Morgunblaðið - 07.06.2006, Qupperneq 43
var tilbúin með þessa einkasýningu sama ár
og hún lést árið 2003. Til 18. júní.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Sigríður
Bachmann í Skotinu, nýjum sýningarkosti
safnsins. Sýnir Sigríður myndir sem hún
hefur tekið af börnum. Til 7. júní.
Minjasafnið á Akureyri | Sumarsýning. Ef
þú giftist ? Brúðkaupssiðir fyrr og nú. Ef þú
giftist fjallar um brúðkaup og brúðkaupssiði
í gegnum tíðina. Sýningin er unnin í sam-
starfi við þjóðminjasafn Íslands og er opin
alla daga milli 10 og 17. Til 15. sept.
Perlan | Sögusafnið í Perlunni er opið alla
daga kl. 10–18. Hljóðleiðsögn leiðir gesti í
gegnum fjölda leikmynda sem segja söguna
frá landnámi til 1550. ww.sagamuseum.is.
Þjóðminjasafn Íslands | Nú stendur yfir
sýning á níu fornleifarannsóknum Kristnihá-
tíðarsjóðs í Rannsóknarýminu á 2. h. Hér
gefst tækifæri til að skoða úrval gripa sem
komið hafa úr jörð á síðustu árum en mikil
gróska hefur verið í fornleifarannsóknum.
Boðið er upp á fræðslu og þjónustu fyrir
safngesti. Sýningar auk safnbúðar og kaffi-
húss. Opið alla daga kl. 10–17.
Bækur
Listasafn ASÍ | ASÍ-FRAKTAL-GRILL. Hug-
inn Þór Arason og Unnar Örn J. Auðarson
unnu sýninguna í sameiningu með safnið í
huga. Listamennirnir reyna að fletta ofan af
illsýnilegum, óskráðum en kannski aug-
ljósum hliðum þess samfélags/umhverfis
sem þeir starfa innan. Opið 13–17. Aðgangur
ókeypis. Til 26. júní.
Fyrirlestrar og fundir
Háskóli Íslands | Málfundur RSE og Al-
þjóðamálastofnunar Háskóla Íslands um
málefni Mið-Austurlanda verður haldinn í
dag kl. 12.10 í sal 101 í Odda, Háskóla Íslands.
Framsöguerindi heldur Fadi A. Haddadin,
ráðgjafi í málefnum Mið-Austurlanda, m.a.
fyrir Alþjóðabankann. Fundarstjóri er Davíð
Logi Sigurðsson blaðamaður.
Kaffi Reykjavík | Fyrsta alþjóðlega ráð-
stefna trúleysingja sem haldin er hérlendis
fer fram 24. og 25. júní. Fyrirlesarar eru
m.a. Richard Dawkins, Julia Sweeney, Bran-
non Braga og Dan Barker.
Kalak, grænlensk-íslenska félagið | Aðal-
fundur félagsins verður kl. 20 í sal Norræna
félagsins á Óðinsgötu 7. Venjuleg aðalfund-
arstörf. Að loknum fundi verður myndasýn-
ing frá ferð í mars á Ammassalik-svæðið á
vegum Kalak og Hróksins, þar sem kennd
var skák.
Krabbameinsfélagið | Góðir hálsar, stuðn-
ingshópur um krabbamein í blöðruhálskirtli,
efna til gönguferðar í Öskjuhlíðina í dag í
staðinn fyrir hefðbundinn rabbfund. Gengið
verður frá húsi Krabbameinsfélagsins kl. 17.
Séð verður fyrir akstri fyrir þá sem treysta
sér ekki til að ganga.
Kristniboðssalurinn | Fræðsla um tíma-
stjórnun kl. 9.15–15 á Háaleitisbr. 58–60.
Ragnar Gunnarsson, framkv.stjóri Verk-
vangs, Guðlaugur Gunnarsson kerfisfræð-
ingur og Sigríður Hrönn Sigurðardóttir
hjúkrunarfræðingur sjá um fræðsluna. Nán-
ar á sik.is. Aðgangur ókeypis. Skrán. til 8.
júní s. 588 8899 eða á bjarni@sik.is.
Fréttir og tilkynningar
GA-fundir | Er spilafíkn að hrjá þig eða þína
aðstandendur? Fáðu hjálp! S. 698 3888.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur | Matar-
og fataúthlutun á miðvikud. kl. 14–17 á Sól-
vallagötu 48. Sími 557 4349, netfang ma-
edur@simnet.is.
Útivist og íþróttir
Framvöllurinn | Fótboltamót fyrir ungt fólk
úr kirkjum landsins verður haldið 10. júní.
Mótið er ætlað krökkum 13 ára og eldri frá
öllum kirkjudeildum og fer það fram á Fram-
vellinum í Safamýri 26 í Reykjavík. Mark-
miðið er að stunda íþróttir í sameiningu og
kynnast. Nánari uppl. á www.ywam.tk.
Garðabær | Golfleikjanámskeið fyrir for-
eldra, ömmur og afa, unglinga og börn.
Námskeiðin eru fimm daga og er farið á
golfvöll síðasta daginn. Námskeiðin eru kl.
17.30–19 eða 19.10–20.40. Kennari er Anna
Día, íþróttafræðingur og golfleiðbeinandi.
