Morgunblaðið - 02.04.2006, Page 11

Morgunblaðið - 02.04.2006, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. APRÍL 2006 11 enn erfðabreyttum lífverum og af- urðum þeirra, áhrifum á umhverfið og heilsufarsáhrifum fyrir mannslík- amann. Það sé einungis tíminn og frekari rannsóknir sem leitt geti í ljós meira afgerandi niðurstöður en nú liggja fyrir og við getum þá tekið ákvarðanir út frá. Í ljósi þess vilja þeir að farið sé varlega í sakirnar og náttúran og neytendur látnir njóta vafans við ákvarðanatöku. Víða um heim hafa hagsmunasam- tök neytenda tekið þennan mála- flokk upp á sína arma og annast að mestu fræðslu til almennings. Hér á landi tók hópur fyrirtækja og sam- taka sig saman fyrir tveimur árum og nefnir starf sitt Kynningarátak um erfðabreyttar lífverur og afurðir þeirra en markmiðið er að fræða og efla gagnrýna umræðu með öryggis- og varúðarsjónarmið að leiðarljósi. Í hópnum eru Neytendasamtökin, Náttúrulækningafélag Íslands, Mat- væla- og veitingasamband Íslands, Vottunarstofan Tún og Landvernd. Aðstandendur hans halda úti heima- síðu um málefnið og hafa staðið auk þess fyrir málþingum og ráðstefnum um erfðabreyttar lífverur og mat- væli. Gunnar Á. Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Túns, er einn þeirra sem hafa kynnt sér málin ítarlega. „Við verðum að hafa í huga að erfða- breytt matvæli koma ekki til sögunn- ar vegna áhuga eða eftirspurnar neytenda, heldur fyrst og fremst vegna áhuga stórra líftæknifyrir- tækja sem hafa verið að þróa erfða- tækni og búa til erfðabreyttar lífver- ur. Síðan koma einnig til sögunnar smærri aðilar sem höfða til samúðar og stuðnings með því að kynna sig sem sprota- og nýsköpunarfyrir- tæki. Upp úr miðjum tíunda ára- tugnum urðu söguleg umskipti í þessum geira því þá voru fyrstu erfðabreyttu matvælin framleidd og sett á markað í Bandaríkjunum. Það er því komin nokkur reynsla á þessa framleiðslu og hún er ekki sérstak- lega jákvæð, hvorki frá hagrænu né umhverfislegu sjónarmiði.“ Erfðabreytt leynist víða í matvælum Bandaríkin eru einmitt móður- land erfðatækninnar og erfða- breyttrar framleiðslu. Þaðan breiddist framleiðslan til annarra landa en ekkert land kemst með tærnar þar sem Bandaríkin hafa hælana í framleiðslunni. Samkvæmt tölum frá Alþjóðasamtökum neyt- endasamtaka ræktuðu Bandaríkin á um 50 milljónum hektara af landi ár- ið 2005, Argentína á um 17 milljón- um hektara, Brasilía á 9,4, Kanada á 5,8 og Kína á 3,3. Erfðabreyttar sojabaunir, maís og baðmull er uppi- staðan í framleiðslunni. Af allri ræktun Bandaríkjamanna er talið að um 85% framleiðslu þeirra á soja, 76% baðmull og 40% af maís séu erfðabreytt. Framleiðsla annarra þjóða á erfðabreyttum lífverum er lítil enn sem komið er. Í Evrópu hefur and- staðan alla tíð verið sterk, bæði við framleiðslu og neyslu erfðabreyttra matvæla, einkum á meðal almenn- ings. Það hefur komið í ljós í nokkr- um skoðanakönnunum sem gerðar hafa verið. Meginástæður andstöðu evrópskra neytenda eru þær að þeir telja sig lítinn hag hafa af erfða- breyttum matvælum, þau séu al- mennt hvorki ódýrari né heldur ekki næringarríkari og að þeim fylgi hugsanleg umhverfis- og heilsu- farsáhætta. Neytendasamtök í flest- um ríkjunum hafa gert þá kröfu til stjórnvalda að þau komi á skyldu- merkingum erfðabreyttra matvæla og gefi neytendum þannig færi á að velja. Í mörgum löndum hafa erfða- breytt matvæli því verið mikið í um- ræðunni og komið til kasta stjórn- málamanna að setja lög og reglur þar að lútandi. Í löndum innan Evr- ópusambandsins