Morgunblaðið - 13.04.2006, Blaðsíða 30
Krónan
Gildir 13. apríl–16. apríl verð nú verð áður mælie. verð
Gourmet rauðvíns lambalæri................. 1406 2495 1406 kr. kg
Gourmet ungnautafilet ......................... 2549 3398 2549 kr. kg
Goða Bayonneskinka............................ 953 1588 953 kr. kg
SS svínahamborgarhryggur m/beini ...... 1049 1498 1049 kr. kg
SS rauðvínslegin helgarsteik ................. 1168 1668 1168 kr. kg
SS Grand Orange helgarsteik ................ 1168 1668 1168 kr. kg
Eðalf. Búkona graflaxbitar..................... 998 1499 998 kr. kg
Maískorn 1. flokks ............................... 1 55 3 kr. kg
Sólfugl kalkúnabringa, fersk.................. 2158 2398 2158 kr. kg
Bónus
Gildir 12. apríl–17. apríl verð nú verð áður mælie. verð
KF villikryddað lambalæri ..................... 1189 1529 1189 kr. kg
KF villikryddaðar sirloinsneiðar .............. 1259 1619 1259 kr. kg
KF villikryddaðar lambakótilettur ........... 1485 2429 1485 kr. kg
Ali hamborgarhryggur ........................... 1119 1438 1119 kr. kg
Laxasneiðar, marineraðar ..................... 998 1298 998 kr. kg
Laxasneiðar, beinlausar ........................ 899 0 899 kr. kg
Bónus ís, 2 ltr ...................................... 198 259 99 kr. ltr
Bónus ísblóm, 4 stk í pk ....................... 98 159 25 kr. stk.
Bónus brauð, 1 kg ............................... 98 129 98 kr. kg
Bónus fetaostur í gleri, 250 gr............... 199 0 796 kr. kg
Hagkaup
Gildir 12. apríl–17. apríl verð nú verð áður mælie. verð
Humar í öskju, 1 kg úrvals .................... 2798 3249 2798 kr. kg
Innfluttar nautalundir ........................... 2399 3998 2399 kr. kg
Lambalæri úrb. ostafyllt úr kjötborði ...... 1995 2198 1995 kr. kg
Lambalæri úr kjötborði ......................... 1095 1349 1095 kr. kg
Nóatún
Gildir 13. apríl–16. apríl verð nú verð áður mælie. verð
Nóatúns Bayonneskinka ....................... 898 1498 898 kr. kg
Grísabógur, hringskorinn....................... 499 599 499 kr. kg
Grísahnakkasneiðar, rauðvínslegnar ...... 1198 1598 1198 kr. kg
Nóatúns þurrkryddaðar lærisneiðar........ 1838 2298 1838 kr. kg
Lamba innralæri .................................. 2498 2998 2498 kr. kg
Nóatúns svínahamborgarhryggur........... 1298 1498 1298 kr. kg
Eðalf. reyktur lax, heil flök ..................... 1459 2248 1459 kr. kg
Gul epli............................................... 99 135 99 kr. kg
Ananas, ferskur ................................... 169 209 169 kr. kg
Maísstönglar ferskir, 2 stk. .................... 399 449 199 kr. stk.
Samkaup/Úrval
Gildir 11. apríl–17. apríl verð nú verð áður mælie. verð
Kalkúnn .............................................. 599 859 599 kr. kg
Hangilæri úrbeinað BK ......................... 1769 2527 1769 kr. kg
Skafís 2 ltr (33% meira) 3 teg............... 398 698 199 kr. ltr
Ískaka 6–8 manna............................... 599 859 599 kr. kg
Cadbury Roses sælgæti, 480 gr. ........... 599 799 288 kr. kg
Mackintosh 1,2 kg ............................... 1399 1999 1165 kr. kg
Þín verslun
Gildir 13. apríl– 19. apríl verð nú verð áður mælie. verð
Borgarnes Villikryddað hátíðarlambal. ... 1529 1912 1529 kr. kg
Borgarnes Ostapylsur ........................... 829 1099 829 kr. kg
Borgarnes Lambaframp. grillsn. krydd.... 1599 1998 1599 kr. kg
Viennetta vanilluís, 1 ltr........................ 419 659 419 kr. ltr
Viennetta Brownie ís, 1 ltr..................... 419 659 419 kr. ltr
Viennetta Cappuchino ís, 1 ltr............... 419 659 419 kr. ltr
Dumle Súkkulaðidrykkur, 500 gr............ 329 439 658 kr. kg
Páskasteikin á tilboði
NEYTENDUR | Helgartilboðin@mbl.is
30 FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF Í APRÍL
NÚ ER það páskalambið sem
víða er á tilboði og svo er hægt
að kaupa humar í forrétt. Ís er
síðan á niðursettu verði fyrir þá
sem ekki bjuggu til sinn eigin ís
fyrir páskana. Kannski vilja
einhverjir vera í hollustunni á
milli og þá eru ferskir maís-
stönglar tilvaldir sem eru á til-
boði í Nóatúni svo og ferskur
ananas og um að gera að borða
lax á milli stórsteika en laxa-
sneiðar fást beinlausar í Bónus.
