Morgunblaðið - 19.05.2006, Blaðsíða 25
Nú er rétti tíminn fyrir vor-legan mat eins og salötmeð alls kyns góðgætieins og baunum, vorlauk,
radísum og aspas. Ferskur aspas er
mikið notaður á vorin m.a. í ná-
grannalöndum okkar og hann er auð-
velt að matreiða á ýmsan hátt, einan
sér, í salötum eða risotto. Á matarvef
BBC er m.a. fjallað um ferskan aspas
sem tákn vorkomunnar á matarborð-
inu. Ferskan aspas er ekki hægt að
nálgast allt árið og í raun bara stuttan
tíma á vorin.
Gefin er uppskrift að vorlegu ris-
ottoi.
Aspas- og sítrónurisotto
50 g smjör
1 lítill laukur, smátt saxaður
200 g arborio-hrísgrjón
125 ml hvítvín
1 l heitt kjúklingasoð
400 g aspas í bitum
salt og pipar
2 sítrónur, safi og rifið hýði
3 msk. rifinn parmesan
Bræðið smjörið í stórri og hárri
pönnu við lágan hita. Látið laukinn
mýkjast í smjörinu og hrærið af og til.
Setjið grjónin út á og hrærið með tré-
sleif. Bætið víninu við og sjóðið upp
þar til vökvinn er næstum horfinn.
Setjið hluta soðsins saman við, hækk-
ið hitann og látið vökvann gufa upp
áður en aspasinum og næsta skammti
soðsins er bætt saman við. Haldið
áfram að hella soðinu út á smátt og
smátt og láta vökvann gufa upp á
milli. Hrærið oft í. Kryddið með
salti, pipar, sítrónuberki og -safa.
Hafið pönnuna á hitanum þang-
að til grjónin eru orðin mjúk
en samt með biti í. Hrærið
ostinum saman við og berið
strax fram.
Kryddað og vorlegt
Svenska Dagbladet
gaf nýlega út fylgiblaðið
Vårköket eða Voreldhúsið.
Þar er að finna uppskrift að salati
með núðlum, rækjum, aspas og spín-
ati með japanskættaðri sósu. Útkom-
an er fersk og vorleg og þar sem sum-
arið er ekki alveg komið á salatið að
vera svolítið volgt og sterkt bragð af
wasabihnetum á líka að hlýja þeim
sem njóta.
Sumarlegt núðlusalat
300 g rækjur
100 g „glernúðlur“ (glass noodles)
250 g ferskur grænn aspas
rauð paprika
1 poki spínat
1 búnt ferskur kóríander,
fínhakkaður
salt og pipar
1 lime
wasabihnetur til skrauts
soja-engifer-salatsósa:
1½ msk. japönsk sojasósa
1 msk. sesamolía
1 msk. rifið ferskt engifer
½ tsk. fljótandi hunang
Sjóðið núðlurnar skv. leiðbein-
ingum á pakka. Klippið þær nið-
ur fyrir eða eftir suðu til að
auðvelda meðhöndlun. Þær
eiga að vera volgar í salatinu.
Skerið neðsta hlutann af asp-
asinum og skerið í bita.
Snöggsjóðið í söltu vatni.
Skerið papriku í bita. Blandið
öllu saman, saltið og piprið.
Þeytið saman það sem fara á í
salatsósuna og berið fram með
salatinu sem skreytt hefur verið
með wasabihnetum og limebátum.
MATUR | Sumarleg salöt passa vel á matarborðið á björtum maídögum
Vor í lofti og eldamennsku
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2006 25
DAGLEGT LÍF Í MAÍ
SALA á óhollum mat hefur
minnkað um allt að 40% í
breskum matvöruverslunum
eftir að farið var að merkja
matvörur og tilgreina ná-
kvæmlega hve mikið af fitu,
sykri og salti varan inniheld-
ur. Sala á hollum mat hefur
aukist að sama skapi, að því
er fram kemur í frétt breska
blaðsins Times.
Frá árinu 2004 hefur breska
matvælaeftirlitið (FSA) staðið
í samningaviðræðum við mat-
vælaframleiðendur og for-
svarsmenn matvöruverslana
um að taka upp svokallaðar
umferðarljósamerkingar, sem
byggjast á því að grænt þýðir
lítið magn, gult miðlungs og
rautt of mikið. Litur er gefinn
upp fyrir magn hvers um sig
fitu, sykurs og salts í 100 g.
Ekki hafa allir framleið-
endur eða verslanir tekið
þetta kerfi upp og sumir hafa
þróað eigið kerfi. En athugun
leiðir í ljós að greinilegar
merkingar hafa áhrif. Í
stærstu matvöruverslana-
keðju Bretlands, Tesco, eru
merkingarnar t.d. þannig að
neytendum er sagt hve stórt
hlutfall af ráðlögðum dags-
skammti af sykri, fitu eða
salti, þeir fái úr viðkomandi
matvöru.
Merkingar
skila sér í
hollustu
MATVÖRU-
VERSLANIR
Sheer Driving Pleasure
BMW 5 lína
www.bmw.is