Morgunblaðið - 02.04.2006, Blaðsíða 32
32 SUNNUDAGUR 2. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Camper skóverslanir máfinna út um allan heim.Þær eru nú orðnar um130 talsins og hafa vakiðeftirtekt almennings
fyrir áhugaverða hönnun. Síðustu
ár hefur Camper stækkað enn
meira við sig og opnaði fyrr á árinu
nýjan Foodball matsölustað í Berlín
og einnig hótelkeðju í Barselóna.
Allsérstakt þykir sumum að eig-
endur Camper hafi tekið þá ákvörð-
un að fara beint í veitinga- og hót-
eliðnaðinn. Algengt er að fyrirtæki
á borð við Camper stækki við sig
m.a. með úraframleiðslu eða ilm-
vatnsframleiðslu líkt og skófyrir-
tækið Diesel. Sterk sýn liggur að
baki hjá Camper sem á rætur sínar
að rekja til menningar, sögu og
landslags spænsku eyjarinnar Maj-
orca.
Matur, húsaskjól og fatnaður
Markmið Camper er að koma til
móts við ákveðnar grunnþarfir
mannsins, sem eru matur, húsaskjól
og fatnaður. Það má segja að
Camper uppfylli þessar þrjár
grunnþarfir með Foodball, Casa
Camper og Camper skónum.
Foodball veitingastaðina er að
finna bæði í Barselóna og Berlín,
þar sem áhersla er lögð á lífrænar
og vistvænar vörur. Með stofnun
Foodball vill Camper m.a. fá al-
menning til að hugsa og ræða sín á
milli um gildi lífræns matar og mat-
argerðar. Maturinn er einfaldur,
léttur og lífrænt ræktuð nýjung.
Hrísgrjónabollur eru meginuppi-
staðan, og er hægt að fá þær með
ýmsum grænmetis- og kjötfylling-
um, einnig eru í boði sætar bollur
og mikið úrval af lífrænum
drykkjum.
Vistvænir diskar, bollar og
pakkningar úr sykurreyr og korni
eru eingöngu í boði á Foodball.
Hönnuðurinn Marti Guixé frá
Barselóna, sem hefur getið sér gott
orð fyrir hönnun sína á Spáni jafnt
sem annars staðar, tók að sér að
hanna Foodball staðinn. Það má sjá
að stílbrögð Marti Guixé skína í
gegnum hönnun staðarins, þá sér-
staklega teikningar hans á veggj-
um, pakkningum og á matseðli
Foodball sem gefur staðnum vina-
legt og óvenjulegt yfirbragð.
Matseðill Foodball sem er á
veggnum aftan við afgreiðsluborðið
vekur gjarnan eftirtekt hjá gestum
staðarins, en hann er sérstakur að
því leyti að allt er handmálað, bæði
letur og myndirnar af matnum.
Staðurinn skiptist í tvo hluta annars
vegar rými þar sem gestir koma inn
og panta matinn og hins vegar
grasgrænt svæði þar sem fólk getur
sest niður með matarbakkann og
gætt sér á holla skyndibitanum.
Borð og stólar eru ekki á boðstól-
um, heldur eru risatröppur úr
steinsteypu notaðar sem sæti og til
að hafa sætin ögn þægilegri er
litlum bastpúðum raðað í tröppurn-
ar. Staðurinn á að gefa fólki þá til-
finningu að það sé undir berum
himni og er markmið Foodball að fá
fólk til að staldra aðeins við til að
borða matinn sinn.
Andóf gegn þróun matarmenningar
Hugmynd Foodball á sér nokk-
urra ára aðdraganda því að forstjóri
Camper átti þann draum að opna
matsölustað og hótel fyrir tíu árum.
Við hugmyndasköpun Foodball var
farið vel í saumana á þróun mat-
armenningar í hinu vestræna sam-
félagi, sem einkennist í vaxandi
mæli af miklum hraða og næring-
arsnauðum skyndibitum. Oft og tíð-
um hefur fólk ekki hugmynd um
hvað það setur ofan í sig, eins og
ýmiss konar aukaefni sem hafa lítið
með hollustu að gera. Camper leit
svo á að það einhver ætti að axla
ábyrgð á að stuðla að bættri mat-
armenningu og taldi að góður
möguleiki væri að bjóða upp á holl-
an og góðan skyndibita á viðráð-
anlegu verði fyrir nútímafólk.
