Morgunblaðið - 18.04.2006, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 2006 39
www.xy.is
Sýnd kl. 2 og 4
400 KR.
Í BÍÓ
*
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
walk
the line
ÞÉR MUN STANDA
AF HLÁTRI!
When a Stranger Calls kl. 3, 6, 8 og 10 B.i. 16 ára
Ice Age 2 m/ensku tali kl. 3, 6, 8 og 10
Lucky Number Slevin kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.i. 16 ára
Walk the Line kl. 2.40, 5.15, 8 og 10.45
Páskamyndin í árVINSÆLASTA MYNDIN
Á ÍSLANDI Í DAG
“Ekkert mun búa þig undir
kraftinn og þungann í
þessari mynd.”
-Quentin Tarantino
SVAKALEGUR SPENNUTRYLLIR SEM
HELDUR ÞÉR Í HELJARGREIPUM
FRÁ UPPHAFI TIL ENDA
„Ég er dolfallinn“
eee
ROGER EBERT
Sýnd kl. 2, 4 og 6 íslenskt tal
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.30 b.i. 16 ára
-bara lúxus
RANGUR TÍMI, RANGUR
STAÐUR, RANGUR MAÐUR
„FRÁBÆR, FLOTT OG FYNDIN...
OFURSVALUR SPENNUTRYLLIR“ FHM
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.30 b.i. 16 ára
400 KR. Í BÍÓ GILDIR Á ALLAR SÝNINGAR MERKTAR MEÐ RAUÐU
eee
V.J.V Topp5.is
eee
H.J. Mbl
„Rosaleg kvikmyndaupplifun“
eee
M.M.J. Kvikmyndir.com
eee
LIB, Topp5.is
Sýnd kl. 2 og 4
Sýnd kl. 10.20 b.i. 14 ára
ÞAÐ er fátt skiljanlegra en að popp-
tónlistarmenn á sjötugsaldri vilji
kynna áheyrendur sína fyrir því sem
þeir eru að gera hverju sinni. Stað-
reyndin er nefnilega sú að flestir
popparar halda sinni sköpun áfram
löngu eftir að þeir hætta að verma
toppsæti vinsældalistanna, og marg-
ir hverjir eiga sér dyggan aðdáenda-
hóp sem er reiðubúinn að styðja við
bakið á þeim á hverju sem gengur.
Það er vafalítið þreytandi að spila
sömu smellina ár eftir ár svo áratug-
um skiptir, og því lífsnauðsynlegt að
leika eitthvað nýtt á hverju tónleika-
ferðalagi. Meirihluti okkar sækir
hins vegar tónleika þessara sömu
listamanna í þeim tilgangi að heyra
„gömlu og góðu“ smellina. Af þess-
um sökum verður alltaf til staðar
ákveðin togstreita milli markmiða
popparans og væntinga áheyrend-
anna á tónleikum sem þeim sem Ray
Davies lék á sl. föstudagskvöld.
Ray Davies var aðalsprautan í
Kinks, einhverri bestu poppsveit
Breta frá upphafi, og samdi mörg
lög sem eru fyrir löngu orðin sígild,
hér nægir að nefna „You Really Got
Me“ og „Sunny Afternoon“. En það
eru þrjátíu og fimm ár síðan Kinks
áttu stóran smell, og ekki að ástæðu-
lausu. Ray Davies flutti fjölda laga
af nýjustu plötu sinni, Other Peop-
le’s Lives. Það verður að segjast eins
og er að þau voru flest hver ekki upp
á marga fiskana og fjarri því að vera
jafn áhugaverð og efni Kinks frá sjö-
unda áratugnum. Davies var aug-
ljóslega meðvitaður um togstreituna
milli sín og salarins og spurði áheyr-
endur t.a.m. hvort þessi nýju lög
hans væru nokkuð alslæm, og gerði
grín að sjálfum sér og því að hann
væri enn að semja lög og gefa út
plötur.
Nýju lögin voru flest hver af-
skaplega vel spiluð en að sama skapi
fremur leiðinleg rokklög sem áttu
það sameiginlegt að fjalla um pen-
ingahyggju og bagalegt ástand
mannsandans. Þessar vangaveltur
áttu mögulega rætur að rekja til
þess að mörg laganna voru samin í
New Orleans á síðasta ári. Davies
gerði áhyggjum sínum stundum skil
í dramatískum milliköflum þar sem
hann fór með stuttar sögur eða
textabrot um myrkari hliðar mann-
lífsins; hann söng m.a. um rán úti á
miðri götu innan um strípistaði og
subbuleg hótel, og lék hljóðupptöku
af ástandi heimsins: sírenuvæli og
almennri óreiðu. Þetta snerti mig
ekki.
