Morgunblaðið - 07.06.2006, Side 1
STOFNAÐ 1913 153. TBL. 94. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
F
A
B
R
IK
A
N
M
Æ
TUM
ALLAR!
Allar upplýsingar á
www.sjova.is
Kvennahlaupið
um land allt
10. júní
Hnigið til
jafnvægis
Höskuldur Ólafsson fjallar um
hljómleikamarkaðinn | Menning
Með auga
fyrir fegurð
Dói logsýður og teiknar
á níræðisaldri | Daglegt líf
Íþróttir í dag
Alfreð ánægður með sigurinn
KR vann Breiðablik A-riðill á HM
í knattspyrnu Flughræddir Danir
EIN fjölmennasta afmælisveisla Íslandssögunnar
fór fram í Laugardalshöll í gærkvöldi þegar hálft
sjötta þúsund manns kom saman til að samgleðjast
poppkónginum Bubba Morthens fimmtugum. Af-
mælisbarnið var vitaskuld í brennipunkti í veislunni
og lét sig ekki muna um að standa svo til linnulaust
á sviði hallarinnar í þrjár klukkustundir við hljóð-
færaleik og söng. Undirtektir voru dynjandi.
Morgunblaðið/Eggert
Konungleg afmælisveisla
ALLAR líkur eru á að Birkir Her-
mannsson, þriggja vikna drengur frá
Vestmannaeyjum, eigi eftir að ná
góðri heilsu og spila fótbolta eins og
bróðir hans. Birkir fór í hjartaþræð-
ingu sex klukkutímum eftir fæðingu
og í kjölfarið var hann sendur til
Boston þar sem hann gekkst undir
aðra aðgerð.
Skömmu eftir að Birkir fæddist
þann 14. maí kom í ljós að hann var
með alvarlegan hjartagalla sem
nefnist víxlun stóru slagæðanna. Þá
hófst hröð atburðarás. Læknir frá
Reykjavík flaug samstundis til Eyja
eftir að einkennum Birkis hefði verið
lýst í gegnum síma af lækni í Eyjum.
Ákveðið var að fljúga með Birki til
Reykjavíkur þar sem hann fór í
hjartaþræðingu, en þá voru sex
klukkutímar frá því að hann fæddist.
Jafnframt var ákveðið að senda hann
sem fyrst til Boston, en þar var
framkvæmd aðgerð og æðunum víxl-
að á rétta staði á ný. Marta Sigur-
jónsdóttir móðir Birkis er ekki í vafa
um að skjót viðbrögð hafi bjargað lífi
sonar hennar. „Allir tóku réttar
ákvarðanir á réttum tíma.“
„Réttar
ákvarðanir á
réttum tíma“
Morgunblaðið/Ásdís
Marta og Hermann ásamt sonum
sínum Baldvin Inga og Birki.
Fór sex tíma | 4
MANOUCHEHR Mottaki, utanríkisráð-
herra Írans, sagði í gær að stjórnvöld í
Teheran myndu íhuga vandlega tillögur
stórveldanna í deilunni um kjarnorkuáætlun
Írana, en stjórn landsins stendur til boða
ýmiss konar aðstoð sam-
þykki hún að hætta auðg-
un á úrani.
„Það er að finna já-
kvæð skref í tillögunum
en þar má einnig finna
ýmis tvíræð atriði sem
þarf að laga,“ sagði Ali
Larijani, helsti samn-
ingamaður Írana á sviði
kjarnorkumála, í gær.
„Við teljum að vilji Evrópumanna til að leysa
málið með viðræðum sé rétt skref í deilunni
og við fögnum því.“
Javier Solana, sem fer með utanríkismál í
framkvæmdastjórn Evrópusambandsins,
var einnig bjartsýnn eftir fund sinn með
Mottaki í gær, en sex dagar eru liðnir frá því
að fulltrúar fimm fastaríkja öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna, auk Þýskalands, lögðu
tillögurnar fram á fundi sínum í Vínarborg.
„Nú þegar tillögurnar eru uppi á borðinu
vona ég að við munum fá jákvæð viðbrögð
sem verða viðunandi fyrir báða aðila,“ sagði
Solana í gær. Á sama tíma lagði George W.
