Morgunblaðið - 30.05.2006, Page 25
Nýi sjávarútvegurinn
Störf í sjávarútvegi eru mun fjöl-
breyttari en fólk gerir sér almennt
grein fyrir. Greinin hefur breyst
mikið á undanförnum árum og mikil
eftirspurn er eftir fólki með þekkingu
á sjávarútvegi til starfa á alþjóðlegum
vettvangi. Ársæll K. Ársælsson
útskrifaðist úr sjávarútvegsfræði frá
Háskólanum á Akureyri árið 1997:
„Ég starfa sem verkefnisstjóri hjá
Þróunarsamvinnustofnun Íslands í
Malawi. Verkefnið sem ég stýri felst
í því að þróa búnað sem auðveldar
smábátasjómönnum að fara lengra út
á Malawivatn, en þar er að finna van-
nýtta fiskistofna. Verkefnið er viða-
mikið og fjölþætt og þarf ég að setja
mig inn í mál sem varða alla þætti
þess. Þar kemur menntun mín sem
sjávarútvegsfræðingur svo sannarlega
að góðum notum.”
Nám í sjávarútvegsfræði við Háskólann
á Akureyri er ekki einungis góður
grunnur fyrir störf í sjávarútvegi því
útskrifaðir nemendur eru eftirsóttir
starfskraftar, m.a. hjá fjármálastofnunum,
útflutningsfyrirtækjum og víðar.
Kynntu þér málið:
» www.nyisjavarutvegurinn.is
„Verkefnið sem ég stýri felst í því að þróa
búnað sem auðveldar smábátasjómönnum
að fara lengra út á Malawivatn, en þar er að
finna vannýtta fiskistofna.”
„Ég þarf að setja mig inn í alla
þætti þessa viðamikla verkefnis.“
Háskólinn á Akureyri:
www.unak.is
Ársæll K.Ársælsson
Malawi
ÞÚ REKST Á FYRRUM NEMENDUR
OKKAR Á ÓLÍKLEGUSTU STÖÐUM.