þarf leyfi til mark- aðssetningar á erfðabreyttum lífver- um rétt eins og hér. Einnig þarf sérstakt leyfi ef ætlunin er að nota þær eða afurðir þeirra í matvæli og þá þarf að merkja matvælin sam- kvæmt því. Jónína Þ. Stefánsdóttir, matvæla- fræðingur og sérfræðingur Um- hverfisstofnunar í erfðabreyttum líf- verum, segir að slík leyfi hafi verið veitt fyrir vissum erfðabreytingum á maís, repju, baðmull og soja. „Það er Matvælaöryggisstofnun Evrópu sem framkvæmir óháð vísindalegt áhættumat áður en slík leyfi eru veitt. En sem dæmi um afurðir t.d. soja má nefna sojaborgara, sojamjöl, sojaprótein, sojaolíu, súpur og aðrar afurðir sem innihalda sojabaunir. Þá getur aukefnið lesitín verið unnið úr soja en það er í fjölda matvara, t.d. kakó- og súkkulaðivörum. Erfða- breytt efni getur einnig verið í snakki og kexi sem inniheldur maís, maísmjöl og maísolíu.“ Íslendingar borða ómerkt erfðabreytt Bandaríkin og Argentína sem hafa verið stórtækust í framleiðslu erfða- breyttra plantna og afurða þeirra gera ekki kröfur um að merkja erfðabreytt matvæli sérstaklega eða að halda erfðabreyttu hráefni frá hefðbundnu hráefni í landbúnaðar- framleiðslu þessara ríkja. Matvæla- framleiðendur eiga því oft erfitt með að vita hvort þeir vinna með erfða- breytt hráefni eða ekki. Jónína segir að íslensk löggjöf um erfðabreytt matvæli mótist af aðild okkar að Evrópska efnahagssvæð- inu. „Í Evrópu hefur svokallað var- úðarsjónarmið verið gegnumgang- andi varðandi erfðabreyttar lífverur og matvæli. Hérlendis voru sett lög um erfðabreyttar lífverur árið 1996 og ná þau yfir markaðssetningu og innflutning á óunnum matvælum sem í eru erfðabreyttar lífverur og vörum sem innihalda þau. Lögin ná hins vegar ekki yfir þær matvörur sem eru t.d. frystar, þurrkaðar eða soðnar teljist þær til afurða erfða- breyttra lífvera.“ Íslendingar hafa því haft erfða- breytt matvæli á borðum sínum í 10 ár? „Já, trúlega, en matvælin hafa samt sem áður þurft að uppfylla ákvæði matvælalaga nr. 93/1995 og reglugerða sem settar eru út frá þeim. Þau hafa því þurft að uppfylla skilyrði t.d. um matvælaöryggi.“ Íslendingar andsnúnir erfðabreyttum matvælum Afstaða Íslendinga til erfða- breyttra matvæla virðist vera nokkuð skýr og í samræmi við af- stöðu almennings víða í Evrópu. Meirihluti Íslendinga vill ekki að erfðabreytt matvæli séu framleidd almennt og ríflega níu af hverjum tíu telja að þarft sé að sérmerkja erfðabreytt matvæli í verslunum. Þetta kom fram í könnun sem IMG Gallup gerði síðastliðið sumar. „Andinn hér á landi hefur reyndar markast af nokkru andvaraleysi, þar til á síðustu misserum, að ís- lenskur almenningur og neytendur hafa verið að vakna til vitundar um það að erfðabreytt matvæli eru ekki aðeins á þröskuldinum hjá okkur heldur beinlínis á borðum okkar án þess að við höfum haft um það nokkurt val,“ segir Gunnar og er með því að vísa til innfluttra mat- væla. Hann segir að víða um Evr- ópu séu sveitarfélög, landsvæði, fyrirtæki og bændur að lýsa því sérstaklega yfir að á landi þeirra séu og verði ekki ræktaðar erfða- breyttar afurðir vegna þess að þau sjá sér hag í því. „Þessi hreyfing sem kölluð er „svæði án erfða- breyttra lífvera“ er orðin mjög út- breidd. Sums staðar þekja slík svæði heilu löndin eins og Grikk- land, Ítalía, Pólland og Austurríki. Í Sviss var það beinlínis ákveðið í þjóðaratkvæðagreiðslu. Græn svæði af þessum toga þekja sífellt Morgunblaðið/Eyþór Jónína Þ. Stefánsdóttir, matvælafræðingur og sérfræð- ingur Umhverfisstofnunar í erfðabreyttum lífverum segir að afurðir erfðabreyttra lífvera sé að finna í mörgum matvælum. Morgunblaðið/Eyþór Gunnar Á. Gunnarsson, framkvæmdastjóri vottunarstof- unnar Túns, er einn þeirra sem gagnrýnt hafa notkun erfða- tækninnar. Hann vill fræða og efla gagnrýna umræðu í sam- félaginu með öryggis- og varúðarsjónarmið að leiðarljósi.  