Morgunblaðið - 18.05.2006, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 18.05.2006, Blaðsíða 42
42 FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Þakklæti er okkur efst í hug þegar við minnumst heimilis þeirra Herdísar Karlsdótttur og Gunnars Sigurðs- sonar. Þar var tekið á móti okkur af alúð og kærleika er við komum saman til þess að ráða ráðum okkar og njóta uppbyggingar. Herdís mætti okkur með glöðum svip sem sýndi hve vel- komnir við vorum inn til þeirra hjóna. Fyrstu árin heimsóttum við þau í Njörvasundið og síðar í Graf- arvoginn, alltaf var Dísa söm og jöfn af gestrisni sinni og þægilegri nær- veru. Nú er hún kvödd og hennar saknað af ástvinum og vinunum sem ylja sér við góðar minningar. Við félagarnir í Éljagangi biðjum þess að Guð styrki og huggi Gunnar, börn hans og fjölskyldur þeirra í sorginni og færum þeim innilegar samúðarkveðjur. Sigursteinn. Hlýr sumarblær sem leikur um okkur með loforð um það sem koma skal minnir óneitanlega á Dísu föð- ursystur okkar sem við kveðjum nú. Dísa frænka var aldrei kölluð annað en Dísa systir í okkar fjölskyldu, enda eina systir bræðra sinna Hjart- ar og Gulla. Hún átti sérstakan stað í hjarta þeirra og hjá okkur öllum í fjölskyldunni. Dísa var yndisleg manneskja. Hún bjó yfir ákveðinni dulúð og glæsileika sem fór ekki fram hjá þeim sem kynntust henni. Dísa hafði mikla for- ystuhæfileika, var kvik, ákveðin, fljót að hugsa og átti auðvelt með að hvetja aðra til dáða á hispurslausan en jákvæðan hátt. Foreldrar okkar áttu henni mikið að þakka þegar hún hvatti þau til að byggja sér hús á fyrstu sambúðarárum sínum. Dísa naut virðingar en fyrir okkur var hún fyrst og fremst Dísa systir, kærleiksrík og góð, áhugasöm um líf okkar og velferð. Hún snerti líf okkar allra eins og sumarblærinn, svo hlýr og góður. Dísa var lífsreynd kona og bjó yfir æðruleysi sem einkennir þá sem hafa trú á almættið. Við þökkum Guði fyr- ir elskulega frænku og sjá foreldrar okkar á eftir ástkærri systur og mág- konu með þakklæti í hjarta fyrir allt og allt. Guð geymi þig, elsku Dísa. Guðný Sigríður, Guðrún Herdís, Karl og Guðbjörg Jóna. Mig langar til að rifja upp nokkrar minningar um Dísu ömmu mína. HERDÍS KRISTÍN KARLSDÓTTIR ✝ Herdís KristínKarlsdóttir, fyrrv. leikskóla- stjóri, fæddist á Siglufirði 30. októ- ber 1927. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Eir 11. apríl síðast- liðinn og var útför hennar gerð frá Ás- kirkju í Reykjavík 3. maí. Mér fannst amma alltaf skemmtileg, fal- leg og góð þótt hún hafi verið veik. Þegar ég var lítill fór ég stundum í göngutúr með Dísu ömmu og Gunnari afa niður að tjörn og á kaffihús, þegar þau voru að passa mig. Ég spilaði líka stundum við hana á spil og hún kenndi mér að leggja kapal. Ég fór oft að heimsækja ömmu eft- ir að hún fór á Eir. Þegar ég var í heimsókn hjá Dísu ömmu las ég oft upphátt fyrir hana úr Nýja testa- mentinu. Það var alltaf hægt að tala við hana og hún talaði líka við mann þrátt fyrir að hún hafi verið veik. Mér fannst gaman að geta heimsótt ömmu á hjúkrunarheimilið, eftir að hún fluttist þangað, en mér fannst líka leiðinlegt að sjá að hún var veik. Ég veit að ömmu þótti vænt um að fá mig í heimsókn. Ég veit líka að henni fannst ég skemmtilegur og góður strákur. Mér þótti mjög vænt um Dísu ömmu og ég mun sakna hennar mik- ið. Ég vil kveðja Dísu ömmu mína með þessum sálm: Frelsarinn góði, ljós mitt og líf, lífsins í stormum vertu mér hlíf, láttu þitt auglit lýsa yfir mig, láttu mig aldrei skiljast við þig. Gjörðu mig fúsan, frelsarinn minn, fúsari að ganga krossferil þinn, fúsari að vinna verk fyrir þig. Vinurinn eini, bænheyrðu mig (Bjarni Jónsson.) Matthías Guðmundsson. Lítil skilaboð fáein orð milli vina breyta oft miklu. (G.D.) Elsku Dísa. Okkar fyrstu kynni voru þegar við hjónin fórum að leigja íbúð í risinu hjá ykkur hjónunum og dóttur sum- arið 1977. Þar bjuggum við mjög ná- ið, tengsl okkar urðu náin, einlæg, og við bundumst sterkum böndum. Hrifumst af hugrekki