Morgunblaðið - 07.06.2006, Side 52
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
endurskoðun
reikningsskil
skattar / ráðgjöf
www.ey.is
HÁLSLÓN við Kárahnjúkavirkj-
un fyllist ekki af aurburði á 400–
500 árum eins og gert hefur verið
ráð fyrir, heldur á nokkur þúsund
árum. Þetta kemur til vegna þess
að Brúarjökull bráðnar vegna
hlýnandi loftslags á næstu 100–
200 árum, að því er fram kemur í
niðurstöðum þeirra Birgis Jóns-
sonar, Jónasar Elíassonar og Sig-
urðar Magnúsar Garðarssonar,
fræðimanna við verkfræðideild
Háskóla Íslands, en þær voru
kynntar í erindi á ráðstefnu á
Hótel Nordica í gær.
Gert hefur verið ráð fyrir því
að Hálslón fyllist af aurburði á
400–500 árum en þá var ekki tek-
ið tillit til bráðnunar Brúarjökuls.
Sigurður Garðarsson dósent
segir að í rannsókninni hafi verið
sett upp líkan af bráðnun jökuls-
ins.
„Þegar jökullinn minnkar, þá
minnkar aurburðurinn frá jöklin-
um inn í Hálslón. Það mun hægja
mikið á þessum aurburði og þess-
ar niðurstöður benda til þess að í
stað þess að verða fullt á 500 ár-
um verði lónið aðeins hálffullt þá,“
segir Sigurður.
Hann tekur fram að töluverð
óvissa sé í reikningum um hvenær
nákvæmlega lónið fyllist en það
verði að minnsta kosti eftir nokk-
ur þúsund ár.
Dreifðara vatnsmagn í ánni
Loftslagsbreytingar munu einn-
ig hafa nokkur áhrif á Jökulsá á
Dal og segir Sigurður að þar
muni veðurfar hafa áhrif. „Það er
verið að skoða þetta sem stendur
en sennilega verður meira vatns-
magn í ánni og eins verður það
jafndreifðara yfir árið heldur en í
dag.
Ástæðan fyrir því að Hálslón er
svona stórt er að allt rennslið
kemur á sumrin og það er verið
að miðla því yfir allt árið, þannig
að ef úrkoman dreifist meira yfir
árið þarf ekki jafnstórt lón,“ segir
hann og bætir við að mikilvægt sé
að hafa í huga að langt sé í að
þessar breytingar verði.
Jákvæð áhrif
Friðrik Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar, segir að gangi
spár um hlýnun eftir muni það á
næstu tugum eða hundruðum ára
hafa jákvæð áhrif á vatnsafls-
virkjanir. Hann segir að þegar
Landsvirkjun hafi gefið út skýrslu
sína um mat á umhverfisáhrifum
vegna Kárahnjúkavirkjunar hafi
verið miðað við óbreytta bráðnun
Brúarjökuls og farið mjög varlega
í að spá til framtíðar.
„Gangi hins vegar þessar hlýn-
unarspár eftir, sem komu fram á
ráðstefnunni í dag, þá verður ork-
an auðvitað meiri í núverandi jök-
ulvatnsvirkjunum og lónin duga
miklu lengur en ráð hefur verið
fyrir gert.
Þessu til viðbótar má ekki
gleyma því að virkjun vatnsafls
og nýting annarra endurnýjan-
legra orkugjafa vinnur gegn hlýn-
un andrúmsloftsins,“ segir Frið-
rik.
Nýjar rannsóknir á áhrifum loftslagsbreytinga á bráðnun Brúarjökuls
Telja að Hálslón fyllist
á nokkur þúsund árum
Eftir Árna Helgason
arnihelgason@mbl.is
Lónið fyllist | 8
ALFREÐ Gíslason, þjálfari íslenska landsliðsins í
handknattleik, og aðstoðarmaður hans, Guðmundur
Þ. Guðmundsson, lifðu sig inn í vináttuleikinn gegn
Dönum í gær en þá stjórnaði sá fyrrnefndi liðinu í
fyrsta sinn. Vettvangurinn var hinn gamli heimavöll-
ur Alfreðs, KA-heimilið á Akureyri, og olli hann
sveitungum sínum ekki vonbrigðum fremur en
endranær enda þótt sigurinn væri naumur að þessu
sinni, 34:33. Íslenska liðið var með yfirhöndina nán-
ast allan tímann og hafði yfir í leikhléi, 18:17. Þjóð-
irnar mætast öðru sinni í Laugardalshöll annað
kvöld. | Íþróttir
Morgunblaðið/Þórir Ó. Tryggvason
Eldskírn Alfreðs Gíslasonar
lauk með sigri á Akureyri
GREININGARDEILD Danske
Bank telur að tilkynning alþjóða
matsfyrirtækisins Standard &
Poor’s um breytingu á horfum um
lánshæfismat ríkissjóðs úr stöðug-
um í neikvæðar sé slæm fyrir ís-
lenskan fjármálamarkað. Þetta kom
fram í tilkynningu frá bankanum í
gær. Þar segir að líkur á harðri
lendingu í íslensku efnahagslífi hafi
aukist. Hins vegar er efast um að
tilkynning Halldórs Ásgrímssonar
um að hann muni hætta í stjórnmál-
um muni leiða til mikilla breytinga á
peningamálastefnu Íslands.
