Morgunblaðið - 18.05.2006, Side 4

Morgunblaðið - 18.05.2006, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR NORÐURLANDAÞJÓÐIRNAR virðast ekki vera í fararbroddi hvað varðar launajöfnuð karla og kvenna þegar þau eru borin saman við Evrópu- sambandsríkin 25. Þetta kemur fram í niðurstöð- um norræna verkefnisins „Mælistikur á launajafn- rétti á Norðurlöndum“, sem kynntar voru á málþingi í Þjóðminjasafninu í gær. Þá kemur einn- ig fram að launamunur kynjanna er mestur á Ís- landi samanborið við öll aðildarlönd ESB og Nor- eg, eða um 30%. Hin Norðurlöndin eru nær meðaltali Evrópusambandsríkjanna, frá 14–18%. Ein skýring á miklum launamun karla og kvenna á Norðurlöndum er mikil atvinnuþátttaka kvenna, sérstaklega ófaglærðra kvenna sem starfa í láglaunastörfum í umönnunargeiranum, en í mörgum Evrópuríkjum vinna konur þessa vinnu kauplaust utan vinnumarkaðarins og teljast þær því ekki inn í útreikninga. Einnig kemur fram í lokaskýrslu verkefnisins að einkageirinn stendur sig mun lakar en opinberi geirinn hvað varðar launamun kynjanna, en konur í opinbera geiranum hér á landi njóta bæði hærri launa og meiri kynjajafnaðar en konur í einkageir- anum. Í skýrslu verkefnisins, sem dró saman niður- stöður 19 rannsókna á leiðréttum kynbundnum launamun á Norðurlöndunum, kom í ljós að starfs- stétt, ásamt atvinnugrein og atvinnugeira, virðist vera meginástæða launamunar karla og kvenna. Þannig virðast „hefðbundin kvennastörf“ metin mun lægra en „hefðbundin karlastörf“. Ennfremur kom fram að Norðurlöndin eiga það sameiginlegt að launamunur karla og kvenna er mestur meðal vel menntaðra, en það má rekja til tiltölulega mik- illar launadreifingar í þeim hópi. Fleiri konur en karlar fá laun sem staðsett eru við lægri enda launadreifingar, þannig að mikil dreifing innan menntahóps skapar meiri launamun kynjanna. Í skýrslunni er mælt með sérstökum aðgerðum til að bæta úr launamun kynjanna bæði hér og ann- ars staðar á Norðurlöndunum en einnig er mælst til þess að hagstofur Norðurlandanna komi sér saman um mælingaraðferðir til að gögn séu sam- bærileg og nýtist betur í jafnréttisrannsóknum. Tryggja þurfi aðgengi einstaklinga og fulltrúa stéttarfélaga að upplýsingum um heildarlaun ein- staklinga alls staðar á Norðurlöndum. Þá þurfi að eiga sér stað meiri samhæfing í stefnumótun á sviði vinnumarkaðs- og jafnréttismála. Ennfremur þurfi að vera sektarákvæði í jafnréttislögum, svo þau verði tekin alvarlega og síður brotin. Í erindi sínu á málþinginu sagði verkefnisstjóri rannsóknarinnar, dr. Lilja Mósesdóttir, prófessor við Viðskiptaháskólann á Bifröst, m.a. að þróunin til launajafnréttis á Norðurlöndum væri mjög hæg, en svo virtist sem launamunurinn væri minnstur í Noregi og Svíþjóð. Ísland eftirbátur í launajafnrétti kynjanna segir í norrænni skýrslu Launamunur kynjanna er mestur hér á landi Morgunblaðið/Eyþór Dr. Lilja Mósesdóttir, verkefnisstjóri og prófessor við Bifröst, kynnir niðurstöður verkefnisins, en ljóst er að launajafnrétti á Íslandi á langt í land. Eftir Svavar Knút Kristinsson svavar@mbl.is „LAUNAMUNUR kynjanna er helsta áhyggju- efni stúlkna á Norðurlöndunum,“ sagði Jón Kristjánsson félagsmálaráð- herra í ávarpi sínu á málþingi um launajafnrétti á Norð- urlöndum. „Þeim þykir óbæri- leg sú tilhugsun að þrátt fyrir góða menntun blasi það við að þær fái lægri laun þegar þær koma á vinnumarkaðinn. Þessari framtíðarsýn þurfum við að breyta. Ég tel því að brýnasta málið á sviði jafn- réttis í dag sé að vinna gegn launamun kynjanna.