þínu, hógværð og sannsögli. Eldra barn okkar, sonur, fæddist í maí 1980, móttökurnar voru slíkar þegar við komum heim af fæðingar- deildinni, að það gleymist mér ei, það var uppdekkað borð og kræsingar eins og þér var einni lagið, og litli prinsinn átti hug þinn allan. Síðan giftum við okkur, og enn og aftur varstu trausti vinurinn. Bíllinn sem átti að keyra okkur brást, þú varst snögg að átta þig og komst keyrandi á Toyotunni þinni mjall- hvítri, síðan var ekki um annað að ræða en að taka litla prinsinn hann Róbert sem var skírður um leið og fara með hann heim um kvöldið og leyfa okkur að njóta. Hér er þér bezt lýst, elsku Dísa, traustur vinur. Hann tók fyrstu skrefin heima í Njörvasundi, og síðan fór hann að kalla þig ömmu Dísu, og hefur það haldist síðan, og systirin síðar meir. Áttum við margar góðar stundir í sól og sumaryl í Njörvasundi, og gest- kvæmt var þar mjög hjá ykkur. Við fluttum vorið 1981 í eigin íbúð. Tengslin héldust og höfum við allt- af litið á þig og þína fjölskyldu sem og hluta af okkar fjölskyldu, þarna voru einstök vinatengsl. Þakka þér fyrir öll gullkornin, sem þú hefur miðlað til okkar, síðan miðlast áfram til minna barna, þau eiga margt að þakka. Clara dóttir okkar rifjar oft upp góðu föndurstundirnar ykkar, hún var að vinna á Eir síðastliðið sumar, leit til þín og fannst gott að geta gefið þér til baka góðar stundir. Við eigum þér margt að þakka, við erum þér ævinlega þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér. Allt það sem þú og þín fjölskylda hefur gefið okkur. Með kærleikskveðju, Inga, Gunnar, Róbert og Clara Rún. Dísa mín er farin. Hún var búin að vera veik í langan tíma, en nú hefur hún fengið frí frá þessum jarðneska líkama. Hennar tími á þessari jörð er nú búinn. Dísa var fædd á Siglufirði og var dóttir föðursystur minnar Herdísar Hjartardóttur. Við kölluðum hana stundum „litlu Dísu“. Hún var ljúf í lund og glæsileg ung kona, en skör- ungur ef á þurfti að halda. Siglufjörður á þeim tíma var skíða- heimur á veturna og á sumrin var hver sem vettlingi gat valdið í „sum- arsíldinni“. Á Siglufirði var dásam- legt að alast upp. Ég man sérstak- lega eftir mörgum jólum með fjölskyldum okkar saman. Jólin byrj- uðu alltaf klukkan sex með því að kirkjuklukkurnar hringdu. Hátíðar- blær var yfir öllu, ljósin spegluðust í hvítum snjónum sem þakti jörðina en inni var góður matur og hlýtt og gott að vera með ættingjum. Dísa var nokkrum árum eldri en ég en Helga Torfadóttir, dóttir móður- systur minnar var á svipuðum aldri og Dísa svo að þær voru góðar vin- konur. Ég kynntist Dísu meira eftir að við vorum báðar giftar í Reykja- vík. Var hún alltaf mjög góð frænka. Við fjölskyldan fluttum utan um 1960. Seinna þegar við komum í heimsókn til að heimsækja foreldra mína á Siglufirði fór Dísa norður með fjölskylduna svo að við gætum öll verið saman. Þar var slegið upp mik- illi veislu fyrir okkur. Systkinin Hjörtur, Dísa og Guðlaugur og þeirra fjölskyldur stóðu fyrir veisl- unni. Ég man að Herdís dóttir Dísu var í voða fallegum íslenskum bún- ingi. Svo vorum við líka boðin til Dísu og Gunnars á þeirra heimili í Reykja- vík, þau vildu allt fyrir okkur gera. Maðurinn minn, ég og börnin okkar munum alltaf minnast þeirra miklu gestrisni. Þegar pabbi minn varð veikur og þurfti að fara frá Siglufirði til Reykjavíkur til læknis var heimili Gunnars og Dísu opið fyrir hann og mömmu. Þau hjónin voru mjög hjálp- söm við mömmu og pabba. Gegnum árin þegar ég hef komið til Reykja- víkur hefur Dísa alltaf verið tilbúin að gera allt sem hún hefur getað fyrir mig. Það var sérlega glatt á hjalla eitt árið. Þá vildi Dísa fara með Svein- björgu systur og mér norður á Ak- ureyri til að heimsækja Helgu sem þá bjó á Akureyri. Dísa keyrði. Hún var með síma í bílnum, þvílíkur lúxus. Þetta var á þeim tíma sem mjög fáir áttu bílasíma. Sungum við svo mikið á leiðinni að við urðum hásar. Það var alltaf ánægjulegt að vera með Dísu og rifja upp gamla og góða daga. Þrátt fyrir veikindi var hún samt mjög bjartsýn og sterk, kvart- aði aldrei. Við munum sakna Dísu frænku mikið. Gunnar, Karl, Herdís og fjöl- skyldur þeirra hafa þann stuðning sem trúin gefur, en einmitt hún hjálpaði Dísu án efa í veikindum hennar. Dísa mín er farin heim. Við vitum að henni var tekið með opnum örmum sem dóttur, sem hafði lifað lífi sínu vel á þessari jörð. Sigþóra Vilhjálmsdóttir (Tóta) og fjölskylda. Ástkær móðir mín, LAUFEY ÞÓRÐARDÓTTIR, Sóltúni 2, lést miðvikudaginn 10. maí. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju á morgun, föstudaginn 19. maí, kl. 15.00. Jón Sævar Baldvinsson. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSTA G. PJETURSDÓTTIR, Háaleitisbraut 43, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 19. maí kl. 11.00. Fyrir hönd aðstandenda, Gunnþórunn Jónasdóttir, Einar S. Ingólfsson, Pétur J. Jónasson, Örn Jónasson, Gunnar Jónasson, Guðbjörg Eggertsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar elskulega föður, tengdaföður, afa og langafa, HANNESAR HELGASONAR, Asparfelli 8. Guðlaug Maggý Hannesdóttir, Jón Pétur Jónsson, Hafdís Hannesdóttir, Stefán Gunnar Stefánsson, Helgi Hannesson, Guðmunda Eyjólfsdóttir, Lára Hannesdóttir Schram, Sigmundur Hannesson, Sigrún Arnardóttir, barnabörn og langafabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns, tengdasonar, föður, tengdaföður og afa, RÚNARS JÓNS ÓLAFSSONAR, Vogatungu 105, Kópavogi. Sérstakar þakkir sendum við hjúkrunarþjónustu Karitas, líknardeild Landakotsspítala og líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Margrét Guðmundsdóttir, Guðrún Guðjónsdóttir, Þuríður Ólöf Rúnarsdóttir, Róbert Ingi Guðmundsson, Guðmundur Rúnar Rúnarsson, Kolbrún Fjóla Kristensen, Hjördís Úlla Rúnarsdóttir, Einar Birgisson, Helena Rúnarsdóttir, Kjartan Andrésson og barnabörn. Innilegar þakkir fyrir sýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar konu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTÍNAR PÁLSDÓTTUR, Ægisíðu 44, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks á blóðskilunardeild og deild 14G á Landspítalanum við Hringbraut. Einar Baldvin Pálsson, Sigríður Einarsdóttir, Gunnar Sigurðsson, Páll Einarsson, Ingibjörg Briem, Baldvin Einarsson, Sigrún Steingrímsdóttir, Árni Einarsson, Unnur Þóra Jökulsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Forréttindi þessa veraldlega heims er að njóta samvista góðra vina og samferða- félaga. Önnur forréttindi eru að eiga safn góðra minninga og leiðsagna sem vísa manni veginn áfram. Þannig eru minningar okkar þriggja sem hér setjum nokkur orð á blað til að þakka fyrir samfylgdina, kennsluna og vináttuna þegar nú skilja leiðir um stund. Siggi var kennari okkar allra um lengri og skemmri tíma. Ekki bara á nám- skeiðum, heldur ávallt þegar við hitt- umst yfir kaffibolla eða á götuhorni. Siggi var óþreytandi að kenna og miðla okkur sýn á það æðra og meira í okkur sjálfum og samferðafólkinu SIGURÐUR GEIR ÓLAFSSON ✝ Sigurður GeirÓlafsson fæddist 26. september 1945. Hann lést á Land- spítalanum við Hringbraut hinn 17. apríl síðastliðinn og var útför hans gerð frá Fossvogskirkju 25. apríl. og að þroski okkar miðaðist ekki bara við að lifa bara til að vinna, sofa og eta, heldur til að lifa í öll- um þeim fjölbreyti- leika sem lífið gæfi okkur. Þannig þrosk- aðist sálin og til þess væri jarðlífið að þora að fara í gegnum lífs- ins ólgusjó óhræddur. Siggi var óþreytandi að gefa af kærleik sín- um þeim sem minna máttu og á styrk þurftu að halda og var vakinn og sofinn yfir sálarheill ungs gróðurs í uppvexti. Hann var óhræddur við að segja skoðanir sínar og fara sínar eigin leiðir í lífinu og hvatti sína nemendur ávallt til að vera þeir sjálfir í blíðu og stríðu og ganga óhræddir með guði sínum. Við þökkum af heilum hug sam- fylgdina, góði vin. Móður og ástvinum hans vottum við innilega samúð okkar. Ragnhild Hansen, Helgi Gunnarsson, Eiríkur Carlsen.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.