Nýlegu lögin voru mest áberandi
á fyrri hluta tónleikanna, en eftir því
sem á leið fjölgaði Kinks-smellunum.
Fyrrnefndir slagarar voru báðir
leiknir auk „All Day and All of the
Night“, „Lola“, „Where Have All the
Good Times Gone?“ og fleiri. Í flutn-
ingi þessara laga stóð Davies sig
með stakri prýði. Frumkrafturinn
sem einkennir gömlu upptökurnar
var til staðar og sögurnar sem Dav-
ies sagði af tilurð laganna voru gríð-
arlega skemmtilegar. Í raun var
Davies sjálfur mjög skemmtilegur á
sviðinu, framkoma hans var lifandi
og heillandi og hann hafði aug-
ljóslega gaman af því sem hann var
að gera. Hann hvatti áheyrendur
óspart til að taka þátt í tónlist-
arflutningnum, ýmist með því að
klappa í takt eða syngja með.
Davies var líka mjög góður þegar
hann tók nokkur af minna þekktum
lögum Kinks, s.s. nokkur laganna af
hinni frábæru The Village Green
Preservation Society, plötu sem féll í
skuggann af Beggars Banquet og
Hvíta albúminu þegar hún kom út en
hefur vaxið fiskur um hrygg síðan.
Sjálfum þótti Davies viðtökur lags-
ins „On an Island“ einnig stórmerki-
legar, en lagið náði aldrei vinsældum
utan Íslands. Íslendingar hafa
sennilega fundið sig í textanum, því
ekki viðurkenna Bretar að þeir séu
eyjarskeggjar!
Þrátt fyrir að lagaval Davies hafi
verið upp og ofan sitja smellirnir eft-
ir og lýsa upp skuggaleg strætin
sem hann gerði skil í nýrri lögum
sínum. Tónleikarnir hefðu vafalítið
verið betri hefði Davies bætt
„Waterloo Sunset“, „Days“ og „De-
dicated Follower of Fashion“ á laga-
listann og flutt þau af viðlíka ákafa
og hann spilaði aðra slagara, en á
móti kemur sköpunarþörfin; krafa
listamannsins til sjálfs sín um að
vera sífellt að gera eitthvað nýtt og
spennandi. Davies hefði sennilegast
ekki notið tónleikanna jafnmikið
sjálfur ef hann hefði ekkert nýtt haft
fram að færa, og persónutöfrar hans
hefðu að sama skapi ekki smitast
jafn sterklega út í sal. Það er
ánægjulegt að þessi gamla popp-
stjarna skuli enn vera á fullum skriði
og vonandi kemur andinn yfir hann á
ný, svo þessi fyrrum sagnameistari
breskrar alþýðumenningar geti end-
urheimt titilinn.
Togstreita
TÓNLIST
Tónleikar
Ray Davies í Háskólabíói á föstudaginn
langa, 14. apríl. Concert stóð fyrir tón-
leikunum.
Ray Davies
Morgunblaðið/Sverrir
„Þrátt fyrir að lagaval Davies hafi verið upp og ofan þá sitja smellirnir eft-
ir og lýsa upp skuggaleg strætin sem hann gerði skil í nýrri lögum sínum,“
segir m.a í dómnum.
Atli Bollason
Á LAUGARDAGINN fór fram Ís-
landsmeistaramótið í hreysti (fit-
ness) í íþróttahöllinni á Akureyri.
Fjöldi fólks mætti til að berja
kroppana augum og hvetja þá
áfram en keppnin þótti mjög spenn-
andi í ár.
Heiðrún Sigurðardóttir bar sigur
úr býtum og hampaði Íslandsmeist-
aratitli kvenna í hreysti en Aðal-
steinn Sigurkarlsson sigraði í
karlaflokki. Íslandsmeistari ung-
linga í kvennaflokki varð Guðrún
Hólmfríður Ólafsdóttir en í karla-
flokki sigraði Heiðar Ingi Heið-
arsson. Faðir Aðalsteins, Sigurkarl
Aðalsteinsson, varð Íslandsmeistari
í flokki 40 ára og eldri og Kristín
Kristjánsdóttir sigraði í flokki
kvenna 35 ára og eldri.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Íslandsmeistararnir í hreysti í fullorðinsflokkum; Heiðrún Sigurðardóttir
og Aðalsteinn Sigurkarlsson.
Hraust fólk
keppti á Akureyri