“ Jón sagði launamun kynjanna staðreynd í öll- um samfélögum. „En launamunur kynjanna er mannanna verk, en ekki eitthvað óumbreyt- anlegt náttúrulögmál,“ sagði Jón og bætti við að efla þyrfti rannsóknir á launamun kynjanna. Þá þyrftu allir aðilar samfélagsins að berjast fyrir því að útrýma launamun kynjanna. Kveðjur Jón í því skyni nauðsynlegt að virkja atvinnulífið til að bæta þá stöðu sem þar ríkir og vekja athygli á þeim staðreyndum sem rannsóknin leiddi í ljós. Óbærileg framtíðarsýn Jón Kristjánsson GRÍN eða alvara? Íslenska eða pólska? Gildir einu, því það vantaði nauðsynlega tvo menn í vinnu hjá glerfyrirtækinu Íspan og auglýsing í Fréttablaðinu fyrir skemmstu skilaði engum árangri. Auglýsingin var á íslensku. Síðan kom sú hug- mynd upp – hálfpartinn í gríni, en þó í alvöru – að auglýsa hreinlega á pólsku og að þessu sinni í Morg- unblaðinu. Þetta segir Sveinn Geir Sigurjónsson, verkstjóri hjá Íspan, þar sem um tugur Pólverja vinnur nú þegar. „Það gengur afar illa að fá Íslendinga í verkamannavinnu, en Pólverjarnir eru dugnaðarfólk,“ bendir hann á. Allt um það. Auglýsingin á pólsku kom í Morgunblaðinu 14. maí og tveimur dögum síðar var bú- ið að ráða í stöðurnar. „Mönnum fannst þetta kannski hálfniðurlægj- andi,“ segir Sveinn um viðhorf for- svarsmanna fyrirækisins, að þurfa að auglýsa á pólsku, en á góðri ís- lensku mætti segja að þetta hafi hreinlega svínvirkað. „Dobre warunki pracy i wypoczynku,“ sagði í auglýsing- unni og þeir tóku til sín sem áttu. Tveimur dögum síðar voru þeir komnir í vinnu og þar með var fullmannað hjá Íspan, sem er „zakladem koty produkuje“, eins og segir í auglýsingunni. Borgaði sig að auglýsa á pólsku LEITIN að Pétri Þorvarðarsyni, 17 ára gömlum pilti frá Egilsstöðum, hefur enn engan árangur borið. Hlé hefur verið gert á stórleit fram að helgi en björgunarsveitarmenn í héraði munu leita á helstu leit- arsvæðum þar til stórlið Slysa- varnafélagsins Landsbjargar verð- ur kallað saman á ný á laugardag. Um 400 manns hafa verið við leit- ina. Þyrla af danska eftirlitsskipinu Triton og þyrla Varnarliðsins hafa komið að leitinni samkvæmt samn- ingi við Landhelgisgæsluna. Leitin að Pétri enn árangurslaus NÚ GETA áskrifendur Símasjón- varpsins fengið veðurupplýsingar. Einungis þarf að velja Netið úr val- mynd og þá birtist þessi möguleiki. Fyrsta kortið sýnir veður eins og spá segir til um á hverjum tíma og síðan er hægt að velja hvern dag fyrir sig með fjarstýringunni. Veð- urkortið er fengið af veðurvef mbl.is en gögnin sem kortið byggist á koma frá Veðurstofu Íslands. Einnig er hægt að skoða nýjustu fréttir mbl.is í mismunandi frétta- flokkum. Veðurþjónusta á Sjónvarpi Símans „ÞAÐ má segja að það sé bara fyrir fullfrískt fólk að vera á göngunum,“ segir Benedikt Gústavsson, bóndi á Miðengi, en hann þurfti að vera þrjár nætur á göngum Landspítala – háskólasjúkrahúss (LSH) á dög- unum þar sem ekki voru nein laus