Morgunblaðið - 07.06.2006, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
„Vænlegasta aðferðin til að vinna gegn
fátækt í heiminum er sú sem hinn mikli
hagfræðingur frá Perú, Hernando de
Soto, hefur sótt fram með.”
Þekktasta bók Hernando de Soto er nú komin
út á íslensku og fæst í öllum betri bókaverslunum.
— Bill Clinton, fyrrum Bandaríkjaforseti
Hernando de Soto
LEYNDARDÓMUR
FJÁRMAGNSINS
RSE
Rannsóknarmiðstöð um
samfélags- og efnahagsmál
www.rse.is
EKKI Á LEIÐ Í STJÓRNMÁL
Finnur Ingólfsson, stjórn-
arformaður VÍS og fyrrverandi
varaformaður Framsóknarflokksins,
segir það ljóst að hann hyggi ekki á
endurkomu í stjórnmál.
Hálslón fyllist hægar
Hálslón við Kárahnjúkavirkjun
fyllist ekki af aurburði á 400–500 ár-
um eins og gert hefur verið ráð fyrir,
heldur á nokkur þúsund árum. Þetta
kemur til vegna þess að Brúarjökull
bráðnar vegna hlýnandi loftslags á
næstu 100–200 árum, að því er fram
kemur í niðurstöðum þeirra Birgis
Jónssonar, Jónasar Elíassonar og
Sigurðar Magnúsar Garðarssonar,
fræðimanna við verkfræðideild Há-
skóla Íslands.
Styður til lögur Abbas
Frelsissamtök Palestínu, PLO,
samþykktu í gær tillögu Mahmoud
Abbas, forseta Palestínu, um að efnt
yrði til þjóðaratkvæðis í júlí um til-
lögur, þar sem m.a. er kveðið á um
að tilveruréttur Ísraels innan upp-
haflegra landamæra frá vopnahlénu
1949 sé viðurkenndur.
Skýringa krafist
Hart var lagt að bresku lögregl-
unni í gær að upplýsa hvað gerðist í
síðustu viku, þegar á þriðja hundrað
lögreglumanna réðst inn á heimili
tveggja bræðra, múslíma, sem
grunaðir voru um hryðjuverka-
starfsemi.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 26
Fréttaskýring 8 Viðhorf 28
Viðskipti 12 Umræðan 28/31
Úr verinu 13 Minningar 32/36
Erlent 14/15 Myndasögur 40
Minn staður 16 Dagbók 40/43
Austurland 17 Staður og stund 43
Akureyri 18 Leikhús 44
Suðurnes 18 Bíó 46/49
Landið 19 Ljósvakamiðlar 50
Daglegt líf 20/21 Veður 51
Menning 22, 44/49 Staksteinar 51
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann
Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Magnús
Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri,
sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Kynning – Morgunblaðinu fylgir kynn-
ingarblaðið HM 2006 frá
Hugmyndahúsinu ehf.
ÞEIR sem stunda utanvegaakstur geta átt von á að verða
gripnir af þyrlu Landhelgisgæslunnar en lögreglan og
Landhelgisgæslan hafa tekið höndum saman um að
stemma stigu við slíkum akstri. Nokkrir brotlegir voru
bókaðir af lögreglunni um helgina og geta átt von á sekt-
um.
Halldór B. Nellett, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs
Landhelgisgæslunnar, segir að gæslan hafi áður fram-
kvæmt eftirlit sem þetta þegar tækifæri hafi gefist eða
beiðnir borist frá lögreglu. Æfingatími flugáhafna sé
meðal annars notaður í þessum tilgangi.
Samkvæmt upplýsingum frá Umferðarstofu varð um
70% aukning í innflutningi torfæruhjóla milli áranna 2004
og 2005, en í fyrra voru 1.312 slík hjól forskráð. Hjólin eru
skráningarskyld og því á að ganga frá nýskráningu
þeirra áður en þau eru tekin í notkun. Þessi mikla fjölgun
á torfæruhjólum hefur orðið mörgum áhyggjuefni vegna
umhverfisrasks sem verður vegna utanvegaaksturs en að-
eins er heimilt að nota hjólin á lokuðum keppnissvæðum
og á frosinni eða snævi þakinni jörð utan þéttbýlis.
Í samtali við Morgunblaðið í gær sagði Sigríður Anna
Þórðardóttir umhverfisráðherra að sér fyndist að til
greina kæmi að herða viðurlög og skoða af fullri alvöru
hvort gera ætti upptæk ökutæki sem notuð væru til ut-
anvegaaksturs. Málið sneri að mörgum ráðuneytum en
rætt hefði verið sérstaklega við dómsmálaráðherra, m.a.
um hvort nota mætti þyrlur Landhelgisgæslunnar meira
til eftirlits.
Landhelgisgæslan og lögreglan á Selfossi fylgdust með utanvegaakstri um helgina og sektuðu ökumenn.
Eftirlit úr lofti með
utanvegaakstri aukið
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt tvítugan karlmann til
tveggja ára fangelsisvistar fyrir
kynferðisbrot gegn stúlku í júlí á
sl. ári. Honum er jafnframt gert að
greiða stúlkunni eina milljón
króna í miskabætur, auk rúmlega
790 þúsund króna í sakarkostnað.
Manninum er gefið að sök að
hafa þröngvað stúlkunni til kyn-
ferðismaka með því að neyða hana
til að hafa við sig munnmök við
tjaldstæði snemma morguns í júlí-
mánuði. Hann var einnig sakfelld-
ur fyrir tilraun til að þröngva
stúlkunni til samræðis. Ákærði
neitaði sök og hélt því fram að
munnmökin hefðu farið fram með
samþykki stúlkunnar.
