Morgunblaðið - 07.06.2006, Page 44
44 MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
,,ÞAÐ hlustar aldrei neinn á mig –
nema núna“ sagði stelpan sem reið
á vaðið í óvenjulegri leiksýningu
Sögu á Akureyri nú á vordögum.
Þegar ungt fólk fær tækifæri til
þess að tjá sig í frjálsu og skapandi
leiklistarstarfi heyrist oft þessi
rödd, að það er ekki hlustað á ungt
fólk. Undanfarin ár hefur Leik-
klúbburinn Saga á Akureyri fengist
við spuna og frumsköpun í leiklist-
inni undir stjórn leikstjóra sem
skilja hvaða eldur brennur í hjört-
um þeirra sem eiga að erfa landið.
Með Guðjóni Þorsteini Pálm-
arssyni leikstjóra sögðu sjö krakkar
einlægar sögur, beint frá hjartanu.
Sögur þeirra létu engan ósnortinn
og ég hló og táraðist á víxl. Núna
var ekki hefðbundið leikhús en
samt leikhús í sinni tærustu mynd:
Leikarinn var einn með áhorf-
endum í svo pínulitlu rými að nær
varð ekki komist. Krakkarnir töl-
uðu beint til okkar af svo miklu ör-
yggi að ætla mátti að þau væru
þrælvön að koma fram sem leikarar
og uppistandarar. En meira en
helmingur hópsins var óvanur.
Sumar af reynslusögunum voru
sniðnar til, aðrar alveg sannar. All-
ar voru þær mjög áhugaverðar.
Þau töluðu um samskipti og sam-
skiptaleysi; um fyndin atvik; um
sorg og ótta; um erfiða bernsku og
um framtíðardrauma. Þarna krist-
allaðist í leiklistinni allt það sem
mælir með því að nota hana sem
uppeldis-, kennslu og meðferð-
artæki ásamt skemmtun og afþrey-
ingu. Það var gott að vera í leikhús-
inu þetta kvöld.
Einstakt leikhús
LEIKLIST
Leikklúbburinn Saga
Höfundar: Leikhópurinn. Leikstjóri: Guð-
jón Þorsteinn Pálmarsson. Leikarar: Auð-
ur Hannesdóttir, Kristjana Stefánsdóttir,
Margrét Hannesdóttir, Salka Gúst-
afsdóttir, Steinar Halldórsson, Sunna
Björk Ragnarsdóttir,Vala Stefánsdóttir.
Sýning 21. maí 2006
Núna
Hrund Ólafsdóttir
JANA María Guðmundsdóttir
sópran og Kolbrún Sæ-
mundsdóttir píanóleikari
halda ein-
söngstónleika
á morgun,
fimmtudaginn
8. júní, kl.
20.00 í Hafn-
arborg í
Hafnarfirði.
Tónleikarnir
eru liður í
burtfararprófi
Jönu Maríu
frá Söngskól-
anum í Reykjavík, en þar er
hún söngnemandi Dóru
Reyndal.
Á efnisskránni eru m.a. ís-
lensk sönglög eftir Jórunni
Viðar og Ragnar H. Ragnar,
ljóðasöngvar eftir Schumann,
Debussy, Chausson og Fauré
ljóðaflokkurinn I Hate Music
eftir Leonard Bernstein og
aríur úr óperum, m.a. aría
Júlíu úr óperunni Romeo og
Júlía eftir Gounod. Jana
María slær einnig á léttari
strengi og flytur, ásamt þeim
Aðalheiði Þorsteinsdóttur pí-
anóleikarara og Birgi Braga-
syni kontrabassaleikara,
klassísk íslensk dægurlög og
söngleikjalög. Aðgangur er
ókeypis og öllum heimill.
Burtfarar-
prófstón-
leikar í
Hafnarborg
Jana María
Guðmundsdóttir
ANDRÉS Þór Gunnlaugsson hefur
sent frá sér nýjan geisladisk með
frumsaminni djasstónlist sem hefur
hlotið nafnið Nýr dagur. Djass-
kvartett Andrésar leikur á disk-
inum, en auk Andrésar sem leikur á
gítar skipa kvartettinn Sigurður
Flosason á altósaxófón, Valdimar
Kolbeinn Sigurjónsson á kontra-
bassa og Scott McLemore á tromm-
ur.
Nýr dagur er fyrsti geisladiskur
Andrésar í eigin nafni og eingöngu
með frumsömdum verkum hans, en
fyrir tveimur árum kom út diskurinn
It was a very good year með hol-
lensk-íslenska tríóinu Wijnen, Win-
ter & Thor. Á þeim diski var m.a.
verkið Þórdísardans eftir Andrés, en
það var tilnefnt til Íslensku tónlist-
arverðlaunanna 2004 sem djass-
tónsmíð ársins.
Í kvöld verða útgáfutónleikar af
þessu tilefni þar sem Andrés Þór og
djasskvartett hans leika í Hafn-
arborg. Tónleikarnir eru liður í
Björtum dögum í Hafnarfirði og
hefjast klukkan níu.
Tónlist | Útgáfutónleikar í Hafnarborg
Morgunblaðið/ Jim Smart
Jasssveit Andrésar, sem heldur útgáfutónleika í Hafnarborg í kvöld.
Frumsamin djasstónlist
HÁDEGISTÓNLEIKAR verða
haldnir í Hafnarborg kl. 12 í dag.