pláss á stofum spítalans. Talsvert hefur verið fjallað um ófremdar- ástand það sem ríkt hefur á LSH undanfarið, m.a. um að svokallaðar gangainnlagnir, þar sem sjúklingar liggja í rúmum á göngum spítalans, séu viðvarandi. Benedikt var lagður inn á hjarta- deild LSH við Hringbraut til rann- sókna eftir að það leið yfir hann, en hann var kominn heim fyrir nokkru þegar Morgunblaðið náði tali af honum í gær. Hann segir sína upplifun af því að vera lagður inn á gang spítalans ekki svo slæma, en hún hafi verið öðrum erfið- ari. Að jafnaði hafi verið 3–5 sjúklingar í þeirri stöðu að fá ekki pláss í sjúkrastofu með- an hann var þar. „Þetta hrjáði mig svo sem ekki mikið vegna þess hve hress ég var, en ég vorkenndi mikið fólki sem þurfti mikla umönnun og lá á ganginum. Manni finnst það alger hörm- ung að fólk sem þarf aðstoð við að fara á klósettið og að- stoð við að klæða sig þurfi að liggja á ganginum. En ég vorkenni sjálfum mér svo sem ekki mikið,“ segir Bene- dikt. Starfsfólk allt af vilja gert Hann segist hafa verið nægilega frískur til að eyða dögunum sem hann þurfti að dvelja á spítalanum á fótum á setustofunni, en á næturnar lá hann í rúmi á ganginum. „Það eina sem ég bað hjúkkurnar um var að fá að vita hvar rúmið mitt væri þegar ég fór að sofa,“ segir Bene- dikt. „Starfsfólkið var allt af vilja gert, það vantaði ekkert upp á það. Það var meira að segja farið að gera grín að öllu saman og spyrja mig hvar rúmið mitt væri þegar ástandið var sem verst.“ Benedikt segir það mestu furðu hvernig hafi gengið að sofa á gang- inum, enda alltaf eitthvað ónæði. Það sé þó ekkert ósvipað því að liggja á stofu með öðrum sjúklingi sem þurfi mikla ummönnun. Sjúklingarnir sem voru í þessari stöðu ræddu það þó ekki mikið sín á milli þegar Benedikt lá inni, hann segir að gríðarlegt álag á starfs- fólkið hafi verið rætt mun meira. „Það voru líka veikindi í gangi með- al starfsfólks þegar ég var þarna og maður var að horfa upp á sömu stelpurnar á 16–17 tíma vöktum.“ Lá í þrjár nætur á göngum LSH þar sem ekki var pláss á stofu „Bara fyrir fullfrískt fólk að vera á göngunum“ Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is Benedikt Gústavsson, bóndi á Miðengi, þurfti að vera þrjár nætur á göngum Landspítalans. Ljósmynd/Egill Bjarnason FORSVARSMENN Sjónarhóls, ráð- gjafamiðstöðvar fyrir foreldra barna með sérþarfir, eru í samn- ingaviðræðum við bakhjarla sína um áframhaldandi fjárstuðning. Þorgerður Ragnarsdóttir, fram- kvæmdastjóri Sjónarhóls, segist bjartsýn á að það takist að tryggja starfseminni fjármagn til næstu ára. Eins og staðan er nú er fjár- magn tryggt fram á næsta ár, að sögn Þorgerðar. Bakhjarlar Sjónarhóls eru sex; ríkisstjórn Íslands, Kvenfélagið Hringurinn, Pokasjóður verslunar- innar, Landsbankinn, Actavis og Össur hf. Þorgerður segir að for- svarsmenn Sjónarhóls séu einnig að kanna leiðir til þess að tryggja fast fjármagn. Sjónarhóll var stofnaður árið 2004. Markmið hans er að fjöl- skyldur barna með sérþarfir njóti jafnréttis og sambærilegra lífs- kjara á við aðrar fjölskyldur og búi við lífsskilyrði sem geri þeim kleift að lifa eðlilegu lífi. Viðræður um fjármögnun Sjónarhóls

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.