Að mati dómsins þótti frásögn
stúlkunnar trúverðug og samrým-
ast frásögn vitna. Í vottorði sál-
fræðings kemur fram að stúlkunni
hafi liðið mjög illa á því tímabili
sem viðtöl við hana fóru fram, í
júlí og ágúst á sl. ári. Hún hafi
sýnt öll einkenni þess að hafa orð-
ið fyrir áfalli sem valdið hafi skelf-
ingu og varnarleysi. Hún hafi átt
erfitt með svefn og myndir af at-
burðinum hafi stöðugt komið upp í
huga hennar.
Símon Sigvaldason héraðsdóm-
ari kvað upp dóminn en með hon-
um í dómi sátu Helgi I. Jónsson og
Kristjana Jónsdóttir. Af hálfu
ákæruvaldsins flutti málið Sigríður
Elsa Kjartansdóttir saksóknari og
Gizur Bergsteinsson hdl. varði
manninn.
Tveggja ára
fangelsi
fyrir kyn-
ferðisbrot
MIKAEL Torfason, fyrrverandi rit-
stjóri DV, hefur verið ráðinn aðal-
ritstjóri Fróða. Í síðustu viku var
greint frá því að Mikael hefði verið
ráðinn ritstjóri Séð og heyrt, sem
Fróði gefur út. Elín G. Ragnars-
dóttir, framkvæmdastjóri tímarita-
útgáfu Fróða, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að Mikael hefði
tekið við starfi aðalritstjóra Fróða
af Steinari J. Lúðvíkssyni, sem
hefði sagt starfi sínu lausu fyrir
nokkru.
Elín sagðist ekkert vilja tjá sig
um uppsögn Bjarna Brynjólfssonar,
sem sagt var upp störfum sem rit-
stjóra Séð og heyrt í síðustu viku.
Mótmælir ásökunum
um fjársvik
Bjarni Brynjólfsson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær að þegar
hann hefði mætt til vinnu hjá Fróða
í gærmorgun hefði verið búið að
loka fyrir aðgang hans að tölvu sinni
á skrifstofunni. Í framhaldinu hefði
hann verið kallaður á fund hjá Elínu
G. Ragnarsdóttur framkvæmda-
stjóra. „Hún ásakaði mig um fjár-
svik við fyrirtækið,“ sagði Bjarni.
„Hún vildi ekki greina mér frá því í
hverju þær ásakanir fælust.“
Bjarni sagði að Elín hefði sagt að
ef hann færi ekki út úr húsnæðinu
yrði kallað á lögregluna. Honum
hefði verið neitað um að fjarlægja
persónulegar eigur sínar af skrif-
stofunni en verið tjáð að þær yrðu
sendar heim til hans ásamt bréfi um
meint fjársvik. Hvorugt hefði borist
til hans í gærkvöldi.
„Ég get ekki annað séð en að það
sé vegið með alvarlegum hætti að
starfsheiðri mínum og persónu með
þessum ásökunum og ég mun leita
réttar míns,“ sagði Bjarni.
Mikael Torfason
ráðinn aðalritstjóri
tímaritaútgáfu Fróða
LANDSAFL, fasteignarekstrar-
félag í eigu Landsbanka Íslands,
hefur fest kaup á Hafnarstræti 20,
sem stendur við Lækjartorg, og er
stefnt að niðurrifi þess í tengslum
við mikla uppbyggingu á svæðinu á
næstu árum, s.s. vegna nýs tónlist-
ar- og ráðstefnuhúss og höfuðstöðva
Landsbankans.
Dagur B. Eggertsson, formaður
skipulagsráðs, kynnti fyrirætlanir
Landsafls og borgaryfirvalda á
borgarstjórnarfundi í gær. „Við höf-
um verið í viðræðum um samstarf
við Landsbankann um endurskipu-
lagningu á torginu, á því svæði sem
húsið er á, í samhengi við uppbygg-
inguna í tengslum við tónlistar- og
ráðstefnuhúsið. Gert er ráð fyrir að
húsið verði rifið og hugsanlega
kemur eitthvað í staðinn en þannig
að það verði í mun betra samhengi
við nýja svæðið sem er að byggjast
upp,“ segir Dagur, sem vill breyt-
ingar á Lækjartorgi. „Það skiptir
miklu máli að Lækjartorg verði
borgarprýði. Það verði skjólsælla,
vistlegra og skemmtilegra í alla
staði.“
Fyrirhuguð er bygging nýrra
höfuðstöðva Landsbankans í mið-
bænum, á lóðinni við Bæjarins
bestu, þar sem nú eru bílastæði. Að
sögn Sigurjóns Árnasonar, banka-
stjóra Landsbankans, eru fram-
kvæmdirnar við Lækjartorg og nið-
urrif Hafnarstrætis 20 hluti af
þeirri uppbyggingu. Aðspurður gat
hann ekki svarað því enn sem kom-
ið var hvort önnur bygging myndi
rísa í stað „strætóhússins“ svokall-
aða enda framkvæmdirnar hluti af
mun stærri heildarmynd. Áætlað er
að framkvæmdirnar haldist í hend-
ur við byggingu tónlistar- og ráð-
stefnuhússins og má gera ráð fyrir
því að uppbyggingu á svæðinu verði
lokið í september árið 2009.
Landsafl stefnir að niðurrifi Hafnarstrætis 20 vegna uppbyggingar á svæðinu
Í samhengi við borgarmyndina