Morgunblaðið - 07.06.2006, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
HVORKI Jónas Garðarsson né lög-
maður hans Kristján Stefánsson hrl.
var viðstaddur þegar dómur var
kveðinn upp yfir þeim fyrrnefnda í
héraðsdómi Reykjavíkur í gærdag.
Þar voru hins vegar aðstandendur
Friðriks Ásgeirs Hermannssonar og
Matthildar Harðardóttur, sem létust
í sjóslysinu á Viðeyjarsundi, og biðu
úrskurðarins.
Jónas Garðarsson var dæmdur í
þriggja ára fangelsi fyrir manndráp
af gáleysi með því að hafa, aðfaranótt
laugardagsins 10. september 2005,
sem skipstjóri skemmtibátsins
Hörpu á siglingu um Sundin með
fjóra farþega, verið undir áhrifum
áfengis við stjórn bátsins og ekki haft
gát á siglingaleiðinni er siglt var um í
talsverðum vindi, slæmu skyggni,
næturmyrkri og rigningu með stefnu
inn á Viðeyjarsund á vaxandi hraða.
Jónas varð þannig með stórfelldri
vanrækslu í skipstjórnarstarfi valdur
að því að báturinn steytti á Skarfa-
skeri á allt að 17 sjómílna hraða, að
mati dómsins. Hann var einnig sak-
felldur fyrir að hafa ekki gert ráð-
stafanir til bjargar farþegum eftir að
stórlega laskaður báturinn losnaði af
skerinu, hvorki leitað aðstoðar björg-
unarliða né siglt bátnum skemmstu
leið til lands.
Jónasi var jafnframt gert að greiða
8,6 milljónir króna til aðstandenda
hinna látnu, rúmar 400 þúsund krón-
ur til dánarbús Matthildar og rúmar
3,7 milljónir króna í sakarkostnað.
Reyndi að bera af sér sakir
Lögfróðir menn segja dóminn
þann þyngsta sem fallið hefur í sam-
bærilegu máli, en í niðurstöðu dóm-
enda kemur m.a. fram að háttsemin
sem Jónas var sakfelldur fyrir feli í
sér einkar ófyrirleitin brot á almenn-
um skipstjórnarskyldum, sem leiddu
til dauða tveggja einstaklinga, svo og
stórfelldra líkamsmeiðsla á eig-
inkonu Jónasar. Hann hafi þar að
auki gert sig sekan um það óskaplega
tiltæki að bera af sér sakir og reyna
að koma ábyrgð yfir á þá sem létust í
sjóslysinu af hans völdum, en Jónas
hélt því fram fyrir dómi að Matt-
hildur hefði setið við stjórnvölinn
þegar báturinn steytti á skerinu. Sá
framburður hlaut hins vegar ekki
stoð í vitnisburði eiginkonu Jónasar
og sonar, né heldur í upptökum af
símtölum úr bátnum við Neyðarlín-
una og þótti dómendum útilokað að
Matthildur hefði verið við stjórnvöl-
inn. Segir í niðurstöðu héraðsdóms
að komi það á daginn að Jónas hafi í
raun falið Matthildi að stýra bátnum
beri slíkt framferði vott um fádæma
dómgreindarleysi og er það að áliti
dómenda síst til þess fallið að draga
úr skipstjórnarábyrgð hans. Beri
Jónas því óskipta ábyrgð skipstjórn-
anda á slysinu.
Segir að þegar litið sé á að ákærði
sigldi Hörpunni á allt að 17 sjómílna
hraða á Skarfasker, í náttmyrkri og
slæmu skyggni, verði ekki ályktað á
annan veg en að orsök slyssins megi
rekja til fífldirfsku Jónasar, kunn-
áttuleysis, dómgreindarleysis eða
ölvunar nema þar fari saman fleiri en
ein orsök.
Innsiglaði örlög Matthildar
Fyrir liggur að Friðrik lést nær
samstundis þegar báturinn steytti á
skerinu, Matthildur var hins vegar á
lífi og nær óslösuð eftir áreksturinn
og bar ákærða ótvíræð skylda til að
leita aðstoðar björgunarliða í kjölfar
árekstursins, að mati dómsins. Í því
fólst m.a. að gefa upp staðsetningu
bátsins, með aflestri af skjá GPS-
tækis og láta vita um slysið gegnum
talstöð eða neyðarsendi. Jónasi bar
einnig að skjóta upp neyðarblysum,
tryggja að eftirlifandi farþegar færu
í bjargvesti og gera björgunarbát
tilbúinn til sjósetningar. Ekkert af
þessu var gert og segir í niðurstöðu
dómsins að sú yfirsjón Jónasar
ásamt þeirri ákvörðun hans að sigla
Hörpunni af strandstað hafi orðið
þess beinlínis valdandi að bátnum
hvolfdi.
