Morgunblaðið - 18.05.2006, Page 49

Morgunblaðið - 18.05.2006, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2006 49 HESTAR Rannsóknir á sumarexemi íhrossum hafa staðið yfirí rúm fimm ár á Til-raunastöð Háskóla Ís- lands í meinafræði á Keldum. Rannsóknirnar eru samstarfsverk- efni Tilraunastöðvarinnar á Keld- um og dýrasjúkdómadeildar Há- skólans í Bern í Sviss. „Okkur var legið á hálsi fyrir að gera ekkert í þessum sjúkdómi af því þetta er svo ofboðslegt vandamál fyrir ís- lenska hestinn erlendis. Sett var á nefnd að tilstuðlan landbún- aðarráðherra til þess að taka á þessu máli og út úr því kom þetta verkefni,“ segir Sigurbjörg Þor- steinsdóttir, ónæmisfræðingur á Keldum og verkefnisstjóri. Sumarexem er ofnæmi gegn prótínum sem berast í hross við bit mýflugna af ættkvíslinni Culicoides en tegundir af þeirri ættkvísl lifa ekki hér á landi og því þarf að hafa samstarfsaðila þar sem sjúkdóm- urinn er. Öll hrossakyn geta fengið ofnæmið og það er afar algengt í ís- lenskum hestum sem hafa verið fluttir úr landi. Um helmingur út- fluttra hrossa sem hafa verið tvö ár eða lengur á flugusvæðum fær sumarexem ef ekkert er gert til að verja þá flugnabiti en hins vegar fá íslenskir hestar sem eru fæddir er- lendis mun síður ofnæmið. Mark- mið rannsóknanna er að þróa bólu- efni eða aðra ónæmismeðferð við sumarexemi til að hægt verði að bólusetja hesta fyrir útflutning. Til þess að ná þessu markmiði þarf að einangra og framleiða ofnæmis- prótín úr munnvatnskirtlum mý- flugunnar og koma upp prófum til mælinga á ónæmissvörum hesta til að skilgreina eðli þeirra ónæmis- viðbragða sem leiða til exemsins. Verkefnið er að stórum hluta styrkt af Framleiðnisjóði landbún- aðarins en einnig af Svissneska vís- indasjóðnum, WETSUISSE, Rann- ís og Vísindasjóði Háskóla Íslands. Vilhjálmur Svansson, dýralæknir og veirufræðingur, stýrir verkefn- inu hér á landi ásamt Sigurbjörgu og Eliane Marti, dýralæknir og ónæmisfræðingur, er verkefnis- stjóri í Sviss en hún hélt erindi á ráðstefnu á Keldum í lok apríl sem var að hluta tileinkuð rannsóknum á sumarexemi í hrossum. Tveir meistaranemar í Háskóla Íslands vinna að rannsóknunum hér á landi, Guðbjörg Ólafsdóttir líffræðingur og Þórunn Sóley Björnsdóttir líf- eindafræðingur, og að auki eru stúdentar í smærri verkefnum. Fleiri samstarfsaðilar eru í Sviss og einnig í Bretlandi – þetta er greini- lega stærðarverkefni. „Verkefnið er nokkuð viðamikið á okkar mæli- kvarða,“ viðurkennir Sigurbjörg, „og við erum farin að sjá afrakstur af vinnunni.“ Sjúkdómurinn annars eðlis Öll helstu próf til að mæla ónæm- issvörun hjá hestum hafa verið sett upp og einnig líkan sem hefur verið notað til að prófa í tvö DNA- bóluefni og eitt prótínbóluefni. „Okkur hefur tekist að einangra níu fluguprótín sem eru möguleg ofnæmisprótín en mikil vinna er fram undan við að framleiða og hreinsa prótínin í nægilega miklum mæli til að hægt sé að prófa of- næmisvirkni þeirra á nægum fjölda hesta. Við höfum sýnt fram á að í munnvatnskirtlum Culicoides- flugunnar eru a.m.k. tíu ofnæmis- prótín og það er grundvallaratriði fyrir bóluefnisgerð eða ónæmis- meðferð að geta einangrað og fram- leitt þessi prótín. Úti í heimi eru lagðar gífurlegar upphæðir í að reyna að þróa bóluefni gegn of- næmi í fólki. Niðurstöður úr rannsóknum okk- ar sem gerðar eru í Sviss sýna að sjúkdómurinn er öðruvísi hjá hest- um fæddum á Íslandi annars vegar en öðrum hestakynjum og íslensk- um hestum fæddum erlendis hins vegar. Orsökin gæti legið í mismun- andi reynslu ónæmiskerfisins. Fyr- ir það fyrsta alast hestar á Íslandi ekki upp með flugunni og þeir fá miklu færri veirusýkingar en hest- ar í útlöndum og eru ekki bólusettir við neinu. Hins vegar eru þeir sníkjudýrasýktir og trúlega minna ormahreinsaðir en hestar erlendis. Það getur skipt máli hvort hestar á unga aldri hafi verið fullir af orm- um og hvað þeir hafi fengið margar veirusýkingar og ég tala ekki um hvort þeir hafi hitt fluguna. Um 50% þeirra hesta sem fæðast hér og eru svo fluttir út fá sumarexem ef þeir eru óvarðir á flugusvæðum í tvö ár eða meira á meðan 7–18% hrossa fæddra úti fá exemið. Um- hverfisþátturinn er sem sagt mjög sterkur. Tíðni sumarexems hjá ís- lenskum hestum fæddum erlendis er ekki meiri en hjá öðrum kynjum. Flugan alls staðar nema hér og á suðurheimskautinu