Fram koma Sigurður Skagfjörð
Steingrímsson baritónsöngvari og
Antonía Hevesi píanóleikari, og
flytja þau aríur og ljóð úr ýmsum
áttum. Aðgangur er ókeypis.
Sigurður
Skagfjörð
Antonía
Hevesi
Harðjaxlar og
mjúkir menn
EFTIR margar vikur af getgátum
um hver yrði ráðinn í starfið, hefur
fyrrverandi seðlabankastjóri Banda-
ríkjanna, Alan Greenspan, loks kom-
ist að niðurstöðu um hver eigi að rita
ævisögu hans, sem kemur út hjá
Penguin-útgáfunni haustið 2007.
Hinn útvaldi er Peter Petre, ritstjóri
á tímaritinu Fortune, en hann hefur
komið að skrifum nokkurra vinsælla
ævisagna, þar á meðal H. Norman
Schwarzkopf hershöfðingja og
Thomasar J. Watson Jr., fyrrum
stjórnarmanns hjá IBM. New York
Times greindi frá þessu í gær.
Greenspan seldi höfundarréttinn
að ævisögu sinni í mars fyrir 8,5
milljónir dollara, um 620 milljónir
króna, og hefur leitað að höfundi til
að skrifa bókina fyrir sig síðan. Ekki
er vitað hve mikið Petre fær greitt
fyrir viðvikið, en vitað er að hann
fékk hálfa milljón dollara, tæpar 37
milljónir, fyrir að skrifa ævisögu
Schwarzkopfs hershöfðingja.
Penguin-útgáfan segir þó að
Greenspan muni sjálfur skrifa frum-
drög og lokaútgáfu bókarinnar.
Petre muni einungis vera honum til
aðstoðar með þessa þætti.
Ekki reyndist sérstaklega auðvelt
að fá einstakling til að taka starfið að
sér, enda er Greenspan þekktur fyr-
ir undarlegt málfar, að því að New
York Times greinir frá. Þannig hafi
deildarstjóri hjá dagblaðinu Wall
Street Journal, sem aðstoðaði
Greenspan við tíu blaðsíðna bók-
arútdrátt og kom til greina sem
meðhöfundur, ekki viljað taka að sér
starfið á þeim kjörum sem honum
voru boðin.
Nokkrar vangaveltur hafa orðið
um hina háu upphæð sem Greensp-
an þáði fyrir útgáfuréttinn, en lög-
fræðingur hans benti á að útgáfan
hefði þegar fengið dágóðan hluta af
henni greiddan, með því að fram-
selja réttinn til útgáfu til meira en
tólf landa, þar á meðal Japan,
Þýskalands og Bretlands.
Ritstjóri skrifar ævisögu Greenspan
FULLKOMIÐ BRÚÐKAUP
Fö 9/6 kl. 20 UPPS. Fö 9/6 kl. 23
Má 12/6 kl. 20 Þri 13/6 kl. 20
GRÍMAN 2006
Íslensku leiklistarverðlaunin 16/6 kl. 19
Grímuballið 16/6 kl. 22 Allir velkomnir
VILTU FINNA MILLJÓN
Fi 8/6 kl. 20 Fö 9/6 kl. 20 UPPS.
Lau 10/6 kl. 20 UPPS. Su 11/6 kl. 20
Fi 15/6 kl. 20 Su 18/6 kl. 20
25 TÍMAR
Dansleikhússamkeppnin 2006
Fi 8/6 kl. 20 MIÐAVERÐ 2.500
Aðeins þetta eina kvöld!
Miðasala í síma 4 600 200 / www.leikfelag.is
MIÐASALA OPIN
ALLAN SÓLAR-
HRINGINN Á NETINU.
Litla hryllingsbúðin – aukasýningar í september!
Vegnar mikillar aðsóknar: Aukasýningar í september!
Lau 2/9 kl. 19 AUKASÝNING – örfá sæti laus
Sun 3/9 kl. 20 AUKASÝNING – nokkur sæti laus
Fös 8/9 kl. 19 AUKASÝNING – örfá sæti laus
Lau 9/9 kl. 19 AUKASÝNING – nokkur sæti laus
Fullkomið brúðkaup – Borgarleikhúsinu. Sýningar í fullum gangi.
Litla hryllingsbúðin – Íslensku óperunni. Sýningar í fullum gangi.
Leiklistarnámskeið á Akureyri í júní.
rauð tónleikaröð í háskólabíói
SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS
Hljómsveitarstjóri ::: Rumon Gamba
Einleikari ::: Sigrún Eðvaldsdóttir
FIMMTUDAGINN 8. JÚNÍ KL. 19.30
Áskell Másson ::: Fiðlukonsert
Dímítríj Sjostakovítsj ::: Sinfónía nr. 11
FL Group er aðalstyrktaraðili
Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Panic
Productions
í samstarfi við
Hafnarfjarðarleikhúsið
kynnir tvö dans/leikhús
verk:
Forsýning
9. Júní kl. 20
Frumsýning
10. Júní kl. 20
Síðasta sýning
11. Júní kl. 20
RAUÐAR LILJUR
No, he wAs whIte
AÐeINs 3 sýNINgAR
MIÐASALA:
Sími 555 2222
midi.is www.hhh.is
! " #
$$$
%
!"#$ !%
&'
' ( ) *' + , -**& .
&
/0' 1' ( ) *' + , & .
& ' ' ( ) *' + , & .
/0' ' ( ) *' + , & .
& ' 1' ( ) *' + , & .
/2' 3' ( ) *' + , & .
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111