Morgunblaðið - 07.06.2006, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 07.06.2006, Qupperneq 28
28 MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN U m hvað nákvæmlega voru þeir Jeff Skill- ing og Ken Lay, fyrrverandi stjórn- endur Enron, fundnir sekir núna um daginn? Það hét vissulega að kviðdómurinn í Houston kæmist að þeirri nið- urstöðu að þeir væru sekir um ým- is lögbrot – skjalafals, yfirhylm- ingu, ósannsögli og ýmislegt fleira sem lög kveða á um að sé bannað. En maður þurfti ekki að fylgjast lengi með fréttum af gangi rétt- arhaldanna, frásögnum af yf- irheyrslum og gagnyfirheyrslum, og einkum málflutningi saksókn- ara, til að komast að því að það sem þeir Skilling og Lay voru eig- inlega ákærðir fyrir – og fundnir sekir um – var siðblinda. En það varð að heita eitthvað annað því að strangt til tekið er siðblinda ekki lögbrot, hún er persónu- leikabrestur. Í tilefni af dómnum yfir Skilling og Lay hafa fjölmiðlar vestanhafs fjallað dálítið um nýútkomna bók sem heitir því skemmtilega nafni Snákar í jakkafötum – siðblind- ingjar hefja störf (Snakes in Suits: Psychopaths Go To Work), og er eftir þá Robert Hare, fyrrverandi sálfræðiprófessor við Háskólann í British Colombia í Kanada, og Paul Babiak, iðnaðar- og fyr- irtækjasálfræðing í New York, en hann rannsakar siðblindu innan fyrirtækja. Hér er stuðst við um- fjöllun The Globe and Mail í Kan- ada um bókina. Hare er einn helsti sérfræðing- urinn í heiminum í rannsóknum á siðblindu, og er höfundur fræði- legrar skilgreiningar á siðblindu sem víða er stuðst við. Fyrir um aldarfjórðungi bjó hann svo til greiningartæki, svonefndan sið- blindugátlista, sem nota má til að verjast siðleysingjunum. Siðblinda er ekki geðveiki. Hún er, eins og fram hefur komið, per- sónuleikabrestur. Grundvall- areinkenni hennar eru algjört samviskuleysi og fullkominn skortur á hluttekningu og samúð. Siðblindingjar eru gráðugir, sjálfs- elskir, svikulir, óáreiðanlegir og gjarnir á að fá óhamin reiðiköst. Þeir eru rándýrin í mannfélaginu. En við fyrstu kynni eru þeir al- gjörlega heillandi, skilningsríkir og sjálfsöryggið skín af þeim. Þeir Hare og Babiak telja að á undanförnum tveim áratugum hafi orðið gríðarlega hraðar breytingar á vettvangi stórfyrirtækja í Am- eríku, ekki síst vegna netfyr- irtækjabólunnar sem sprakk. Hún hafi meðal annars valdið því að gömul og gróin stórfyrirtæki hafi skroppið saman og/eða runnið saman við önnur. Samkeppnin hafi líka harðnað ofboðslega. Þetta hafi, án þess að það hafi beinlínis verið ætlunin, búið í haginn fyrir fólk haldið siðblindu. Hare gengur svo langt að full- yrða að nú sé svo komið að það sé eiginlega vænlegra til frama innan stórfyrirtækja að tileinka sér við- horf siðblindingjanna. Þetta sé ekki síst vegna þess að í samfélag- inu almennt aukist nú áherslan á yfirborð og stíl á kostnað áherslu á innihald og grunnatriði. Slíkt geri þeim siðblindu auðveldara um vik að athafna sig án þess að komast í kast við lögin. Ekki svo að skilja að allir sem komast til metorða innan stórfyr- irtækja séu fyrirlitlegir siðleys- ingjar. Fyrr mætti nú vera. Met- orðin segja ekkert um siðgæði fólks, það eru