Morgunblaðið - 18.04.2006, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 2006 21
MENNING
Gildi - lífeyrissjóður
Sætúni 1
105 Reykjavík
Sími 515 4700
www.gildi.is
gildi@gildi.is
Á R S F U N D U R
Ársfundur Gildis-lífeyrissjóðs verður haldinn á Grand Hótel,
Reykjavík miðvikudaginn 26. apríl 2006 kl. 17.00.
Dagskrá fundarins:
1. Venjuleg ársfundarstörf.
2. Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins.
3. Tillaga um hækkun réttinda.
4. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögurnar liggja frammi á skrifstofu sjóðsins og er einnig
að finna á heimasíðunni, www.gildi.is
Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundinum með málfrelsi
og tillögurétti. Sérstakt fulltrúaráð, að jöfnu skipað fulltrúum
stéttarfélaga og samtaka atvinnurekenda sem að sjóðnum
standa, fer með atkvæði á ársfundinum.
Reykjavík 10. apríl 2006,
lífeyrissjóður
Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs.
2 0 0 6
KOLBEINN Bjarnason er bæði
mjög góður og fjölhæfur flautu-
leikari sem býr jafnframt yfir
þeim eiginleikum góðs kennara að
geta opnað hug og eyru áheyr-
enda sinna bæði í orði og á borði.
Þannig hófust tónleikarnir í
Laugarborg að Kolbeinn sagði, að
fyrsta sónatan, sú í E-dúr, væri
skrifuð fyrir flautu og fylgibass-
arödd með tölusettum bassa.
Þannig fóru áheyrendur að beina
athygli sinni að vel flúruðu spili
Guðrúnar á sembalinn í hægri
hendi. Mjög áheyrileg og vel flutt
sónata. Lokaþátturinn fannst mér
spori of hraður og virkaði á mig
ögn órólegur.
Sónatan í h-moll er miklu lengri
og alvöruþrungnari tónsmíð og
þar vísaði Kolbeinn í kynningu til
þeirrar tilfinningar frá barrokkt-
íma að sú tóntegund tjái dýpri til-
finningar. Þarna var einnig hlut-
verk Guðrúnar enn stærra þar
sem Bach hafði svissað upp-
haflegri annarri flautu úr sónötu
fyrir 2 flautur í d-moll yfir á
sembalið. Mér fannst fyrsti þátt-
urinn mjög grípandi og áhrifa-
mikill í flutningi þeirra, en aftur
fannst mér lokaþátturinn ýta of
mikið á mig í hraða.
Eftir hlé var svo stokkið ca 260
ár fram í tímann og Íslendingi þá
á Ítalíu, Úlfari Inga Haraldssyni,
gefinn tónninn. Kolbeinn og Guð-
rún fluttu verkið L’union Sacre
(Hið heilaga bandalag?) að lokinni
vandaðri kynningu Kolbeins.
Verkið kemur víða við og gefur
flautunni og sembalnum fjöl-
breytta útfærsluhætti í leik. Mér
finnst það bera viss einkenni ung-
gæðings, sem sýnir fullmargar
gangtegundir í stað þess að gera
færri betri skil. Eigi að síður
fannst mér verkið í flutningi hins
helga bands skemmtilegt.
Í lokin kom svo sónatan í þeirri
dýru og góðu tóntegund g-moll,
sem Kolbeinn upplýsti að væri
ranglega kennd Jóhanni Sebast-
ian, en væri nú talin eftir yngsta
son hans, sem hugsanlega hefði
notið einhverrar aðstoðar pabb-
ans.
Hvort það voru þessar upplýs-
ingar eða flutningsmáti sem fluttu
eyra mitt inn á hinn forklassíska
rókókótíma get ég ekki vitað. Fal-
legt verk og fjarska vel flutt var
verðugt til að segja amen eftir
efninu og renna saman við klapp
þakklátra, en allt of fárra tón-
leikagesta. Það er synd hve góð
tækifæri sem þetta ganga mörg-
um úr greipum.
Hugur og
eyru opnuð
TÓNLIST
Laugarborg
Kolbeinn Bjarnason flautuleikari og
Guðrún Óskarsdóttir semballeikari
fluttu verk eftir J.S. Bach og Úlfar Inga
Haraldsson. Sunnudaginn 9. apríl kl.
15.
Kammertónleikar
Jón Hlöðver Áskelsson
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Fréttasíminn
904 1100