Morgunblaðið - 18.04.2006, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 2006 35
DAGBÓK
Námskeið fyrir byrjendur og lengra komna.
Námskeið fyrir börn.
Taltímar.
Einkatímar.
Kennum í fyrirtækjum.
Frönskunámskeið
hefjast 2. maí
Innritun 18. til 29. apríl
Tryggvagötu 8,
101 Reykjavík, fax 562 3820.
Veffang: www.af.is
Netfang: alliance@af.is
Upplýsingar
í síma 552 3870
Byggingalóðir:
Atvinnuhúsnæði:
Fyrirtæki til sölu:
Vantar fyrirtæki
fyrir ákveðna kaupendur:
Kringlan 7 • 103 Reykjavík • Hús verslunarinnar • Sími 534 4400
HB FASTEIGNIR
Fyrir öfluga aðila til sölu frábær byggingalóð í Reykjavík,
mikið byggingarmagn.
2 stk. einbýlishúsalóðir í nágrenni Reykjavíkur til sölu.
Glæsilegur og þekktur veitingastaður í miðbæ
Reykjavíkur.
Þekkt hótel í Reykjavík með fína viðskiptavild.
Hlutur í húsgagnaverslun.
Gott hótel á Suðurlandi.
Byggingaverktakafyrirtæki með góða verkefnastöðu.
Iðnfyrirtæki í matvælaframleiðslu.
Góð gistiheimili.
Sérverslanir af öllum gerðum.
Hótel í Reykjavík.
Fyrirtæki af öllum gerðum og stærðum.
Vantar fyrir fjársterka aðila atvinnuhúsnæði í útleigu
með trausta leigusamninga, staðgreiðslur í boði.
Vantar á skrá atvinnu- og skrifstofuhúsnæði af öllum
stærðum og gerðum.
Pétur Kristinsson
Lögg. fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali
Lögg. verðbréfamiðlari
Kristinn R. Kjartansson
sölustjóri atvinnuhúsnæðis,
s. 820 0762
Hrafnhildur Bridde, löggiltur fasteignasali
Guðni Guðnason heldur námskeið byggt áLífssýn, verkefnabókinni sem hann gafút í lok síðasta árs. Tilgangur nám-skeiða Guðna er að hjálpa fólki að lifa
lífinu til fulls: „Mín vinna gengur út á að hjálpa
fólki að ná hámarksárangri í tilvist sinni. Það ger-
ist ekki án ásetnings, það er: tilgangs. Tilgang-
urinn er undirstaða hamingjunnar og án tilgangs
getur maður ekki lifað innblásnu lífi. Margir eru
ekki hamingjusamir í augnablikinu, heldur fram-
lengja tilvist sína og ætla að verða hamingjusamir
í framtíðinni. Með námskeiðinu vil ég hins vegar
fá fólk til að upplifa augnablikið á sem öflugastan
máta og nýta sér hæfileika sína, tilvist, og hvert
augnablik á sem bestan máta,“ segir Guðni.
„Hjálpa þarf fólki á mismunandi vegu að ná
þessu markmiði. Oft á tíðum, en ekki alltaf, er
byrjað á líkamanum og að gera hann eins orku-
myndandi og hægt er. Með auknu þreki gerist
fólk víðsýnna og hefur burði til að horfast í augu
við eigin tilvist,“ útskýrir Guðni.
„Við lifum mörg lífi okkar eftir ferlum sem okk-
ur hafa verið innrættir af foreldrum, skólum og
stofnunum. Oft eru þessir ferlar tálsýnir en þegar
við vöknum til vitundar um það getum við valið
viðbragð okkar frekar yfirvegað, frekar en að
gera eins og dýrin sem aðeins bregðast við.“
Grundvöll fræða Lífssýnar segist Guðni hafa
fengið víða að: „Það er ekkert nýtt undir sólinni.
Ég var fyrstur manna á Íslandi til að starfa við
einkaþjálfun og gerði mér þá grein fyrir að þjálf-
un var að mörgu leyti ábótavant. Ég veitti því at-
hygli að menn þurftu að vinna með lífsferla sína,
en ekki bara lóðin. Ég menntaði mig í næring-
arfræði, jógafræðum og margskonar lífsspeki og
komst ekki hvað síst að því í gegnum eigið lífs-
hlaup hve orsök og afleiðing verka saman. Ég hef
viðað saman úr þessum mörgu fræðum því sem er
kallað Rope Yoga-heimspeki eða Lífssýn.“
Guðni heldur annars vegar námskeið fyrir
kennara dagana 27.–30. apríl. Áður hefur Guðni
haldir þrjú slík námskeið og verður þetta líklega
síðasta námskeiðið af því taginu sem hann heldur
að sinni. Námskeiðið fer fram í tveimur fjögurra
daga lotum með þriggja mánaða millibili.