Í frétt í breska viðskiptablaðinu
Financial Times segir að forsætis-
ráðherraskipti, þar sem Geir H.
Haarde taki við, muni stuðla að
stöðugleika á þeim óróleikatímum
sem nú séu í íslensku efnahagslífi.
Úrvalsvísitala aðallista Kauphall-
ar Íslands lækkaði um 1,8% í gær og
gengi krónunnar veiktist um 2,2%.
Töldu sérfræðingar þetta vera við-
brögð við tilkynningu Standard &
Poor’s frá því í fyrradag. | 12
Auknar
líkur á
harðri
lendingu
SJÁLFSTÆÐISMENN og framsóknar-
menn í nýrri borgarstjórn Reykjavíkur
ráða nú ráðum sínum um útfærslu sam-
starfsins og skiptingu í embætti og stöður.
Gert er ráð fyrir að þeir geri grein fyrir
stöðunni í lok vikunnar en nýr meirihluti
tekur við völdum á þriðjudag. Í gær var síð-
asti fundur fráfarandi borgarstjórnar.
Áreiðanlegar heimildir Morgunblaðsins
herma að það sé ekki rétt sem haldið hefur
verið fram, að framsóknarmenn fái stjórn
Faxaflóahafna og sjálfstæðismenn Orku-
veituna. Hið rétta í málinu mun vera að
þetta fyrirkomulag verði haft á tvö fyrstu ár
kjörtímabilsins en að þeim loknum fái fram-
sóknarmenn stjórn Orkuveitunnar og sjálf-
stæðismenn Faxaflóahafnir.
Stjórn Orku-
veitunnar
skipt á milli
flokkanna
BANDARÍSKUR uppboðshaldari mun í
vikunni bjóða upp umslag með þremur ís-
lenskum frímerkjum. Upphafsboð um-
slagsins er 90 þúsund dollarar eða um 7,5
milljónir íslenskra króna.
Um er að ræða umslag sem sent var frá
Íslandi til Kaupmannahafnar á seinni
hluta 19. aldar en það ber eitt tveggja
skildinga frímerki ásamt pari af þriggja
skildinga frímerkjum. Það eru einkum
þau síðarnefndu sem gera umslagið verð-
mætt en það er hið eina þekkta þar sem
notað er þriggja skildinga frímerki.
Að sögn Brynjólfs Sigurjónssonar, for-
manns Félags frímerkjasafnara, munu frí-
merkin líklega vera með þeim dýrari sem
gefin hafa verið út á Íslandi en íslensk frí-
merki hafi ávallt verið vinsæl meðal safn-
ara erlendis. Bæði sé upplagið lítið en
einnig séu öll íslensk frímerki á einhvern
hátt tengd landi og þjóð. „Menn fá þá
ákveðna innsýn í þjóðarvitundina með því
að skoða frímerkin.“
Umslagið verður boðið upp hjá upp-
boðshaldaranum Cherrystone hinn 8. júní.
Umslagið sem boðið verður upp í vikunni.
Upphafsboð er um 7,5 milljónir króna.
Íslenskt um-
slag metið á
7,5 milljónir
UNNIÐ er að forrannsókn á fýsileika þess
að stofna heilsulind við Vatnajökul. Stella
Sigfúsdóttir, alþjóðafulltrúi bandarískra
heilsulindarsamtaka, fékk til verkefnisins
frumkvöðlastuðning frá Impru og stefnir að
því að kynna niðurstöðurnar fyrir heima-
mönnum og forsvarsmönnum atvinnulífsins
næsta haust.
Stella segir að þótt Íslendingar státi af
heilsulindum á við Bláa lónið og Heilsu-
stofnun Náttúrulækningafélagsins í Hvera-
gerði þá eigi þeir fjölmarga ónýtta mögu-
leika sem nýta megi í uppbyggingu
heilsulinda hérlendis. Hún nefnir sem dæmi
jöklana, jarðvarmavatnið, náttúrufegurðina
og norðurljósin. | 20
Heilsulind við
Vatnajökul?
♦♦♦
BANASLYS varð á Elliðavatns-
vegi, skammt frá mótum Kaldár-
selsvegar, á tólfta tímanum í gær-
kvöldi. Samkvæmt upplýsingum
frá lögreglunni í Hafnarfirði var
fólksbifreið ekið Elliðavatnsveg í
átt að Hafnarfirði, svo virðist sem
ökumaður hafi misst stjórn á bíln-
um með þeim afleiðingum að hann
hafnaði utan vegar. Tveir karl-
menn voru í bifreiðinni og var ann-
ar þeirra úrskurðaður látinn á
vettvangi. Hinn var fluttur á slysa-
deild Landspítala – háskólasjúkra-
húss en óvíst var með líðan hans
þegar Morgunblaðið fór í prentun.
Banaslys á
Elliðavatnsvegi
♦♦♦