Bush Bandaríkjaforseti áherslu á að deilan
yrði leyst við samningaborðið. „Valið er
þeirra,“ sagði Bush í gær og vísaði þar með
til Írana. Þá tilkynnti Alþjóðakjarnorku-
stofnunin (IAEA) í gær að hún myndi á
morgun birta nýja skýrslu um kjarnorku-
áætlun Írana, sem mun byggjast á nýjustu
athugunum eftirlitsmanna stofnunarinnar.
Viðbrögð
Írana
jákvæð
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Javier Solana
VAXANDI líkur eru á því að flokks-
þingi Framsóknarflokksins, sem
halda átti í haust, verði flýtt og það
verði haldið í þessum mánuði. Á
þinginu verður nýr formaður Fram-
sóknarflokksins kosinn, en allt stefnir
í harðan slag um embættið.
„Það verður miðstjórnarfundur á
föstudaginn og flokksþing í haust.
Mér finnst ekkert ólíklegt að það
verði haldið fyrr, að framsóknarmenn
segi að þeir geti ekki búið við þessa
óvissu. Það er alltaf vont þegar beðið
er eftir ákvörðunum og átök halda
áfram,“ sagði Guðni Ágústsson, vara-
formaður Framsóknarflokksins, í
framhaldi af ríkisstjórnarfundi í gær.
Halldór Ásgrímsson, fráfarandi
formaður Framsóknarflokksins, var
farinn að ræða mögulega afsögn sína
sem forsætisráðherra og formaður
flokksins við nána samstarfsmenn
sína fyrir um tveimur mánuðum.
Hann tók þó ekki endanlega ákvörðun
fyrr en um liðna helgi.
Finnur Ingólfsson, stjórnarformað-
ur VÍS og fyrrverandi varaformaður
Framsóknarflokksins, segir það ljóst
að hann hyggi ekki á endurkomu í
stjórnmál. Það hafi verið rætt undan-
farið, en af því verði ekki úr þessu.
Guðni og Siv í formannsslaginn?
„Ég hygg ekki á endurkomu í
stjórnmálin,“ sagði Finnur í samtali
við Morgunblaðið í gær. Hann vildi
ekki skýra ástæður sínar fyrir því, en
vísaði í viðtal sem birtist í Morgun-
blaðinu í gær. Þar sagðist hann hafa
svarað óskum um að hann tæki að sér
formennsku í flokknum með þeim
hætti að ef samstaða næðist um það
væri hann tilbúinn til að skoða það.
Valgerður Sverrisdóttir viðskipta-
og iðnaðarráðherra sagði í viðtali í
Ríkisútvarpinu í gærmorgun að hún
treysti ekki Guðna Ágústssyni til að
taka við formennsku í flokknum.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins urðu hörð viðbrögð í flokknum við
þessum orðum Valgerðar, en Halldór
Ásgrímsson hafði á fundi landsstjórn-
ar á mánudag hvatt menn til að
standa saman í því starfi sem væri
framundan við að efla flokkinn á ný.
Flest bendir til að Guðni Ágústsson
og Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráð-
herra muni bjóða sig fram í embætti
formanns, en vel er hugsanlegt að
fleiri blandi sér í baráttuna.
Stefnir í átök um
formannsstólinn
Eftir Örnu Schram
og Brján Jónasson
Refskák | Miðopna
Kynnti aðra | 10
Auknar líkur eru á því að flokksþingi Framsóknar verði flýtt
FJÁRMÁLARÁÐHERRA Noregs, Kristin Halvorsen, til-
kynnti í gær að peningar úr olíusjóði þjóðarinnar yrðu
ekki notaðir til að fjárfesta frekar í stærstu versl-
anakeðju í heimi, Wal-Mart, af siðferðislegum ástæðum,
að sögn Aftenposten.
Halvorsen segir fyrirtækið brjóta á grófan og kerf-
isbundinn hátt á starfsfólki sínu en það er stærsti at-
vinnurekandi í heimi. Halvorsen benti þannig í gær á að
Wal-Mart notaði börn til starfa, byði upp á hættulegar
vinnuaðstæður, þvingaði starfsfólk til að vinna yfirvinnu
án launa, bannaði því að ganga í verkalýðsfélög og mis-
munaði konum. Þegar er búið að selja hlutabréf norska
olíusjóðsins í Wal-Mart upp á 2,5 milljarða norskra
króna, eða um 30,5 milljarða íslenskra króna.
Selja hlut sinn í Wal-Mart
Kristin Halvorsen