Ennfremur segir að óháð því hvort
Matthildur hafi drukknað þegar
bátnum hvolfdi eða einhverju áður
telji dómendur einsætt að hún hefði
lifað sjóslysið af, ef Jónas hefði
brugðist við slysinu með eðlilegum
hætti. Með aðgerðum sínum og að-
gerðarleysi hafi Jónas hins vegar
innsiglað örlög Matthildar og beri
óskoraða ábyrgð á dauða hennar.
Jónas Jóhannsson héraðsdómari
kvað upp dóminn. Með honum sátu
einnig í dómi Pétur Guðgeirsson hér-
aðsdómari og Vilbergur Magni Ósk-
arsson, sviðsstjóri á skipasviði Fjöl-
tækniskóla Íslands.
Héraðsdómur dæmdi Jónas Garðarsson í þriggja ára fangelsi fyrir manndráp af gáleysi á Viðeyjarsundi
Morgunblaðið/Kristinn
Aðstandendur hinna látnu fylgjast með fulltrúum ákæruvaldsins skoða afrit af dóminum í héraðsdómi í gærdag.
Stórfelld van-
ræksla í skip-
stjórnarstarfi
Jónas Garðarsson, formaður Sjómannafélags
Reykjavíkur, var í gær dæmdur til þriggja ára
fangelsisvistar fyrir manndráp af gáleysi. Andri
Karl var staddur í héraðsdómi Reykjavíkur.
andri@mbl.is
UNNIÐ er að því að flytja húsið
Norðurpólinn, sem stendur við
Hverfisgötu 125 í Reykjavík. Sam-
kvæmt upplýsingum á heimasíðu
Skipulags- og byggingarráðs
Reykjavíkurborgar stendur til að
flytja það yfir götuna, á auða lóð að
Laugavegi 120.
Húsið á sér merka sögu sem hófst
árið 1904 þegar Guðmundur Há-
varðsson fékk leyfi til að reisa hús á
lóð úr landi Rauðarár. Húsið sem
Guðmundur reisti stendur enn, en
það var að grunnfleti 15 x 11 álnir.
Guðmundur nefndi húsið Norðurpól
og rak þar veitingasölu um tíma. Í
bók Páls Líndal, Reykjavík – Sögu-
staður við Sund, er það rakið hvernig
nafnið á húsinu er til komið. Þar seg-
ir að Guðmundur hafi með nafngift-
inni viljað líkja þessu framtaki sínu
við þá fyrstu leiðangra sem gerðir
voru út til þess að ná á norðurheim-
skautið. Samhliða greiðasölunni
seldi Guðmundur ólar, svipur, gjarð-
ir, kaðla, beisli og snæri. Einnig
hafði hann á boðstólum flest það sem
langferðamenn þurftu á að halda.
Húsið fái sitt fyrra hlutverk
Árið 1909 var eignin seld á upp-
boði. Eftir það var fljótlega farið að
veita þar áfengi. Sögur eru til um að
þar hafi oft verið sukksamt og lítill
heiður hafi þótt að hangsa þar við
víndrykkju. Ekki er vitað með vissu
hvenær veitingarekstur lagðist af í
Norðurpólnum en það mun hafa ver-
ið fyrir 1915. Um tíma var rekið í
húsinu þvottahús og Reykjavíkur-
borg átti það og leigði fjölskyldum
sem voru á hrakhólum með húsnæði.
Seinna var innrömmunarverkstæðið
Ramminn, fyrirtæki Björns Gunn-
laugssonar húsgagnasmiðs, til húsa í
Norðurpólnum.
Sú tillaga hefur verið gerð í deili-
skipulagi, að húsið fái sitt fyrra hlut-
verk sem veitingastofa, þegar það er
komið á nýjan stað.
Morgunblaðið/ÞÖK
Húsið við Hverfisgötu 125 hefur gegnt ýmsum hlutverkum en þar hefur
m.a. verið rekin veitingastofa auk húsgagnagerðar og sölubúðar.
Norðurpóllinn af
Hverfisgötunni
„EINUM áfanga er náð hér og nú,
en þetta mál fer líklega áfram til
Hæstaréttar. Þegar dómur fellur
þar, þá lýkur þætti málsins hvað
varðar Jónas Garðarsson,“ sagði Jó-
hannes Rúnar Jóhannsson hrl., lög-
maður ættingja hinna látnu, Friðriks
Hermannssonar og Matthildar
Harðardóttur, eftir að dómur féll yf-
ir Jónasi í héraðsdómi Reykjavíkur í
gærdag.
