparið 2002 voru þeir félagar vel iðnir, spiluðu víða og sendu frá sér þrjár stuttskífur með nýju efni og tvær þeirra, Fins to Make Us More Fish- Like og We No Longer Knew Who We Were, voru báðar einkar vel heppnaðar, mjög ólíkar plötur sem sýndu mismunandi hliðar á sveitinni. Með tímanum áttuðu þeir Andrew og Hemphill sig á því að hrynparið var eiginlega óþarft, enda tónlistin öll eftir þá tvo fyrrnefndu og að auki allar bassalínur og ásláttur. Þeir No- ecker og Albertson voru því reknir við svo búið. Ekki var þó bara að þeim fannst Noecker og Albertson væru ekki að leggja nóg til málanna heldur var sveitin að þróast í átt að meiri forritun, harðari og vélrænni takti, í það minnsta í bili. Í ársbyrjun 2003 fluttist Andrew út í skóg með kærustu sinni, Karen O úr Yeah Yeah Yeahs, settist að í afskekktum kofa og samdi tónlist. Þegar Yeah Yeah Yeahs héldu í tón- leikaferð sumarið 2003 kallaði hann á Hemphill sem kom með gamlan fé- laga með sér, slagverksleikarann Julian Gross. Þeir hljóðrituðu svo nýja plötu í kjallaranum á skóg- arkofanum, They Were Wrong, So We Drowned, en titillinn vísar í af- drif norna fyrr á öldum. Platan kom út snemma árs 2004 og fékk misjafna dóma, alla jafna lof- samlega en margir áttu efitt með að átta sig á skífunni, fannst hún stinga svo í stúf við það sem á undan var komið að þeir vissu ekki í hvorn fót- inn þeir ættu að stíga. Andrew hefur látið þau orð falla að fátt þyki honum mikilvægara en að vera sífellt að breytast og mikilvægast af öllu sé að breytast þegar fólk telji sig vera far- ið að skilja sveitina og skipa henni á ákveðinn bás. „Við leggjum hart að okkur til að koma í veg fyrir að fólki líki við okkur, viljum alls ekki lenda í því að vera meðvitað að gera fólki til geðs.“ Tekið upp í Berlín Næstu mánuðir fóru í hefðbundið hljómsveitastúss og síðan í laga- smíðar. Þegar vinna hófst við þriðju breiðskífuna fannst þeim Liars- félögum sem tími væri til kominn að skipta enn um stíl, enda höfðu þeir ekki bara sökkt sér í evrópsk norna- fræði heldur var tilraunakennd þýsk raftónlist einnig í hávegum. Það kom því fátt annað til greina en að leggja land undir fót og leita að rétta hljóð- verinu í Þýskalandi og fannst í Berl- ín. Platan nýja, sem kom út í síðustu viku, heitir Drum’s Not Dead og segir frá sögupersónunum Drum og Mount Heart Attack sem koma við sögu í nokkrum laganna. Hljóm- sveitin lýsir því svo að Drum sé skapandi og ákveðinn þáttur í tónlist sveitarinnar, eiginlega fjórði með- limur hennar, en Mount Heart At- tack er viðbrögð við framkvæmda- og sköpunargleði Drum – streita, óöryggi og vantrú á eigin getu. And- rew hefur lýst því svo að samstarf hans og Hemphills sé einmitt blanda af þessu tvennu, þeir séu ýmist kraftmiklir og ákveðnir eða óöruggir og feimnir. Fyrstu útgáfu plötunnar Drum’s Not Dead fylgir DVD diskur með þremur útgáfum af plötunni, ef svo má segja, því á DVD disknum eru þrjár kvikmyndir sem byggjast á plötunni og hver kvikmynd er sam- sett úr myndböndum við lög hennar. Ein myndin, The Helix Aspersa, er eftir Angus Andrew, önnur, Drum’s Not Bread, eftir Julian Gross og sú þriðja, By Your Side, er eftir Mark- us Wambsganss. Tónlist á sunnudegi Árni Matthíasson Mikilvægast af öllu að breytast Bandaríska hljómsveitin Liars sendi frá sér þriðju breiðskíf- una í liðinni viku og breytti um stíl og stefnu í þriðja sinn. Ljósmynd/Steve Gullick Bandaríska rokkpönkfönkdanstríóið Liars. eee DÖJ – kvikmyndir.com eee VJV Topp5.is SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI VELJIÐ HÉR AÐ NEÐAN KVIKMYNDAHÚS OG SÝNINGARTÍMA SEM**** Sími - 564 0000Sími - 462 3500 eeee „…listaverk, sannkölluð perla“ DÖJ – kvikmyndir.com Óþekkustu börn í heimi hafa fengið nýja barnfóstru sem er ekki öll þar sem hún er séð. TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA m.a. besta mynd, besti leikstjóri og besti leikari í aðalhlutverki5 Stórkostleg verðlaunamynd Byggð á sönnum atburðum BESTI LEIKARI ÁRSINS Í AÐAL- HLUTVERKI TÖFRANDI ÆVINTÝRAMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA THE CONSTANT GARDENER kl. 8 og 10.30 B.I. 16 ÁRA NANNY McPHEE kl. 2 - 400 kr., 4, og 6 UNDERWORLD 2 kl. 8 og 10 B.I. 16 ÁRA FINAL DESTINATION 3 kl. 6 B.I. 16 ÁRA ZATHURA kl. 2 - 400 kr. og 4 CONSTANT GARDENER kl. 5, 8 og 10.45 B.I. 16 ÁRA NANNY MCPHEE kl. 1, 3.40 og 5.50 UNDERWORLD kl. 8 og 10.20 B.I. 16 ÁRA ZATHURA M / ÍSL TALI kl. 1, 3.30 og 5.50 B.I. 10 ÁRA ZATHURA M /ENSKU TALI kl. 3.40 og 5.50 B.I. 10 ÁRA WALK THE LINE kl. 8 og 10.45 B.I. 12 ÁRA WALK THE LINE LÚXUS kl. 2, 5, 8 og 10.45 B.I. 12 ÁRA FUN WITH DICK AND JANE kl. 1, 8 og 10.10 CHEAPER BY THE DOZEN kl. 1 og 3 ,,Capote er stórbrotin og metnaðarfull kvikmyndagerð og samvinna góðs leikstjórn Milers og magnaðri frammistöðu Hoffman í hlutverki Capote gera myndina Óskarsverðuga’’ eeeee VJV -Topp5.is YFIRVOFANDI HÆTTA OG SAMSÆRI LÍF OKKAR ER Í HÖNDUM TVEGGJA EINSTAKLINGA Ein besta mynd ársins. Frá leikstjóra City of God eftir metsölubók John Le Carré 10 BAFTA tilnefningar 4 Óskarstilnenfingar 3 Golden Globe Tilnefningar RALPH FIENNES RACHEL WEISZ GOLDEN GLOBE VERÐLAUN BESTA LEIK- KONA ÁRSINS walk the line V.J.V Topp5.is S.V. Mbl. M.M.J Kvikmyndir.com Nýtt í b íó „...falleg og skemmtileg fjölskyldumynd...“ MMJ Kvikmyndir.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.