aðferðirnar sem það beitir, og þá fyrst og fremst við- horf þeirra til samstarfsmanna sinna, sem skera þar úr. Hare seg- ir að líklega sé erfðagalla um að kenna – en vissulega hafi fé- lagslegt umhverfi áhrif – að sið- blint fólk finnur ekki tilfinningar á borð við depurð, ótta, sektarkennd og iðrun, þótt það hafi fullkomlega vitsmunalegan skilning á þessum tilfinningum. En siðblindingjarnir upplifa aldrei tilfinningarnar sjálfar og geta þar af leiðandi ekki haft eig- inlegan skilning á því hvernig öðru fólki – sem hefur þessar tilfinn- ingar – raunverulega líður. Og þar af leiðandi geta siðblindingjarnir ekki sett sig í spor þessa fólks. Það mætti líkja þessu við að maður myndi lesa og læra allt sem hægt er að læra um tannpínu, en maður myndi samt ekki í raun og veru skilja þjáningu þess sem haldinn er tannpínu ef maður hefði aldrei fengið hana sjálfur. Hare telur að í Norður-Ameríku sé um það bil eitt prósent íbúanna siðblint. Þótt siðblint fólk sé í sum- um tilfellum vissulega fært um að fremja morð sé það í flestum til- vikum greint og vel upp alið og „nýti“ því þennan eiginleika sinn fremur til að öðlast völd, virðingu og peninga. Siðblindingjar séu því í fæstum tilvikum beinlínis hættu- legir. Nú verður auðvitað ekkert um það fullyrt að Skilling og Lay séu siðblindir. Vera má að þeir séu bara „venjulegir Machiavellianar“. En hvenær á maður að fara að hafa áhyggjur af því að ekki sé allt með felldu og að maður sem lítur út fyrir að vera traustur og öflugur starfsmaður sé í rauninni siðlaust rándýr? Hare og Babiak hafa sett saman nýjan lista, svonefnt „Business Scan 360“, sem er ætlaður fyrir fyrirtækjastjórnendur sem vilja finna siðblindingjana sem kunna að leynast innan um heiðarlega starfsmenn. Meðal tíu „hættu- merkja“ sem geta gefið vísbend- ingu um að siðblindingi sé á ferð- inni eru, þótt það kunni að hljóma undarlega, að viðkomandi starfs- maður virðist yfirvegaður, hefur fágaða framkomu og heillandi per- sónuleika. Flestar samræður hans snúast um hann sjálfan; hann gerir lítið úr öðrum til að bæta eigin ímynd og orðspor; hann lítur svo á að fólk sem hann hefur kveðið í kútinn eða ráðskast með sé heimskt og hann er tækifær- issinni, miskunnarlaus og þolir ekki að tapa. Hættumerkin eru fleiri, en öfl- ugasta vopn þess siðblinda er ein- stakur hæfileiki hans til að villa á sér heimildir – til að koma sér í mjúkinn hjá fórnarlambinu áður en hann lætur til skarar skríða. Snákar í jakkafötum Hare gengur svo langt að fullyrða að nú sé svo komið að það sé eiginlega væn- legra til frama innan stórfyrirtækja að tileinka sér viðhorf siðblindingja. BLOGG:kga@blog.is VIÐHORF Kristján G. Arngrímsson kga@mbl.is IÐNAÐARRÁÐHERRA krafð- ist nýlega lögreglurannsóknar vegna kröfuspjalds sem eitt eða tvö ung- menni höfðu uppi í fjölmennri göngu fyr- ir verndun hálendis Íslands sem hún taldi beinast að sér per- sónulega. Undirrit- aður tekur undir nauðsyn þess að um- ræðan snúist um mál- efni en ekki einstaka persónur. Um virkj- unarstefnu íslensku ríkisstjórnarinnar en ekki um Valgerði Sverrisdóttur iðnaðarráðherra sem persónu. Á hinn bóginn hlýtur krafa iðn- aðarráðherra um lögreglurann- sókn á