Íþróttahúsið Mýrin | Vatnsleikfimi fyrir eldri
borgara kl. 9.30–10.30, mánudaga og mið-
vikudaga. Fyrir yngra fólk kl. 7.40–8.20,
fjórum sinnum í viku. Skráning hjá Önnu Díu
íþróttfræðingi í s. 691 5508. Mýrin er við
Bæjarbraut í Garðabæ.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 2006 43
DAGBÓK
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, böðun, fótaað-
gerðir, spiladagur.
Dalbraut 18-20 | Bridds mánudaga
kl. 14. Félagsvist þriðjudaga kl. 14.
Bónus miðvikudaga kl. 14. Morg-
unsopi alla daga kl. 10, hádegisverður
og síðdegiskaffi með heimabökuðu.
Opið kl. 8–16. Uppl. í s. 588 9533.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Skrifstofan í Gullsmára 9 er opin í
dag kl. 10–11.30. Viðtalstími í Gjá-
bakka kl. 13–16. Félagsvist verður spil-
uð í Gjábakka í dag kl. 13.
Félagsheimilið Gjábakki | Boccia kl.
9.30. Handavinna kl. 10–17. Félagsvist
kl. 13. Bobb kl. 17.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 |
Briddshópur kemur saman og spilar
bridds kl. 13. Heitt á könnunni, heima-
bakað meðlæti. Góð aðstaða . Allir
velkomnir.
Félagsstarf aldraðra í Garðabæ |
Bútasaumshópur í Kirkjuhvoli kl. 13.
Miðasala stendur yfir í dagsferð um
Suðurland sem farin verður 14. júní
nk. Miðaverð einungis kr. 3.500, selt
verður í Garðabergi kl. 12.30–16.30.
Bridds í Garðabergi eftir hádegi.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30
verða vinnustofur opnar. Frá hádegi
verður spilasalur opinn. Föstudaginn
9. júní: „Hvert skref skiptir máli“.
Kvennahlaup ÍSÍ. Lagt af stað frá
Gerðubergi kl. 13. Farið um Elliðaár-
dalinn. Skráning hafin á staðnum og í
síma 575 7720. Strætisvagnar S4,
12 og 17 stansa við Gerðuberg.
Hraunbær 105 | Kl. 9 postulíns-
málun, kaffi, spjall, dagblöðin og fóta-
aðgerðir. Hádegismatur kl. 12, bridds
kl. 13 og kaffi kl. 15.
Hvassaleiti 56–58 | Jóga hjá Sól-
eyju Erlu kl. 9, 10 og 11. Böðun fyrir
hádegi. Fótaaðgerðir sími 588 2320.
Hársnyrting sími 849 8029.
Hæðargarður 31 | Fastir liðir eins og
venjulega. Fimmtudag 8. júní kl. 13–
16.30 er málþing um ofbeldi gegn
öldruðum á vegum Þjónustu-
miðstöðvar Laugardals og Háaleitis í
samvinnu við Félag eldri borgara, Vel-
ferðarsvið Reykjavíkurborgar og
Öldrunarfræðifélags Íslands. Allir vel-
komnir. Uppl. í s. 568 3132.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9–12 aðstoð við
böðun. Kl. 10–12 sund. Kl. 11.45–12.45
hádegisverður. Kl. 12.15–14 versl-
unarferð í Bónus, Holtagörðum. Kl.
13–14 videó/ spurt og spjallað. Kl.
14.30–15.45 kaffiveitingar.
Kirkjustarf
Áskirkja | Samvera kl. 11–12. Hittumst
við kirkjuna kl. 11 og göngum suður
eða austur eftir veðri.
Bessastaðasókn | Foreldramorgnar í
Haukshúsum frá kl. 10–12. Foreldrar
ungra barna á Álftanesi velkomnir.
Dómkirkjan | Hádegisbænastund alla
miðvikudaga 12.10–12.30 Léttur há-
degisverður á kirkjulofti að lokinni
bænastund. Tekið við bænarefnum í
síma 520 9700 og á domkirkj-
an@domkirkjan.is.
Garðasókn | Foreldramorgnar hvern
miðvikudag í sumar kl. 10 til 12.30.
Gott tækifæri fyrir mömmur og börn
til að hittast og kynnast Allir vel-
komnir. Alltaf heitt á könnunni.
Hjálpræðisherinn á Akureyri | Bæn-
arsamvera kl. 12 í hádeginu. Matur í
lok stundarinnar. Allir velkomnir.
Kristniboðssalurinn | Samkoma
verður í Kristniboðssalnum á Háaleit-
isbraut 58–60 miðvikudaginn 7. júní
kl. 20. „Vilt þú eigi láta oss lifna við?“
Birna Gerður Jónsdóttir talar. Kaffi
eftir samkomuna. Allir velkomnir.
Laugarneskirkja | Kl. 10: Mömmu-
morgunn í umsjá sr. Hildar Eirar
Bolladóttur. Kl. 10.30: Gönguhópurinn
Sólarmegin í umsjá Arnar Sigurgeirs-
sonar. Allirvelkomnir að slást í för.
Neskirkja | Fyrirbænamessa kl. 12.15.
Prestur sr. Sigurður Árni Þórðarson.
Beðið er fyrir sjúkum og hverjum
þeim sem þurfa á fyrirbæn að halda
og getur fólk komið óskum þar um til
prestanna. Einnig er altarisganga.
Þessar messur eru yfirleitt um 20
mínútna langar.
Selfosskirkja | Foreldramorgunn í
safnaðarheimilinu kl. 11. Opið hús,
hressing og spjall.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vídalínskirkja.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is