Líði eins og heima hjá sér
Hótelið Casa Camper sem er
miðsvæðis í Barselóna var opnað
fyrr á þessu ári og er hannað á ein-
faldan hátt með það að markmiði að
hótelgestum líði eins og heima hjá
sér. Camper fékk í lið með sér
hönnuðinn Fernando Amat sem
hefur tekið þátt í hönnun Camper
frá upphafi m.a. hannaði hann
fyrstu skóbúðina fyrir Camper.
Rauðir, svartir og gráir litir eru
áberandi á veggjum Casa Camper.
Skemmtilegt er að sjá hvernig
hótelið hefur skipulagt hjólageymsl-
una en í anddyrinu hanga nokkur
reiðhjól hótelgesta niður úr loftinu.
Gömul brauðrist, stytta af ketti og
fleiri gamlir hlutir eru til sýnis í
anddyrinu, þetta eru hlutir sem
fundust þegar verið var að breyta
húsnæðinu í hótel. Einnig er þar
hálfgegnsær veggur sem lýsir upp
anddyrið og má sjá glitta í ferða-
töskur gestanna. Ýmislegt á Casa
Camper er frábrugðið hótelum al-
mennt, til að mynda er hvorki veit-
ingastaður né minibar heldur ein-
ungis sjálfsalar fyrir hótelgesti. Að
vissu leyti er það kostur vegna þess
að hótelgestir geta þá fengið sér
samlokur og fleira snarl úr sjálfsal-
anum á hvaða tíma sem er. Eins og
fyrr var getið leggur Camper mikla
áherslu á vistvænt umhverfi og not-
ar þess vegna sólarplötur á þakinu
til að hita upp vatnið. Að auki eru
hreinsitæki inni á hverju herbergi
sem hreinsa vatnið og gera það not-
hæft á ný. Herbergin á Casa Cam-
per eru 25 talsins og hverju her-
bergi er skipt upp í tvo hluta þar
sem annar hlutinn er hugsaður til
slökunar og hinn til skemmtunar og
dægradvalar. Einföld húsgögn eru
ráðandi á herbergjunum og eru
flest þeirra hönnuð af Fernando
Amat.
Skóverslanir Camper eru hver
fyrir sig einstakar og engin þeirra
er nákvæmlega eins. Mikið er lagt í
skókassa, poka og fleira sem tengist
verslunarrekstrinum og ekki má
gleyma pokanum sem Marti Guxie
hannaði fyrir Camper sem á stóð
slagorðið „If you don’t need it, don’t
buy it“ sem er eitt af kjörorðum
Camper. Marti Guixé hefur komið
að hönnun flestra Camper skóversl-
ana m.a. hannaði hann Camper
„info shop“ skóverslanirnar þar sem
handteiknaðir textar og teikningar
mynda fallegar skreytingar. Hug-
myndin er að upplýsingar til við-
skiptavina séu nýttar sem skreyt-
ingar og fá viðskiptavini til að taka
betur eftir þeim upplýsingum sem
Camper hefur fram að færa. Í stað
þess að eyða peningum í dýr efni og
tæki til að hanna skóverslanir er
áherslan heldur lögð á innihalds-
ríkar upplýsingar hvort sem það er
skrifað eða sett fram í myndmáli.
Umhverfi Majorca er sterkur
þáttur í útliti Camper skóverslan-
anna. Áherslan er á að gefa al-
menningi innsýn í sveitalíf og
menningu Majorca. Í gegnum tíðina
hefur Majorca verið einna þekktust
sem fjörugur staður fyrir ferða-
menn til að hella sig fulla og synda í
sjónum. Áherslur Camper verslan-
anna snúast um að koma á nýrri og
betri sýn á Majorca, vegna þess að
eyjan hefur að geyma gamla sögu,
menningu og fallegt landslag sem
vert er að skoða nánar.
Martin Guixé hannaði þessa Camper-verslun sem er í London.
Óvenjuleg töskugeymsla sem kemur gestum Casa Camper-hótelsins á óvart.
Matseðill Foodball er fallegur og vekur athygli viðskiptavina.
Steinsteyptu tröppurnar á Foodball og á móti blasa við stórir gluggar sem veita gestum þá tilfinningu að þeir sitji úti.
Grunnþarfirnar þrjár
Í hlutarins eðli | Spænska
skófyrirtækið Camper er
þekkt um allan heim fyrir
vandaða og frumlega skó af
ýmsu tagi. En fyrirtækið
hefur ekki látið sér nægja
skófatnað heldur fært út
kvíarnar í rekstur hótela og
veitingastaða. Guðrún Edda
Einarsdóttir fjallar
um Camper.
Höfundur er vöruhönnuður.
hannar@mbl.is
Herbergi Casa Camper-hótelsins eru stílhrein og laus við allan óþarfa.