fyrrnefndu kröfuspjaldi að beina athyglinni að framgöngu ráðherrans í umræðum um virkj- anir og náttúruvernd. Iðnaðarráðuneytið hefur í sam- vinnu við fyrirtæki og stofnanir þess varið milljónum króna í áróð- ur gegn þeim sem vinna að nátt- úruvernd á Íslandi. Alræmdasta dæmið þar um er vefsíðan www.star.is þar sem haldið var uppi gegndarlausum óhróðri um ein- staklinga og samtök sem vinna að nátt- úruverndarmálum. Vefsíðunni var síðan lokað fyrir tilstilli Al- coa sem þótti nóg um. Valgerður Sverr- isdóttir hefur ekki hikað við að ráðast að heiðri náttúruvernd- arsamtaka í ræðustóli á Alþingi þar sem þau geta ekki varið sig. Stundum hefur fjand- skapur ráðherrans í garð um- hverfisverndarsamtaka tekið á sig hjákátlega mynd eins og þegar hún kenndi ótilgreindum umhverf- isverndarsamtökum um vandræði skinnaiðnaðarins á Akureyri. Málflutningur Náttúruvernd- arsamtaka Íslands hefur byggt á þekkingu og reynslu þeirra ein- staklinga sem unnið hafa fyrir samtökin. Fagleg og málefnaleg framsetning þeirra hefur vakið at- hygli og virðingu fyrir málstað náttúruverndar. Þannig verða slík samtök að vinna. Það verður að gera þá kröfu að hið sama gildi um stjórnmálamenn. Tvískinnungur iðnaðarráðherra Árni Finnsson fjallar um starf- semi náttúruverndarsamtaka í tilefni af kröfu iðnaðarráð- herra um lögreglurannsókn vegna kröfuspjalda ’Málflutningur Nátt-úruverndarsamtaka Ís- lands hefur byggst á þekkingu og reynslu þeirra einstaklinga sem unnið hafa fyrir sam- tökin. ‘ Árni Finnsson Höfundur er formaður Nátt- úruverndarsamtaka Íslands. AÐ LOKNUM kosningum hóf- ust viðræður um að mynda meiri- hluta í sveitarstjórn- unum. Hvað eftir annað heyrði ég talað um að nauðsynlegt væri að komast í meirihluta af því að í minnihluta hefðu flokkarnir engin áhrif, þeir væru bara á hliðarlínunni en það þýðir væntanlega að þeir séu nánast ekki með. Þetta er satt að segja mjög merkileg hugmynd um lýðræði, að það sé sjálfgefið að þeir, sem kjörnir eru í sveitarstjórn, hafi nánast engin áhrif nema þeir kom- ist í meirihluta. Þessi vanþróaða lýðræðisvitund kemur líka fram á Alþingi, þar sem stjórnarflokk- arnir virðast hafa að leiðarljósi að hundsa vilja stjórnarandstöð- unnar, forðast málamiðlanir og þröngva málum í gegn sama hversu djúpstæður ágreiningur er um þau. Og eina leið stjórnarand- stöðunnar til að hafa einhver áhrif er að stunda svo mikið málþóf í þinginu að nálgast ofbeldi, ofbeldi sem gripið er til í sjálfsvörn. Ég hef setið í stjórnum nokk- urra félaga. Þar hafa stjórn- armenn vissulega ekki verið kosn- ir listakosningum, en þeir hafa samt haft mismunandi skoðanir á stefnu og starfsemi þessara fé- laga. Það hefði áreiðanlega þótt dálítið sérkennilegt og ekki verið vel séð ef einhverjir stjórn- armanna í þessum félögum hefðu farið að rotta sig saman í klíkur til að mynda meirihluta og halda minnihlutanum niðri. Sveitarstjórn er væntanlega kosin til að annast hagsmuni sveit- arfélagins og íbúanna í því. Það eru auðvitað skiptar skoðanir á því hvaða leiðir eru heppilegastar enda skipa frambjóðendur sér gjarnan í flokka og setja fram stefnuskrár. En þó að skoðanir séu skiptar, þá koma líka upp mörg mál sem