Hver er stefna yfirvalda varðandierfðabreyttar lífverur og innflutn-ing á erfðabreyttum matvælum hérá landi? Hverjar og hvaðan eru fyr- irmyndirnar? „Lögin um erfðabreyttar lífverur frá árinu 1996 eru auðvitað stefnumótandi. Ég tel að þau lög hafi verið mjög framsýn og hingað til hefur ekki þótt ástæða til þess að endurskoða þau. Það er ljóst að þekkingunni fleygir fram í þessum málaflokki og nýjar uppgötvanir líta ört dagsins ljós. Ef og þegar sá tími rennur upp að við þurfum að endurskoða lögin í ljósi nýjustu rannsókna, tækni eða uppgötvana gerum við það að sjálfsögðu. Við stefnumótun höfum við fyrst og fremst litið til Evrópu og tekið mið af evrópskri löggjöf. Sú löggjöf er í raun og veru fremur ströng þar sem Evr- ópubúar hafa lagt áherslu á varúðarsjónar- mið.“ Hver er stefna yfirvalda varðandi ræktun erfðabreyttra lífvera hér á landi? Hvaða meg- inforsendur liggja þar að baki? „Sú stefna kemur bæði fram í löggjöfinni og reglugerð um takmarkaða notkun erfða- breyttra lífvera, annarra en örvera. Umhverf- isstofnun gefur út sérstök leyfi um ræktun erfðabreyttra lífvera hér á landi með mjög ströngum skilyrðum og að fenginni umsögn lögskipaðrar ráðgjafanefndar um erfðabreytt- ar lífverur og Náttúrufræðistofnunar Ís- lands.“ Ef við horfum til markaðssetningar Íslands erlendis og jafnvel íslenskra matvæla, telja yf- irvöld að það geti farið saman að vera með erfðabreytta ræktun utandyra samhliða því að nota slagorð eins og „hreint land“ og „villt náttúra“? Verða yfirvöld ekki að velja til þess að landið verði samkeppnishæft, t.d. á hinum lífræna markaði og jafnvel í ferðaþjónustunni? „Það er ekkert í tengslum við þær leyfisveit- ingar sem veittar hafa verið á erfðabreyttri ræktun utandyra, sem stangast á við það að landið sé samkeppnisfært í lífrænni ræktun og samkeppni í ferðaþjónustu. Erfðabreytt rækt- un utandyra er sáralítil hér og hún er einungis í tilraunaskyni og undir góðu eftirliti. Við er- um því ekki í neinni þess háttar framleiðslu á erfðabreyttum lífverum, og alls ekki erfða- breyttum landbúnaðarvörum ef við erum að bera okkur saman við aðrar þjóðir. Hér er það, eins og áður segir, mörgum ströngum skil- yrðum háð að fá leyfi til slíkrar ræktunar. Við Íslendingar erum matvælaframleiðend- ur og höfum einmitt lagt mikla áherslu á ör- yggi framleiðslu okkar, hreinleika og hollustu. Fiskurinn er matvara sem við sækjum í hreina og villta auðlind náttúrunnar og öll þekkjum við að framleiðsla á landbúnaðarvörum hér á landi er háð mjög ströngum reglum og eftirliti sem allt lýtur að öryggi og hollustu hennar. Ég tel að sem framleiðsluland höfum við verið til fyrirmyndar og við viljum að sjálfsögðu vera það áfram. Öryggi matvæla hefur verið í fyrirrúmi í allri okkar matvælaframleiðslu.