Morgunblaðið - 07.06.2006, Blaðsíða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Kristín Jónsdótt-ir fæddist í Gróf-
argili í Skagafirði
13. maí 1913. Hún
lést á heimili sínu, á
Freyjugötu 21 hinn
27. maí síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Jón Benedikts-
son, f. 3. júlí 1872, d.
17 maí 1924, og Sig-
urlaug Brynjólfs-
dóttir, f. 3. júlí 1970,
d. 13. apríl 1966.
Systur Kristínar
voru Guðlaug Una, f.
17. ágúst 1898, d. 17. júlí 1996, Ingi-
björg, f. 16. maí 1904, d. 24. ágúst
2000, og Birna, f. 16. nóvember
1905.
Kristín bjó fyrstu æviár sín á
Grófargili í Skagafirði en lengst af
bjó hún á Freyjugötu 21 á Sauð-
árkróki. Fyrir utan húsmæðra-
starfið vann Kristín alla almenna
verkamannavinnu en lengst af
starfaði hún við fiskvinnslu.
börn þeirra eru Svandís Erla og
Arnar Steinn. D) Kolbrún, f. 18.
ágúst 1973, maki hennar er Þröst-
ur Ingi Jónsson. Börn þeirra eru
Berglind Ösp og Hlynur Örn. E)
Helgi Páll, f. 12. júlí 1977. F) Pétur
Árni, f. 16. júní 1983. Erla Björk, f.
30. ágúst 1941 en hún var við fæð-
ingu ættleidd af systur Kristínar.
Maki Erlu er Skúli Ferdinandsson
og eru börn þeirra: A) Hafdís Guð-
laug, f. 15. febrúar 1967, maki Atli
Hjartarson. Börn þeirra eru Sunna
Björk, Arnar Skúli og Hjörtur
Ragnar. B) Sigmundur Birkir, f.
29. september 1971, maki Ragn-
heiður Rögnvaldsdóttir. Börn
þeirra eru Kristín Lind og Lárus
Fannar.
Seinni maður Kristínar var Páll
Þorkelsson, f. 18.mars 1908, d. 24.
júlí 1976. Dætur þeirra eru : 1) Þór-
dís, f. 18. desember 1945, maki
hennar er Kormákur Bragson. 2)
Anna Þórkatla, f. 2. september
1947. 3) Sigurlaug, f. 14. febrúar
1952, dóttir hennar er Pála Kristín
Bergsveinsdóttir, f. 6. desember
1974, maki hennar er Lúðvík Lúð-
víksson. Þau eiga ein son, Ívar Örn.
Útför Kristínar verður gerð frá
Sauðárkrókskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Kristín var tvígift.
Eignaðist hún níu
börn en þrjú þeirra
dóu í frumbernsku.
Fyrri maður Kristín-
ar var Helgi Jónsson
og þau eignuðust tvö
börn. Erlu Baldvinu,
f. 1. júní 1934, d. 15.
júní 1935, og Jón Sig-
urð, f. 5. október 1938
og er kona hans Anna
S. Pétursdóttir. Eiga
þau sex börn og eru
þau: A) Sigríður
Kristín, f. 13. maí
1963, maki hennar er Gunnar Val-
garðsson. Börn þeirra eru Anna
Dögg, Sigurður Birkir, Gunnar
Þór og Silvía Rut. Eiga þau tvö
barnabörn. B) Hjördís Erla, f. 28.
júní 1965 maki hennar er Jon Haf-
stad en þau eru búsett í Noregi.
Börn þeirra eru Alexander, Daníel,
Irja Lind og Patrik Árni. C) Hrafn-
hildur, f. 12. júlí 1968, fyrrverandi
maður hennar er Ólafur Adolfsson,
Stígur hún við stokkinn,
stuttan á hún sokkinn.
Ljósan ber hún lokkinn,
litli telpuhnokkinn
Með þessari vísu minnumst við
ömmu okkar sem nú er horfin á braut.
Hún kvaddi þetta líf frekar óvænt en
var södd lífdaga. Hún lifði í 93 ár og líf
hennar núna síðustu árin var gott.
Hún bjó með dætrum sínum sem af
alúð gerðu henni kleift að vera heima í
sínu eigin húsi en það var hennar
stærsta ósk að fá að vera þar og fá að
deyja í sínu rúmi. Það er úr þessu húsi
sem við systkinin eigum okkar minn-
ingar um ömmu. Við vorum alltaf vel-
komin til ömmu útfrá og okkur var
alltaf tekið fagnandi af þeim Stínu
ömmu og Páli afa. Amma vann úti en
alltaf hafði hún samt tíma fyrir okkur
barnabörnin. Þegar við vorum lítil var
húsið hennar ömmu útfrá okkar ann-
að heimili. Þar mættum við alltaf ást-
úð og umhyggju. Amma var alltaf jafn
þolinmóð við okkur, sama hvað á gekk
og skammaði okkur aldrei. Amma las
aldrei fyrir okkur sögur, hún sagði
okkur þær. Hún sagði okkur mikið af
sögum og var duglega að kenna okkur
vísur og þulur sem við munum enn í
dag.