eru þverpólitísk, eins og það er kallað, eða lítill ágreiningur um. Minnihlutaflokk- arnir hljóta stundum að koma fram með hugmyndir og stefnu sem meirihlutinn sér ýmislegt í þótt hann sé ekki tilbúinn til að taka allt upp eða ganga alla leið. Þannig skyldi maður ætla að minnihlutinn gæti komið ýmsu til leiðar ef meirihlutinn er ekki fyr- irfram ákveðinn í að halda honum niðri, halda honum á hliðarlínunni. En svo er spurning- inn: er yfirleitt ein- hver þörf á að mynda meirihluta? Er það nokkuð eðlilegt? Til hvers er verið að standa í svona meiri- hlutamyndunum? Mér er það hreint ekki ljóst. Ef það er ekki til að halda minnihlut- anum niðri, þá sé ég bara eitt svar við því: til að velja bæj- arstjóra og forseta bæjarstjórnar. Eðlilegast væri auðvitað að ráða bara ópólitískan bæjarstjóra, framkvæmdastjóra sveitarfé- lagsins. Síðan mundu flokkarnir skiptast á forseta bæjarstjórnar, deila kjörtímabilinu í fjölda flokk- anna eða framboðanna. Svo vinna menn bara saman að hagsmunum sveitarfélagsins, taka mál fyrir eftir því sem tilefni er til, ræða þau með það að leiðarljósi að kom- ast að sameiginlegri niðurstöðu, en ef það er ekki hægt, þá eru greidd atkvæði og þau bara falla eftir eðli hvers máls en ekki í samræmi við einhverjar fyrirfram myndaðar klíkur. Lýðræðið á hliðarlínunni Einar Ólafsson fjallar um meirihlutamyndanir í stjórnmálum ’Eðlilegast væri auðvitaðað ráða bara ópólitískan bæjarstjóra, fram- kvæmdastjóra sveitarfé- lagsins.‘ Einar Ólafsson Höfundur er fyrrverandi formaður VG í Kópavogi. EKKERT er nýtt undir sól- inni. Krossferð Ólafs Hanni- balssonar er ófrumlegri en ætla mætti. Hann fer í smiðju manna sem á 8. áratug síðustu aldar ólu á kjaftasögum um að Framsóknarflokkurinn stæði að sprúttsölu og fyrirskipaði jafnvel mannshvörf. Málið barst inn á Alþingi, þar sem þingmaður hélt tilfinn- ingaþrungnar ræður. Þjóðfé- lagið var um skeið heltekið. Nokkrir menn sátu blásaklaus- ir bak við lás og slá. Þá eins og nú var fjölmiðlum beitt. Þegar upp var staðið mátti hverjum sem sjá vildi vera ljóst að rógsferðin hafði ekkert með raunveruleikann að gera. Með henni náðu þó einhverjir, sem hirtu hvorki um skömm né heiður, að þjóna lund sinni. Framgangan vekur spurn- ingar. Getur Gróa á Leiti átt vísan aðgang að fjölmiðlum, eins og við urðum vitni að í Kastljósi sjónvarpsins 1. júní? Geta menn þulið kjaftasögur í kastljósum og sagt: Hér er mergjuð kjafta- saga, sem við Hallveig heyrðum í heitapottinum. Hlustið nú vel, við höfum að vísu ekkert fyrir okkur, en er ekki einhver sem getur bætt um betur? Eftir rógsferðina fyrri kom Framsóknarflokkurinn afar illa út úr kosningu. Þetta veit Ólaf- ur í krossferð sinni. Tilgang- urinn helgar jú meðalið. Það rann þó um síðir upp fyrir kjós- endum hvernig í málum lá. Framsóknarflokkurinn vann í kjölfarið einn af sínum stærsu sigrum. Spurningin er hvort sagan muni endurtaka sig. Halldór Árnason Rógsferð Höfundur er efna- og hagfræð- ingur. „Þessar kjaftasögur eru ekkert frá mér.“ Ólafur Hannibalsson í Kastljósi, 1. júní 2006. „Ólyginn sagði mér …“ Gróa á Leiti „Let them deny it.“ Richard Nixon

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.