Þessa ættkvísl flugna er alls staðar að finna nema hér og á suðurheimskautinu, hún hefur m.a.s. fundist í Færeyjum þannig að það er aldrei að vita hvenær hún kemur hingað. Þetta er eins og með moskítóflugurnar, það veit enginn af hverju þær þrífast ekki hér, það er ekki vegna kuldans því þær eru út um allt á Grænlandi. Menn hall- ast helst að því að skiptin á milli frosts og þíðu á veturna séu ástæð- an, þau fara náttúrlega ekki vel með neina lífveru. Við höfum eina tegund af flugu sem bítur spendýr, bitmýið okkar, en í öllum öðrum löndum eru þúsundir tegunda af bitflugum af ýmsum ættkvíslum. Við búum því við alveg einstakar aðstæður að þessu leyti.“ Sumarexemið hefur mikil áhrif á útflutning á hestinum að sögn Sigurbjargar. Í Þýskalandi sé t.d. farið að reka áróður fyrir að kaupa ekki hesta fædda hér, á þeirri for- sendu að hestar fæddir erlendis hafi mun lægri sumarexemstíðni. „Þetta er auðvitað líka dýra- verndunarmál því sjúkdómurinn getur lagst mjög þungt á hestana. Flestir hestaeigendur hlífa reyndar hestum sínum og meðhöndla þá með kremum, taka þá inn þegar flugan er mest og breiða yfir þá. Fræðsla hefur einmitt verið aðal- vörnin. Að verja þá gegn flugunni er jafnsjálfsagt og að skýla þeim fyrir veðrum hérna heima,“ álítur Sigurbjörg. Viðbúið að upp komi fleiri sjúkdómar Rannsóknin er afar mikilvæg fyrir útflutning á íslenska hestinum að mati Sigurbjargar. „Og fyrir okkur Íslendinga! Ég held að við sem eigum þessa einstöku perlu sem íslenski hesturinn er séum skyldug til að rannsaka hann á alla vegu, ekki bara sjúkdóma heldur allt sem honum viðkemur, hvort sem það er atferli, erfðir, uppruni o.s.frv. Það á enginn svona hest! Rannsóknirnar hafa líka stuðlað að rannsóknum á veirusjúkdómum í hrossum. Við erum nú búin að setja upp flest sem til þarf hér á Keldum og það er viðbúið að upp komi aðrir sjúkdómar. Íslenski hesturinn hér heima hefur verið ótrúlega laus við smitsjúkdóma og hann er ekki bólusettur gegn neinu. Hitasóttin barst hingað að utan og við munum fá fleiri smitsjúkdóma með öllum þessum samgangi hestamanna á milli landa. Þá er algjörlega nauð- synlegt að við séum tilbúin til að taka á þeim málum. Sumar- exemsverkefnið gerir að verkum að kunnáttan, efni og aðferðir eru nú fyrir hendi. Það væri verðugt verkefni að stofna sterkan sjóð sem veitti fé í rannsóknir á íslenska hestinum. Sjóðurinn þyrfti að fá öflugt stofnfé og þeir sem hefðu áhuga gætu ánafnað honum fé. Sjóðurinn gæti síðan veitt styrki samkvæmt fag- legu mati á umsóknum líkt og gert er hjá samkeppnissjóðunum. Slíkir sjóðir eru algengir erlendis og hafa eflt mjög rannsóknir á ýmsum sér- sviðum, ég veit að útlendingar vildu m.a.s. leggja fé í slíkan sjóð. Þessa hefð vantar alveg hér á landi.“ Mörg brýn og spennandi verk- efni bíða úrvinnslu, og tekur Sig- urbjörg sem dæmi þann hátt ís- lenskra útigangshesta að leggjast í hálfgerðan dvala yfir vetrarmán- uðina. „Lífeðlisfræðin í þessu hefur ekkert verið rannsökuð. Við höfum séð að ekki er hægt að nota blóð- frumurnar úr hestunum af viti á þessum tíma. Það væri áhugavert að athuga hvaða breyting verður þarna á líkamsstarfseminni,“ segir Sigurbjörg Þorsteinsdóttir, ein vís- indamanna á Keldum. Á meðan moskítófluga lifir á Grænlandi ríkir flugnafæð á Íslandi – sem betur fer segja flestir. Íslenskir útfluttir hestar eru þó ekki eins fegnir ef þeir fá sumarexem. Sums staðar erlendis er rekinn áróður fyrir að kaupa ekki hesta héðan og því mikilvægt fyrir útflutning hrossa að finna bóluefni og einnig út frá dýraverndunarsjónarmiðum. Sumarexemsrannsóknir á Keldum eru vel á veg komnar og Þuríður Magnúsína Björnsdóttir ræddi við Sigurbjörgu Þorsteinsdóttur verkefnisstjóra. Erum skyldug til að rann- saka þessa einstöku perlu Morgunblaðið/Eyþór Hópurinn sem vinnur að sumarexemsrannsóknunum á Keldum. F.v. Guðbjörg Ólafsdóttir, Sigurbjörg Þorsteins- dóttir, Vilhjálmur Svansson, Þórunn Sóley Björnsdóttir og Mareike Heimann. „[…] ég eflaust gæti kitlað nefið þitt,“ segir um löngun frægrar flugu. Ís- lenskur hestur innfluttur til Sviss með sumarexem, í „náttfötum“ sem er nú aðalvörnin gegn sjúkdómnum. Um 50% útfluttra hesta sem eru fæddir hér fá sumarexem ef ekkert er að gert en einungis 7–18% hrossa fæddra úti. thuridur@mbl.is www.smjor.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.