Jóhannes Rúnar segir dóminn
ekki hafa komið sér á óvart enda
brotin stór. „Þetta er alveg í takt við
það sem ég átti von á, en hafði samt
jafnvel vonast eftir þyngri dómi.
Þetta mál er einstakt að mínu mati
því sökin er það mikil, mun meiri en
almennt gerist og þetta eru tvö
mannslíf og líkamsmeiðingar eigin-
konu hans. Þannig að þetta er stórt
brot.“
Aðspurður hvort hann telji þá
staðreynd hafa þyngt dóminn að
Jónas axlaði ekki ábyrgð frá upphafi
segir Jóhannes það augljóst mál.
„Það er alveg ljóst að ef hann hefði
hagað sér eins og maður og tekið
ábyrgð á sínum gjörðum hefði hann
hlotið vægari dóm.“
„Náttúrlega alveg út í hött“
Jónas Garðarsson vildi ekki tjá sig
efnislega um dóminn við Morgun-
blaðið í gær enda hafði hann ekki
haft tækifæri til að lesa dómsorð.
Aðspurður hvort til stæði að áfrýja
málinu til Hæstaréttar sagði Jónas:
„Ég get ekki ímyndað mér annað,
þetta er náttúrlega alveg út í hött.“
Kristján Stefánsson, lögmaður
Jónasar, var staddur erlendis og
hafði því ekki skoðað dóminn. Hann
ætlaði að ráðfæra sig við skjólstæð-
ing sinn áður en hann tjáði sig um
málið.
Einum áfanga
náð en málið
heldur áframLeiðtogafundur Eystrasaltsráðsinsverður haldinn hér á landi í vikunni,
en Ísland hefur farið með for-
mennsku í ráðinu undanfarið starfs-
ár. Ellefu ríki eru í Eystrasalts-
ráðinu, en að auki tekur
Evrópusambandið þátt í fundinum.
Halldór Ásgrímsson forsætisráð-
herra stýrir fundinum, en hann
markar lok á formennskutímabili Ís-
lands í ráðinu, sem lýkur þann 1. júlí
næstkomandi.
Tíu ríki í kringum Eystrasaltið
stofnuðu ráðið árið 1992, þ.e. Dan-
mörk, Noregur, Svíþjóð, Finnland,
Eistland, Lettland, Litháen, Pólland
og Þýskaland, auk Evrópusambands-
ins. Ísland gerðist ellefta aðildarríkið
að ráðinu árið 1995.
Meginhlutverk ráðsins er að stuðla
að stöðugleika í stjórnmálum og
efnahagsmálum í norðausturhluta
Evrópu, meðal annars með aðstoð við
þróun og uppbyggingu lýðræðis,
verndun mannréttinda og bætt við-
skiptaumhverfi til eflingar frjálsum
viðskiptum, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu af þessu tilefni.
Undanfarið ár í formennskutíð Ís-
lands hefur meðal annars verið lögð
áhersla á samvinnu á sviði umhverfis-
og orkumála, svo og nánari samvinnu
við önnur svæðisbundin samtök.
Meðal efnis sem fjallað verður um
á fundinum má nefna framtíð sam-
vinnu og samstarfs á vettvangi
Eystrasaltsráðsins, samvinnu á sviði
orku- og efnahagsmála, umhverfis-
vernd, sjálfbæra þróun og verndun
hafsins og ýmis efni er varða mann-
réttindi og verndun lýðréttinda.
Í tengslum við fundinn mun for-
sætisráðherra eiga tvíhliða fund með
forsætisráðherrum Rússlands og
Póllands.
Áhersla á
samvinnu
Leiðtogafundur
Eystrasaltsráðsins
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands
eystra hefur dæmt karlmann á þrí-
tugsaldri í sjö mánaða fangelsi fyrir
fíkniefnabrot og fyrir að kasta gos-
dós í andlit leigubílstjóra.
Ákæran var í fjórum liðum en í
þremur þeirra var kært fyrir brot
gegn fíkniefnalöggjöfinni. Í vörslu
ákærða fundust í þau skipti samtals
26,25 grömm af amfetamíni, 0,9
grömm af kókaíni og rúm fimm
grömm af kannabisefnum.
Ákærði, sem játaði brot sín, hefur
frá árinu 2002 sjö sinnum hlotið refs-
ingu fyrir umferðarlaga-, hegningar-
laga- og fíkniefnalagabrot.
Freyr Ófeigsson dómstjóri kvað
upp dóminn. Guðjón Jóel Björnsson
fulltrúi sótti málið en Gunnar Sólnes
hrl. varði manninn.
Sjö mánaða fangelsi
fyrir fíkniefnabrot