Annars ætlar Buddan að vera
hagsýn ogkippa með sér maís-
korni í körfuna þegar leiðin
liggur í Krónuna. Það hlýtur að
vera besta tilboðið því dósin er
á eina krónu í stað 55 króna.
Maískorn
á krónu
BUDDAN
var linsuvökvinn notaður. Framleið-
andinn Bausch & Lomb hefur stöðv-
að sölu á vökvanum til Asíu og
Bandaríkjanna en ekki til Evrópu,
LINSUVÖKVI að nafni Renu
Moistureloc frá Bausch & Lomb
sem m.a. er fáanlegur hér á landi
hefur verið tekinn úr sölu í Banda-
ríkjunum og Asíu. Ástæðan er að
vökvinn er talinn geta valdið alvar-
legum augnsýkingum, að því er m.a.
kemur fram á vefjum Svenska
Dagbladet og Berlingske Tidende,
en sumar verslanir í Danmörku, Sví-
þjóð og Noregi hafa hætt sölu á
linsuvökvanum.
Sýkingin getur í alvarlegustu til-
fellunum leitt til blindu. Um er að
ræða sveppasýkingu sem hefur
komið upp bæði í Asíu og Bandaríkj-
unum. 109 notendur í 17 ríkjum
Bandaríkjanna hafa fengið sýk-
inguna og þar af hafa átta þurft að
gangast undir aðgerð þar sem ný
hornhimna var grædd í þá til að
koma í veg fyrir blindu, að því er
fram kemur í frétt Berlingske.
26 af 30 sýktum
notuðu vökvann
Ekki hefur verið staðfest að beint
samband sé á milli sýkinganna og
þessa vökva en í 26 tilfellum af 30
Afríku og Mið-Austurlanda þar sem
ekki hafa verið tilkynnt nein tilfelli
um sýkingar á þeim mörkuðum.
Linsuvökvinn sem seldur er á þess-
um mörkuðum er framleiddur á Ítal-
íu en ekki í Bandaríkjunum eins og
sá sem seldur er á fyrstnefndu
mörkuðunum. Ef rótina að sýking-
unni má rekja til linsuvökvans er
það til framleiðslunnar í Bandaríkj-
unum en ekki Ítalíu.
Vökvinn fæst hér á landi
Málið er í athugun hjá Landlækn-
isembættinu hérlendis en embættið
er lögbært yfirvald með lækn-
ingatækjum.
Að sögn Hauks Eggertssonar,
fulltrúa hjá Landlæknisembættinu,
kom tilkynning frá eftirlits-
yfirvöldum í Evrópu í fyrradag með
fyrirspurn hvort einhver tilfelli um
alvarlegar sýkingar hefðu komið
upp hérlendis. „Verið er að kanna
það núna og við erum að senda fyr-
irspurnir til augnlækna vegna máls-
ins. Umræddur linsuvökvi fæst hér á
landi en að svo stöddu er ekki vitað
hvaðan innflytjandi fær vökvann.
NEYTENDUR | Fjarlægt af markaði í Asíu og Bandaríkjunum
Linsuvökvi talinn geta valdið
alvarlegum augnsýkingum
LÉLEG tannheilsa er algengari
meðal fólks sem þjáist af streitu,
kvíða og þunglyndi, að því er ný
rannsókn bendir til. Í Göteborgs-
Posten kemur fram að þetta geti
leitt til þess að tennurnar losni.
Tannlæknar ættu að huga meira að
andlegri heilsu sjúklinganna, að
mati Annsofi Johannsen, sem gerði
rannsókn á sambandi andlegrar
heilsu og tannheilsu við Karolinska
institutet. Í ljós kom að fólk, sem
finnur fyrir kvíða í hversdagslífinu,
þjáist frekar af tannholdsbólgum
og þar með aukinni hættu á tann-
losi en aðrir. Hún rannsakaði einn-
ig hvort streitueinkenni hefðu áhrif
á þessa þróun og í ljós kom að svo
var. Tannlos er afleiðing krón-
ískrar bólgu, sem hrjáir 15-30%
Svía og gera má ráð fyrir að hlut-
fallið sé svipað á Íslandi. Johannsen
bendir á, að þunglyndi getur haft í
för með sér röskun á ónæm-
isvörnum líkamans og þar með
verri tannheilsu.
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Fólk, sem finnur fyrir kvíða, þjáist frekar af tannholdsbólgum.
Streita og kvíði hefur
áhrif á tannheilsu
HEILSA