Árin liðu og við eldri systkinin flutt-
um að heiman og stofnuðum fjöl-
skyldur. Alltaf höfðum við gott sam-
band við ömmu. Hún prjónaði sokka
og vettlinga á alla og alltaf fylgdist
hún með okkur. Hún fagnaði hverju
barni sem fæddist, langömmubörnun-
um og langalangömmubörnunum og
bar hag okkar allra fyrir brjósti.
Fram á síðasta dag þrátt fyrir að sjón
og heyrn væru farin að daprast
hringdi hún og spurði eftir öllum.
Yngstu börnin í fjölskyldunni voru
svo lánsöm að fá að kynnast lang-
ömmu sem strauk þeim um vangann
og við þessi eldri að eiga svona alvöru
ömmu sem er kannski ekki algengt í
dag, þegar allir eru svo uppteknir.
Það er skrítið að koma úteftir og sjá
stólinn hennar ömmu tóman og geta
ekki sest og spjallað við hana en blíða
brosið og hlýr faðmur ömmu kemur
til með að fylgja okkur ævilangt.
Takk fyrir allt, elsku amma.
Sigríður Kristín, Erla,
Hrafnhildur, Kolbrún, Helgi
Páll og Pétur Árni Jónsbörn
og fjölskyldur.
Elsku besta amma mín. Ég kveð
þig nú með mikinn söknuð í huga. Ég
trúi því varla enn að ég eigi ekki eftir
að heyra í þér eða sjá þig aftur, þú ert
búin að vera svo stór hluti af lífi mínu.
Ég veit að þér líður vel núna, laus við
alla verkina. Þú fékkst líka ósk þína
uppfyllta að deyja heima. Afi og börn-
in þín sem þú hefur misst hafa alveg
örugglega tekið vel á móti þér. Ég er
þakklát fyrir að hafa átt svona góða
ömmu sem gaf mér í vöggugjöf mikla
þrjósku, kjark og jákvætt viðhorf til
lífsins. Því ævi þín, elsku amma, var
nú ekki alltaf dans á rósum. Ég þekki
engan sem hefur þurft að ganga í
gegnum jafnmikla erfiðleika eins og
þú, en sú hugsun að gefast upp var
ekki til í þínum huga. Heldur sagðirðu
alltaf að með guðshjálp væri hægt að
yfirstíga allt. Einnig varstu með ein-
dæmum þrjósk og fannst mér stund-
um einum of eins og þegar þú fórst að
tapa heyrninni og ég nefndi það við
þig hvort þú vildir ekki fá þér heyrn-
artæki. Nei, nei, alls ekki, þá heyrðir
þú ekki illa heldur var það bara ég
sem talaði óskýrt. Lífsgleði og hlát-
urmildi var einkennandi fyrir þig.
Elsku amma, þú kallaðir mig alltaf
ljósið í bænum og mun ég aldrei
gleyma þér. Ég er þér þakklát fyrir
allt sem þú gerðir fyrir mig og ég tel
að það séu forréttindi að hafa fengið
að alast upp hjá þér. Það verður
skrýtið að fara á Freyjugötuna og vita
ekki af þér inni í herbergi, prjónandi
lönguvitlausu eins og þú sagðir eða þá
að rífast við karlana í útvarpinu.
Elsku amma, ég mun alla tíð elska
þig og sakna þín.
Þín
Pála Kristín.
Elsku langamma eða langbagga
eins og ég kallaði þig alltaf. Ég kveð
þig nú með miklum söknuði. Það var
alltaf svo gaman að koma á Freyju-
götuna og hitta þig. Mér fannst bíllinn
(göngugrindin), sem þú notaðir innan
dyra, ævintýri líkust og tókum við
ófáa rúntana eftir ganginum á því far-
artæki. Það var einnig gaman að
heyra þig syngja og hlusta á harm-
óníkutónlist með þér. Það var líka föst
venja þegar ég kom á Freyjugötuna
að setjast á rúmið hjá þér, elsku lang-
bagga, áður en við fórum að sofa og fá
krem á fæturna.
Elsku langbagga, ég kveð þig nú og
ég veit að þér líður vel hjá Guði og öll-
um englunum.
Þinn
Ívar Örn.
Núna er elsku langamma dáin.
Okkur fannst svo gaman að fá að fara
til hennar. Þegar við komum sat hún
alltaf í stólnum sínum og prjónaði.
Hún var alltaf svo glöð þegar hún sá
okkur og alltaf fengum við ís hjá
henni. Við eigum eftir að sakna henn-
ar Stínu ömmu mikið og það er skrítið
að geta ekki komið og heimsótt hana
lengur.
Elsku langamma, við vitum þú ert
hjá Guði núna og þar líður þér vel.
Berglind Ösp og Hlynur Örn.
Ég lifi í Jesú nafni,
í Jesú nafni ég dey,
þó heilsa og líf mér hafni,
hræðist ég dauðann ei.