“ Margir telja að neytandinn hafi rétt til þess að velja en á meðan engin lög gildi um merk- ingar á erfðabreytt matvæli geti hann ekki nýtt þennan rétt sinn. Nú var sett reglugerð nr. 503, 17. maí 2005, kom aldrei til greina í þeirri reglugerð að setja inn ákvæði um að merkja sérstaklega erfðabreytt matvæli? Ef svo er, eða ekki, hvað var það sem mælti gegn því? „Það er rétt að enn gilda engar reglugerðir hér á landi um merkingar á erfðabreyttum matvælum en það stendur til bóta. Neytand- inn á rétt á því að vera upplýstur um inni- haldsefni matvæla. Það eru auðvitað hagsmun- ir okkar allra hér á landi að fá glöggar og réttar upplýsingar um matvæli og með því að merkja sérstaklega matvörur sem innihalda erfðabreyttar lífverur eða afurðir höfum við hvert fyrir sig betri möguleika til að velja hvað við höfum á borðum. Það er engin spurning að þetta er til góða fyrir neytendur og er hluti af því að vera vel upplýstur um þessi mál. Ástæðan fyrir því að slíkt ákvæði var ekki sett inn í fyrrgreinda reglugerð er sú að verið er að vinna að því að taka upp í EES-samning- inn gerðir um þetta efni úr reglugerðum Evr- ópusambandsins, annars vegar um erfða- breytt matvæli og fóður og hins vegar um rekjanleika matvæla og fóðurs sem framleidd eru úr erfðabreyttum lífverum, en þær tóku báðar gildi hjá Evrópusambandinu vorið 2004. Þar verða meðal annars ákvæði um merkingu matvæla sem innihalda erfðabreyttar lífverur eða afurðir þeirra. Þessari vinnu er ekki lokið og að svo stöddu ekki hægt að gefa upp ná- kvæmlega hvenær þetta verður tekið upp í EES-samninginn og þá í íslenskan rétt í fram- haldinu en það gæti orðið innan árs. Við mun- um þá í tengslum við gildistökuna gangast fyr- ir fræðslu til almennings um erfðabreytt matvæli.“ Hvernig hyggjast íslensk stjórnvöld þá merkja framleiðsluvörur frá löndum utan Evr- ópusambandsins eins og Bandaríkjunum og Kanada sem innihalda erfðabreyttar afurðir? „Stjórnvöld merkja ekki vörur heldur fram- leiðandi eða innflytjandi. Eftir gildistöku þess- ara reglna hér á landi mega erfðabreytt mat- væli frá Bandaríkjunum því aðeins vera á markaði hér að þau séu merkt sem slík. Inn- flytjendur matvæla frá Bandaríkjunum verða þá annaðhvort að geta sýnt fram á að mat- vælin séu ekki erfðabreytt eða að þau séu leyfð á Evrópska efnahagssvæðinu. Séu mat- væli erfðabreytt og fullnægi reglum verða framleiðendur að sjá til þess að þau séu merkt hvort sem varan kemur frá Bandaríkjunum eða framleiðendum á Evrópska efnahags- svæðinu.“ Sér umhverfisráðherra fyrir sér að Ísland gæti á einhvern hátt verið leiðandi eða til fyr- irmyndar er varðar umræðu eða rannsóknir um öryggi matvæla, erfðabreytt matvæli eða lífrænt ræktuð matvæli? „Ég tel að Ísland sé til fyrirmyndar í þess- um efnum og að óvíða sé að finna öruggari og hollari matvæli en hér á landi. Miðað við þær aðstæður sem hér eru og þau áform sem uppi eru tel ég fulla ástæðu til að ætla að við höld- um stöðu okkar að þessu leyti. Ég er jafnframt þeirrar skoðunar að við verðum að ræða þessi mál í víðu samhengi og fordómalaust. Við getum til dæmis ekki horft framhjá því í þessari umræðu að sums staðar í heiminum er skortur á matvælum og sterk rök þarf til að hindra aukna framleiðslu matvæla ef um það er að ræða. Við verðum engu að síð- ur að fylgja varúðarsjónarmiðum í þessu efni. Það höfum við Íslendingar gert og munum gera áfram.“ Erfðabreytt matvæli verða merkt á Íslandi Morgunblaðið/Ásdís Innan tíðar munu matvörur sem innihalda erfðabreyttar lífverur eða afurðir og verða til sölu á íslenskum markaði merktar sérstaklega. Sig- ríður Anna Þórðardóttir umhverf- isráðherra svarar spurningum um stefnu yfirvalda varðandi erfða- breyttar lífverur og matvæli. Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfis- ráðherra telur að Íslendingar eigi fylgja varúðarsjónarmiðum. ’Neytandinn á rétt á þvíað vera upplýstur um innihaldsefni matvæla.‘

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.