Hins vegar helgina 5. til 7. maí heldur Guðni
námskeið fyrir almenning um Lífssýn. „Unnið er
með Lífssýnarbókina sem nálgast má ókeypis á
netinu. Bókin er í reynd verkefnabók sem hjálpa á
fólki að gera sér grein fyrir hvaða tilgang það vill
velja sér í lífinu.“
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni
www.ropeyoga.is. Þar má meðal annars finna
upplýsingar um námskeiðsgjöld. Námsgögn eru
afhent við fullnaðargreiðslu námskeiðsgjalda og
er ætlast til að þátttakendur kynni sér gögnin vel
áður en námskeiðið hefst.
Námskeið | Þjálfun byggð á verkefnabókinni Lífssýn sem byggist á heimspeki Rope Yoga
Tilvist mannsins og tilgangur
Guðni Gunnarsson
fæddist 1954 og ólst
upp í Keflavík. Hann á
að baki fjölbreytta
menntun á sviði
íþrótta, heilsu og lífs-
ráðgjafar. Hann var
fyrstur manna á Íslandi
til að starfa við einka-
þjálfun, var formaður
Vaxtarræktarfélags Ís-
lands um skeið og gaf
út tímaritið Líkamsrækt og næring. Guðni var
stofnandi jógamiðstöðvarinnar Frískandi og er
upphafsmaður Rope Yoga á Íslandi. Guðni hef-
ur undanfarin fimmtán ár lifað og starfað í
Bandaríkjunum við kennslu, lífsráðgjöf og
einkaþjálfun. Guðni á synina Þór og Gunnar
Pétur og er kvæntur Guðlaugu Pétursdóttur
framkvæmdastjóra.
Billy Eisenberg.
Norður
♠K94
♥D842 V/Allir
♦ÁG64
♣76
Vestur Austur
♠G10863 ♠D752
♥G1075 ♥93
♦D ♦95
♣ÁG3 ♣D10854
Suður
♠Á
♥ÁK6
♦K108732
♣K92
Vestur Norður Austur Suður
Svarc Goldman Boulanger Eisenberg
Pass Pass Pass 1 tígull
Dobl Redobl Pass Pass
1 spaði 2 tíglar 2 spaðar 3 spaðar
Pass 4 hjörtu Pass 6 tíglar
Pass Pass Pass
Útspil: Spaðagosi.
Bandaríski glaumgosinn „Broad-
way“ Billy Eisenberg er hér við stýrið í
tígulslemmu á HM 1969. Ítalir unnu
Taívan í úrslitaleik, en Bandaríkja-
menn lögðu Frakka í viðureign um
bronsverðlaunin og er spilið frá þeim
leik.
Hið síðbúna opnunardobl vesturs
sannfærði Billy um tvennt – að vestur
ætti laufás og fjórlit í hjarta. Billy spil-
aði út frá þeim forsendum, henti laufi í
spaðakóng og rúllaði niður öllum
trompunum:
Norður
♠--
♥D8
♦--
♣76
Vestur Austur
♠-- ♠D
♥G10 ♥--
♦-- ♦--
♣ÁG ♣D108
Suður
♠--
♥6
♦10
♣K9
Í þessari stöðu hefur sagnhafi tekið
ÁK í hjarta áður en síðasta trompinu
er spilað. Svarc henti laufgosa og Billy
fylgdi sannfæringunni með því að
kasta hjartaáttu úr borði. Hann spilaði
svo litlu laufi frá kóngum og fékk úr-
slitaslaginn á laufkóng.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. Rf3 d5 2. e3 c5 3. b3 Rf6 4. Bb2 Bg4
5. h3 Bh5 6. Bb5+ Rfd7 7. 0–0 e6 8.
Be2 Rc6 9. c4 Rb6 10. Ra3 Hc8 11. d3
a6 12. Rc2 f6 13. De1 Bd6 14. e4 0–0 15.
Rd2 Bf7 16. f4 Dc7 17. Dh4 dxc4 18.
dxc4 e5 19. Bd3 Hfd8 20. Re3 Rd4 21.
Rd5 Rxd5 22. exd5 Bg6 23. f5 Bf7 24.
Re4 h6 25. Hae1 Kf8 26. He3 Ke8 27.