Dauði, ég óttast eigi
afl þitt né valdið gilt,
í Kristí krafti eg segi:
Kom þú sæll, þá þú vilt.
(Hallgr. Pét.)
Elsku langamma, nú ert þú hjá
guði. Það verður ekki það sama að
koma á Freyjugötuna og sjá þig ekki
sitja í stólnum þínum og fagna okkur
eins og þú gerðir þegar við komum til
að heimsækja þig.
En við vitum að þú ert komin þang-
að sem þú vildir fara.
Við vitum líka að þú verður alltaf
hjá okkur. Þú verður alltaf í huga
okkar.
Svandís Erla og Arnar Steinn.
KRISTÍN
JÓNSDÓTTIR
Atvinnuauglýsingar
Vegna aukinna umsvifa óskum við eftir
að ráða
bifvélavirkja
í 100% starf. Upplýsingar í síma
515 2716. Tölvup: einar@teitur.is
Herrafataverslun
Herrafataverslun óskar eftir starfskrafti. Um-
sækjandi þarf að vera eldri en 20 ára og hafa
reynslu af afgreiðslustörfum, vera ákveðinn
og sjálfstæður í vinnubrögðum. Umsóknir
sendist á íslenskirkarlmenn@simnet.is eða
til: Íslenskir karlmenn, Laugavegi 74, 101 Rvík.
Raðauglýsingar 569 1100
Okkar ástkæri eiginmaður, sonur, fósturfaðir og
bróðir,
GUÐJÓN SIGURBJÖRNSSON,
Arnarhrauni 16,
Hafnarfirði,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 2. maí.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Hjartans þakkir til starfsfólks heimaaðhlynningar-
innar og líknardeildarinnar í Kópavogi.
Þökkum af alhug öllum þeim sem hafa hjálpað okkur og stutt á erfiðum
tímum.
Guð veri með ykkur.
Elísabet Ragnarsdóttir og börn,
Greta Guðjónsdóttir,
Sigurbjörn Ólason, Guðmunda Einarsdóttir,
bræður og fjölskyldur þeirra.
Bróðir minn og móðurbróðir,
STEINGRÍMUR SIGVALDASON,
vélstjóri,
verður jarðsunginn frá Neskirkju fimmtudaginn
8. júní kl. 13.00.
Ásta Sigvaldadóttir,
Sigvaldi Hólm Pétursson.
Hugheilar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og
útfarar ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
BJARKAR ARNGRÍMSDÓTTUR,
Kirkjuteigi 19,
Reykjavík.
Guð blessi ykkur öll.
Guðjón K. Þorsteinsson,
Hafdís Guðjónsdóttir, Þór Bragason,
Sævar Guðjónsson,
Helga Sjöfn Guðjónsdóttir, Steingrímur Þorvaldsson,
Rannveig Guðjónsdóttir, Þórður Bogason,
barnabörn og langömmubörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og
veitta aðstoð við andlát og útför
KJARTANS J. HALLGRÍMSSONAR,
Tjörnum,
Skagafirði.
Guð blessi ykkur öll.
Sigrún Þóra Ásgrímsdóttir,
Ólöf Ásdís Kjartansdóttir, Loftur Guðmundsson,
Jón Friðrik Kjartansson, Helga Egilson,
Sólveig Halla Kjartansdóttir, Þórhallur J. Ásmundsson,
Guðný Herdís Kjartansdóttir,
Kjartan Þór Kjartansson, Sigurlaug Kristín Eymundsdóttir,
afabörn og langafabörn.
Morgunblaðið birtir minningargrein-
ar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is (smellt á reitinn Morgunblaðið
í fliparöndinni – þá birtist valkostur-
inn „Senda inn minningar/afmæli“
ásamt frekari upplýsingum).
Skilafrestur Ef birta á minningar-
grein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er ekki
unnt að lofa ákveðnum birtingardegi.
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd Minningargreinar séu ekki
lengri en 2.000 slög (stafir með bil-
um - mælt í Tools/Word Count). Ekki
er unnt að senda lengri grein. Hægt
er að senda örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim
sem kvaddur er virðingu sína án þess
að það sé gert með langri grein. Ekki
er unnt að tengja viðhengi við síð-
una.
Formáli Minningargreinum fylgir for-
máli, sem nánustu aðstandendur
senda inn. Þar koma fram upplýsing-
ar um hvar og hvenær sá, sem fjallað
er um, fæddist, hvar og hvenær hann
lést, um foreldra hans, systkini, maka
og börn og loks hvaðan útförin fer
fram og klukkan hvað athöfnin hefst.
Ætlast er til að þetta komi aðeins
fram í formálanum, sem er feitletr-
aður, en ekki í minningargreinunum.
Undirskrift Minningargreinahöfund-
ar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín
en ekki stuttnefni undir greinunum.
Myndir Ef mynd hefur birst í tilkynn-
ingu er hún sjálfkrafa notuð með
minningargrein nema beðið sé um
annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt
að senda hana á myndamóttöku:
pix@mbl.is og láta umsjónarmenn
minningargreina vita.
Minningargreinar