Morgunblaðið - 29.03.2006, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 29.03.2006, Qupperneq 48
48 MIÐVIKUDAGUR 29. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ ÚRSLITAKVÖLD Örleikritasamkeppni framhaldsskólanna fór fram í Kassanum, hinu nýja sviði Þjóðleikhússins, á mánu- dagskvöldið. Fimm leikrit kepptu til úrslita, en svo fór að lokum að tveir nítján ára drengir úr Menntaskólanum við Hamrahlíð, þeir Halldór Ásgeirsson og Sverrir Nor- land, báru sigur úr býtum. Sigurverkið heit- ir því skemmtilega nafni Af skapgerð- arbrestum Karenar og Hængs. „Þetta fjallar um firringu í mannlegum sam- skiptum í nútímasamfélaginu, þótt það hljómi kannski klisjukennt. Það er líka húmor í þessu, en það er samt ekki þannig að persónurnar segi brandarana, heldur meira svona absúrd húmor,“ segir Sverrir, en mjög ákveðnar reglur giltu í keppninni. „Maður fær eitt skilyrði, sem var í þessu tilfelli eitt dagblað. Það var sem sagt eini leikmunurinn sem mátti nota og svo gekk þetta út á að finna einhverja snjalla hug- mynd út frá þessum eina hlut,“ segir Hall- dór. „Svo má reyndar nota tónlist og að sjálfsögðu búninga, leikararnir þurfa ekki að vera naktir,“ bætir Sverrir við. „Leik- ritið átti að vera fimm til tíu mínútur og við máttum í mesta lagi nota þrjá leikara. Við vorum með tvo,“ bæta þeir félagar við, en það voru þriðja árs nemar úr leiklistardeild Listaháskóla Íslands sem fóru með hlut- verkin. Unnu Skrekk Þeir félagar áttu ekki í miklum vandræð- um með að semja leikrit út frá einu dag- blaði. „Dagblaðið er í raun tákn fyrir þessa firringu sem við nefndum áðan, því það drekkur í sig athygli persónanna. Þetta fjallar sem sagt um par sem er alltaf að reyna að ná sambandi, fyrst er konan að reyna að ná sambandi við manninn og það tekst ekki, svo snýst þetta við og loks gef- ast þau bara upp og renna inn í dagblaðið,“ segir Sverrir. Þeir félagar hafa lengi haft áhuga á leik- ritun, en verk sem þeir sömdu, Lohengrin kemur til Antwerpen, sigraði í Skrekk, hæfileikakeppni grunnskólanna árið 2000, en þá voru þeir í níunda bekk í Hlíðaskóla. Þá tóku þeir þátt í Örleikritasamkeppninni í fyrra, en höfnuðu þá í öðru sæti. Aðspurðir segja þeir sigurinn mikla hvatningu til frek- ari starfa á þessum vettvangi og aldrei að vita nema verk eftir þá í fullri lengd verði sett upp. „Ég hef reyndar skrifað leikrit í fullri lengd en það hefur ekki enn verið sett upp,“ segir Halldór. „Ég er mjög ánægður með það þannig að ég verð eiginlega að sjá það sett upp, og mun örugglega gera það einhvern tímann,“ bætir hann við. Þess má að lokum geta að þeir Halldór og Sverrir fóru ekki tómhentir heim úr Þjóðleikhúsinu því í verðlaun voru 50 þúsund krónur, auk boðsmiða í leikhúsið. Leiklist | Sigruðu í Örleikritasamkeppni framhaldsskólanna Morgunblaðið/Eyþór Leikskáldin Sverrir Norland og Halldór Ásgeirsson hafa verið vinir frá fimm ára aldri. Skapgerðarbrestir á fimm til tíu mínútum Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is NORSKA heimildarmyndin 100% manneskja segir sögu Monicu, sem fann þegar hún var barn að hún var stúlka fædd í líkama drengs. Mynd- inni mætti lýsa sem nokkurs konar myndbands- dagsbók, þar sem Monica lýsir tilfinningum sín- um og segir sögu sína. Hún er að búa sig undir að fara í kynskiptiaðgerð og segir áhorfendum, ýmist í beinum samtölum við myndavélina, eða í gegnum samræður við vini og vandamenn, frá því sem hún er að upplifa og hefur upplifað frá barnæsku. Samtöl Monicu við móður sína, ein- staka konu sem hefur lagt sig fram um að skilja og sætta sig við það að eiga „transgender“ barn, eru eftirminnilegur þáttur í myndinni. 100% manneskja er nærfærin og persónuleg heimildarmynd og leggur persónuleiki Monicu mark sitt á stíl hennar og tón. Þó svo að Monica glími í myndinni við margs konar erfiðleika, og rifji upp erfiða æsku, finnur áhorfandinn vel hvað það er sem hefur fleytt henni í gegnum erf- iðleikana og styrkt hana í baráttunni fyrir því að fá að vera hún sjálf. Monica er nefnilega einkar viðkunnanleg manneskja, hún er bjartsýn og áræðin og beitir húmor óspart fyrir sig til þess að takast á við stöðu sína. Það kemur því allt að því flatt upp á áhorfandann þegar frásögn myndarinnar breytist skyndilega í tónlistar- myndband, þar sem Monica syngur um erf- iðustu hluta vegferðar sinnar. Hún syngur um þrá sína eftir að kynnast karlmanni sem ekki hafnar henni þegar hann kemst að því að hún er „transgender“ og síðar syngur Monica um sjálfa kynskiptiaðgerðina sem hún undirgengst í myndarinnar rás. Þessi atriði eru á mörkum þess að vera spaugileg, en einlægnin sem liggur þeim að baki er í anda hins fullkomlega einlæga tóns myndarinnar. 100% manneskja var sýnd á Hinsegin bíódög- um ásamt íslensku heimildarstuttmyndinni Transplosion, og saman veita þessar myndir ein- staka innsýn í líf og tilveru „transgender“ fólks. Vegferð Monicu KVIKMYNDIR Regnboginn – Hinsegin dagar. Leikstjórn og handrit: Jan Dalchow og Tron Winterk- jær. Heimildarmynd. Noregur, 75 mín. 100% manneskja (100% Menneske) –  Heiða Jóhannsdóttir Miðaverðið er: 2600 í stæði og 3700 í stúku. Miðasala hefst 7. apríl. Tónleikarnir eru frá kl. 17:30–00:00 í Laugardalshöllinni. Loksins gefst Íslendingum færi á að heyra í nokkrum af fremstu tónlistarmönnum Norður-Englands. Þeir koma fram í tónlistarveislu sem Icelandair heldur í Laugardalshöllinni 6. maí í tilefni þess að félagið er að hefja beint flug til Manchester. Icelandair hefur í mörg ár veitt íslenskum tónlistarmönnum dyggan stuðning í útrás þeirra til annarra landa og lagt sitt af mörkum til að efla tónlistarlíf hér innanlands. Þess vegna er okkur sannkallað ánægjuefni að bjóða Íslendingum að kynnast mörgu af því besta sem er að gerast í Manchester og nágrenni, á einu af framsæknustu svæðum Englands í tónlist. Við hlökkum til að sjá þig. MANCHESTER-TÓNLEIKAR í LAUGARDALSHÖLL 6. MAÍ ÍS LE N S K A A U G LÝ S IN G A S TO FA N /S IA .IS I C E 3 1 8 3 0 0 3 /2 0 0 6

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.