Bc1 Da5 28. Hg3 Bf8
Staðan kom upp á bandaríska meist-
aramótinu sem lauk fyrir skömmu San
Diego. FIDE-meistarinn Emory Tate
(2.384) hafði hvítt gegn stórmeist-
aranum Varuzhan Akobian (2.575).
29. Bxh6! lagleg fórn sem opnar flóð-
gáttir að svarta kóngnum. 29. … gxh6
30. Rxf6+ Ke7 31. Rg4+ Ke8 32. He3!
Hvíta stórskotaliðið beinir spjótum
sínum að svarta kóngnum og bregður
svartur á það ráð að gefa manninn til
baka en það reynist skammgóður
vermir. 32. … Kd7 33. Rxe5+ Kc7 34.
Rxf7 He8 35. De1 Dxe1 36. Hfxe1
Hxe3 37. Hxe3 h5 38. g4 hxg4 39.
hxg4 Bd6 40. Rxd6 Kxd6 41. g5 og
svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Ógleymanleg
kvöldstund í Salnum
MIÐVIKUDAGSKVÖLDIÐ 5. apr-
íl sl. fór ég á söngtónleika í Salnum í
Kópavogi. Þar komu fram tveir
ungir söngvarar, þau Ingibjörg Al-
dís Ólafsdóttir sópran, sem er son-
ardóttir Sigurveigar Hjaltested
óperusöngkonu, og tenórinn Stefán
Helgi Stefánsson, en eins og sjá
mátti í vandaðri efnisskrá var Stef-
án Íslandi langafi hans. Að mínum
dómi stóðu hinir ungu söngvarar
fyllilega undir væntingum og
frammistaða þeirra sýndi og sann-
aði að þau eru verðugir arftakar
forveranna . Átti söngur þeirra og
túlkun sinn þátt í að gera þessa
kvöldstund einkar ánægjulega.
Ekki spillti heldur fyrir að lagavalið
samanstóð af íslenskum og erlend-
um sönglagaperlum, er þau Sig-
urveig Hjaltested og Stefán Íslandi
fluttu á sínum tíma. Ólafur Vignir
Albertsson stóð vel fyrir sínu í und-
irleiknum.
Hann spilaði yfirvegað og fylgdi
söngvurunum mjög vel sem ekki er
lítið atriði t.d. í íslensku einsöngs-
lögunum sem margt tónlistar-
áhugafólk gjörþekkir.
Þá var upphaf tónleikanna einkar
vel til fundið en kynnir kvöldsins,
Ólafur B. Ólafsson, sem er sonur
Sigurveigar og faðir Ingibjargar Al-
dísar, kom dansandi inn með harm-
ónikku og renndi sér síðan upp í hið
vel þekkta Ökuljóð er Stefán Helgi
hóf söng sinn á. Þá fannst mér ótrú-
lega skemmtilegt og jafnframt
áhrifaríkt að hlýða á söngvarana
flytja hið þekkta lag Freymóðs Jó-
hannssonar Blikandi haf við undir-
leik Ólafanna beggja á harmónikku
og píanó. Fleira verður ekki rakið
hér en af undirtektum áhorfenda að
dæma mætti vel endurtaka þessa
stórgóðu tónleika. Það var nærri
húsfyllir í Salnum þetta kvöld og
þar á meðal voru heiðursgestirnir
þær systur og óperusöngkonur Sig-
urveig Hjaltested og Ingveldur
Hjaltested sem voru hylltar með
dynjandi lófaklappi af þessu tilefni.
Takk fyrir mig:
Rúnar Sigtryggsson,
Samtúni 18, Rvík.
Myndavél í óskilum
STAFRÆN mynda-
vél fannst í Þing-
holtsstræti í lok
febrúar.
Meðal mynda í
myndavélinni er
meðfylgjandi mynd.
Þessi vél hefur verið
auglýst áður. Ef þið
kannist við þessa mynd eða mynda-
vélina vinsamlegast hafið samband
við Guðbjörgu í síma 567 5967.
Gullarmband týndist
GULLARMANBAND týndist í
kringum sl. mánaðamót fyrir utan
Skipholt 33 eða við bílastæði við
Arnarbakka. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 690 0658.
Fundarlaun.
Gullbrúðkaup | Í dag, 18. apríl, eiga gullbrúðkaup Pálína Aðalsteinsdóttir og
Valberg Gíslason, Hraunvangi 7, Hafnarfirði. Pálína starfaði í 40 ár á skrifstofu
Morgunblaðsins. Valberg var matsveinn. Þau eru að heiman í dag.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is